Morgunblaðið - 21.07.1994, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt íslenskt bílabón
BÓNAX heitir nýtt íslenskt bón
sem er framleitt af Skeljungi hf.
Bónax fæst í hálfs lítra og fimm
lítra umbúðum sem eru framleidd-
ar og merktar á íslandi.
Hráefni er flutt inn í tunnum
frá Þýskalandi og með því að fram-
leiða bónið hérlendis hefur tekist
að lækka verðið um helming og
skapa fjögur ný störf hjá fyrirtæk-
inu. Bónax á að þorna vel áður en
það er pússað af.
Stífelsi á strigaskóna
„STRIGASKÓRNIR halda sér
betur ef þeir eru úðaðir með
stífelsi eftir að þeir koma úr
þvotti" sagði okkur kona í aust-
urbænum.
Hugmyndina fékk hún úr
bandarísku blaði á dögunum og
eftir að hafa prófað þetta
nokkrum sinnum og séð að
þetta virkar fannst henni tilval-
ið að miðla þessu ráði.
Eftir að búið er að þvo skóna
og úða eru þeir hmigdir út á
snúru til þerris. Uðið þá eftir
hvern þvott, þannig eiga þeir
að halda sér betur!
NEYTENDUR
Helgartilboð
10-11 BÚÐIRNAR
Gildir frá 20. til 26. júlí.
E. Finnsson ísl. tómatsósa...58 kr.
Göteborgs Remi kex.......138 kr.
BKI danskt lúxuskaffi
500 g....................198 kr.
Kryddaðar lambagrill-
sneiðar.............689 kr. kg
Kims-snakkskrúfur........118 kr.
Grill-lambalæri.....668 kr. kg
GARÐAKAUP
Gildir frá fimmtudegi til laugar-
dags.
Svínabógur í heilu....435 kr. kg
Marnineraðar svína-
bógsneiðar............499 kr. kg
Knorr-salatdressing
2/pk., 5 teg...............79 kr.
Haribo-sælgæti á kynningarverði
Kantolan-tekex.............37 kr.
Coxie-ávaxtaþykkni,
5 teg.....................219 kr.
Finish-töflur í upp-
þvottavélar...............325 kr.
Iþróttapeysa............1.658 kr.
íþróttabuxur............1.445 kr.
_________BÓNUS___________
Gildir frá fimmtudegi til fimmtu-
dags.
MS stórt bakarabrauð....87 kr.
Goða lambaframp....279 kr. kg
Goðaskinka.........699 kr. kg
Áleggsþrenna.........809 kr. kg
Einnotagrill...........199 kr.
Kryddað lambalæri....649 kr. kg
Bónusís, 3 teg., 11......129 kr.
Sprite21..................89 kr.
Komflex 1 kg.............197 kr.
Pítubrauð 12 stk.........109 kr.
Vasaljós með 2 rafhl.....109 kr.
Sveppir..............379 kr. kg
Servíettur 500 stk.......197 kr.
KJÖT & FISKUR
Gildir frá fimmtudegi til sunnudags.
Hamborgarar með brauði ...49 kr.
Nautasnitsel........895 kr. kg
Folaldabeinsteik
krydduð.............279 kr. kg
'h lambaframpartur,
grillsagaður.........398 kr. kg
Svínabógsneiðar......395 kr. kg
Libby’s-tómatsósa 567 g..88 kr.
Bala-ananassneiðar452g..58 kr.
Holandia-kex 500 g......169 kr.
Fanta-appelsín 21...........109 kr.
F & A
Gildir frá fimmtudegi til miðviku-
dags.
Marineruð síld 450 g.....132 kr.
Kryddsíld 450 g..........132 kr.
Jaffa-kökur, 36 stk......240 kr.
Heinz-bakaðar baunir,
stórdós...................41 kr.
Machintosh, 2 punda
krukka................. 987 kr.
