Morgunblaðið - 21.07.1994, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ1994
MORGUNBLAÐIÐ
4
JMtanguuMtöife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100.
Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt-
ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif-
stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan-
lands. I lausasölu 125 kr. eintakið.
BREYTT OG BÆTT
MENNTASTEFNA
*
YMSAR markverðar breytingar felast í drögum að nýrri skóla-
stefnu, fyrir grunn- og framhaldsskóla, sem Ólafur G. Ein-
arsson menntamálaráðherra kynnti í fyrradag. Drögin eru afrakst-
ur mikils starfs nefndar um mótun menntastefnu, sem mennta-
málaráðherra skipaði í mars 1992 og Sigríður Anna Þórðardóttir
alþingismaður var formaður fyrir.
Endurskoðun skólastefnu til framtíðar, á grunn- og framhalds-
skólastiginu, er fyrir löngu tímabær og í þeirri skýrslu sem nefnd-
in hefur nú lokið og frumvarpsdrögum sem hún hefur samið, kenn-
ir nýrra áherslna, sem bætt geta menntunarstig grunn- og fram-
haldsskólanema, samræmt og samhæft skólahaid í landinu og
stuðlað að því að íslenskir nemendur standi jafnfætis jafnöldrum
sínum á Norðurlöndum.
Tillögur um sjálfstæða gæðastjórnun grunn- og framhalds-
skóla, ásamt reglubundnu mati á árangri skólastarfs, ættu að
stuðla að aukinni valddreifingu í skólakerfinu.
Nefndin leggur til að öll ábyrgð á framkvæmd grunnskólahalds
verði færð til sveitarfélaga, en menntamálaráðuneytið annist eftir-
lit með skólahaldi. Þessi tillaga er í samræmi við breytt lög um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, þar sem var ákveðið að
sveitarfélög kostuðu ein stofnun og rekstur grunnskóla og því
sjálfsagt að ábyrgð skólahaldsins sé þeirra einnig.
Kjarnagreinar í grunnskólum verða samkvæmt tillögunum þrjár,
íslenska, stærðfræði og enska, sem verði fyrsta erlenda tungumál-
ið sem börnin læra, í stað dönsku. Lagt er til að enskukennsla
hefjist í grunnskólum við 10 ára aldur, í stað 12 ára nú. Sérstök
áhersla verði lögð á læsi, tjáningu, góð vinnubrögð og samskipta-
hætti í starfi grunnskóla. Það er visst áhyggjuefni að sérstaka
áherslu þurfi að leggja á jafn sjálfsagðan hlut í skólastarfi og
læsi, en kannanir á lestrarfærni barna og unglinga hafa sýnt fram
á að nauðsyn þessa er brýn.
Jafnframt er lagt til að samræmdum prófum á grunnskólastigi
verði komið á víðar á námsferlinum, en við lok grunnskólanáms.
Þessi tillaga er af hinu góða. Hún eykur möguleika á samræm-
ingu og markvissu eftirliti með menntunarstigi sérhvers nemanda
og þar af leiðandi gefur hún færi á því, að bregðast fyrr við því
sem úrskeiðis hefur farið.
Sérstakt fagnaðarefni er sú áhersla sem nefndin leggur á starfs-
nám á framhaldsskólastigi, en gerð er tillaga um, að það verði
forgangsverkefni í skólamálum og markvisst verði unnið að því
að efla áhuga ungs fólks á starfsnámi. Náið samráð verði við
aðila vinnumarkaðarins um stefnu og framkvæmd starfsnámsins.
Þetta er sjálfsagt og rétt, því það eru aðilar vinnumarkaðarins,
sem hafa gleggsta þekkingu á markaðnum, þróun og þörfum at-
vinnulífsins.
Starfsnám hefur löngum setið á hakanum í íslenska menntakerf-
inu. Með breyttum þjóðfélagsháttum og stórauknum fjölda nem-
enda á framhaldsskólastigi, frá því sem áður var, eigum við að
kappkosta að laða sem flest ungmenni í starfsnám, í þeim greinum
þar sem verðmætasköpunin fer fram. í þeim efnum má nefna
svið eins og starfsnám í framhaldsskólum sem tengist undirstöðu-
atvinnugreininni, sjávarútvegi, svo og starfsnám í matvælafram-
leiðslu og ferðaþjónustu.
