Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 10

Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Hólmfríður Haraldsdóttir HENNING Jóhannesson ásamt hermönnunum og túlki þeirra. Bandarískir hermenn við æfingar í Grímsey Grirasey. Morgunblaðið. GÓÐIR gestir hafa nú kvatt Gríms- ey eftir fjögurra daga dvöl. Gestirn- ir voru 9 sérþjálfaðir kafarar og sprengjusérfræðingar frá banda- ríska hernum. Þeir höfðu lengi átt sér þann draum að kafa við norður- heimskautsbauginn og tækifærið gafst hér í Grímsey. Veðurguðirnir tóku vel á móti gestunum, sólin skartaði sínu feg- ursta og fannst þessum hermönnum mannlífið létt og aðstæður spenn- andi. Hér gátu þeir veitt sér fisk til matar og einnig smökkuðu þeir í fyrsta sinn á lunda og svartfugls- eggjum og öðru góðgæti sem eyjan býður upp á. Sýningar á tækjum Tvívegis höfðu hermennirnir sýn- ingu á starfi sínu og tækjum og sýndu eyjarbúar því mikinn áhuga. Fram má taka að nokkrir þessara hermanna tóku þátt í hinu fræki- lega björgunarafreki í Vöðlavík í vetur. Grímseyingar tóku þessum heiðursmönnum með mikilli gleði, en það var Slysavarnarfélagið í Grímsey sem sá um undirbúning og móttökur allar. SUMAR ÚTSALA u iSs .. - BOLIR 495 kr. BOLIR, TOPPAR 895 kr. BUXUR 1.995 kr. BLÚSSUR, PCYSUR 1.995 kr. GALLABUXUR, PILS 2.495 kr. BLÚSSUR, PEYSUR 2.495 kr. KJÓLAR, ÚLPUR 2.995 kr. Akureyrarmaraþon á laugardag Hlauparar frá Astralíu með- al þátttakenda AKUREYRARMARAÞON verður þreytt laugardaginn 23. júlí. Mikil þátttaka verður í þessu hlaupi og meðal þátttakenda verða hlauparar frá Ástralíu. Auk þess sem hlaupið verður hálfmaraþon gefst kostur á að hlaupa 10 kílómetra eða taka þátt í 4 kílómetra skemmtiskokki. Ungmennafélag Akureyrar stendur fyrir Akureyrarmaraþoni og Jón Árnason, talsmaður keppn- innar, sagði að í gær hefðu þegar skráð sig um eða yfir 200 þátttak- endur, sem er talsvert fleira en í fyrra. Formlegri forskráningu átti að ljúka í gærkvöldi en Jón sagði að góðir möguleikar ættu að vera á eftirskráningu, þannig að þeir sem hefðu gleymt sér eða vildu láta bæta sér í hópinn gætu haft samband allt fram á föstudag Jón sagðist sérstaklega vilja benda á að í 4 kílómetra skemmti- skokkinu yrðu verulega fijálslegar aðferðir heimilar og þetta væri kjörið tækifæri fyrir alla, unga jafnt sem aldna, að skokka, hlaupa eða ganga þessa vegalengd í góða veðrinu á Ákureyri. Hlauparar koma víða að Að sögn Jóns eru þátttakendur í Akureyrarmaraþoni víðs vegar að af landinu og meðal kepjienda í hálfmaraþoni verða tveir Ástral- íubúar. í hálfmaraþon höfðu í gær skráð sig á bilinu 50-100 manns og taldi Jón fyrirsjáanlegt að þetta yrði góð keppni og mikil skemmt- an. Bæjarstjórinn á Akureyri, Jak- ob Björnsson, mun ræsa hlaupara á Akureyrai-velli klukkan 12 á hádegi á laugardag, en þeim sem forskráðir eru er boðið í pasta- veislu á Akureyrarvelli á vegum Greifans klukkan 19 á föstudags- kvöld. Sá matur sagði Jón að þætti einkar hollur þeim sem ætl- uðu að taka