Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 30
30 B SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SAMSAFIMIÐ
ÚR MYNDASAFNINU
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Endumgsla
LágafeUskirkju
Lágafellskirkja var endurvígð við hátíðlega athöfn sunnudaginn 29.
júlí árið 1956. Kirkjan hafði þá verið stækkuð og settur við hana
nýr kór og skrúðhús og lögð í hana hitaveita. í tilefni af endurvígsl-
unni bárust kirkjunni góðar gjafír, meðai annars skírnarfontur til minn-
ingar um séra Hálfdán Helgason, en Guðmundur frá Miðdal gerði laug-
ina. Biskupinn yfír Íslandi, herra Ásmundur Guðmundsson, framkvæmdi
vígsluathöfnina og flutti snjalla ræðu við það tækifæri, að því er segir
í samtímaheimildum. Að lokinni vígslu skírði sóknarpresturinn, séra
Bjami Sigurðsson, tvö sveinböm. Mikill mannijöldi var viðstaddur vígslu-
athöfnina samkvæmt frétt Morgunblaðsins frá þessum atburði.
FÓLKIÐ
spjallar sam-
an í góða
veðrinu áður
en gengið er
til kirkju.
GENGIÐ úr kirkju. Fremstir í flokki kennimanna eru biskupinn yfir íslandi, herra Ásmundur
Guðmundsson, og sóknarpresturinn, séra Bjarni Sigurðsson.
TVÖ sveinbörn voru skírð að
lokinni vígsluathöfninni og eftir
því sem við komumst næst var
annar drengurinn skírður Hálf-
dán og er Jónsson og hinn Eirík-
ur Stefánsson.
BISKUP íslands, herra Ás-
mundur Guðmundsson, og
sóknarpresturinn, séra
Bjarni Sigurðsson, þjónuðu
fyrir aitari.
'
FJOLSKYLDUHELGI
á Jarlinuin, Sprengisandi
þ.e. laugardag, sunnudag og 2. í hvítasunnu.
Barnaboxin vinsælu
Innihald: Hamborgari, franskar og kók + aukaglaðningur.
Verð aðeins ^Cgkrónur.
(Bömln séu í fylgd með mstargesti).
MEST SELDU STEIKUR Á ÍSLANDI
Verðfrá ki'ónum.
Vinsælasti salatbarinn í bænum.
Þig megið til með að próf ’ann!
*
ÞANNIG...
RUGLA MENN SAMAN KRÍU OG HETTUMÁV
Minni og enn frekarí
Ivetrarlok er menn eru orðnir
meira en fullsaddir af vetri
konungi og eru famir að þrá vor-
og sumarkomuna, fara þeir að líta
eftir vorboðum. Eins og áður hefur
verið vikið að þá er vorboðinn ljúfi
ekki aldeilis lóa eða þröstur, held-
ur einn af óvinsælli fuglum lands-
ins, sílamávurinn. Það dæmist
þannig af því að hann er fyrstur
farfuglanna til að koma til lands-
ins eftir vetrardvöl annars staðar.
Menn varpa þó ekki þresti og lóu
fyrir róða fyrir sílamáv. Hvað þá
kríunni, sem er ein af öruggustu
vísbendingunum um að sumarið
er sannarlega komið. Kannski
vegna þess að krían er bæði af-
skaplega áberandi fugl og svo er
hún með síðustu farfuglunum til
að skila sér, kemur yfirleitt fyrstu
dagana í maí. Engu að síður má
það heita árvisst að menn rugli
saman kríu og hettumáv. Hefur
það gengið svo langt að dagblöð
hafa birt myndir af hettumávum
með þeim textum að loksins sé
blessuð krían komin!
Þetta gerist af þeirri einföldu
ástæðu að margt er eigi ósvipað
með hettumáv og kríu. Samt sem
áður er munurinn svo mikill að
glöggir athugunarmenn eru aldrei
í vafa. Hettumávurinn er með
HETTUMÁVUR og kría. Hvort
er hvað?
grátt bak eins og krían, dökka
hettu og rautt nef. Rauða fætur.
Og af máv að vera er hann lítill.
Raunar ekki svo miklu stærri en
kría. Og hijúft garg hans er eigi
ósvipað og hið fræga frekjugarg
kríunnar. Þá er þessi ruglingur
þannig tilkominn, að síðustu vik-
urnar áður en að krían kemur til
landsins og menn eru kannski
farnir að bíða hennar, tekur hett-
umávurinn miklum breytingum. Á
haustin missir hann hettuna sína
kaffibrúnu og fer í hópum. Hluti
stofnsins er staðbundinn hér á
landi og í hópum nærri sjó. Eitt-
hvað af Tjarnarmávunum eru þar
einnig á sveimi á veturna. En á
vorin, nokkru áður en krían kemur
úr suðurhöfum, fær hettumávur-
inn nýja kaffibrúna hettu. Hann
fer þá að vera meira áberandi og
röddin er eins og gróft kríugarg.
Þegar krían kemur til landsins í
byijun maí og sækir í sömu kjör-
lendin verða margir rauðir í fram-
an sem hafa talið sig sjá kríur
vikumar á undan. En þetta er svo
sem ekkert til að skammast sín
fyrir.
Þegar krían er komin fer ekki
á milli mála hvor er hvor. Miklu
nettari fugl og röddin geðþekka
engri lík!