Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 2/3 félaga í ASÍ hafa ekki aukatryggingu UM ÞRIÐJUNGUR félagsmanna innan Alþýðusambands íslands er með sérstakar slysa- og líftryggingar. Sjúkrasjóðir verkalýðsfélaganna hafa tekið þessar tryggingar og eru samningar þeirra mjög mismun- andi. Um tveir þriðju félagsmanna ASÍ hafa engar slíkar tryggingar umfram þær tryggingar sem kjarasamningar gera ráð fyrir. Tilfærslur í utanrík- isþjónustu BREYTINGAR verða á næstunni í utanríkisráðuneytinu þannig að Kristinn F. Ámason verður skrif- stofustjóri á viðskiptaskrifstofu, Pét- ur Gunnar Thórsteinsson verður skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu og Benedikt Ásgeirsson hefur tekið við starfi skrifstofustjóra vamarmála- skrifstofu. í fréttatilkynningu utanríkisráðu- neytisins segir einnig að núverandi skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu, Gunnar Pálsson sendihera, verði fastafulltrúi ísiands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra, skrif- stofustjóri viðskiptaskrifstofu, verði fastafulltrúi íslands hjá EFTA í Genf. Tómas Á. Tómasson, sendiherra og fastafulltrúi í New York, kemur til starfa í ráðuneytinu, en Kjartan Jó- hannsson, fastafulltrúi hjá EFTA, tekur við starfi aðalframkvæmda- stjóra EFTA. Breytingar Amór Siguijónsson vamarmála- ráðunautur er farinn frá vamarmála- skrifstofu til starfa við sendiráðið í Washington og sömuleiðis Margrét Jónsdóttir sendiráðsritari, sem kom frá fastanefndinni í Néw York. Sturla- Siguijónsson sendiráðunautur fer frá alþjóðaskrifstofu til fastanefndar í New York og Þorbjöm Jónsson sendiráðsritari fer frá almennri skrif- stofu til sendiráðsins í París. Bjami Vestmann sendiráðsritari, sem verið hefur upplýsingafulltrúi, tekur við starfí Amórs á vamarmálaskrifstofu og Ámi Páll Ámason sendiráðsritari flyst frá viðskiptaskrifstofu til vam- armálaskrifstofu. -----♦ > ♦ íslenskir bridsspilar- ar í 10. sæti EFTIR 14 umferðir af 21 á Evrópu- móti yngri spilara í brids í Hollandi er íslenska sveitin í 10. sæti með 220 stig. Spilaðir vom þrír leikir í gær, fyrst við Breta og lyktaði honum 11-19 fyrir Breta. Annar leikurinn á móti Belgum fór 25-5 fyrir íslendinga og þriðji leikurinn á móti Frökkum tapaðist 11-19. Danir em á efsta sæti í mótinu með 281 stig, Pólveijar í 2. sæti með 277 stig, Bretar í því 3. með 266 stig, ísraelar í 4. sæti með 265 stig og Norðmenn í því 5. með 258,5 stig. I dag leikur íslenska sveitin gegn ímm og Tékkum. Kjarasamningar veita launþegum ákveðnar tryggingar á vinnustað og úr og í vinnu. Látist launþegi í slysi á vinnustað á maki hans rétt á trygg- ingabótum sem em að lágmarki 1.390.600 krónur. Við þessa tölu bætast 267.700 krónur fyrir hvert bam undir 16 ára aldri. Ekkja Dags- brúnarmanns sem missti mann sinn í vinnuslysi og mikið hefur verið íjall- að um í Morgunblaðinu síðustu daga á rétt á þessum bótum. Þar sem þessi trygging gildir að- eins á vinnutíma fóm einstakir sjúkrasjóðir verkalýðsfélaganna út í það fyrir um 10 ámm að gera sér- staka samninga við tryggingafélög BÖRNIN eru ekki lengi að taka við sér þegar veðrið er gott og hlaupa þá léttklædd út í blíð- sem veita launþegum tryggingar umfram þessar hefðbundnu trygg- ingar. Dagsbrún var eitt af fyrstu félögunum sem sömdu um þessa tryggingu. Um er að ræða tvenns konar tryggingu, annars vegar slysatryggingu utan vinnutíma og hins vegar