Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 4

Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ íslendingar tapa tollafríðindum við inng-öngu EFTA-ríkja í ESB 10-15% tollur á síldarsölu VIÐ væntanlega inngöngu EFTA- ríkja í Evrópusambandið um næstu áramót tapa íslendingar nokkrum tollafríðindum sem EFTA-aðild tryggði en EES-samningurinn bætir ekki upp. Að sögn Gunnars Snorra Gunnarssonar, forstöðu- manns viðskiptaskrifstofu utanrík- isráðuneytisins, munar þar mest um að 10-15% tollur mun frá ára- mótum leggjast á sölu síldar á mikilvægilvægum síldarmörkuðum í Svíþjóð og Finnlandi. Auk þess sem tollagreiðslur geta, að sögn Gunnars Snorra, hlaupið á nokkrum tugum milljóna króna á ári, mun þetta leiða til verri stöðu á hörðum samkeppnismarkaði. Íslensk stjóm- völd hafa þegar þrýst á ESB um viðræður vegna þessa en óljóst er hvenær þær geta hafist. Innan EFTA-ríkjanna er full frí- verslun með fisk en í EES-samn- ingnum eru sex fiskafurðir undan- þegnar tollafríðindum; síld, lax, hörpudiskur, makríll og rækja. Bókun 6 í eldri samningi við Evr- ópubandalagið tryggir tollfrelsi í viðskiptum með rækju. Við inn- göngu EFTA-ríkjanna í ESB-eiga Islendingar mestra hagsmuna að gæta varðandi sfldarafurðir til manneldis, sem stór markaður er fyrir í Svíþjóð og Finnlandi, en munu frá áramótum bera 10-15% toll þar eins og á mörkuðum ann- arra ríkja ESB. Síldarsala hefur verið sveiflu- kennd undanfarin ár en miðað við viðskipti áranna 1990-1993 hefðu tollagreiðslur af síldarútflutningi á markað í EFTA-ríkjum numið inn- an við 40 milljónum króna á ári en miðað við viðskipti ársins 1988 hefðu tollagreiðslur numið nálægt 100 milljónum króna. Tollurinn er eins og fyrr sagði 10-15% eftir afurðum. Þó ekki sé um að ræða háar upphæðir í tollagreiðslum er talið að áhrif þeirra geti vegið þungt í versnandi samkeppnisstöðu á hörð- um samkeppnismarkaði. „Það er hart barist á þessum markaði og Norðmenn gera sér einhverjar von- ir um að þeir muni geta þróað sfld- armarkaðinn í Þýskalandi,“ sagði Gunnar Snorri. „Það sem er við- kvæmt við þetta innan ESB er að Danir en sérstaklega írar hafa verið mjög pössunarsamir að vernda sína markaði og það voru aðallega Irar sem börðust fyrir að síld yrði tekin út úr EES-samn- ingnum á sínum tíma.“ 4,5% á flatfisk Auk síldarafurða verður sú breyting á tollum í viðskiptum Is- lands við fyrrum EFTA-ríki að að ákvæði EES-samningsins um 4,5% toll öðlast gildi í viðskiptum með ýmsar tegundir flatfisks, svo og humar, keilu og löngu, lax, silung. Þá er 0,6% tollur á karfa en við- skipti með hann eru tollfrjáls innan EFTA. Fjárhæðir tollgreiðslna af þess- um tegundum eru áætlaðar sam- ■ tals álíka háar og aðeins í síldarvið- skiptum, en í þeim tilvikum er sam- keppnisstaðan ekki jafnviðkvæm. Varðandi humar þykir þó vera um talsverða hagsmuni að ræða, að sögn Gunnars Snorra. Hann sagði að utanríkisráðu- neytið væri þegar farið að þrýsta á ESB um viðræður vegna þessara hagsmuna og hefði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra meðal annars tekið málið upp í viðræðum sínum við forsvarsmenn Evrópusambandsins á dögunum. Óvíst hvenær viðræður hefjast Gunnar Snorri sagði óvíst hve- nær viðræður gætu hafist enda virðist Evrópusambandið fara var-' lega í þeim efnum fram yfír þjóð- aratkvæðagreiðslur í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi um inngöngu í ESB snemma vetrar. Óvissa um þessi mál sé þó bagaleg því síldar- útvegsnefnd eigi um þessar mund- ir í samningum um sölu á síld til Finnlands. Við inngöngu EFTA-ríkjanna í ESB missa íslendingar einnig toll- frjálsan lambakjötskvóta til Nor- egs og Svíþjóðar verði ekki samið um annað sérstaklega. Þá eru toll- ar á reiðhestum hærri í samningum á Evrópska efnahagssvæðinu en