Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 26
ATVINNA/RAÐ/SMA
MORqUNBLAÐJg ,
26 g., SUNNWAGUB32,.MAÍ 1994.
Iðnskóllnn í Reykjavík
SUMARSTARFSNAM 1994
Nú í sumar verður starfræktur sumarskóli í
Iðnskólanum í Reykjavík. Skólinn verður
starfræktur frá 13. júní til 12. ágúst og fer
skráning fram í Iðnskólanum og Hinu Húsinu frá
24. - 31. maí næstkomandi. Skilyrði fyrir
þátttöku er að umsækjandi sé á atvinnuleysisskrá
og á aldrinum 16-25 ára. Nemendur fá
greiddar 30.000 kr. á mánuði fyrir þátttöku í
verkefninu.
PFiTjl RiT'AUDARltl A’MSiBiRAUjTll R
SUŒl 5 SŒKHfe
Tiítiiinamin •
B.Q.K'AIÐ.NA
TJTJITl
MAUMIONAO.U.R
KAIAUJNAIIU.BirW.I T'G.RfA IIAR— ■MA’TiUffWIÐN AÐU.R
S;N iYjR íTlllÐfl A;0 U P.
lÍMEÉIJI
RAFllONAO.U.R
Auk ofantalinna iðngreina verður boðið upp á
fjölbreytt námskeið sem tengjast skólagöngu,
þátttöku á vinnumarkaði, daglegu lífi fólks og
félagslífi. Allar nánari upplýsingar eru veittar f
Iðnskólanum í síma 26240 og í Hinu Húsinu
síma 624320.
Innritun fer fram eins og áður sagði 24. - 31. maí
frá kl. 10 -16 í Iðnskólanum og Hinu Húsinu.
Reykjavíkurborg
- kjarni málsins!
FRÉTTIR
Útflutning’ur vik-
urs og1 vatns frá Rifí
ÚTFLUTNINGUR á ljósum vikri til Þýskalands hefst frá Rifi innan
skamms, en að sögn Gunnars Más Kristóferssonar sveitarstjóra í Nes-
hreppi utan Ennis hefur sveitarfélagið samið við þýskt fyrirtæki um 50
þúsund tonna árlegan útflutning næstu fjögur árin. Þá er líklegt a'ð út-
flutningur á vatni til Bandaríkjanna hefjist frá Rifi í sumar, en stofnað
verður hlutafélag með aðild Snæfellsbæjar, hins nýja sameinaða sveitarfé-
lags, bandarísks fyrirtækis og íslenskra aðila. Áætlað er að samtals fái
24-30 manns vinnu við þessa atvinnustarfsemi.
Hestasýkingin
Ekki spillt
fyrir út-
flutningi
ENGIN hætta er talin á að sýk-
ingin sem kom upp í nokkrum
hestum í Víðidal spilli fyrir út-
flutningi á íslenskum hestum.
Helgi Sigurðsson dýralæknir
sagði að þessi herpesveira sem
fannst í hrossunum sé í hrossum
út um allan heim. Hann sagði
að erlendum kaupendum þætt.i
jafnvel betra að vita af því að
hrossin hafi í sér mótefni fyrir
herpesveiru því að þá veikist þau
ekki þegar þau komi út, en það
gera þau yfirleitt alltaf. Erlendir
hestamenn kalla þá veiki Islands-
veiki.
Helgi sagði að í Evrópu væri
stöðugt verið að bólusetja hesta
fyrir hvers konar sjúkdómum
sem ekki finnast hér á landi.
Hann sagði að allir hestar sem
fluttir séu út frá íslandi séu bólu-
settir um leið og þeir komi út.
Það sé hins vegar ekki hægt að
bólusetja fyrir þessari tegund
herpesveirunnar og þess vegna
veikist íslensku hestamir yfirleitt
eftir að þeir koma út.
Gunnar Már sagði í samtali við
Morgunblaðið að vikurinn sem tekin
verður úr vikurhólum skammt ofan
við Rif yrði flokkaður og þveginn
en fluttur laus út til Þýskalands þar
sem hann verður notaður í bygging-
arefni. Hann sagði að undirbúning-
ur að þessu hefði staðið nokkuð
lengi.
