Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 8

Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Jóhanna og Gunnlaug- ur á vinnu- staðafundum FORYSTUMENN Alþýðuflokksins á Austurlandi hafa tekið virkan þátt í að undirbúa og skipuleggja ferð Jóhönnu Sigurðardóttur, al- þingismanns, um Austfirði. Gunn- laugur Stefánsson, þingmaður Al- þýðuflokksins á Austurlandi, fór með Jóhönnu á vinnustaði á Stöðv- arfirði og Breiðdalsvík í fyrradag og Hermanns Níelsson, varaþing- maður, mun fylgja henni um Egiis- staði á morgun. Gunnlaugur Stefánsson sagði í samtali við Morgunblaðið að Aust- firðingar væru upp til hópa gestris- ið fólk og því tækju þeir vel á móti gestum hvar í flokki sem þeir stæðu. Hann sagði að ekki væri ástæða til að leggja einhverja póli- tíska merkingu í það þó hann heim- sæki vinnustaði með Jóhönnu Sig- urðardóttur. Hann sagðist ekki vera á leið úr Alþýðuflokknum. Jóhanna hefur ekki haldið eigin- lega fundi með fólki á ferðum sín- um. Hún hefur heimsótt vinnu- staði, stofnanir og söfn og rætt við fólk sem vegi hennar hefur orðið. Gunnlaugur og Jóhanna heimsóttu m.a. Gunnarstind á Stöðvarfirði og tóku þátt í_ síðdegisleikfími með starfsfólki. í gær heimsótti hún Fáskrúðsfjörð, Reyðarfjörð og Eskifjörð. í dag verður hún á Nes- kaupsstað og gistir á Egilsstöðum. Á morgun heimsækir hún Seyðis- fjörð og Egilsstaði. Um næstu helgi verður hún á Norðurlandi. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins mun Sigbjörn Gunnarsson, þing- maður Alþýðuflokksins á Norður- landi eystra, fara með henni um einhvern hluta kjördæmisins. Morgunblaðið/Sverrir Akkerið málað SKEMMTIFERÐASKIPIÐ inn. Akkerið, sem er engin Albatross lá í Reykjavíkurhöfn smásmíð, verður gjarnan fyrir á dögunum og á meðan farþeg- hnjaski, þegar það kennir botns arnir skoðuðu landið unnu skip- og því þarf að mála það oftar verjar að því að snyrta farkost- en aðra hluta skipsins. Hópur gegn staðsetningu hæstaréttarhúss Telja vinnubrögðin stangast á við lög Morgunblaðið/Golli ÓFRIÐUR ríkir um staðsetningu hæstaréttarhúss við Lindar- götu segja þau, sem hér sjást byggingarsvæði hússins. F.v. Guðrún, Jón Aðalsteinn Jónsson, Skúli, Reynir Ingibjartsson, Kristín og Gerður, en þau eru andvíg staðarvalinu. BARÁTTAN gegn byggingu hæstaréttarhúss við Lindargötu, bakvið Þjóðminjasafnið, heldur áfram þrátt fyrir að framkvæmdir við húsið séu hafnar. Hópur, sem myndaður var í kringum baráttuna og stóð meðal annars fyrir undir- skriftum gegn staðsetningu þess, fordæmir þau vinnubrögð, sem við- höfð voru við undirbúning bygging- arinnar og segir að ekki hafí í öllum tilfellum verið farið eftir lögum. Hópurinn segir að ófriður sé skoll- inn á í þessu máli. Gerður Steinþórsdóttir, sem er í hópnum, segir að frá því að borgar- yfírvöld skipuðu viðræðunefnd í lok júní um endurskoðun á staðsetn- ingu hæstaréttarhússins, hafi hlut- irnir gengið mjög hratt fyrir sig; þann tólfta þ.m. hafi dómsmála- ráðuneytið greitt borginni tilskilin byggingarleyfí, um 10 milljónir króna, og að morgni föstudagsins 15. júlí hafi ráðherrann tekið fyrstu skóflustunguna. Mótmæla stað en ekki húsi Kristín Ástgeirsdóttir þingmaður tekur það skýrt fram að ekki sé verið að mótmæla húsinu sjálfu því skilningur sé á því að Hæstiréttur þurfi betri aðstöðu. Aðeins sé verið að mótmæla staðsetiíingunni því húsið skyggi á byggingarnar í kring, þar á meðal