Morgunblaðið - 21.07.1994, Page 1

Morgunblaðið - 21.07.1994, Page 1
72 SÍÐUR B/C 163. TBL. 82. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tímamótafundur utanríkisráðherra Israels og Jórdaníu „Stríðið er nú að baki“ Jórdaníu. Reuter. SHIMON Peres, utanríkisráðherra ísraels, kom í gær til Jórdaníu og ferð hans markar þáttaskil í samskiptum ríkjanna því hann er fyrsti ísraelski ráðherrann sem fer til Jórdan- íu án þess að reynt sé að leyna för hans. „Stríðið er nú að baki,“ sagði Abdul-Salam al-Majali, forsætisráðherra Jórdaníu, við þetta tækifæri, en formlega hefur ríkt stríðsástand milli ríkjanna frá árinu 1948. „Það tók okkur 15 mínútur að ferðast hing- að með flugvél," sagði Peres þegar fundur hans með utanríkisráðherrum Bandaríkjanna og Jórdaniu á hóteli við Dauðahaf hófst. „En það tók okkur 46 ár að koma hingað.“ Enn áherslumunur Heimsókn Peresar til Jórdaníu markar þáttaskil í baráttu ísraela og Bandaríkja- manna fyrir því að arabaríkin viðurkenni ríki gyðinga. I ræðum ráðherranna kom þó fram sá áherslumunur sem einkennt hefur friðarvið- Reuter ABDUL-SALAM al-Majali, forsætisráð- herra Jórdaníu (t.v.), Warren Christop- her, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, takast í hendur í gær. ræður ríkjanna frá því þær hófust í Madrid árið 1991. Utanríkisráðherrar ísraels og Bandaríkjanna lögðu áherslu á möguleikann á efnahagslegri samvinnu þegar fram líða stundir en jórdanski forsætisráðherrann sagði að fyrst yrðu ríkin að leysa langvinnar deilur sínar um hernumdu svæðin og vatnsréttindi. Varað við of mikilli bjartsýni Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti einnig Hussein Jórdaníu- konung, sem ræðir við Yitzhak Rabin, forsæt- isráðherra ísraels, í Washington á mánudag. Hussein varaði við of mikill bjartsýni og sagði að einhver bið yrði á því að undirritaður yrði friðarsamningur milli Israels og Jórdaníu. „Ég vonast til að geta undirritað samning sem allra fyrst. En það gerist ekki í næstu viku,“ sagði hann. Hussein konungur millilendir í Keflavík á laugardag á leið til Washington, að sögn dönsku fréttastofunnar Stand By News Seivice. Flóttamenn frá Rúanda hrynja niður í Zaire Kólerufaraldur að blossa upp í Goma Goma. The Daily Telegraph. KÓLERUFARALDUR er að blossa upp á meðal meira en milljón flóttamanna sem bíða hjálpar við ömurlegar aðstæður í grennd við borgina Goma í Zaire. „Mikill fjöldi fólks mun deyja,“ sagði Jacques de Milliano, forseti hjálparsamtakanna Lækna án landamæra. „Ástandið er hryllilegt. Hjálparstofnan- irnar voru engan veginn undir það búnar að fást við svona hrikalegan vanda,“ sagði Panos Moumtz- is, talsmaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna. Fólk hrynur niður út um alla borgina og hundruð líka liggja á vegum að búðum í grenndinni sem komið hefur verið upp fyrir flóttafólkið. Líkin sem fundust í gær var safnað í fjöldagrafir við vegina. Tugir líka lágu á götum Goma og daunninn er slíkur að margir flóttamenn, borgarbúar og starfs- menn hjálparstofnana ganga með grímur. Skorturinn á vatni eykur hættuna á sjúkdómum. Flóttamennimir halda áfram að drekka úr tjöm í grennd- inni þótt ljóst sé af dökkgrænum litnum á vatninu að það sé hættu- legt. Fólkið á einskis annars úrkosti en að drekka vatnið, því ella biði þess dauði af