Nóg af ónýttu húsnæði
Hreppsnefnd Neshrepps utan
Ennis gerði samning við bandarísk-
an aðila í fyrra um sölu á vatni,
en staðið hefur á því að bandarísku
aðilarnir uppfylltu sinn hluta samn-
ingsins. Sagðist Gunnar Már búast
við að þeir myndu gera það í næsta
mánuði, og starfsemin gæti hafist
í sumar. Notaðar verða átöppunar-
vélar í eigu bandaríska aðilans, en
þær eru tilbúnar til afgreiðslu er-
lendis. Gunnar Már sagði sveitarfé-
lagið þafa lagt þó nokkurn pening
í undirbúning þessa verkefnis, en
hann vildi ekki gefa upp á þessu
stigi um hve mikinn vatnsútflutning
yrði að ræða.
„Við fáum mjög gott vatn úr
vatnslindum bæjarins, en það hefur
verið rannsakað ítarlega. Það er
nóg til af ónýttu fiskvinnsluhús-
næði hérna, og höfum við verið að
huga að því að koma átöppunar-
verksmiðjunni fyrir í einhveiju
þeirra. Hlutafélag verður stofnað
um reksturinn og mun hrepps-
nefndin eiga í því til að byrja með
ásamt bandaríska aðilanum og ís-
lenskum aðilum," sagði Gunnar
Már.
HEILBRIGÐIS- og
tryggingamálaráðherra
hefur 17. maí 1994 skip-
að Júlíus Valsson, lækni,
tryggingayfirlækni frá 1.
júní 1994 að telja.
Um stöðuna sóttu 18
læknar. Þeir eru; Bryn-
leifur Steingrímsson,
Gauti Arnþórsson, Guð-
brandur Þorkelsson, Guð-
mundur I. Sverrisson, Gunnar Ingi
Gunnarsson, Hrafn V. Friðriksson,
Jón K. Jóhannsson, Júlíus Valsson,
Magnús Guðmundsson, Ólafur H.
Oddsson, Páll B. Helgason, G.
Snorri Ingimarsson, Vigfús Magn-
ússon, Vilhjálmur Rafnsson og Þór-
arinn Ólafsson. Þrír um-
sækjenda óskuðu nafn-
leyndar.
Júlíus Valsson er
fæddur 23. október 1953.
Hann lauk læknaprófi frá
Háskóla íslands í júní
1982. Hann fékk íslenskt
lækningaleyfi í mars
1985 og í Svíþjóð í nóv-
ember 1987. Júlíus hlaut
sérfræðiviðurkenningu í gigtar-
sjúkdómum og embættislækning-
um á íslandi og í Svíþjóð í febrúar
1991. Hann hefur starfað sem
tryggingalæknir frá júlí 1990 og
var settur tryggingayfirlæknir í lok
síðasta árs.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hreinsað í Eyjum
Vestmannaeyjum - Sjálfstæðis-
félögin héldu árlegan hreinsun-
ardag fyrir skömmu. Farið var
víðsvegar um Heimaey og rusli
safnað saman. Um 70 inanns tóku
þátt í hreinsuninni en síðan var
boðið upp á grillaðar pylsur og
drykki fyrir utan Ásgarð, félags-
heimili sjálfstæðismanna.
Nýr trygginga-
yfirlæknir skipaður
Júlíus Valsson
UTIVIST
Hallvcigarstig 1 • simi 614330
Dagsferð sunnud. 22. maí
Kl. 10.30 Grænadyngja.
2. áfangi lágfjallasyrpu.
Brottför frá BSÍ bensínsölu.
Kynning á ferðum sumarsins
verður fimmtudaginn 26. maí.
Fararstjórar kynna ferðir sum-
arsins og verða til viðtals um
útbúnað og fleira sem tengist
ferðunum. Hægt verður að skrá
sig ( feröir. Kynningin hefst kl.
20.00 í salnum á Hallveigarstíg
1 og eru allir velkomnir.
Dagsferö sunnud. 29. maf kl.
10.30 Klóarvegur. . . .
Utivist.
VEGURINN
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Almenn samkoma kl. 20.00 á
mánudagskvöld 23. maí nk.
Allir velkomnir.
„Óttast þú eigi, þvi að ég er
með þér. Lát eigi hugfallast,
því að ég er þinn Guð.“
Smfl auglýsingar
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
S5?
fomhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Fjölbreyttur söngur. Samhjálp-
arkórinn tekur lagiö. Barna-
gæsla. Vitnisburðir. Ræðumaður
Oli Ágústsson. Kaffi að lokinni
samkomu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682S33
Dagsferðir Ferðafélags-
ins um hvítasunnuna:
Sunnudagur 22. maí kl. 13.00.
Strandarkirkja-Hveragerði,
Ökuferð. Fyrst verður ekið í
Selvog og til baka um Hvera-
gerði. Verð kr. 1.600,-.