Þjóðminjasafnið, sem og Arnarhvál og Þjóðleikhúsið. Skúli Norðdahl arkitekt bætir því við að hópurinn hafi bent á ýmsa aðra möguleika, til að mynda svæði vestan við Þjóðarbókhlöðu og að núverandi hús Hæstaréttar hefði verið hannað með það í huga að hægt væri að byggja við það. Hann segir það eina hugmynd hópsins að koma upp skrúðgarði á svæðinu við Lindargötu 2, sem mundi fegra umhverfi bygginganna og leyfa þeim að njóta sín. Undirbúningur í skötulíki { yfirlýsingu hópsins, sem Gerð- ur, Kristín, Skúli og Guðrún Jóns- dóttir arkitekt og fulltrúi meirihlut- ans í borgarstjórn í skipulagsnefnd skrifa undir segir meðal annars: „Allur undirbúningur málsins er í skötulíki sbr. það að lóðin Lindar- gata 2 varð ekki til fyrr en í janúar á þessu ári, en verðlaun voru veitt fyrir hús á þeim stað í ágúst á síð- asta ári. Þetta er ekki lögum sam- kvæmt og sæmir ekki yfirvöldum dómsmála sem eiga að gæta laga og réttar í Iandinu. [...] Ofriður er skollinn á í hæstaréttarhússmálinu. Við munum fylgjast grannt með þróun mála og lýsum því yfir að þessu umdeilda máli er engan veg- inn lokið.“ Búið í haginn fyrir nýbúabörn Fjölþjóðlegur leik- skóli rekinn í vetur KOLBRÚN Vigfús- dóttir, umsjónar- fóstra hjá Dagvist barna, á sæti í nýbúanefnd stofnunarinnar sem hefur lagt drög að þróunarverk- efni sem miðar að aukinni aðlögun nýbúabarna í ís- lenskum leikskólum og aðstoð í tungumála- kennslu, svo eitthvað sé nefnt. Búið er að ákveða að verkefnið einskorðist við leikskólann Lindarborg fyrst í stað, og þar verði aflað þekkingar og gagna sem nýst geti til frambúð- ar. Fjögur nýbúabörn eru þegar í skólanum og fleiri væntanleg, en starf í þessa veru hefst fyrir alvöru í haust. „Það er ekki eftir neinu að bíða,“ segir Kol- brún. Hún kveðst gera ráð fyrir ►KOLBRÚN Vigfúsdóttir er Kolbrún Vigfúsdóttir að ári verði varið í verkefnið og lærdómur dreginn af reynslunní sem þar fæst, sem síðan muni birt- ast í skýrsium og kennslugögnum í kjölfarið. Ekki vör við fordóma Hvernig kviknaði hugmyndin um þróunarverkefni á þessu sviði? „Hugmyndin er sprottin af spurningum sem vöknuðu í grunn- skólakerfinu, þegar í ljós kom að börn nýbúa þar voru mörg hver afar illa stödd í íslensku og áttu í ýmsum öðrum erfíðleikum fyrir vikið. Menn leiddu hugann að ráð- um til úrbóta og spurðu hvar væri heillavænlegast að sporna við þess- ari þróun. Leikskólarnir þóttu besti kosturinn, enda grunnurinn að framtíðinni lagður þar og mikils- vert að börnin geti notfært sér árin sem þau dvelja þar til náms og undirbúnings. Þáverandi borg- arstjóri, Markús Örn Antonsson, ákvað síðan fyrir um hálfu öðru ári að hrinda frekari athugun af stað, og nýbúanefnd Dagvistar barna var stofnuð í kjölfarið til að vinna frekari hugmyndir og verk- efnið á Lindarborg er afraksturinn af þeirri vinnu. Við ætlum ekki að safna nýbúum saman þar, heldur reka fjölþjóðlegan skóla til að safna þekkingu og reynslu sem nýtist síðan í öðrum leikskólum. Lindar- borg varð fyrir valinu þar sem skólinn er miðsvæðis í borginni og margir nýbúar eru búsettir á þeim slóðum, þar á meðal töluverður fjöldi Víetnama. Foreldrar íslenskra barna í skólanum vita ---------- af þessu verkefni, þótt ekki sé búið að ræða þau mál til hlítar, en við höf- um ekki orðið vör við neina fordóma eða ótta í þessu sambandi, þó svo að slíkt geti alltaf skotið upp kollinum. Komi vandamál af því tagi til okk- ar