innan EFTA. Morgunblaðið/Golli Kór MH í Háteigskirkju KÓR Menntaskólans við Hamrahlíð heldur í dag ásamt nokkrum félögum úr Hamra- hlíðarkórnum og stjórnanda sínum, Þorgerði Ingólfsdóttur, til Herning á Jótlandi til að taka þátt í Evrópuhátíð kóra, Europa Cantat. Um 2.500 þátttakendur verða á hátíðinni víðs vegar að úr heiminum auk áheyrenda. Hátíðin er haldin á þriggja ára fresti og skiptast Evrópulöndin á að halda hana. Kórinn flutti hluta af þeim verkum sem flutt verða á Europa Cantat hátíð- inni fyrir vini og velunnara í Háteigskirkju í gærkvöldi og var myndin tekin við það tæki- færi. FRÉTTIR Kapalskipið Nexus kom til Reykjavíkur í gær. Á föstudag heldur skipið ti! Eyja og hefst þá lagning kapalsins í suður frá Vestmannaeyjum. Magnús Kristinsson og Halldór Blöndal ræða málin á fundi í samgönguráðuneytinu í gær. Framkvæmdir við lagningu ljósleiðarakapals til Vest- mannaeyja verða ekki stöðvaðar Kapallínn væntan- lega fhittur frá fiskislóðum síðar ? X ' SAMKOMULAG tókst á fundi samgönguráðherra og fulltrúa Pósts og síma með útgerðarmönnum í Vestmannaeyjum í gær um að þegar verði hafist handa við að kanna möguleikana á því að breyta legu ljósleiðara- kapalsins sem lagning er að hefjast á sunnan og austan Vestmannaeyja. Útgerðarmenn í Eyjum og sjávarútvegsráðuneytið gerðu í fyrradag kröfu um að kapallinn yrði lagður þar sem hann skerti ekki blálöngumið á Kötlutanga og togslóðina sunnan Vestmannaeyja. Halldór Blöndal sam- gönguráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að kröfur um að kapall- inn yrði lagður á öðrum slóðum hefðu komið of seint fram til að svigrúm gæfíst til þess að breyta legu hans. Magnús Kristinsson fulltrúi útgerðar- manna sagði að á fundinum hefði því nánast verið lofað að lausn yrði fundin á málinu á næstu vikum og mánuðum og það yrði lausn til fram- búðar. Ef erlendir eigendur að kaplinum tækju ekki þátt í þeim fram- kvæmdum að færa hann gæti svo farið að kostnaðurinn við það yrði greiddur alfarið af íslenskum stjómvöldum. Halldór Blöndal sagði að lagning ljósleiðarakapalsins væri þegar orð- in á eftir áætlun og það myndi kosta stjamfræðilegar upphæðir að stöðva lagningu hans á þessu stigi og því kæmi það ekki til greina. Kanadamenn hafa yfírumsjón með lagningu kapalsins frá Evrópu til Kanada með tengingu til íslands, og er áætlað að henni verði lokið 24. ágúst og hann verði tekinn í gagnið 15. nóvember. „Við náðum samkomulagi um að við myndum þegar í stað undirbúa rannsóknir og athugun á því hvaða möguleikar séu á því að færa strenginn bæði sunnan Vestmannaeyja og út fyrir Totuna. Við ætlum að athuga hvaða kostir séu í þessum efnum. Fram- kvæmdin heldur því áfram, en um leið og okkur var kunnugt um þess- ar áhyggjur útvegsmanna í Vest- mar.naeyjum þá höfðum við sam- band til Montreal. Við munum taka það mál upp þegar í stað, að gera athugun á því að færa tenginguna til Vestmannaeyja og finna aðra leið sem útvegsbændur telja hent- ugri, og það verður einnig athugað að fara suður fyrir Totuna. Okkur þykir auðvitað leiðinlegt að þessi misskilningur skildi hafa komið upp. Póstur og sími hefur Iagt sig fram um að eiga mjög gott sam- starf við aðila í sambandi við sínar framkvæmdir, hvort sem er á landi eða í sjó,“ sagði hann. Aðspurður um hver myndi bera kostnaðinn af þessari athugun og lagningu kapalsins á öðrum stað vísaði Halldór til þess að málið hefði enn ekki verið tekið upp við Kanadamenn og því vildi hann ekk- ert um það tala á þessu stigi. Magnús Kristinsson sagði að þó ekki væri hægt að orða þessa niður- stöðu beint sem sigur útvegsmanna í Eyjum þá væri málið vissulega í höfn. „Þeir ætla að leggja út í kostn- að við að kanna nákvæmlega hvað það kostar að færa kapalinn, og síðan ætla þeir að vinna í því hvort þeir