á og reyna á líkam- lega getu sína. Allir þátttakendur í Akureyrar- maraþoni hljóta viðurkenningar- peninga og auk þess verða veitt vegleg verðlaun og dregnir verða út happdrættisvinningar úr þátt- tökunúmerum skemmtiskokkara. Mótsstjóri verður Sigurður Magn- ússon. Morgunblaðið/Rúnar Þór Undir eplatrénu LITSKRÚÐIÐ í blómagarði hjón- anna Guðrúnar Kristjánsdóttur og Þorvaldar Snæbjörnssonar við Kotárgerði á Akureyri er meira en orð fá lýst. Þar eru í hundraðatali sumarblóm, rósir og jurtir af fjölbreyttasta tagi, sem þau rækta að mestu sjálf frá grunni, og ilmurinn í garðinum í sumarhlýjunni er sannarlega indæll. Mikið starf er að halda þessum gróðri öllum við, hreinsa, reyta arfa og þrífa. Guðrún seg- ir Þorvald eiga mestan heiðurinn af því og hann segist iðulega koma sér á fætur klukkan 5 á morgnana til að geta dundað við garðinn í tvo tíma eða svo áður en hann fer til vinnu. Að húsa- baki hafa Guðrún og Þorvaldur gamalt gróðurhús, sem að nokkru fær yl úr fráfalli hitaveit- unnar. Þar segja þau að frjósi á vetrum en þar er margt rósa af fjölbreyttasta tagi og þar vex eitt eplatré. Þetta eplatré sagðist Guðrún hafa fengið að gjöf fyrir 18 árum. Það væri norskt og samkvæmt miða sem á því er enn er það af tegundinni Alice. Fljót- lega fór tréð að bera ávöxt, stór, rauðgul epli, mjölmikil, sögðu þau, en safarík svo þau rynnu uppi í munni þegar þau væru fullþroskuð. I góðu ári sagðist Þorvaldur hafa tínt um 80 epli af trénu, og í ár yrði uppskeran með allrabesta móti. Eplin eiga enn eftir að stækka en eru þegar farin að roðna. Þar sem Guðrún og Þorvaldur stóðu undir epla- trénu var engu likara en verið væri í útlöndum, en svo var ekki, þetta var í aldingarði á Akureyri. Hátíð að Hólavatni UM verslunarmannahelgina verður fjölskylduhátíð í Sum- arbúðunum að Hólavatni í Eyjafirði. Þar verður þátttak- endum boðin ýmis útivera, bátsferðir, boltaleikir, göngu- ferðir og ýmsir leikir eftir því sem veður leyfír. Gert er ráð fyrir að gestir verði í tjöldum en þeir sem kjósa að gista inni munu geta notið svefnaðstöðu í skála. Þetta er í fyrsta sinn sem fjölskylduhátíð af þessu tagi er reynd á Hólavatni, en þar eiga þeir sem kjósa að geta notið kyrrðar í notalegu um- hverfi. KFUM og KFUK á Akur- eyri standa að hátíðinni. T .istnsnmar ’94 “k“22»*kWreróke,P. Söngvaka í Minjasafns- kirkjunni í KIRKJU Minjasafnsins á Akur- eyri verður í kvöld söngvaka þar sem Rósa Kristín Baldursdóttir og Þórarinn Hjartarson flytja dag- skrá íslenskrar sönglistar allt frá fornum fimmundarsöng og rímum til samtímasönglaga. Minjasafnið er opið klukkan 19:30 til 22:30 í tengslum við söngvökuna. Djasskvöld á Karólínu í KVÖLD verður djass á kaffi- húsinu Karólínu. Þar leikur flokk- urinn Kuran- swing alkunna sveiflutónlist auk tónlistar sem flokks- menn hafa sjálfir samið. Þeir eru Szymon Kuran, Bjöm Thoroddsen, Ólafur Þórðarson og Bjami Svein- bjömsson. Djasskvöldið hefst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.