Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994 B 9 mount mun næstum tvöfalda frum- sýningar frá fyrra ári, 1994 verða þær a.m.k. 25. TRISTAR „Margur er knár ...“ sannast hér því TriStar er minnstur dreif- ingarrisanna en var engu að síður með hæstu hagnaðarpró- sentuna. Hér virðist lagt meira uppúr gæðum en magni og menn hafa álit á Mike Medavoy, þeim sem heldur um stjórnartaum- ana. Það voru tvær myndir sem öðr- um fremur skópu þennan afbragðs- árangur. Vinsældir Svefnlaus í Se- attle komu á óvart og Á ystu nöf sannaði að Sylvester Stallone hefur enh aðdráttarafl þrátt fyrir margan skellinn á undanförnum árum. Aðrar kolféllu. Morðgáta á Manhattan var þeirra á meðal, þrátt fyrir góða dóma og markar hún endalok starfsferils Woody Allens hjá kvikmyndaverinu. Ég giftist axarmorðingja, Helgarfrí hjá Bernie II og Look Who’s Talkin Now voru rakkaðar niður á öllum vígstöðvum. Tvær vandræðamyndir, Wilder Napalm og Herra Jones, sem TriStar kom sér ekki til að sýna árið 1992, voru frumsýndar í fyrra með þeim afleita árangri sem við var búist. Bjartasta vonin í ár er tvímælalaust aðaljólamynd kvik- myndaversins, Fíladelfía, fyrsta stórmyndin um eyðni þar sem Tom Hanks leikur homma sem greinst hefur með sjúkdóminn og Denzel Washington lögfræðinginn hans. Þessi nýjasta mynd Jonathans Dem- mes hefur hiotið geipiaðsókn og Hanks hlaut Óskarsverðlaunin fyrir aðalhlutverkið. Árið 1993 frumsýndi TriStar 13 myndir sem kostuðu að meðaltali aðeins 18,5 millj. dala en innbyrtu að jafnaði 33,9 millj. Svo hagnaðarhlutfallið var öfundsvert, eða 83%! NEW LINE / FINE LINE Það má reikna með að þetta litla fyrirtæki (miðað við risana á undan) braggist í ár þar _____________ sem kapalmynda- FFineLine og fréttakóngurinn Features Ted Turner eignað- ist það á síðasta ári i AMn«fNr»UMOrMna og hefur nú tekið við stjórninni. Hann mun örugglega upphefja ímynd þess en lifibrauðið á þessum bæ hefur verið harla fá- skrúðugt, með nokkrum athyglis- verðum undantekningum. Þær myndir sem héldu fyrirtækjunum gangandi í fyrra voru National Lampoon’s Loaded Weapon I, Tee- nage Mutant Ninja Turtles III, Jason fer til vítis — síðasti föstudagurinn og ein mynd þeirra, Menace II Soci- ety, hlaut bæði góða aðsókn og frá- bæra dóma. Gettysburg, Leolo (sýnd á kvikmyndahátíðinni í okt.) og Short Cuts eftir Robert Altman hlutu einnig afbragðsviðtökur hjá gagn- rýnendum en fóru fyrir ofan garð og neðan hjá almenningi. En þær voru fleiri sem stóðust ekki prófið. Three of Hearts, Surf Ninja’s, Ex- cessive Forse og Wide Saragasso Sea kolféllu á öllum vígstöðvum Á þessu ári binda menn vonir við The Mask, Corrina, Corrina með Whoopi Goldberg og nýjasta mynd Gus Van Sants, Even Cowgirls Get the Blues birtist loks á tjaldinu í snemma sumars. New Line/Fine Line, sem er stærst hinna svokölluðu sjálfstæðu framleiðenda fyrir vestan og jók veltuna um heil 80% 1993 mun frumsýna í námunda við 20 myndir í ár, svipaðan fjölda og í fyrra. MIRAMAX Sem kunnugt er sérhæfir Mira- max sig í dreifingu og framleiðslu listrænna mynda, með undantekn- ingum þó. Miðað við undanfarin ár var 1993 frekar dauft. Hin góða útkoma þess 1992, með Ljótan leik í fararbroddi