Morgunblaðið - 21.07.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.07.1994, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Hárið fær and- litslyftingu TÓNLIST Sönglcikur HÁRIÐ Hárið eftir James Rado, Gerome Ragiii og Galt Macdermot. Davíð Þór Jónsson snaraði texta. Flyljendur ýmsir söngvarar og kór og hljóm- sveit skipuð Jóni Ólafssyni, sem jafn- framt sá um útsetningar og upptöku- stjóm, Birgi Baldurssyni, Guðmundi Péturssyni, og Haraldi Þorsteins- syni. Flugfélagið Loftur gefur út. Skifan dreifir. 35,39 mínútur, kr. 1.999. lyndi. Söngleikurinn sló þó víðast í gegn og hefur tónlistin úr honum til að mynda verið all vinsæl meðal ís- lenskra ungmenna undanfarin miss- eri. Það má því segja að Flugfélagið Loftur hafí ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur að setja verk- ið upp og gefa út á disk í bullandi samkeppni við þær erlendu útgáfur sem náð hafa fótfestu á markaðnum. Eina leiðin til að slíkt mætti takast var að gera betur en hinir og það hefur tekist svo um munar. Eins og áður segir er tónlistin í Hárinu hálfgerð hrákasmíð og hefur ekki batnað við að vera þynnt út eft- Hljómsveitin sem Jón hefur á að skipa er engin venjuleg hljómsveit, því þar eru á ferð tónlistarmenn í fremstu röð, Guðmundur Pétursson gítarsnill- ingur, Birgir Baldursson trommuleik- ari og Haraldur Þorsteinsson bassa- leikari. Þeir fara og á kostum við hlið Jóns, sem fer á kostum á orgel- ið, sérstaklega er Guðmundur eftir- tektarverður fyrir gítarleik; hver nóta á réttum stað. Söngvarar eru úr ýmsum áttum og sumir ekki þekktir fyrir söng sem aðalstarf. Þeir komast þó flestir af- skaplega vel frá sínu; sérstaklega Margrét Eir, sem syngur hreint frá- bærlega upphafslag plötunnar, Að eilífu. Söngur í öðrum lögum er mis- jafn, prýðilegur á Allir geta sært, Frank Mills, Syndir holdsins/Lifi ljós- ið og Blikandi stjörnur, en til að mynda hepnast Hvítir strákar ekki eins vel. Sérstakur fengur er að fá verkið á íslensku og þýðing Davíðs Þórs Jónssonar er oft afbragðsgóð. A stöku stað er textinn þó ekki nógu söngvænn, til að mynda þegar taugaáfall verður „taugáfail" vegna hljóðgapsins. Annað sem stingur í augu er þegar talað er um „litaðan" mann (að vísu var sá sem söng litað- ur fyrir hlutverk sitt) en ekki litan, sem er rökréttara. Einnig er hvim- leítt að ekki voru notaðar „íslenskar" gæsalappir á textablaðinu, þ.e. niðri að framan og uppi að aftan, en slíkt færist mjög í vöxt vegna vankunn- áttu þeirra sem tölvuvinna texta. Að lokum má nefna að réttara væri í textanum um Frank Mills: Hann sagði mér hvar hann byggi, en ekki hvar hann býr. Þrátt fyrir efasemdir með verkið sjálft verður ekki utan af því skafið að Flugfélagsmönnum hefur tekist vonum framan að búa Hárið í þekki- legan búning. Vonandi á þessi út- gáfa Hársins eftir að ná viðlíka vin- sældum og þær sem áður hafa kom- ið út, því hún á það vel skilið. Árni Matthíasson TÍSKAN byggist mjög á endurtekningu og tónlistin ekki síður. Þannig hefur hippatíminn haft mikil áhrif á tískufatnað síðustu ára og dægurtónlist um margt dregið dám af svonefndri sýrutónlist þeirra ára. Víst var margt vel gert, en annað drukknaði í þeim síngjama he- dónisma sem einkenndi hippana; „fijálsar" ástir (aðallega fyrir karlana, konur áttu helst að vera þeim til frjálsrar ráðstöfun- ar), fíknilyf (öll vandamál átti að leysa með því að gefa mönn- um kannabis) og draumurinn um upplýsta villimanninn, sem strit- aði í sveita síns andlitis og lifði í sátt við náttúruna; einskonar bama- skapur eða kannski bara einfeldni. Hárið eftir þá Rado og Ragni var samið til þess að græða á hippism- anum og þótti frá upphafi heldur klénn samsetningur. Tónlistin