Mánudagur 23. maf; Á. kl. 10.30
Hrútagjá-Mávahlíðar-
Höskuldarvellir. Gengið frá
Sveifluhálsi, yfir Hrútagjá að
Mávahlíðum og áfram í Sóleyjar-
krika (Höskuldarvöllum).
B. kl. 13.00 Kúagerði-Tóastíg-
ur. Gengið um Tóurnar,
skemmtileg gróðursvæði I Af-
stapahrauni. Á milli þeirra er
gömul leið Tóastígur. Verð kr.
1.100,- frítt fyrir börn m/fuliorðn-
um. Brottför í ferðirnar er frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin og Mörkinni 6.
Miðvikudaginn 25. maí kl.
20.00: Sólarlagsganga á
Vatnsleysuströnd.
Ferðafélag Islands.
\ \ 77
f
SÍK, KFUM/KFUK, KSH
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma Annan hvítasunnu-
dag kl. 20.00 í Kristniboðssaln-
um. Ræðumaður: Klara Lie frá
Noregi. Athugið að engin sam-
koma er (kvöld, hvítasunnudag.
Allir eru velkomnir.
Islenskir fjallaleiðsögumenn:
Gönguleiðsögn
Laugardagur 2/7 til sunnudags
10/7: Lakagígar - Síðujökull -
Núpsstaðaskógar - Grænalón -
Skeiðarárjökull - Skaftafell. 9
daga bakpokaferð um stórkost-
legt landslag. Verðum einnig
með í allt sumar 4ra daga bak-
pokaferð úr Núpsstaðaskógum
í Skaftafell um Grænalón og
Skeiðarárjökul. Brottfarir eftir
beiðni. Upplýsingaríslma 11069
og 11392 og 985-42959.
Söfnuðurinn Elím,
Grettisgötu 62
Kristilegar samkomur:
Sunnudaga kl. 17.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
§Hjálpræðis-
herinn
0 Kirkjustræti 2
Kl. 16.00 útisamkoma á Lækjar-
torgi, ef veður leyfir.
Kl. 17.00 hermannasamkoma.
Kl. 20.00 hjálpræðissamkoma,
hermannavígsla. Eyfinn og
Bernhard frá Færeyjum syngja
og vitna. Major Anne Gurine og
Daníel Óskarsson stjórna og tala
á samkomum dagsins.
Mánudaginn 23. maí kl. 16.00
útitónleikar Gospelkórsins á Ing-
ólfstorgi.
AuMirekka 2 . Koptmigur
Við verðum á móti í Hlíðardals-
skóla um helgina.
Gleðilega hvítasunnuhelgl.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Gleðilega hátTð!
Samkoma og sunnudagaskóli kl.
11.00. Allir hjartanlega velkomnir!
Sjónvarpsútsending á OMEGA
kl. 16.30.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Dagskrá hvítasunnumóts f
Reykjavík.
Hátíðarsamkoma kl. 14.00.
Fíladelfíukórinn ásamt einsöngv-
urum syngur undir stjórn Óskars
Einarssonar. Einnig mun lof-
gjörðarhópurinn syngja. Ræðu-
maður Vörður Traustason frá
Akureyri.
Allir hjartanlega velkomnir.
Við minnum á sjónvarpsútsend-
ingu á áður upptekinni sam-
komu á RÚV í dag kl. 17.00.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Mánudagur 23. maí:
Útvarpsguðþjónusta send út
beint frá Fíladelfíu kl. 11.00.
Mikill söngur. Ræðumaður
Snorri Óskarsson. Strax að út-
sendingu lokinni verður brauðs-
brotning og mótsslit.
Nýja
postulakirkjan
Islandi,
Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta sunnudag kl.
11.00. „Þetta er verk Guðs að
þér trúið á þann sem hann
sendi."
Verið velkomin i hús Drottins.
Franskur karlmaður,
33 ára gamall, prófessor og þýð-
andi, óskar að kynnast huggu-
legri íslenskri konu með nánari
kunningsskap I huga. Sendið
svar inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Ást - 1111".
Verslunin Jata auglýsir
Tilboð maímánaðar
Tilboð 1: Ef þú kaupir þrjá geisla-
diska, færðu fjórða diskinn frían.
Tilboð 2: Ef þú kaupir tvo geisla-
diska, færðu eina kassettu fría.
Athugið: Þetta tilboð stendur
til 6. júnf.
Opið virka daga frá kl. 9-18.
Laugardaga frá kl. 10-13.
Jata - fyrir þig.
l/erslunin
Hotun2 105 Reyk/avik
Hátúni 2,
sími 25155.