kasta, verður reynt að leysa þau með ró og skynsemi." Eru allar dúkkur hvítar? Verða kennsluhættir þar frá- brugðnir öðrum leikskólum að ein- hverju marki? „Áherslur verða þær sömu á Lindarborg og annars staðar, þótt við munum vitanlega kanna hvaða leið er vænlegust til að hjálpa þess- um litlu nýbúum til að læra íslensk- una sem annað mál, því börnin eiga sér alltaf annað móðurmál. Þarf að taka þau í sértíma eða er hægt að gera vinnuna og leikinn markvissari í þessum tilgangi? Við þurfum að vinna upp ákveðnar aðferðir og tilgangurinn með verk- efninu á Lindarborg er að þróa þær frá hugmyndastigi yfir í raunhæfa kennsluáætlun. Við þurfum að komast að því hvaða aðferð er best til að börnin njóti þessarar dvalar þannig að þau læri íslensku, en haldi eftir sem áður menningu sinni og tungumáli, að foreldrarnir fædd árið 1945 í Vestur-Skafta- fellssýslu. Hún lauk prófi sem leikskþlakennari frá Fóstru- skóla íslands 1977, varð sér- kennari fyrir þroskahefta frá Kennaraháskólanum i Málmey í Svíþjóð 1981 og lauk framhalds- námi í stjórnun frá Fóstruskóla íslands árið 1988. Hún var ráðin umsjónarfóstra hjá Dagvist barna árið 1992. Kolbrún situr í jafnréttisnefnd Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hef- ur setið í fræðslu- og menntar- áði Fóstrufélagsins og á sæti í fulltrúaráði Fóstrufélagsins. Samkennd án þess að sér- kenni glatist séu meðvitaðir um hversu mikil- vægur leikskólinn er og að und- irbúa þau á annan hátt vel fyrir grunnskólanám. Við viljum að börnin öðlist þá tilfinningu að þau tilheyri fjöldanum en glati samt ekki vitundinni um sérkenni sín og stolti yfir uppruna sínum. Þetta eru markmiðin í grófum dráttum. í ágúst mun nefndin koma saman að nýju eftir sumarleyfi og leggja línurnar fyrir veturinn. Þegar hefur verið kynnt fyrir starfsfólkinu á Lindarborg hvernig verkefnið er hugsað, en við munum að sjálf- sögðu byija á starfsfólkinu, sem þarf að átta sig á hvar það stendur í skoðunum og tilfinningum gagn- vart blöndun af þessum toga, og hvaða fræðsla er nauðsynleg til að vera í stakk búin til að takast á við verkefnið. Þetta á meðal annars við menningu, trúarbrögð og siði viðkomandi barna og for- ---------- eldra. Síðan munum við leggja áherslu á sam- vinnu með foreldrum, og þá er kannski eitt það mikilvægasta að fá leyfi til að ráða túlka þegar á þarf að halda í viðtölum og öðrum útskýringum á verkefn- inu. Þetta er fjárhagslegt atriði sem ekki er búið að ganga frá. Foreldrarnir þurfa að skilja mikil- vægi þess að tala við börnin á eig- in tungumáli og að börnin sæki leikskóla sem hefur vafist fyrir sumum eins og eðlilegt er. Einnig þarf að huga að umhverfi leikskól- ans, þ.e. eru allar dúkkur hvítar, eru allar myndir íslenskar, eru all- ar bækur með myndum af norræn- um börnum, hvaðan kemur tónlist- in og ótal margt fleira í sama dúr. Leikföng í þessu ljósi eru smáat- riði sem fæstir leiða hugann að, en þarf að skoða að nýju með til- liti til blandaðra skóla. Sjálfri fínnst mér einnig æskilegt að starfsfólk skólans sé líka af mis- munandi litarhætti, í þeim tilgangi að börnin geti samsamað sig bet- ur. Ég held að vísu að leikskóla- kennarar hérlendis séu flestir eða allir íslendingar, en aðstoðarfólk á leikskólum hefur margvíslega menntun og bakgrunn, sem opnar möguleika á að þetta verði að veru- leika í náinni framtíð.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.