líftryggingu. Tryggingarnar eru mismunandi Guðmundur Albertsson, deildar- stjóri hjá Vátryggingafélagi íslands, segjr að þessir samningar væm jafn ólíkir og þeir væm margir. Trygg- ingaupphæðin sé mjög mismunandi og mismunandi sé hvað tryggingin una. Þessir krakkar eru við öllu búnir, með hjálma á höfðum og hjálpardekk á hjólinu. í dag er sé víðtæk. Hann segir að við gerð þessara samninga sé farið eftir þeim reglugerðum sem gilda um sjóðina, en þær eru mismunandi, og óskum forsvarmanna sjúkrasjóðanna, sem einnig eru mismunandi. Guðmundur segir að oftast nær hafí forsvarsmenn sjóðanna ein- hveija upphæð í huga sem þeir séu tilbúnir til að veija í iðgjöld og síðan sé tryggingin sniðin að henni. Hann segir að ef til þess komi að Dags- brún breyti þeim samningi sem sjúkrasjóður félagsins hefur gert við VÍS og láti trygginguna ná til ailra félagsmanna Dagsbrúnar, jafnt aðalfélaga og aukafélaga, verði sjúkrasjóðurinn annað hvort að greiða hærra iðgjald eða lækka bóta- upphæðina. Guðmundur segir mjög mismun- andi hvaða reglur gildi um til hvaða félagsmanna tryggingin nái. Það sé spáð hægri, breytilegri átt, skýjað með köflum og gæti rignt víða þegar líður á daginn. alfarið mál sjúkrasjóðanna að ákveða það. VÍS hafí enga skoðun á því hvort tryggingin eigi að ná til aðalfélaga eða aukafélaga. Hann segir að flestir sjóðirnir hafí þá reglu að launþegi verði að hafa verið fé- lagsmaður í þtjá mánuði áður en tryggingin nái til hans. Sum félög geri greinarmun á aukafélaga og aðalfélaga, nokkur séu með ákvæði um lágmarksgreiðslu í sjóðinn og önnur séu með enn aðrar reglur. Guðmundur segir að VIS fái nafnalista frá sjúkrasjóðunum um þá félagsmenn sem séu tryggðir. Hann segir að hjá VÍS gildi sú regla að ef upp komi tilvik um launþega sem verður fyrir slysi og ekki er á þessum nafnalistum verði viðkom- andi sjúkrasjóður að sýna fram á að launþeginn eigi rétt á bótum. Ef það takist ekki fáist bætur ekki greiddar. Seyðisfjörður Vinnuslys í Fisk- iðjunni VINNUSLYS varð í Fiskiðjunni Dvergasteini á Seyðisfirði á þriðju- dag þegar ungur maður fór með hendi í flökunarvél. Hann hlaut tvo skurði á handarbaki sem voru saum- aðir saman á sjúkrahúsinu. Slysið varð með þeim hætti að fískur festist í vélinni. Maðurinn stöðvaði vélina og fór með hendina inn í hana til að losa fískinn. Þá skrapp hendin af fiskinum og fór í flökunarhníf. Öryggisreglur virtar Tæknifulltrúi Vinnueftirlits ríkis- ins á Egilsstöðum, Daníel Behrend, skoðaði vélina á þriðjudag. Hann segir að maðurinn hafí virt allar ör- yggisreglur, auk þess sem vélin hafí verið búin sérstökum segulstoppara sem stoppar hnífana strax þegar slökkt er á vélinni. Hann segir að sambærilegar vélar séu alls ekki all- ar með slíkan búnað og telur að góður öryggisbúnaður og það að maðurinn virti öryggisreglur hafí orðið til þess að hann slasaðist ekki meira. Morgunblaðið/Kristinn Leikið í sólinni Bjöm Bjamason formaður utanríkismálanefndar Alþingis um aðildarumsókn að ESB Leita þarf eftir póli- tísku umboði Alþingis BJÖRN Bjamason, formaður utan- ríkismálanefndar, segist telja alveg ljóst að komi til ^ þess að íslensk stjómvöld vilji að ísland leggi fram umsókn um aðild að Evrópusam- bandinu verði þau fyrst að leita eftir pólitísku umboði frá Alþingi. Einföld ákvörðun ríkisstjómar dugi ekki í þessu efni og því síður eins ráðherra. Þegar ríkisstjóm Steingríms Her- mannssonar