Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 19
LISTIR
Svalur maður
Maverick
Kvtkmyndlr
Bíóborgin og S a £ a b í ó
MAVERICK ★ ★ ★
Leiksljóri Richard Donner. Handrit
William Goldman, byggt á sjónvarps-
þáttum e. Roy Huggins. Tónlist
Randy Newman. Kvikmyndatöku-
stjóri Vilmos Zsigmond. Aðalleikend-
ur Mel Gibson, Jodie Foster, James
Gamer, Gi-aham Greene, James Co-
bum, Alfred Molina. Bandarísk.
Wamer Bros 1994.
ekki í sama hágæðaflokki og Butch
Cassidy and the Sundance Kid,
annar gamanvestri höfundarins, þá
morar hér allt í fyndnum setningum
og bráðskemmtilegum persónum.
Og bíðið þangað til aðalatriðið hefst
í fljótabátnum; hér mun kvik-
myndafíklum bregða við, því hvert
borð er setið af nýjum en þó öllu
frekar gömlum kunningjum úr
vestramyndum og -þáttum gegnum
tíðina og kántrítónlistarstjörnum á
Mel Gibson og James Garner
í vestranum Maverick.
öllum aldri. Art Le Fleur, Joe Grif-
asi, Doug McClure, Robert Fuller,
Bert Remsen, Denver Pyle, tóniist-
armennirnir Waylon Jennings, Clint
Black, Vince Gill, og eflaust margir
fleiri. Hér vinna þeir Goldman og
leikstjórinn Richard Donner í sönn-
um anda gömlu sjónvarpsþáttanna,
sem oft hentu gaman að örum
vestraþáttum og -myndum. Eins
skeyta þeir inní yngri kunningjum
einsog Danny Glover í hiutverki
bankaræningja sem segist vera orð-
in „of gamall fyrir þessi skítverk“
— að hætti Tveggja á toppnum.
Hinn fislétti andi sem prýðir Mav-
erick er einnig mikið að þakka Gib-
son, en hér fær hinn léttgeggjaði
gamanleikstíll hans að njóta sín (að
hætti stökksins framaf bygging-
unni í Tveir á toppnum I), enda er
maðurinn einnig framleiðandi að
þessu sinni og Donner er kunnur
fyrir að gefa leikurum sínum svig-
rúm. Foster kemst furðuvel frá
hlutverki sínu, enda með eindæm-
um flink leikkona, þó svo að hennar
„barroom belle“ verði seint minnst
sem einnar af hennar minnisstæð-
ari túlkunum, enda þvert á ímynd
leikkonunnar. Garner er hinsvegar
í essinu sínu, sömuleiðis þeir Molina
og Garner og reyndar allur þessi
skari dýrðlegra aukaleikara, heima-
vanra úr vestrasögu Hollywood. Og
gott ef ekki glittir í Óskarsverðlaun-
atilnefningu hjá kvikmyndatöku-
snillingnum Vilmos Zsigmond, tón-
skáldinu Randy Newman og leik-
tjalda- og búningahönnuðunum.
Góða skemmtun!
Sæbjörn Valdimarsson
EFTIR langa og leiða kvik-
myndalega gúrkutíð er ekki annað
að sjá en upp birti og hér sé fyrsti
sumarsmellurinn kominn. Maverick
hefur allt til að bera að svo geti
orðið; fislétt og skemmtileg afþrey-
ing, vönduð í alla staði og með úr-
valsmannskap, aftan sem framan
við tökuvélarnar, lukkast það sem
hann er að fást við. Þeir vita það,
sem muna árdaga RUV og kana-
sjónvarpið, að nafn, efnistök og
yfirbragð myndarinnar er sótt í
feykivinsælan sjónvarpsþátt sem
framleiddur var á árunum í kringum
1960. Hann dró svo nafn sitt af
söguhetjunni, Bret Maverick, sem
þá var leikinn af James Garner, sem
nú er orðinn heldur roskinn fyrir
hlutverkið og leikur hér lögmanninn
Zane Cooper, en Mel Gibson fer
með titilhlutverkið.
Efnið er ekki margflókið, öllu
frekar einfaldur rammi utanum
skemmtilegar persónur og smellin
tilsvör. Hinn ofursvali Maverick,
bragðarefur, kvennagull og fjár-
hættuspilari, er á leið um borð í
fljótabátinn Lauren Belle, þar sem
kræfustu peningaspilarar Villta
vestursins koma saman til að bítast
um hálfa milljón dala, óheyrilega
verðlaunaupphæð sem að lokum
fellur besta spilamanninum í hlut.
En það eru mörg ljón í veginum.
Hin fagra en hættulega Annabelle
(Jodie Foster), með ráð undir rifi
hveiju, að hnupla keppnisfé Mav-
ericks, rustinn Perez (Alfred Mo-
lina), en tvísýnan hefst þó ekki fyr-
ir alvöru fyrr en undir spilaborðum
í Lauren Belle.
Trúir anda hinna gamalkunnu
sjónvarpsþátta — sem voru fyrstu
vestraþættirnir þar sem gamansem-
in var í fyrirrúmi, siglir myndin frá
upphafi til enda í bráðhressilegum
dúr og leikararnir þrír ná eftir-
minnilega vel saman og lyfta henni
uppá hærra plan en handritið hans
Williams Goldmans býður oft uppá.
Goldman hefur átt misjafna daga,
svo ekki sé meira sagt, síðan hann
gerði marga, góða hluti fyrir tveim-
ur áratugum, en hann er greinilega
að hressast og hér er hann vita-
skuld á heimavelli. Þó Maverick sé
ALPiHÁ
vandaðir gönguskór fyrir meiri
og minni háttar gönguferðir.
Frábærverð frá
ÚTIVISTARBÚÐIN
viO Umferðarmiðstöðina, símar 19800 og 13072.
LANDSVIRKJUN
Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt
að skoða virkjanir Landsvirkjunar.
Laugardaginn 23. júlí kl. 13-17
verða eftirtaldar stöðvar til sýnis:
Búrfellsstöð, Hrauneyjafossstöð,
Sigöldustöð, Laxárstöðvar og
Kröflustöð.
A LAUGARDAG