völdum þorsta. Óleysanlegur vandi Talið er að um 3.000 Rúanda- búar flýi yfir landamærin til Zaire á klukkustund. Áætlað er að enn séu 1,3-1,9 milljónir manna á flótta í suðvesturhluta Rúanda á leið til Zaire. Fari þær milljónir einnig yfir landamærin hafa alls 3,5 milljónir manna flúið til ná- grannaríkjanna, eða hartnær helmingur íbúanna fyrir stríðið. „Öll þjóðin er á flótta yfir landa- mærin,“ sagði talsmaður Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna. „Við erum gjörsamlega úr- kula vonar.“ Rauði krossinn hefur sent rúm- lega 200 tonn af matvælum í stærstu flóttamannabúðirnar, þar sem um 300.000 Rúandamenn hafast við. Starfsmenn stofnunar- innar óttast að aðeins þeir sterk- ustu á meðal flóttamannanna, svo og hermenn úr her hútú-stjórnar- innar fyrrverandi, komist á dreif- ingarstöðvarnar en börnin og sjúka fólkið deyi á leiðinni. De Milliano sagði að kólerufar- aldurinn gæti orðið sá mannskæð- asti í veraldarsögunni. Hann áætl- ar að 10-20.000 manns gætu dáið af völdum sjúkdómsins á nokkrum dögum. Kólera getur verið bráð- drepandi og þeir sem sýkjast geta dáið á nokkrum klukkustundum. Vart hefur orðið við marga aðra smitsjúkdóma á meðal flóttafólks- ins og de Milliano sagði að Læknar án landamæra hefðu aldrei staðið frammi fyrir jafn miklum vanda. „Þetta er verkefni sem ógjörningur er að inna af hendi, vandamál sem mannúðarsamtök geta ekki leyst. Aðeins pólitísk lausn er möguleg,“ sagði de Milliano. Talsmaður Barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna sagði að hugsan- lega væri ekki hægt að koma matvælum til alls flóttafólksins nema með aðstoð Atlantshafs- bandalagsins, sem gæti komið upp loftbrú til flóttamannabúðanna. Öll þjóðin á flótta Reuter HUNDRUÐ Rúandabúa hafa dáið af völdum næringarskorts, þorsta og kóleru í flóttamannabúð- um í grennd við borgina Goma í Zaire. Á stærri myndinni reynir táningur, sem er illa farinn af vessaþurrð, að skríða. Á innfelldu myndinni gefur kona öðrum aðframkomnum unglingi vatn. Höfðing- leg gjöf nánasar Bristol. The Daily Telegraph. SÉRLUNDAÐUR nirfíll, sem lifði m.a. á matarleifum sem hann fann í öskutunnum, kom nágrönnum sínum á óvart með því að ánafna góðgerðasamtök- um jafnvirði 28 milljóna króna. Maðurinn, sem var ókvæntur fyrrverandi bókavörður, bjó í þorpi í Wales og var uppnefndur „herra Nánös“ vegna sparsemi sinnar. Hann neitaði til að mynda að kaupa ný föt eða greiða fyrir hita og rafmagn. Dagblöð fyrir lök Maðurinn er sagður hafa not- að gömul dagblöð í staðinn fyrir lök og sængur á rúmið og hermt er að hann hafi oft gengið rúma þrjá kílómetra á gamla vinnu- staðinn til að fá lánað lím svo hann gæti límt gömul frímerki á bréfin sín. Skoðun þorpsbúanna á mann- inum, sem var 89 ára þegar hann lést, breyttist þegar þeir komust að því að hann skildi eftir sig leynilegan sjóð sem hann ánafnaði barna- og dýra- verndarsamtökum og Hjálp- ræðishernum. John Major yngir upp London. Reuter. JEREMY Hanley, lítt þekktur að- stoðarráðherra í Bretlandi, var í gær gerður að formanni íhaldsflokksins í stað Normans Fowlers er nýlega sagði af sér. John Major þykir hafa styrkt stöðu sína með djarfri upp- stokkun í stjórn þar sem yngra fólk hefur fengið embætti. ■ Keppni um athyglina/16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.