Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 22

Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Sígildur Jón Sigurðsson BOKMEJNNTIR S a g a AFBLÖÐUMJÓNS FORSETA Sven-ir Jakobsson valdi efnið og rit- aði ævisögu Jóns Sigurðssonar Al- menna bókafélagið, 1994 - 327 síður Á UNDANFÖRNUM árum hefur það verið að koma í ljós að saga fullveldisbaráttunnar er mönnum ekki eins föst í minni og vera ber. Kringum 17. júní hvert ár hefur það verið siður fréttamanna að spyrja saklausa unglinga hver Jón forseti hafi verið. Svörin hafa verið skraut- leg og oft einna líkust ijörlegum skáldskap. Spyija má hvort kunn- áttuleysi unga fólksins endurspegli ekki almennt tómlæti og skilnings- leysi á æviverki Jóns Sigurðssonar. Nærtækt er að ætla að skólum og heimiium landsins hafí láðst að leiða ungu fólki fyrir sjónir að brautryðj- endastarf Jóns forseta er lykillinn að því jafnræðis- og velmegunar- þjóðfélagi sem við nú búum í. Eða getur verið að mörgum þyki mak- legt að Jón forseti sé gleymdur? Þeim sem hugsa um brautryðj- andann með þessum hætti er hollt að lesa Afblöðum Jóns forseta. Hún kemur þægilega á óvart ekki síst vegna beinnar skírskotunar til okkar tíma. Baráttumál Jóns eru mörg þau sömu og við þurfum einna helst að glíma við nú á tímum, m.a. versiun- ar- og skólamál. Hafi maður velkst í vafa um ævistarf Jóns forseta þá gerir maður það ekki eftir að hafa lesið Af blöðum Jón forseta; snerti- fletir í boðskap Jóns Sigurðssonar við aðstæður nú eru fleiri en hefði mátt gruna. Samþjöppuð ævisaga Jóns forseta Umsjónarmaður útgáfunnar, Sverrir Jakobsson, erkorungur fræðmaður. Hahn valdi ritgerðir Jóns og samdi skýringartexta við þær og er sú vinna í heild alúðlega unnin. Einnig ritaði Sverrir ævisögu Jóns og birtist hún sem formáli bókarinnar. Mikill akkur er að henni. Sagan er ekki yfirgripsmikil, tekur aðeins yfir um 80 blaðsíður, en er þó nægilega ýtarleg til að taka á stærstu baráttumálum Jóns. Helsti styrkur ævisögunnar felst í því hve nálægt manninum Jóni Sigurðssyni höfundur kemst. Bæði er lýst miklum leiðtogastyrk Jóns sem og helstu veikleikum hans. Höfundi tekst þannig mæta vel að að draga upp mynd af Jóni á nærfærinn hátt svo að eftir stendur litbrigðarík persónulýsing. Fróðlegt er t.d. að lesa milli línanna hve hégómleiki leiðtogans hefur stundum teymt hann hraðar áfram en pottþétt málefnaleg afstaða. Hann ætlaði sér að verða foringi og beitti kænsku sinni sem best til að svo mætti verða. Á hinn bóginn sjáum við hann standandi í ýmiss konar erindrekstri fyrir samianda sína, eins og hvem annan stjórnmálamann sem lítur ekkert viðvik of smátt til að treysta sig meðal umbjóðenda sinna. Þessi bók geymir úrval úr ritgerðum Jóns Sigurðssonar sem birtust upphaflega í Nýjum félagsritum. Bókin skiptist í sex hluta og er þar birt efni eftir Jón um þijá málaflokka; skólamál, verslunarmál og heilbrigðismál. „Mentun sem nægir þörfum þjóðarinnar" Skólastefna Jóns Sigurðssonar var í anda þess þjóðfrelsis sem hann barðist fyrir. Fullveldisbarátta íslendinga var háð í samræmi við það rómantíska viðhorf að sérhvert samfélag manna sem geymdi sömu tungu, sögu og menningu skyldi eiga rétt á að ráða sínum málum. Virk uppfræðsla um sameiginleg verðmæti var því forsenda þess að hægt væri að virkja lýðinn til baráttu. Skólar voru nauðsynlegir. í samræmi við þetta lagði