Morgunblaðið - 07.06.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994 B 7
Morgunblaðið/Golli
ekstur
ndeildur
Stjörnumanna, sagði eftir leikinn, að dóm-
arinn hefði ekki verið samkvæmur sjálfum
sér varðandi þetta atvik. „Svipað atvik
gerðist stuttu áður og þá gerði hann ekk-
ert. Það er mjög svo skiljanlegt því það
á ekki að vera hægt að dæma hendi þeg-
ar boltanum er þrumað af hálfs metra
færi í hendina á manni, það hlýtur að
vera óviljandi," sagði Ragnar.
ÞAÐ má segja að FH-ingar hafi sloppið með skrekkinn þegar
þeir unnu Breiðablik 1:0 í Kaplakrika á sunnudaginn. Hafnfirðing
ar voru mun betri ífyrri hálfleik, komust yfir snemma í þeim
síðari en gerðust þá allt of kærulausir og Kópavogsstrákarnir
voru óheppnir að jafna ekki.
Vorum sterkari á
endasprettinum
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
FH-ingar léku með ágætum í
fyrri hálfleik og sóttu án afl-
áts framan af en án þess þó að
skora. Allir börðust vel og spilið
var ágætt enda hef-
ur liðið endurheimt
Andra Marteinsson
sem stjórnaði leik
liðsins af röggsemi. Sóknir FH
voru þungar en Blikum tókst ekki
að skapa sér eitt einasta færi í
fyrri hálfleik en komust þó betur
inn í leikinn er á leið, eftir að draga
fór af heimamönnum sem byijuðu
með miklum hamagangi. Þeir gáfu
gestunum engan frið og framheij-
arnir pressuðu grimmt þannig að
varnarmenn og miðjumenn Blika
fengu engan tíma til athafna.
Hægri kanturinn var þó gjörsam-
lega máttlaus hjá FH.
Jón Erling skorar
Jón Erling kom FH í 1:0
snemma í síðari hálfleik og Hörður
átti skot rétt framhjá skömmu síð-
ar. Eftir þetta var sem mestur
vindur væri úr FH-ingum, um
sinn. Blikar tóku völdin í sínar
hendur og þar fór Tékkinn Laso-
rik fremstur í flokki, skemmtilegur
leikmaður. Blikarnir gerðu of mik-
ið af því að senda knöttinn of
nærri markinu því þar réði Stefán
markvörður FH ríkjum.
FH-ingar fengu nokkur færi er
á leið en á lokamínútunum mátti
ekki muna miklu að gestirnir næðu
að jafna. Lasorik átti þrjú skot
rétt framhjá og Stefán bjargaði
skalla frá Arnari. Þar með fögnuðu
Hafnfirðingar sigri en hann stóð
tæpt því Blikar voru ágengir við
mark þeirra eftir að FH komst yfir.
„Mér líst vel á að vera kominn
heim. Ég fékk Moggann út til mín
og hafði því fylgst með FH-liðinu
og mér finnst þetta bara gamla
góða FH. Ég hef reyndar ekki séð
hin liðin og veit því ekki hvort
okkur tekst að vera jafn ofarlega
og í fyrra, en við munum reyna.
Við þurfum reyndar að laga ýmis-
legt hjá okkur. Við réðum leiknum
fram að markinu en leyfðum þeim
þá að komast allt of mikið inn í
hann og það þarf að laga,“ sagði
Andri Marteinsson, besti maður
FH eftir sigurinn á sunnudaginn.
LEIFUR Geir Hafsteinsson gerði fyrsta mark Stjörnunnar í 1. deildinni í sum-
ar, gegn ÍBK á sunnudagskvöldið. Fram að því hafði Garðarbæjarliðið leikið
327 markalausar mínútur í deildinni. Á myndinni hér til hliðar er Leifur Geir
í baráttu við Kristin Guðbrandsson í leiknum. Að ofan er Jón Erling Ragnars-
son, hetja FH, með Guðmundi Hreiðarssyni markverði Breiðabliks. Jón Erling
hefur gert bæði mörk FH í deildinni í sumar.
Morgunblaðið/Bjarni
Markaskorarar
*
- sagði Sigursteinn Gíslason eftir sigur IA gegn Þór
„ÉG er vissulega ánægður með sigurinn," sagði Sigursteinn
Gíslason, leikmaður ÍA, eftir 2:1 sigur gegn Þór á Akranesi á
laugardag. „Við vorum sterkari á endasprettinum og náðum þvf
að knýja fram sigur. Leikurinn gleymist fljótt enda ekkert augna-
yndi, en ég er þeirrar skoðunar að við höfum ekki enn náð að
sýna okkar rétta andlit. Samt get ég ekki annað en verið afar
ánægður með stigafjölda okkar. Við erum þegar komnir með
10 stig, sem er stigi meira en eftir jafn margar umferðir í fýrra.