er eig- inlega hvorki fugl né fiskur og boð- skapur verkins frekar ógeðfelldur, utan almennra frasa um ást og sam- ATRIÐI úr Hárinu sem Flugfélagið Loftur sýnir í Islensku óperunni. ir því sem árin liðu, til að mynda í afleiti i bíómynd. Þar var því sterkur leikur hjá Jóni Ólafssyni að einfalda útsetningar og gera þær rokkaðri og hrárri og þannig líkari því sem var í örófi. Það er þó langt í frá að ein- hver gaddavír sé í boði, því hvarvetna er fágað þar sem við á. Þannig er eftirminnilegt upphafslagið Að eilífu og lögin Frank Mills, Hár, Blikandi stjömur og Syndir holdsins/Lifí ljósið. ■ **Fyrir börn og unglinga allt að 16 ára aldri þarf hvorki að greiða flug né gistingu en greiða verður flugvallarskatta. Tilboð gildirfyrir eitt bam á hvem fullorðinn. Bóka verður og staðfesta fyrir 31. júlí. Flugferðir til Orlando: Flogið 2svar í viku í sept. okt. og nóv. Ferðir skulu farnar á tímabilinu 10. sept. til 15. nóvember. Verð- og fjölskyldutilboð gildir í allar brottfarir til Orlando á þessu tímabili. Bóka verður og staðfesta fyrir 31. júlí Takmarkað scetaframboð! Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða I síma 690300 (svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8-16.) Hámarksdvöl er 30 nætur. Hægt er að gista t.d. 8 nætur á einum stað og 8 nætur á öðrum, vera fyrst í Orlando og fara síðan niður á ströndina hjá St. Petersburg eða Sarasota eða öfugt. Hægt er að fljúga til Orlando og heim frá Ft. Lauderdale eða öfugt. Innifalið flug og gisting og flugvallarskattar. - Flugvallarskattar á islandi eru 1.340 kr. f. fullorðna og 670 kr. fyrir börn 2-11 ára, og í Bandaríkjunum 1.680 kr. FLUGLEIDIR Traustur tslenskur ferðafélagi 100% afsláttur fyrir börn og unglinga að 16 ára aldri! Bóka verður og staðfesta fyrir 31. júlí.** Fliiíi, sól oíi sumarsœla í allt hanst i ★ ★★★★★★★ 58.920 ta1.* m.v. tvo fullorðna i 16 nætnr á Days Inn Maingate West. Bjóðum einnig gistingu á Enclave Suites, Summerfield Suites og Best Western Plaza. m ni SEPT. Lau/Mán Sun/Þri OKT. Lau/Mán Sun/Þri Næmleiki birtu oglita MYNPUST Málvcrk Hjá Ófeigi/Gallerí Sævars Karls/Gallerí Umbra Þorri Hringsson/Ingibjörg Eyþórs- dóttir/Reinhild Patzelt Hjá Ófeigi: Opið 10-18 mánud.- föstud. og 10-16 laugard. til 4. ágúst. Gallerí Sævars Karls: Opið 10-18 mánud.-föstud. til 4. ágúst. Galierí Úmbra: Opið 13-18 þriðjud,- laugard. og 14-18 sunnud. til 1. ágúst. Aðgangur ókeypis. ÞEIR sem sækja listsýningar reglulega njóta þess sérstaklega að bera saman það sem listamenn eru að bjóða upp á hverju sinni. Oft eru afar sundurleitar sýningar í gangi á sama tíma, þannig að ólíkar áherslur og mismunandi vinnubrögð njóta sín sérstaklega, en á stundum má finna ótrúlegan samhljóm milli sýninga, þar sem listamenn þó nálgast við- fangsefnið hver með sínum hætt- iannig hittist á um þessar mundir, að á þremur litlum sýningum í mið- borg Reykjavíkur eru þrír listamenn í myndverkum sínum að takast á við samspil birtu og lita. Þrátt fyrir ólíkar vinnuaðferðir er viss sam- hljómur næmleika og vandvirkni með öllum sýningunum, sem hver um sig byggist á fáum verkum í litlu rými, þar sem aðaláherslurnar njóta sín afar vel. Þorri Hringsson Húsnæðið Hjá Ófeigi á Skóla- vörðustíg 5 er hátt til lofts en þröngt til veggja, og listamaðurinn hefur notfært sér möguleika þess á hnitm- iðaðan hátt við uppsetningu verk- anna. Litlar blek- og blýantsteikn- ingar taka á móti gestum við inn- ganginn, en uppi í aðalrýminu eru stærri olíumálverk. Þorri Hringsson útskrifaðjst frá Myndlista- og hándíðaskóla íslands 1989, og var í framhaldsnámi í Hol- landi næstu tvö árin. