Morgunblaðið - 07.06.1994, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ1994 B 5
ÍÞRÓTTIR
TENNIS
Opna franska mótið varsögulegt
Tvöfah hjá
Spánverjum
SPÁNVERJAR fögnuðu tvöföldum sigri á Opna franska mótinu í
tennis á sunnudaginn. Aranxta Sanchez Vicario sigraði frönsku
stúlkuna Mary Pierce 6-4 6-4 í úrslitum í einliðaleik kvenna, og
Sergi Bruguera sigraði landa sinn Alberto Berasategui með þrem-
ur hrinum gegn einni í úrslitaleiknum íeinliðaleik karla. Úrslitaleik-
ur kvennanna hófst reyndar á laugardaginn, en honum var fréstað
vegna rigningar og framhaldið á sunnudeginum. Spánverjar fögn-
uðu sínum mönnum grfðarlega, og Jóhann Karl, Spánarkonungur,
fylgdist með leikjunum og afhenti löndum sínum verðlaunin.
Aranxta Sanchez Vicario þurfti
nokkuð að hafa fyrir sigrin-
um gegn Mary Pierce. Sú síðar-
nefnda var dyggilega studd af
heimamönnum, sem gerðu sér von-
ir um franskan sigur, þann fyrsta
í 27 ár. Pierce, sem sigraði Steffi
Graf í undanúrslitum, byijaði vel
,en þegar á leið reyndust taugar
spænsku stúlkunnar sterkari, og
sigraði hún með tveimur hrinum
gegn engri. Þetta var annar sigur
Sanchez Vicario á Opna franska,
en hún sigraði fyrir fimm árum
síðan, aðeins sautján ára gömul.
„Það var andlegi styrkurinn sem
skipti mestu máli, og þolinmæðin,“
sagði sú spænska eftir sigurinn.
„Eg beið eftir réttu tækifærunum,
og þetta er stór dagur fyrir mig,
mikill sigur,“ sagði hún.
Börðumst eins og
brjálæðingar
Það var ljóst fyrir úrslitaleikinn
í karlaflokki að Spánveiji myndi
standa uppi sem sigurvegari. Hvort
það yrði Bruguera eða nýja stjarn-
an Berasategui var hins vegar
spurning. Bruguera sigraði í fyrstu
Reuter
Arantxa Sanchez Vicario fleygði tennisspaðanum upp í loft þegar hún
hafði innsiglað sigur sinn gegn Mary Pierce í úrslitum í einliðaleik kvenna á
Opna franska tennismótinu. Sergi Bruguera (til hliðar) var í miklum ham gegn
landa sínum Alberto Berasategui í úrslitaleiknum og sigraði 3:1.
hrinunni 6-3, og aðra hrinu sigraði
hann einnig, en í það skiptið með
sjö lotum gegn fimm. Bruguera
slakaði á í þriðju hrinu og tapaði
henni 2-6. Lengra komst hinn tví-
tugi Berasategui ekki, og fjórðu
hrinuna tók Bruguera með tilþrif-
um og sigraði með sex lotum gegn
einni, og þar með leikinn með
þremur hrinum gegn einni.
Líkt og hjá Sanchez Vicario var
þetta annar sigur Bruguera á Opna
franska mótinu. „Við börðumst
eins og bijálæðingar allan tímann
og vorum báðir örþreyttir eftir öll
þessi hlaup,“ sagði Bruguera, en
báðir eru þeir lítið fyrir að sækja
að netinu. „Hann lék frábærlega
í þriðju hrinunni, og er líklega með
bestu forhönd sem ég hef þurft
að kljást við, hann nær svo miklum
snúningi á boltann. Bakhöndin hjá
mér sem og uppgjafirnar eru hins
vegar kraftmeiri en hans,“ sagði
Bruguera um Berasategui, en hann
hafði ekki tapað hrinu á mótinu
fyrir úrslitaleikinn.
Morgunblaðið/Golli
Raj Bonifacius sigraði í einliðaleik karla á Stórmóti Þróttar.
Pogorelova
sigraði þrefalt
Elena Pogorelova, Þrótti, sigraði þrefalt á Stórmóti Þrótt-
ar í tennis, sem lauk um helgina. Raj Bonifacius, fjölni,
sigraði nokkuð auðveldlega í einliðaleik karla.
Pogorelova er rússnesk og hefur leikið tennis með rússn-
eska landsliðinu, en þjálfar nú hjá Þrótti. Hún sigraði írisi
Staub í einliðaleik 6-1 og 6-3, og stóð uppi sem sigurvegari
í tvfliðaleik ásamt Kristínu Gunnarsdóttur og í tvenndarleik
ásamt Atla Þorbjörnssyni. Þess má geta að Hrafnhildur
Hannesdóttir, sem sigraði á mótinu í fyrra, var ekki með
að þessu sinni.
