Morgunblaðið - 21.07.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR21. JÚLÍ1994 9
______________FRÉTTIR_____________
Alþjóðlegt fornsagna-
þing á Akureyri
76 fyrirlestrar um samtímasögur í tveimur málstofum
QUEEN frá abecita
Fyrir stórar stelpur
st. 75-105 b-c-d-e.
Verð með spöngum kr. 2.950
verð án spangar kr. 2.750
Póstsendum
ALÞJÓÐLEGT fornsagnaþing verð-
ur haldið á Akureyri dagana 1. -
6. ágúst næstkomandi. Búist er við
að þátttakendur verði um 200 hvað-
anæva að úr heiminum. Fluttir
verða 76 fyrirlestrar um samtíma-
sögur, einkum Sturlungu og bisk-
upasögur. Auk þess fara þátttak-
endur í ferðir um Skagafjörð og
Þingeyjarsýslur. Gefið hefur verið
út ráðstefnurit þar sem birtir eru
meðal annarra allir fyrirlestrarnir
sem fyrir verða teknir á þinginu.
Alþjóðlegt fornsagnaþing er nú
haldið í 9. sinn. Að því stendur Al-
þjóðlega fornsagnafélagið, sem
stofnað var þegar Hermann Pálsson
prófessor í Edinborg blés til forn-
sagnaþings þar í borg árið 1971.
Fornsagnaþing eru jafnan haldin á
3 ára fresti. A vegum fornsagnafé-
lagsins starfar alþjóðleg ráðgjafa-
nefnd. Formaður hennar nú er
Sverrir Tómasson, en hann er jafn-
framt formaður framkvæmdanefnd-
ar þingsins sem haldið verður á
Akureyri. Ásamt honum eru í nefnd-
inni Haraldur Bessason frá Háskól-
anum á Akureyri, Tryggvi Gíslason
frá Menntaskólanum á Akureyri,
Stefán Karlsson og Gísli Sigurðsson
frá Stofnun Árna Magnússonar,
Ásdís Egilsdóttir frá Bókmennta-
fræðistofnun Háskóla íslands og
Úlfar Bragason frá Stofnun Sigurð-
ar Norðdals.
Sögur sem tengjast
Norðurlandi
Sverrir Tómasson sagði að þegar
Alþjóðlegt fornsagnaþing hefði síð-
ast verið haldið, í Gautaborg, hefði
verið ákveðið að næst yrði þingað
á íslandi. Framkvæmdanefndin
hefði ákveðið að halda þingið utan
Reykjavíkur, meðal annars til að
gefa þátttakendum færi á að kynn-
ast öðrum stöðum á landinu, og
Akureyri hefði orðið fyrir valinu.
Þá hefði sjónum ekki síst verið beint
að því að fást við sögur sem á ein-
hvern hátt tengdust Norðurlandi og
því væri megináhersla lögð á Sturl-
FORNT innsigli Þingeyrar-
kirkju, merki Alþjóðlegs forn-
sagnaþings á Akureyri 1994.
ungu og fleiri samtímalegar sögur,
meðal annars biskupasögur. Einnig
yrði fjallað um konungasögur, með-
al annarra Sverris sögu og Hákonar-
sögu, en með því næðist til norskra
vísindamanna sem væru að kanna
þær sérstaklega um þessar mundir.
Að sögn Sverris Tómassonar fer
fornsagnaþingið fram í Verkmennta-
skólanum á Akureyri en setningarat-
höfn verður í Akureyrarkirkju klukk-
an 10 að morgni mánudagsins 1.
ágúst. Þar munu Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, og mennta-
málaráðherra, Ólafur G. Einarsson,
flytja ávörp og Jónas Kristjánsson
fráfarandi forstöðumaður Áma-
stofnunar flytur inngangsfyrirlestur
þingsins. Þingstörf heíjast svo í
Verkmenntaskólanum eftir hádegið.
Kvöldið áður, sunnudagskvöldið 31.
júlí, verða gestir þingsins á samkomu
í íþróttahöllinni á Akureyri í boði
Bæjarstjómar Akureyrar.