fá samstarfsaðilana með. En þeir höfðu líka orð á því að ef þeir yrðu þverir fýrir þá gæti farið svo að þetta yrði verkefni þeirra einna, og orð féllu um að vonandi yrði hægt að heija framkvæmdir næsta vor. Það er því komin lausn á mál- inu og við verðum að taka sam- gönguráðherra og Póst og síma- málastjóra alvarlega," sagði hann. Magnús sagði að að á fundinum í gær hefði ver- ið tekið fram af hálfu Pósts og síma, að á því tímabili þangað til kapallinn hefur verið færður og sjómenn gætu átt á hættu að lenda í vandræðum vegna hans, þá vildu þeir frekar að menn skildu veiðarfærin eftir á botni heldur en að skaða kapalinn. „Við ætlum ekki að fara að valda þeim neinu tjóni, en ef einhver verður til þess að lenda í kaplinum þá ætla þeir að bæta okkur þann skaða sem af því hlýst. Þeir ætla að eiga viðræður við okk- ur næstu daga um framgang máls- ins. Ég get alveg tekið það stórt upp í mig að segja það að þessir menn hafí allt að því lofað okkur því að lausn yrði ftindin á þessu máli á næstu vikum og mánuðum og það yrði lausn til frambúðar fyrir alla aðila. Þessi kapalorrusta er að því leyti til í höfn,“ sagði Magnús. Samband haft við ráðuneyti Þorvarður Jónsson fram- kvæmdastjóri fjarskiptasviðs Pósts og síma sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að við undirbún- ing lagningu kapalsins hefði Póstur og sími m.a. haft samband við og leitað álits hjá fulltrúum sjávarút- vegs-, umhverfis-, iðnaðar-, og samgönguráðuneytis. I febrúar síð- astliðnum hefði verið óskað bréf- lega eftir áliti ráðuneytanna á leyfi til lagningar og rekstrar kapalsins, og hefði bréfunum fylgt uppdráttur sem sýndi væntanlega legu hans. Umhverfis- og iðnaðarráðuneyti hefðu síðar lýst því formlega yfir að þau hefðu ekkert við lagningu kapalsins að athuga, en engin við- fbrögð hefðu borist frá sjávarútvegs- ráðuneytinu fyrr en í fyrradag þeg- ar ósk barst um að framkvæmdum yrði hætt og fundin ný staðsetning fyrir kapalinn. Fundur með hagsmunaaðilum „Póstur og sími er tilbúinn til að hjálpa sjómönnum með öllum tiltæk- um ráðum að varast það að festa veiðarfæri sín í strengnum og mun á næstu dögum boða til fundar með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi til að kynna legu strengsins, því ekki má veiða innan 200 metra frá strengnum með botnveiðarfærum. Þá þarf að ræða hvemig hægt er að minnka hugsanlegan skaða vegna legu strengsins. Póstur og sími mun taka þetta mál upp á ný við önnur landtökulönd strengsins og kanna möguleika á því hvort unnt sé að breyta legu á hluta strengsins síðar, og hvað síkar breytingar myndu kosta. Þá verður fljótlega eftir lagn- ingu strengsins dreift til útgerðar- og sjómanna kortum af legu hans auk disklings með staðsetningar- hnitum sem hægt er að setja í tölv- ur tengdar staðsetningartækjum fískiskipa,“ sagði Þorvarður. Aðspurður um hvort eitthvað væri því til fyrirstöðu tæknilega að færa kapalinn sagði Þorvarður að það yrði kannað á næstunni. Um væri að ræða athugun á svæðinu sunnan Vestmannaeyja og á svæði á svokölluðum Kötluhrygg eða Kötlutotu sem er veiðisvæði fyrir blálöngu. „Þá yrði bogi sem beygði í kringum þessa totu annars vegar og bogd annað hvort vestur eða austur fyrir veiðisvæðið sunnan Vestmannaeyja," sagði hann. Þorvarður sagði að auk fundarins með útvegsmönnum í Vestmanna- eyjum hefði í gær verið haldinn fundur með fulltrúum sjávarútvegs- ráðuneytis, og hann teldi að Póstur og sími hefði skýrt sitt mál og skiln- ingur væri á því hvað hægt sé að gera. „Ég er að vona að menn taki þessu nú rólega héðan í frá því það er auðvitað ekkerí unnið með því að hleypa af stað einhverjum æs- ingi og látum,“ sagði Þorvarður. Málið vissu- legaíhöfn I l I I ! 1 I I I I I I I I I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.