tók ákvörðun um að heija samninga um Evrópskt efna- hagssvæði haustið 1989 urðu tals- verðar deilur um hvort ríkisstjómin gæti ein tekið ákvörðun um að hefja viðræður eða hvort hún þyrfti að leita eftir umboði frá Alþingi. Sjálfstæðis- flokkurinn, sem þá var í stjómarand- stöðu, krafðist þess að málið yrði lagt fyrir Alþingi, en ríkisstjómin hafnaði því ogtaldi það hvorki stjómskipulega né pólitískt nauðsynlegt. „Ég tel að það liggi alveg fyrir að það verði ekki farið út í aðildarviðræð- ur við Evrópusambandið án þess að fá til þess umboð frá Alþingi. Þannig hefur verið staðið að þessu í öðmm ríkjum; leitað hefur verið eftir umboði frá þjóðþingunum til þess að hefja slíkar viðræður," sagði Bjöm. Hann benti einnig á, að annars staðar á Norðurlöndum hefði auk þess tekist pólitísk samstaða milli forystusveitar stjómar og stjómar- andstöðu um nauðsyn aðildamm- sóknar * Alþingi samþykkti með öllum greiddum atkvæðum 5. maí 1993 að leita eftir tvíhliða samningum við ESB samþykki Austuríki, Finnland, Svíþjóð og Noregur að ganga í ESB. Björn sagði að þessi samþykkt undir- strikaði að nýtt umboð þyrfti frá Alþingi ef ísland ætlaði sér að breyta um stefnu. Samþykktin sýndi einnig, að Alþingi hefði búið sig tímanlega undir þann kost, að það fækkaði í EFTA-hópnum og því væri alls ekki unnt að saka það um fyrirhyggju- leysi í þessu efni. Kjami málsins væri, að fyrst yrðu íslendingar að gera upp hug sinn, eins og fram hefði komið hjá Klaus Kinkel, utan- ríkisráðherra Þýskalands. Útiloka ekki aðild Vilhjálmur Egilsson, alþingismað- ur Sjálfstæðisflokksins, hefur ítrekað þá skoðun sína að ísland eigi að sækja um aðild að ESB. Hann full- yrti í Morgunblaðinu í gær að fleiri þingmenn flokksins séu sömu skoð- unar. Björn Bjarnason sagðist ekki vita til þess að nein könnun hefði farið fram á afstöðu þingmanna flokksins til þessa máls. „Sjálfstæðis- flokkurinn hefur mótað stefnu í þessu máli á landsfundum, bæði 1991 og eins síðastliðið haust. f ályktunum landsfundanna kemur fram að hann útilokar ekki aðild ís- lands að Evrópusambandinu, en flokkurinn hefur hins vegar ekki samþykkt að gera það að sínu bar- áttumáli," sagði Bjöm. Afstaða Vil- hjálms Egilssonar kæmi sér ekki á óvart, enda hefði Vilhjálmur verið annar tveggja þingmanna, sem lýsti yfír því í EES-umræðunum, að hann vildi aðild að ESB, hinn hefði verið Karl Steinar Guðnason. Þá hefði Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráð- herra, hins vegar sagt, að EES- samningurinn væri vegabréf íslend- inga inn f 21. öldina. Bjöm sagðist ekki sjá nýtt tilefni fýrir Sjálfstæðisflokkinn til að end- urmeta stefnu sína í þessu máli þó að Finnland, Svíþjóð og. Noregur samþykki að ganga í ESB í haust. Ályktun Alþingis gerði einmitt ráð fyrir að löndin gengju í ESB og við- brögð íslands yrðu að leita eftir tvf- hliða samningi við ESB. „Ég er einn af þeim sem hef ekki útilokað að ísland geti gerst aðili að Evrópusam- bandinu. Ég hef aldrei farið leynt með þá skoðun mína, en mig skortir rök og sannfæringu til að hefja markvissa baráttu fyrir þessu stór- máli,“ sagði Bjöm. Morgunblaðið leitaði álits Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, á yfír- lýsingum Vilhjálms Egilssonar. Hann vildi ekkert um þær segja; sagði aðeins að ekkert nýtt væri í þeim. i I I I I I \ i I I I ! ! i I I I I 1 ! t t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.