Þingað í tveimur málstofum
Sverrir sagði að þingstaður yrði
í Gryfjunni, samkomusal Verk-
menntaskólans, og þar fjallað um
aðalefnið, Sturlungu, en jafnframt
yrði þingað í annarri málstofu um
aukaefni þingsins, þannig að tvennt
færi jafnan fram á sama tíma. Fyr-
irlesarar kynntu viðfangsefni sín og
fyrirlestra, sem allir hefðu þegar
Yfir lOO þúsund
tonn komin á land
LOÐNUVEIÐI það sem af er vertíð-
ar er komin yfir 100 þúsund tonn.
Þetta er heldur meiri veiði en á sama
tíma í fyrra, enda eru núna mun
fleiri skip á veiðum. Dræm veiði
hefur verið síðustu sólarhringa. Að
sögn loðnuskipstjóra sem Morgun-
blaðið ræddi við er loðnan dreifð og
mikið fyrir því haft að veiða hana.
Skipin hafa verið að veiðum um
100 sjómílur norður af Langanesi.
Um helgina töldu Norðmenn sig
hafa fundið loðnutorfur mun norð-
ar, en það reyndist ekki vera rétt.
Ailmörg skip fóru norður undir 200
mílna mörkin en fengu ekkert.
Marteinn Einarsson, stýrimaður
á Höfrungi frá Akranesi, sagði að
veiðin undanfarna vikur hefði verið
þannig að öðru hvoru hittu menn á
sæmilegar torfur, en flotinn væri
fljótur að veiða þær upp. Á milli sé
lítið eða ekkert að hafa. Hann sagði
að skipin séu að kasta allt upp í 20
sinnum, en nái sum hver samt ekki
að fylla sig.
HÚSASMHMAN
Reykjavík og Hafnarfirði.
Níðsterk og örugg
MISSELFIX
ádragseinangrun
V.
y
verið gefnir út á ráðstefnuriti, og
síðan yrðu fyrirspurnir og stuttar
umræður um hvert efni. Fyrirlestrar
verða alls 76 talsins. Fyrirlestrum
mun ljúka föstudaginn 6. ágúst en
á laugardagsmorgun verða þinglok
og teknar saman niðurstöður og
næsti þingstaður ákveðinn.
Miðvikudaginn 3. ágúst fara gest-
ir fornsagnaþings í kynnisforðir,
annars vegar í Þingeyjarsýslur og
hins vegar í Skagaijörð.
Ur öllum heimsálfum
Að sögn Sverris koma gestir Al-
þjóðlegs fornsagnaþings víða að, en
allt eru þetta fræðimenn og áhuga-
menn um íslenskar fornbókmenntir,
læsir og jafnvel talandi á íslensku.
Auk þátttakenda frá Norðurlöndum
nefndi Sverrir Þjóðverja, Letta, Li-
háa, Rússa, Frakka, ítali, Breta,
Rúmena og Króata, Bandaríkja-
menn og Kanadamenn, Ástralíu-
menn, Suður-Afríkumann og auk
þess væru skráðir þátttakendur frá
Japan. Meginhlutinn væri Evrópu-
menn og Ameríkanar. Að sögn hans
er Alþjóðlega fornsagnaþingið
styrkt af ríkinu, norrænum sjóðum
og fyrirtækjum og stofnunum á
Akureyri og í Reykjavík.
Þröng á þingi
Samkvæmt upplýsingum Tiyggva
Gíslasonar skólameistara Mennta-
skólans á Akureyri hefur undirbún-
ingur fornsagnaþingsins nyrðra
gengið að óskum. Að vísu sagði
hann að vandasamt væri að fá gist-
ingu fyrir þátttakendur á háanna-
tíma í ferðamennsku. Gripið hefði
því verið til þess, meðal annars, að
hýsa þinggesti í heimahúsum og í
húsnæði skólanna.
GARÐURINN
Kringlunni