Þórsarar voru erfiðir eins og oft áður. Þeir eru með mjög gott
lið, sem á örugglega eftir að hrökkva í gang.“
Sigþór
Eiríksson
skrifar
frá Akranesi
Qað var vítaspyma átta mínút-
fyrir leikslok, sem Mihjalo
Bibercic skoraði úr af öryggi, sem
færði íslandsmeist-
urunum nauman
sigur í frekar bragð-
daufum leik. Skaga-
menn voru sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik og það var
í samræmi við gang leiksins að
þeir náðu forystunni strax á 12.
mínútu. Þeir hefðu hæglega getað
bætt við örðu marki skömnmu síð-
ar þegar Bjarki Pétursson átti
sendingu á Bibercic, sem skaut
framhjá úr góðu færi.
Norðanmenn fengu besta færi
sitt í fyrri hálfjeik á 38. mínút þeg-
ar Ormarr Örlygsson gaf fyrir
mark ÍA, en Bjarni Sveinbjörnsson
skallaði framhjá. Þórsarar komu
ákveðnir til leiks í síðari hálfleik
og þurfti Þórður Þórðarsin, hinn
ungi og efnilegi markvörður
Skagamanna, að taka á honum
stóra sínum þegar hann varði
glæsilega skalla Páls Gíslasonar
eftir aukaspyrnu. Mínútu síðar
brunuðu Skagamenn fram og
Bjarki Pétursson átti góðan skalla,
sem Ólafur Pétursson varði, en á
næstu mínútu kom jöfnunarmark
Þórsara.
Svo virtist, sem jafntefli yrði
niðurstaðan, en það var síðan víta-
spyrnan, sem færði heimamönnum
sigurinn. Þeir voru mun ákveðnari
á lokakaflanum og skömmu áður
en vítið kom braust Ölafur Þóraðr-
son í gegnum vörn norðanmanna
og átti fast skot að marki, sem fór
rétt framhjá fjærstöng.
Bæði lið eiga örugglega eftir að
leika mun betur en þau gerðu á
laugardag. Skagamenn eru að fá
lykilmenn aftur inn eftir meiðsl og
Þórsarar eru með mjög reynslumik-
ið og efnilegt lið, sem hlýtur að
fara að láta til sín taka.
Mihajlo Bibercic gerði sigurmark
IA gegn Þór úr vítaspyrnu.
IallPálmi Haraldsson vann boltann á eigin vallarhelmingi og
■ %Jóð með hann upp miðjuna á 12. núnútu. Hann renndi á
Harald Ingólfsson, sem var rétt utan vítateigs Þórs. Sem Haraldur
ætlaði að senda boltann áfram, fékk hann aðstoð frá Dragan Vit-
orovic, boitinn fór til Bjarka Péturssonar, sem var á auðum sjó, og
hann skoraði af öryggi af stuttu færi.
1m 4| Ormarr Örlygsson fékk góða sendingu fram völlinn, hægra
■ I megin, frá Dragan Vitorovic. Ormarr varð á undan tveimur
varnarmönnum ÍA, sem hann átti í kapphlaupi við, renndi sér á bolt-
ann og sendi glæsilega fyrir markið. Þar var Bjarni Sveinbjömsson
óvaldaður á móts við vítapunkt og jafnaði með góðu skoti. Þetta var
á 60. mínútu.
2a "• Á 82. mínútu átti Sigurður Jónsson sendingu inn á Kára
■ I Stein Reynisson. Hann var á fullri ferð og ætlaði framhjá
Þóri Áskelssyni, en varnarmaðurinn brá honum og réttilega dæmd
vítaspyma. Mihjalo Bibereic tók spymuna og var öryggið uppmálað.
■ Ur
0Amar Grétarsson
missti boltann á miðj-
um vallarhelmingi Blika á 51.
mínútu. Jón Erh'ng Ragnarsson
gaf á Andra sem iék laglega inn
í vítateiginn hægra megin og
gaf fallega fyrir á fjærstöngina
þar sem Jón Erling var mættur
aftur og skallaði í friði í netið.
FH-ingar
sluppu með
skrekkinn