Jón fram bænaskrá árið 1845 þar sem fram kemur _sú ósk að „settur verði þjóðskóli á íslandi, sem veitt geti svo mikla mentun sérhverri stétt, sem nægir þörfum þjóðarinnar“. Hann vildi breyta latínuskóianum þannig að kennsla þar væri ekki eingöngu miðuð við þarfír embættis- mannakerfisins heldur gæti hún nýst aðalatvinnugreinum þjóðarinnar. (Hljómar þetta ekki kunnuglega?) Róttækni Jóns sést einna best á því að hann vildi „skella af latínunni" en auka vægi nýrra tungumála, bæði þýsku, ensku og frönsku. Áhugi Jóns á menntamálum er samofinn almennum áhuga hér á Jón Sigurðsson landi á uppfræðslu í grunnatvinnuvegum þjóðarinnar, sjómennsku og landbúnaði. Jón sýndi hugmyndum um stofnun sjómannaskóla áhuga án þess að beita sér sérstaklega á þeim vettvangi. Hann hafði hins vegar ákveðnar hugmyndir um búnaðarskólann hér á landi og viidi að landsmenn stofnuðu hann einir og óstuddir. Óbein áhrif Jóns á þróun búnaðarmála birtust í því að hann aðstoðaði landa sína við að komast í nám erlendis, t.d. í Noregi. Hann birti ritgerðir eftir þessa menn og beitti sér fyrir því að þeir kæmu heim til íslands og tækju að sér búnaðarkennslu. Framtaksemi Jóns á sviði menntamála minnir um margt á eljusemi upplýsingarmanna. Hann skrifaði um hagnýt málefni sem hann ætlaði til uppfræðslu alþýðu. Meðal efnis eftir hann í þessu skyni eru Fiskibókin og Varningsbókin. Mestu áhrif Jóns á íslenskt skólakerfi er framlag hans til stofnunar innlends háskóla. Hann hvatti til að kennsla í lögfræði og læknisfræði færi fram við sérstakan skóla. Bænaskrá um lagaskóla kom fram 1855 og var hann til umræðu á hveiju þingi þar til hann var stofnaður í Reykjavík 1908. Það er því engin tiiviljun að Háskóli íslands var stofnaður á afmælisdegi Jóns forseta 1911. Verslunarmálin Afskipti Jóns af verslunarmálum á íslandi byijuðu sem greinaskrif gegn kaupmanni nokkrum, Knudtzon að nafni. Sá var fylgismaður einokunar en Jón taldi að það fyrirkomulag hefði reynst íslendingum ónýtt og hvatti til að verslun á íslandi yrði leyst undan öllum höftum. Slíkt hlyti að verða bæði íslendingum og kaupmönnum til góðs. Jón talaði þarna ekki einungis af hjartans sannfæringu heldur einnig af þekkingu. Hann hafði lesið sér til í þjóðhagfræði enda er vitað að hann átti og las helstu hagfræðirit síns tíma. Skrif Jóns um verslun vöktu mikla hrifningu hér á landi og juku vinsæidir hans sem forystumanns. Einnig urðu þau beinlínis til að menn bundust samtökum um að breyta viðteknum verslunarháttum. Ári eftir að Jón hafði hvatt landsmenn tii að koma á fót verslunarfélögum stofnuðu bændur í Fnjóskadal sitt eigið verslunarfélag. Þar með hófst bylting í versiunarháttum sem átti eftir að breiðast hratt út og hafa mikil áhrif. Boðskapur Jóns fyrr og nú Af blöðum Jóns forseta tekur af öll tvímæli um það að Jón Sigurðsson hefur verið framsýnn og haft dug til að gera hugsjónir að veruleika. Hann sá tækifæri sem biðu einnar þjóðar og hann hafði persónutöfra, gáfur og atorku til þess að eggja þjóðina til þess að grípa það tækifæri sem sögulegar aðstæður færðu henni í fang. Ævisaga Jóns Sigurðssonar eftir Sverri Jakobsson sýnist mér eiga fullt erindi til skólafólks. Eins og áður hefur verið minnst á eru sláandi líkindi með pólitísku umhverfi Jóns og þeim aðstæðum sem blasa við íslendingum um þessar mundir. Enn standa Islendingar frammi fyrir því