afbragðsmynda, varð til þess að Disney keypti fyrirtækið með húð og hári og eru það kannski bestu fréttimar af þeim bænum ásamt Píanóinu, sem Miramax dreif- ir í Norður-Ameríku og naut góðs gengis við Óskarsverðlauna- afhendinguna. Aðrar myndir sem sýndu hagnað voru aðeins þrjár, Children of the Corn II, The Fortr- ess og Kryddlegin hjörtu. Næstum allar aðrar myndir Mira- max í fyrra ollu vonbrigðum, a.m.k. miðasölunni. Mestar vonir voru bundnar við Til vesturs, sem kolféll líkt og Map of the Human Heart, House of Cards og Tom og Jerry — kvikmyndin, svo þær einar séu nefndar sem sýndar hafa verið hér- lendis. Það verða nokkrar forvitnilegar myndir frumsýndar í ár, þ.á m. nýj- asta mynd Seans Penns sem leik- stjóra og handritshöfundar og nefn- ist hún The Crossing Guard. Robert Altman kemur með Pret-a-Porter og Quentin Tarantino Pulp Fiction. Dýrast verður Hálendingurinn III, sumarmyndin í ár. MGM/UA Þetta ljón hefur öskrað eitt útí nóttina um langt árabil og skotið engum skelk í bringu. Það voru dregn- ar úr því tennurnar af mörgum fjárplógsmönnum sem það gekk á milli á þessum tíma og hugsuðu um það eitt að reyta af því eigurnar. Seldu nánast allt nema nafnið og sameinuðu MGM öðru gamalgrónu kvikmyndaveri, United Artists. í fyrra urðu þáttaskil, Alan Ladd jr., var rekinn og mikilsvirtur stjóm- andi, Frank Mancuso, ráðinn frá Paramount. Þetta var verk stórbank- ans Credit Lyonnais, stjórnendur hans sáu ekki betri ráð útúr þeim fjárhagslegu ógöngum sem fyrrver- andi eigendur voru búnir að koma þeim í. Best sótta mynd MGM í fyrra, Benny og Joon, sló svo sem engin aðsóknarmet, en hún og Ótamin hjörtu skiluðu þó hagnaði. Hinar 10 stóðu ekki undir sér. Madonnumynd- in Body of Evidence, Rich in Love, Meteor Man, Sonur Bleika pardus- ins, Flight ofthe Innocent, Banvænt eðli — Fatal Intinct og Njósnaranir, allar ollu þær hugarangri og urðu síst til þess að endurvekja virðingu ijónsins. Betri tíð hlýtur að vera í nánd og gott ef 1994 á ekki eftir að verða tímamótaár í sögu MGM og UA. Nýir húsbændur hyggjast sýna 17. James Bond myndina í ár, That’s Entertainment III, Hackers og Higg- ins and Beech. Vonir eru bundnar við Blown Away, nýjustu mynd Tommy Lee Jones og Jeff Bridges, endurgerð The Mechanic og mynd sem Robert Duvall bæði leikur í og framleiðir og þefur ekki enn hlotið nafn. SAMUEL GOLDWYN, GRAMERCY, SAVOY Samuel Goldwyn, stærst þessara þriggja smáfyrirtækja, dreifði mynd Kenneths Bra- V naghs, Ys og þys útaf engu. Hún var eina tromp þess í ár ef undan er skilin örlítil velgengni Brúðkaupsveislunnar. Stórtap var á öðrum myndum, m.a. Mac, gerðri af leikaranum John Turturro, Stolnu börnunum og Baraka. Hjá Goldwyn eygja menn von í ár í næstu mynd leikstjórans Spike Lee og The Perez Family eftir indverska leikstjórann Mira Nair (Mississippi Masala). Fyr- irtækið mun frumsýna 15 myndir í ár, nokkru fleiri en í fyrra. Gramercy er sameignarfyrirtæki Universal og Polygram Filmed Ent- ertainment og er ætlað að dreifa fyrst og fremst myndum erfiðum í meðförum. Og útkoman í fyrra fór eftir því. Vestrinn Posse slapp fyrir horn að vísu en Konungur hæðarinn- ar, Kalifornia, A Home of Our Own og A Dangerous