Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 17

Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR21. JÚLÍ 1994 17 ERLENT Spánverjar skila frönsk- umtogara SPÆNSKIR sjómenn fólu í gær yfirvöldum þar í landi franskan togara sem þeir tóku um helgina, vegna harðra deilna um notkun rekneta við túnfiskveiðar. Um eitt þúsund manns fagnaði spænsku sjómönnunum þegar þeir komu með franska togarann, La Gabri- elle, til hafnar á Spáni í fyrradag. Búist var við að spænsk yfirvöld myndu skila togaranum til Frakk- lands í gær. Eftir skyndifund í Brussel á mánudag náðist sátt í málinu, og ákváðu löndin að herða eftirlit með því að reglum Evr- ópusambandsins um túnfiskveið- ar verði fylgt. Það tók spænsk stjórnvöld hins vegar nokkurn tíma að fá sjómennina til þess að láta togarann af hendi. La Gabmile Reuter Serbar vilja frekari viðræður if. Reuter. LEIÐTOGAR Bosníu-Serba komu til Genfar í gær, að því er virtist með það á stefnuskránni að vinna tíma tii frekari viðræðna um alþjóð- lega áætlun um frið í Bosníu. Serb- neskir embættimenn sögðu að leið- togi þeirra, Radovan Karadzic, og nánustu aðstoðarmenn hans, myndu láta í ljósi vilja til að sam- þykkja áætlunina, á fundi með „tengslahópnum," þ.e., fulltrúum ríkjanna sem lögðu áætlunina fram. Embættismennirnir töldu líklegt að svar Bosníu-Serba yrði ,já, en sem ætti að gefa nokkurt svig- rúm til viðræðna og forða árekstr- um sem gætu kallað frekari óvild umheimsins yfir Bosníu-Serba og bandamenn þeirra, Serba. Ekki fleiri en og ef Leiðtogar ríkjasambands músl- ima og Króata áttu fund með „tengslahópnum“ í gær og lögðu þá fram samþykki sitt við áætlun- inni, sem þeir voru þó tregir til að veita. Forsætisráðherrann, Haris Silajdzic, gaf í skyn að stjórn Bosn- íu væri ekki reiðubúin til frekari viðræðna um skilyrði. „Við getum ekki endalaust rætt einhver en og ef,“ sagði hann við Reuters.-frétta- stofuna. Aætlunin væri „siðferði- lega vafasöm," því að samkvæmt henni myndu Serbar halda bæjum sem múslimar hefðu verið reknir frá. „En við samþykkjum [áætlun- ina] vegna þess að við eigum ekki annars úrkosta.“ Frekari skilyrði Meðal frekari skilyrða sem Bos- niu-Serbar munu setja fyrir sam- þykki sínu, er, samkvæmt heim- ildamönnum úr röðum þeirra, trygging fyrir því að látið verði af efnahagsþvingunum gegn Júgó- slavíu, sem talin er vera helsti bakhjarl Bosníu-Serba. Þvingun- unum var komið á að undirlagi Sameinuðu þjóðanna, vegna hlut- deildar júgóslavnesku lýðveldanna tveggja sem eftir eru, Serbíu og Montenegro, í bardögunum í Bosn- íu. Talið er líklegt að Bosníu-Ser- bar muni í grundvallaratriðum samþykkja þá skiptingu lands í Bosníu, sem gert er ráð fyrir í áætluninni, þó svo að þeir yrðu samkvæmt því að láta af hendi dijúgan hluta þeirra 70% landsins sem þeir nú hafa á valdi sínu. Þeir muni þó líklega fara fram á „smávægilegar" breytingar. Barna Verð: 2.990 (áður: 3.990) Stærðir: 2, 6,8,10,12 og 14.S Sendum í póstkröfu E whummél^ SPORTBÚÐIN Ármúla 40 - Simi 813555 og 813655 Blab allra landsmanna! -kjarni málsins! Má ekki bjóda þér kaffi? Á smurstöð Heklu er það tvennt sem hefur forgang: Víðskiptavinurinn og bíllinn hans. Bíllinn þinn nýtur þess að fá þjónustu fagmanna sem nota eingöngu smurefni og vélarolíur frá Shell sem staðist hafa ströngustu kröfur bílaframleiðenda. Og þú máttvera viss um að kaffið og meðlætið, sem við bjóðum á meðan þú bíður, er einnig fyrsta flokks. Láttu þér og bílnum líða vel á smurstöð Heklu. Þú pantar tíma í síma: 69 66 70 Skógrækt meö Skeljungi m HEKLA Smurstöð - Laugavegi 174. Sími: 69 56 70 og 69 55 00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.