Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 25

Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 25 Atvinnuleysisbætur um Jónsmessu og jól ORÐSKRÍPIÐ eftirágreiðslur hefur þá merkingu í umræðum um Lánasjóð íslenskra námsmanna að námslán eru greidd eftir á, þegar úrslit úr prófum liggja fyrir. Það þýðir þó einnig að hluti námslána sem eiga að vera til framfærslu fara í vaxtagjöld í bönkum. Dýrum millilið hefur verið bætt í námslána- kerfið. fullar fjörutíu milljónir fyrir þessum vaxtagjöldum og dugði sú upphæð þó hvergi til. Réttlæti og skynsemi Námlán eru framfærslulán. Þau eiga að vera leið fýrir fólk til að færa fram hluta af ævitekjum sín- um, sér til framfærslu á námsárun- um. Langflestir sem taka námslán greiða þau til baka að fullu þvert á það sem stundum hefur verið haldið fram. Tvennt þarf þó að hafa í huga. Afgreiðsla námslána þarf að vera réttlát og skynsamleg og endurgreiðslur mega ekki vera hraðari en svo að venjulegt fólk geti staðið í skilum. Afnám eftirágreiðslna er rökstudd krafa Hér verður ekki farið út í þá sálma hvort heilbrigðara sé fyrir þjóðfélag að lána fólki til framfærslu í námi eða hitt, að sjá því fyr- ir bótum í atvinnuleysi. Ekki verður rakið í þaula hvert raunveru- legt gildi menntunar er fyrir þjóð sem horfir til framtíðar. Ætlunin er Dagur B. Eggertsson heldur ekki að hneykslast á lágum framlögum til mennta- mála eða vöxtum á námslán. Aðeins verð- ur sett fram sú rök- studda krafa náms- manna að eftirá- greiðslukerfi náms- lána verði afnumið. Eftirágreiðslur eru ós- kynsamlegar í alla staði og opið sár í námslánakerfi ís- lendinga. Krafan krefst því svara. Höfundur er formaður Stúdentaráðs. Eftirágreiðslukerfinu var komið á í tengslum við breytt lög um LÍN árið 1992 að tilhlutan menntamála- ráðherra og meirihluta Alþingis. Eflaust geta fjölmargir fallist á að skynsamlegt er að gera kröfu um eðlilega námsframvindu þegar lánað er til framfærslu í námi. Til þess að ná því markmiði eru hins vegar fjölmargar leiðir færar og það verður að segjast að stjórnvöld hafa borið einstaka ógæfu til að velja einn alversta kostinn, eftirágreiðsl- ur. Það er ekki skynsam- legt að atvinnuleysis- bætur fari í vaxtagjöld, segir Dagur B. Egg- ertsson, í stað þess að framfæra atvinnulausa. Eftirágreiðslur eru óskynsamlegar Hvað þýðir að námslán séu eft- irágreidd? Tökum sambærilegt dæmi af manni sem nýtur atvinnu- leysisbóta. Námslán barnlauss ein- staklings eru að svipaðri upphæð og atvinnuleysisbætur. Hvort tveggja er hugsað fólki til fram- færslu. Háskólastúdentar og at- vinnulausir eiga það þannig sameig- inlegt að vera fullorðið fólk sem hefur engar fastar tekjur yfir vetr- artímann. Bætur um Jónsmessu og jól Hvað ætli mönnum fyndist ef atvinnuleysisbætur væru_ aðeins greiddar út tvisvar á ári? Útborgað væri gegn vottorði um að viðkom- andi hefði verið fullkomnlega at- vinnulaus síðastliðna sex mánuði eða svo. Annars fengjust engar bætur. Auðvitað væri þetta ótækt, jafn- vel þótt fólki stæðu til boða yfir- dráttarreikningar í bönkum til að þreyja þorrann. Bankar eru nefni- lega reknir fyrir vöxtum og það er ekki skynsamlegt að atvinnuleysis- bætur fari í vaxtagjöld í stað þess að framfæra atvinnulausa. Ná- kvæmiega þannig er þó hlutunum fyrir komið þegar kemur að náms- lánum. Eftirágreiðslur námslána - dýr miiliiiður Blessunarlega þurfa ekki allir stúdentar að taka námslán. Um helmingur háskólastúdenta þarf þó á þeim að halda, sér og sínum til framfærslu. Þessi hópur fær hins vegar ekki lán sín greidd mánaðar- lega eins og búast mætti við heldur aðeins tvisvar á ári, að loknum próf- um. Gjalddagar stúdenta og útgjöld eru þó auðvitað mánaðarlega og dag frá degi, rétt einsog hjá öllum öðrum þegnum þjóðfélagsins. Stór hluti lánþega neyðist því til að brúa bilið frá gjalddögum þar til úrslit prófa liggja fyrir. Skuldum er safn- að á sérstaka námsmannareikninga í bönkum með tilheyrandi vaxta- kostnaði. Með eftirágreiðslum er því í raun aðeins verið að bæta i námslánakerfið kostnaðarsömum miililið. Á síðasta ári lánaði LÍN SUNNYSR sportlegur og hlaðinn aukahlutum kostar aðeins kr. 1.278.000.- Aðeins örfáir bílar seljast á þessu tilboðsverði. Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 síml 91-674000 Nissan Sunny SR þriggja dyra er með kraftmikilli 1600 vél og beinni innspýtingu.fimm gíra vökva-og veltistýri samlæsingu, rafdrifnum rúðum, vindskeið og fjóra öfluga Ijóskastara. Auk þess fylgir bílnum frítt þjónustueftirlit í eitt ár. wm Geislaspilari og útvarp i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.