Woman komu og fóru án þess að setja nokkurt mark á miðasöluna. Savoy er nýtt fyrirtæki sem spáð er velgengni en skorti aðsóknar- myndir í ár. Hins vegar stóð það að baki mynda sem fengu afbragðs- dóma eins og A Bronx Tale, sem er framraun stórleikarans Roberts De Niros í leikstjórastöðunni, og Shadowlands, með Anthony Hopkins og Debru Winger. Heimildlir: Variety, Daily Vari- ety, Hóllywood Reporter. GR.AMf.RCV KRIPALUJOGA í kripalujóga lærlrþú: ★ Aðlosaumspennu. ★ Að upplifa tilfinningar. ★ Aðslakavelá. Lærðu að þekkja líkama þinn. Byrjendanámskeið hefjast 31. maí og 8. júní. Kynning laugardaginn 4. júní kl. 13. Jógastöðin Heimsljós Skeifunni 19,2. hæð, sími 679181 milli kl. 17 og 19. SÖNGSMIÐJAN SÖNGSKÖl.I MEÐ NY)U SNiÐl. Auglýsir inntöku nemenda í einsöngvaradeild Byrjendur - miðstig - framhald linkatímar: Söngkennsla, undirleikur. lóptímar: Söngkennsla, samsöngur, kór, leiklist, dans, tónfræði, tónheym, tungumál, tónleikar og óperuuppfærslur. Allar upplýsingar veittar á skrifstofu skólans, Skipholti 25 og í síma 61 24 55, A Almennar kaupleiguíbúðir fyrir aldraða Auglýst er eftir umsóknum um 8 almennar kaupleiguíbúðir. Um er að ræða fjórar 2ja herbergja og fjórar 3ja herbergja íbúðir í fjölbýlishúsi sem verið er að reisa við Gullsmára 11 í Kópavogi. Áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar fullbúnar vorið 1995. Umsóknareyðublöð fást afhent í afgreiðslu Félagsmálastofnun- ar Kópavogs, Fannborg 4. Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 15. júní nk. Allar frekari upplýsingar veitir öldrunarfulltrúi eða húsnæðisfull- trúi í síma 45700. Kópavogi 20. maí 1994. Húsnæðisnefnd Kópavogs. Ö d Listahátíð í Reykjavík 1994 $$ Ulagnerdayar í Reqkjavík 23. maí~A. júní í Þjóðleikhúsinu kl. 18, dagana 27., 29., 31. maí, 2. og 4. júní: niflunvahrinvurinn eftir Richard Wagner Valin atriði í þrem þáttum. Framsaga mllli atriða eftir Þorstein Gylfason. Hljómsveitarstjóri: Alfred Walter. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifedóttir. Sviðsmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson. Listræn yfirumsjón: Wolfgang Wagner. Mlfiasala í Þfóðlelkhúslnu. Óperugestlr athugiðl Heftl mefi söguþræðl til undirbúnlngs fyrtr sýninguna fáanlegt í mlðasðlu Þfóðlelkhúss og íslensku óperunnar. Ktjnninfarerindi 09 málþinv Aðgangur öllum heimill. Enginn aðgangseyrir. 23. maí kl. 15.00: ísland og Wagner-Hringurinn lokast Málþing f Norræna húsinu. Almenn kynningarerindi. Fyrirlesarar Anna M. Magnúsdóttir, Árni Björnsson, Kristján Ámason og jóhannes jónasson 24. maí kl. 17.00: Niflungahringurinn kynntur með tóndæmum Norræna húsið: Reynir Axelsson og Anna M. Magnúsdóttlr. 26. maí kl. 20.30: Richard Wagner and Der Ring des Nibelungen íslenska óperíin. Fyrirlestur á ensku með tóndæmum: Barry Mllllngton. 29. maí kl. 13.30: lceland and Wagner. Full Clrde: Reykholt-Bayreuth - Reykjavík. Alþjóðlegt málþing í Norræna húsinu. Fyrirlesarar Barry MHIington, Lars Lðnnroth, Stewart Spencer, Oswald Georg Bauer, Vésteinn Ólason og Þorsteinn Gylfason. 30. maí kl. 17«00: Endurtekin kynning Reynls Axelssonar og Önnu M. Magnúsdóttur frá 24. maí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.