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Djúpinu fyrir fimm árum, en þetta mun vera sjö- unda einkasýning hans. Þorri hefur verið framarlega í hópi ungra mynd- listarmanna sem hafa unnið að gerð myndasagna sem sjálfstæðrar list- greinar, og má m.a. minna á tímarit- ið Gisp(!) í því sambandi. Verk Þorra á sýningunni eru öll án titils, en í þeim er hann að fást við litbrigði birtunnar, eins og hún breytist í innirými — á stigapöllum, undir þakgluggum, á bak við hurðir. Listamaðurinn vinnur afar fínlega úr þessu hversdagslega viðfangs- efni; breytingar litanna eru fágaðar og látlausar, og mild birtan er hið ríkjandi afl. Vegna bakgrunnsins er mannleg nálægð ætíð til staðar í þessum verkum, þó hún sé hvergi gefín í skyn; tómleikinn minnir helst á hefðbundna japanska byggingalist, þar sem markmiðið er hið fullkomna samræmi rýmisins. Með þessum verkum sýnir Þorri á sér nýja hlið í myndlistinni, og er rétt að hvetja listunnendur til að kynna sér hana hér. Ingibjörg Eyþórsdóttir í Galleríi Sævars Karls hanga uppi fjögur myndverk listakonunnar, þar sem hún er að takast á við ein- föld tilbrigði sömu formanna og áhrif litanna í þeim leik. Ingibjörg lýsir þessu svo í sýningarskrá: „Sömu form í sömu litum eru notuð aftur og aftur en þau sett á mismunandi bakgrunn eða í mismunandi sam- hengi. Engar hugmyndafræðilegar ástæður eru meðvitað fyrir því að ég vel nákvæmlega þessi form, en þau leita alltaf á mig.“ Það form sem um ræðir er ró- manskur bogi í dimmrauðum lit, sem settur er á mismunandi litan bak- grunn í myndunum fjórum. Blekk- ingin er sterk; formin sökkva ýmist inn í bláan flötinn eða fljóta ofan á gylltum grunni, auk þess sem birtan breytir þeim í sífellu eftir því sjónar- horni, sem gesturinn hefur á verkið. Hér er einföld hugmynd útfærð á skemmtilegan og árangursríkan hátt, þar sem fjölbreytt gildi litanna eru í aðalhlutverki. Reinhild Patzelt Þrátt fyrir erlendan uppruna teng- ist Reinhild Patzelt íslenskri mynd- list órofa böndum; hún bjó hér á landi um árabil, stundaði listnám við MHÍ og hélt sína fyrstu sýningu hér 1975. I Gallerí Úmbru sýnir hún níu myndir, sem allar eru unnar með olíu á pappír. I þessum verkum (sem öll eru óhlutbundin og án titils) er að finna sterka myndbyggingu, þar sem dýpt litarins'er virkasti þátturinn. Lista- konan notar í ýmsum tilvikum einn- ig þrykk til að leggja niður liti eða til að leysa þá frá fletinum, og mynd- ar þannig sífellda hreyfingu og iðu í fletinum. Mismunandi litir ráða ríkjum í myndunum, sem vinna mik- ið á við nána skoðun. Reinhild Patzelt tekst vel til í þessum myndum, sem fara ágætlega í vinalegum salnum. Eiríkur Þorláksson Islensk tónlist flutt í Uppsaladómkirkju ÍSLENSKIR tónleikar í dómkirkj- unni í Uppsölum í Svíþjóð vöktu ánægju gesta og gagnrýnenda blaðsins Uppsala Nya Tidniing. Þeir voru haldnir í júní í tilefni af lýð- veldisafmælinu, að tilstuðlan Islend- ingafélagsins í borginni. Einsöngvari var Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran og fram kom einnig kór dómkirkj- unnar, Collegium Cantorum, sem heimsótti ísland á kirkjulistahátíð í Reykjavík 1991. Stjórnandi hans, Lars Angerdahl dómorganisti, gaf sitt framlag til tónleikanna og kórinn tók sér góðan tíma til að æfa íslensk- an framburð. Á efnisskránni voru íslensk ættjarðarlög og trúarleg verk. Kirkjan var þétt setin áheyr- endum og fyrrnefnt blað lofaði „mjúka og breiða rödd“ Ingibjargar. Blaðið sagði að spurningu um hvers vegna ísland ætti svo mörg góð tón- skáld hefði ekki verið svarað á tón- leikunum hvað yngri kynslóð þeirra varðar.......eins og jafnan með ungar þjóðir er aðaláhersla á þjóð- legum nótum. . . hér var þjóðernis- rómantík ríkjandi.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.