Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 23

Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ1994 23 AÐSENDAR GREINAR Betri skóli — bætt memitun Ólafur G. Einarsson NÝ STEFNA í mál- efnum grunnskóla og framhaldsskóla hefur nú verið lögð fram, sú fyrsta sem mótuð hef- ur veríð hér á landi fyrir bæði skólastigin samtímis. Meginmark- mið nýju skólastefn- unnar er að efla skóla- starf í grunnskóla og framhaldsskóla og stuðla þannig að bættri menntun æskufólks. Brýnt er að hver nem- andi fái að takast á við örvandi viðfangsefni og hljóti nauðsynlega hvatningu til náms. Með því að opna skóla- kerfið, auka umræðu um skólamál og gera foreldra og aðila atvinnulífs að virkum þátttakendum í starfi skól- anna er unnt að efla menntun þjóðar- innar og undirstrikað er að hún varð- ar alla, ekki aðeins nemendur á hveij- um tíma. Nefnd um mótun menntastefnu, sem ég skipaði vorið 1992, samdi drög að frumvörpum til laga um bæði skólastigin og yfirgripsmikla skýrslu samhliða þeim. Starf nefnd- arinnar hefur verið mikið og vanda- samt, en hún hefur leyst það afburða vel og kann ég henni bestu þakkir fyrir. Gagnrýni á skólakerfið Könnun, sem gerð var á viðhorfum almennings til ýmissa stofnana í þjóðfélaginu árið 1989, leiddi í ljós að aðeins 39% aðspurðra töldu að grunnskólinn sinnti hlutverki sínu vel og eingöngu 42% töldu að framhalds- skólinn gerði það. Þá leiddi rannsókn á náms- gengi, árgangs nemenda fæddra 1969, í ljós að einungis 45,2% árgangs- ins höfðu lokið námi úr framhaldsskóla sex árum eftir grunnskóla- próf. Þar við bætist að nálægt einn og hálfur árgangur er að jafnaði skráður á fyrsta námsár í framhaldsskólanámi miðað við námsgengi. Þetta var sá raunveru- leiki sem við blasti þegar ég tók við embætti menntamálaráðherra vorið 1991. Gagnrýnis- raddir á skólakerfið voru háværar og beindust þær einkum að framhaldsskólanum. Við þessu þurfti að bregðast, enda ljóst að skólakerf- ið átti undir högg að sækja og var nauðsynlegt að efla það. Aukin valddreifing Helstu breytingarnar sem nýja skólastefnan gerir ráð fyrir eru að valddreifing í skólakerfinu verði auk- in, bæði á grunn- og framhaldsskóla- stigi. Það þýðir að ákvarðanataka verði færð sem næst vettvangi og ábyrgðarskylda sveitarfélaga og skóla aukin. Samtímis er lögð áhersla á markmiðssetningu frá hendi lög- gjafans og samræmt mat á námsár- angri nemenda á vissum stigum námsferilsins, svo að fræðsluyfirvöld, skólafólk og almenningur fái stöðugt vitneskju um það hvort framkvæmd skólastarfsins sé í samræmi við gild- andi skólastefnu. Einkum er það brýnt réttindamál fyrir nemendur að mat sé samræmt á milli skóla. Loks er lögð áhersla á reglubundið mat á skólastarfi, einkum sjálfsmat stofn- ana og gæðastjórnun, og aukna upp- lýsingamiðlun til almennings um árangur skólastarfs. Bætt tengsl skóla og foreldra Meðal annarra breytinga sem gert er ráð fyrir í tillögunum má nefna að öll ábyrgð á framkvæmd grunn- skólahalds verði færð til sveitarfé- laga. Samhliða tilfærsiunni er nauð- synlegt að tryggja sveitarfélögum tekjur til að standa straum af aukn- um kostnaði. Lagt er til að einsetnum skók'. með samfelldum skóladegi verði komið á um allt land og gerðar nauðsynlegar ráðstafanir til að öll börn geti hafið nám að morgni. Ahrif foreldra verða aukin með því að koma á sérstökum foreldraráðum í grunnskóla, en gott samstarf við foreldra er vissulega forsenda þess að skólar geti sinnt hlutverki sínu sem skyldi og dyggur stuðningur við böm- in af hálfu aðstandenda skiptir sköp- um fyrir skólann í fræðslustarfi hans. Þegar heimili og skóli leggjast á eitt og mynda trausta umgjörð um mennt- un hvers einstaklings má búast við betri líðan, auknu öryggi og bættum námsárangri nemenda. Brýnt er að hver nem- andi fái að takast á við örvandi viðfangsefni og hljóti nauðsynlega hvatningu til náms, _ segir Olafur G. Einarsson, sem ijallar í þessari grein um nýja menntastefnu. Kjarnagreinar verði íslenska, enska og stærðfræði Tillögurnar gera ráð fyrir að við endurskoðun aðalnámskrár verði sett fram skýr markmið um kunn- áttu og færni nemenda á einstökum aldursstigum. Gert er ráð fyrir að kjarnagreinar í grunnskóla verði ís- lenska, stærðfræði og enska og verði mótuð heildarstefna í kennslu þess- ara greina. Þá verða læsi, tjáning, vinnubrögð og samskiptahæfni áhersluatriði í starfi grunnskóla, samkvæmt tiilögunum. Samræmd- um prófum í grunnskóla verður fjölgað og þeim komið á víðar á námsferli grunnskólanemenda. Rannsóknir hafa sýnt að jákvætt samband er á milli lengdar skólaárs og nýtingu skólatíma annars vegar og árangurs nemenda hins vegar. Því er lagt til að árlegur starfstími í grunn- og framhaldsskólum verði lengdur úr níu mánuðum í tíu og að nemendum verði tryggður ákveð- inn lágmarksfjöldi kennsludaga á ári. Þannig verði grunnskólanem- endum tryggðir að minnsta kosti 180 kennsludagar og framhaldsskóla- nemendum að minnsta kosti 160 kennsludagar á ári. Kennsludagar í grunnskóla eru í dag á milli 144 og 155 að tölu og í framhaldsskóla 130 talsins. Skólastefna þjóðinni til heilla Tillögur nefndar um mótun menntastefnu taka mið af veruleika skólastarfs á íslandi en eru um leið í anda skólamálaumræðu í ná- grannalöndum að undanförnu. Slík menntastefna, sem í senn tekur mið að því sem gerst er vitað á vísinda- og fræðilegum vettvangi hverju sinni og þeirri reynslu sem fengin er af skólastarfi hér á landi sem erlendis, er líklegust til að varða íslensku skólastarfi farsæla braut. Það er trú mín að nýja skólastefnan verði ís- lensku pjóðinni til heilla. Höfundur er mennta- málaráðherra. BORGIN sími 11440 SU5HI MIOVIKUDAGS - SUNNUDAGSKVÖLD - Borð fyrir þig - BORGIN sími 11440

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.