að þurfa að taka mikilvægar ákvarðanir um eigin framtíð, enn þurfa þeir að efla með sér framsýni og sýna frumkvæði í samskiptum við aðrar þjóðir. Ævisaga Jóns forseta hefur boðskap að færa'sem ungir íslendingar verða að eiga greiðan aðgang að. Það ætti því að mínum dómi að skoða þann möguleika vendilega að gefa hana út í sérstöku hefti fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla. 4 Lífeyrissjóður sjómanna MEGINNIÐURSTÖÐURÁRSREIKNINGS LÍFEYRISSJÓÐSINS 1993 Sbr. 7. mgr. 3. gr. laga nr. 27/1991, ásamt upplýsingum um starfsemi sjóðsins Efnahagsreikningur 31.12.1993 í þús. kr. Veltufjármunir............................!... 3.713.568 Skammtímaskuldir.................................. -27.622 „ , Hreint veltufé 3.685.946 Fastafjarmunir Langtímakröfur.............................. 13.574.105 Áhættufjármunir...................................... 0 Eignarhlutir ísameignarfélögum....................... 0 Varanlegirrekstrarfjármunir..................... 63.289 Langtímaskuldir................................ -0 Hrein eign til greiðslu lífeyris 17.323.340 Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greióslu lifeyris fyrir árió 1993 í þús. kr. Fjármunatekjur, nettó............................ 1.027.867 Iðgjöld............................................. 1.355.742 Lífeyrir ............................................ -523.942 Kostnaður (rekstrargjöld - rekstrartekjur)....... -30.519 Matsbreytingar........................................ 496.395 Hækkun á hreinni eign á árinu................. 2.325.543 Hreineignfráfyrraári.......................... 14.997.797 Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris 17.323.340 Ýmsarkennitölur: Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum............. 38,6% Kostnaður í hlutfalli af iðgjöldum............. 2,25% Kostnaður í hlutfalli af eignum (meðaltali hreinnar eignar í árslok og ársbyrjun).................. 0,19% Úr skýrslu stjórnar Á árinu 1993 greiddu 1.256 launagreiðendur iðgjöld til sjóðsins, samtals að fjárhæð kr. 1.356 milljónir fyrir 7.526 sjóðfélaga. í árslok 1993 voru á skrá hjá sjóðnum samtals 32.469 einstaklingar. Lífeyrisgreiðslur sjóðsins á árinu námu alls kr. 526 millj- ónum og hækkuðu frá árinu 1992 um 22%. Ellilífeyrir nam kr. 196,1 milljón (37,3% af heildarlífeyrisgreiðsl- um), örorkulífeyrir kr. 222,4 milljónum (42,3%), makalíf- eyrir kr. 65,2 milljónum (12,4%) og barnalífeyrir kr. 42,1 milljón (8,0%). í desember 1993 var fjöldi lífeyris- þega sem hér segir: Ellilífeyrisþegar 783, örorkulífeyris- þegar 453, makalífeyrisþegar 352 og greiddur var barna- lífeyrir til 411 barna sjóðfélaga. Hrein eign til greiðslu lífeyris nam kr. 17.323 milljónum í árslok 1993. A árinu hækkaði hún um kr. 2.326 milljón- ir króna eða um 15,5%. Skuldabréfakaup ársins námu samtals 3.632 milljónum króna. Keypt voru skuldabréf af sjóðfélögum fyrir kr. 252 milljónir, húsbréf fyrir kr. 2.134 milljónir, skuldabréf Húsnæðisstofnunar ríkisins fyrir kr. 494 milljónir, spari- skíreini ríkissjóðs fyrir kr. 265 milljónir, skuldabréf bæj- ar- og sveitarfélaga fyrir kr. 188 milljónir, skuldabréf banka og sparisjóða fyrir kr. 143 milljónir og skuldabréf fjárfestingalánasjóða fyrir kr. 99 milljónir. Önnur skulda- bréfakaup námu samtals 57 milljónum króna. Stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.