Caravan Starter
svefnpoki.............3.984 kr.
__________NÓATÚN______________
Gildir til 24. júlí.
Nautasnitsel........799 kr. kg
'h lambaskrokkur....429 kr. kg
400 g BKI-kaffi Extra..179 kr.
Ora-túnfiskur............79 kr.
11 Blábeijagrautur......189 kr.
MS-sumarkassi...........339 kr.
21Mjúkís................449 kr.
1.5kgfr. kartöflur......299 kr.
ísl. rófur.........69 kr. kg
454gbláber..............199 kr.
600gpizza...............299 kr.
Kattasandur, 5 kg.......199 kr.
lOruslapokar............129 kr.
FJARÐARKAUP
Gildir til 22. júlí.
ísl. kínakál.........126 kr. kg
ísl. hvítkál.........133 kr. kg
ísl. spergilkál......298 kr. kg
ísl. grænkál..........70 kr. kg
’ísl. blómkál.........168 kr. kg
ísl. rófur............84 kr. kg
21 Fanta/Fantalemon.......99 kr.
Regnbogasilungur....339 kr, kg
Kartöflusalat.......268 kr. kg
Grillpylsur frá
Kjarnafæði..........498 kr. kg
Samlokubrauð.............98 kr.
Þriggjakomabrauð..........98 kr.
Skiptir máli hvaða hveiti
við notum í bakstur?
Morgunblaðið/Einar Falur
KAFFI dregur nafn af héraðinu Kaffa í Eþíópíu en þar mun
notkun kaffibauna hafi hafist. Þær bárust til Evrópu á 17. öld.
Kaffirunni ber ávöxt nokkrum árum eftir að jurt er gróður-
sett. Eftir tínslu eru aldinkjöt og fræhimna fjarlægð, baunir
skildarsundur,þurrkaðar,flokkaðar,brenndarogmalaðar.
Kaffineysla óbreytt
þó verðið hækki
Við bakstur getur skipt sköpum
hvaða hveiti er notað eigi brauðið
eða kakan að heppnast fullkom-
•ega.
Brynhildur Briem matvæla- og
næringarfræðingur segir að það
eigi ekki að nota sama hveiti við
brauðbakstur og kökubakstur.
Ástæðan er sú að magn og gerð
próteina ræður baksturseiginleik-
um mjölsins, í þessu tilfelli er um
að ræða prótein sem heitir glúten.
Mikið glúten í brauð
en lítið í kökur
Það á að vera minna af glúteni
í kökum en brauði en glútenauð-
ugt mjöl hentar vel í brauðbakstur.
Glúten myndast þegar bleytt er
upp í mjölinu. Það myndar strengi
um deigið og verður þannig eins-
konar burðargrind í bakstursvör-
um. Þessir strengir eru teygjanleg-
ir þannig að þeir gefa eftir þegar
deigið þenst út eins og t.d. þegar
brauð er látið lyfta sér. ,
„Glútenið stífnar við bakstur.
Ef mikið er af glúteni í mjöli sem
bakað er úr þá verður afurðin
Morgunblaðið/Sverrir
Próteininnihald (g/100 g) í hveiti
sem er á markaði:
Super-hveiti .............. 9,5
Juvel .................... 10
Pillsbury Best ........... 10,3
Finax .................... 12
Kornax ................... 12
Stjörnu-Kornax ........... 13,5
Ijaðurkennd og seig eins og brauð
á að vera. En kökur eiga ekki að
vera seigar. Þess vegna hentar
ekki að nota glútenauðugt mjöl í
bakstur," segir Brynhildur.