Raj Bonifacius, sem er bandarískur, sigraði Einar Sigur-
geirsson í einliðaleik karla. Úrslitaleikurinn varð ójafnari en
menn höfðu gert sér vonir um. Bonifacius hafði mikla yfir-
burði gegn Einari, sem er íslandsmeistari, og sigraði 6-1
og 6-1.
Einar náði hins vegar að sigra í tvíliðaleik ásamt Olafi
Sveinssyni, en þeir lögðu áðurnefndan Raj Bonifacius og
Sigurð Norðdal með tveimur hrinum gegn engri; 6-2 og 6-4.
RALLYKROSS
Kom þriðji í mark
en sigraði samt
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Svelnn Símonarson kom fyrstu í mark í bílkrossinu, Gunnar Þór Hilmarsson
annar og Ólafur Baldursson þriðji. Ólafur stóð þrátt fyrir það uppi sem sigurvegari.
KEPPENDAFJÖLDI i bflkrossi vex
með hverri keppni og um helgina
óku 42 ökumenn í bflkrossi Bif-
reiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur.
Keppt var í þremur flokkur, sigur-
vegari í krónuflokki varð íslands-
meistarinn Ólafur Baldursson á
Lada, Brynjar Kristjánsson á
Oldsmobile vann teppaflokkinn
og Guðbergur Guðbergsson vann
flokk rallykross bfla á Porche.
m'
Irallykross flokknum hafði Guðberg-
ur nokkra yfirburði á öflugum
Porsche bílnum, vann tvo ufidanriðla,
sem gaf honum bestu
Gunniaugur staðsetningu í rás-
Rögnvaldsson markinu. Hann náði
skrífar síðan forystu í úrslit-
um, sem hann lét ekki
af hendi þar til yfír lauk. Högni Gunn-
arsson á Toyota varð í öðru sæti og
Guðmundur Fr. Pálsson þriðji á Esc-
ort, en hann hefur ekki náð öllu afli
útúr öflugri RS Ford keppnisvél bíls
síns. Sú vél á að geta skilað 450 he-
stöflum. Brynjar Kristjánsson lagði
keppinauta sína að velli í teppaflokkn-
um, þar sem stórir amerískir bílar
mætast. Hjálmar Hlöðversson á Cam-
aro varð annar og Einat' Hjaltason á
Ford Futura þriðji.
Mikil keppni var í krónuflokki og
þrír bílar komu í einum hnapp í mark
í úrslitariðlinum. Sveinn Símonarson á
Skoda var fyrstur í mark, Garðar Þór
Hilmarsson á Sapporo annar og Ólafur
Baldursson þriðji. En þó Ólafur kæmi
þriðji í mark, þá vann hann samt sam-
kvæmt reglum sem settar voru á fyrir
keppnistímabilið. Þar segir að árangur
úr undanriðlum gildi 40% á móti
árangri í úrslitariðli. Þessi regla var
sett á til að auka keppni í undanriðlun-
um, þannig að menn væru ekki að
dóla fram að úrslitum í undanriðlunum
þremur. Sveinn fékk hamingjuóskor
strax eftir keppni, en Ólafur verðlaun-
in við verðlaunaafhendingu síðar, þar
sem menn áttuðu sig ekki á gildi nýju
reglnanna. Næst munu menn átta sig
betur á stöðunni og harkan verður því
væntanlega meiri.
„Mér var tilkynnt við verðlaunaaf-
hendinguna að ég hefði unnið. Það var
vissulega ánægjulegt, því í fyrstu kepn-
inni gekk ekkert hjá mér. Úrslitin núna
hjálpa mér við að veija meistaratitilinn,
en fímm mót af sex telja til stiga. Mér
verður því að ganga vel á næstu mót-
um,“ sagði Ólafur Baldursson í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ég smíðaði upp
nýjan Lada keppnisbfl í vetur fyrit'
krónuflokkinn. Bílarnir mega ekki
kosta of mikið, þvi hver sem er getur
keypt þá á 150.000 krónur eftir keppni.
Mikilvægast er að hafa fíöðrunina í
lagi og einhvern kraft. Krónuflokkurinn
er skemmtilegur, en ég hef líka vet'ið
aðstoðarökumaður í rallakstri. Það
væri gaman að keyra í því líka síðar,“
sagði meistarinn Ólafur.