Glúten í 4 korntegundum
Glúten er að finna í fjórum korn-
tegundum, þ.e. hveiti, rúgi, byggi
og höfrum. En það er bara glúten-
ið í hveiti sem myndar nógu sterkt
net til að hægt sé að baka úr þvi
brauð. í rúgi myndast örlítið glút-
en en ekki nógu mikið til að hægt
sé að baka úr honum einum. I
heilhveiti sem er ekki eins fínmal-
að og hvítt hveiti blotnar deigið
ekki eins vel þannig að það mynd-
ast ekki eins mikið glúten. Þess
vegna er erfítt að baka gott brauð
úr heilhveiti eingöngu.
Þó að það sé örlítið af öðrum
próteinum en glúteni í hveiti þá
er engu að síður hægt að nota
magn próteina í hveiti sem mæli-
kvarða á magn af glúteni. Utan á
pokum hveitisins er próteininni-
hald gefið upp.
Eins og sést af upplýsingum í
meðfylgjandi töflu er Stjörnu-hveiti
best í brauðbakstur á meðan Super-
hveiti hentar best í kökubakstur.
VEÐURFRÆÐINGUR sem spáði
slæmu veðri í Brasilíu fyrir skömmu
kom því til leiðar að heimsmarkaðs-
verð á kaffi hækkaði um 15% daginn
eftir. Verð breytist nú daglega og
hefur frost í Brasilíu skotið mönnum
skelk í bringu. Frekari verðhækkan-
ir eru fyrirséðar og hér spá menn
því að smásöluverð á kaffi muni
hækka um allt að helming á næstu
mánuðum.
„Sala þefur ekkert breyst síðustu
vikur,“ segir Örn Kjartansson hjá
sölu-og markaðsdeild Hagkaups.
„Neytendur hamstra ekki og hafa
ekki dregið úr kaffikaupum." Hann
segir að reynsla erlendis sýni að
fyrstu viðbrögð neytenda séu að
kaupa ódýrari tegundir en áður. En
meira þurfi að koma til svo fólk
hætti kaffineyslu eða dragi verulega
úr henni.
Um helmingur brenndur hér
Hráefni er um 60% af framleiðslu-
kostnaði kaffibrennslufyrirtækja, var
haft eftir Friðjófi O. Johnson hjá O.
Johnson & Kaaber í maí s.l. I sömu
grein kom fram að hlutdeild innlendu
kaffiframleiðandanna O. Johnson &
Kaaber og Kaffibrennslu Akureyrar
væri um 22% hjá hvoru fyrirtæki og
væri innlend framleiðsla með um
helmings hlutdeild. Annað kaffí hér
er flutt inn brennt og malað.
Rydens kaffi er innflytjandi og
segir Þórir Baldursson frkvstj. að í
maílok hafi verð frá fyrirtækinu
hækkað um 10% og um þessar
mundir sé sú verðhækkun að koma
fram í smásöluverði. „Við þurfum
að hækka verðið aftur eftir helgi,
um 10-16% en ég geri ráð fyrir enn
frekari verðhækkun í haust."
Allir sem rætt var við sögðu að
erfitt væri að spá um verðþróun á
kaffi og framboð á næstu mánuðum,
en menn voru þó sammála um að
rétt væri að gera ráð fyrir frekari
verðhækkun. Enn er vetur í Brasilíu
og allra veðra von þar til í haust
þegar Ijóst verður hvernig kaffiupp-
skeran verður.
Ódýr drykkur
Ólafur Johnson markaðsstjóri hjá
O. Johnson & Kaaber segist ekki
óttast minni kaffineyslu þrátt fyrir
verðhækkun. „Kaffi er mjög ódýr
drykkur og bolli af algengustu teg-
undum af kaffi kostar innan við 3,50
krónur.“
Sigmundur Dýrfjörð er eigandi
Te og Kaffi. „Við höfum þá sérstöðu
að við brennum baunir aðeins fyrir
verslanir okkar og keyptum birgðir
af sumum tegundum áður en verð
hækkaði svona mikið. Verð á al-
gengustu tegundum hefur nánast
staðið í stað, en verð á sumum teg-
undum er nú 10% hærra en síðasta
haust.