Hagstofa íslands hefur upplýst að um 20% hvers árgangs hverfi
frá námi fyrstu tvö árin í framhaldsskóla. Skýrslan „Námsferill
í framhaldsskóla", þar sem námsgengi nemenda sem fæddir voru
1969 var kannað, sýndi fram á að sex árum eftir grunnskólapróf
höfðu einungis 45% lokið námi úr framhaldsskóla, 30% höfðu
horfið frá námi, án þess að ljúka prófum og 10% voru enn við nám
í framhaldsskóla.
Þessar niðurstöður segja raunar allt, sem segja þarf, um það
hversu brýnt er að stokka upp og gjörbreyta uppbyggingu fram-
haldsskólanáms hér á landi. Markmið menntastefnu hlýtur ávallt
að vera, að koma sem flestum, til sem mests þroska. Breyttir tímar,
kalla á breytt viðhorf, þar með talið, breytt viðhorf til stúdents-
prófs, sem vissulega hefur lagt grunninn, að góðri, almennri mennt-
un íslenskra ungmenna. En íslenskt atvinnulíf þarf ekki á þvi að
halda að 80% til 90% grunnskólanemenda setjist á skólabekk á
hausti hverju, með það að markmiði að ljúka stúdentspróf. Mark-
viss undirbúningur fyrir lífsstarf íslenskra ungmenna þarf að hefj-
ast fyrr, þar sem ekki á fyrir meirihluta þeirra að liggja, að stunda
langskólanám á háskólastigi.
Lagt er til að grunnskólar verði einsetnir og að skóiaár lengist
úr 9 mánuðum í 10, grunnskólanemendum verði tryggðir árlega
a.m.k. 180 kennsludagar í stað 155 eins og nú er og framhalds-
skólanemum a.m.k. 160 í stað 130, samkvæmt núgildandi fyrir-
komulagi.
Ljóst er, að þessum tillögum fylgir umtalsverður kostnaðar-
auki, a.m.k. þegar til skamms tíma er litið. Eridurskoða verður
kjarasamninga kennara frá grunni, þar sem breytingar sem þess-
ar verða ekki framkvæmdar innan ramma gildandi kjarasamn-
inga. Horft til framtíðar, mun breytt og bætt menntastefna skila
íslensku þjóðfélági þeim arði, sem að er stefnt - betur menntuðum
og hæfari- einstaklingum.
Skiptar skoðanir eru um lokaskýrslu
nefndar um mótun menntastefnu
KENNARAR
VILJA NÝTA
BETUR 9 MÁN-
AÐA SKÓLAÁR
í vikunni var kynnt lokaskýrsla nefndar um
mótun menntastefnu, þar sem er að fínna
ymsar tillögur um breytingar á skólakerfínu
eins og það er nú. Kennarasamtök, foreldrar
og dönskukennarar hafa sitthvað við tillögur
nefndarinnar að athuga. Þórmundur Jóna-
tansson kynnti sér viðbrögð hópanna við
skýrslu menntastefnunefndar.
Fyrr í þessari
viku voru
kynnt drög að
frumvarpi til
grunnskólalaga og loka-
skýrsla nefndar um
mótun menntastefnu
sem skipuð var af Ólafi
G. Einarssyni mennta-
málaráðherra árið
1992. Þar er heildar-
stefna mótuð í málefn-
um grunnskóla og fram-
haldsskóla. í henni er
að finna nýlegar og rót-
tækar hugmyndir s.s.
um flutning grunnskóla
til sveitarfélaga, leng-
ingu skólaársins og
uppstokkun framhaldsskólanáms.
Þar má einnig finna hugmyndir og
markmið sem lengi hafa verið á
stefnuskrám stjórnmálaflokka og í
lögum en undir þann flokk falla
m.a. tillögur um einsetinn skóla með
samfelldum skóladegi. Morgunblað-
ið hefur fyrr á þessu ári fjallað um
drög að frumvarpi til framhalds-
skólalaga. Formaður Hins íslenska
kennarafélags, Elna K. Jónsdóttir,
sagði þá að drögin væru aðför að
kjörum kennara sem kall-
aði á grundvailarbreyt-
ingu á launa- og starfs-
kjörum stéttarinnar. Drög
að frumvarpi til nýrra ___________
grunnskólalaga líta nú
dagsins ljós í fyrsta sinn og af því
tilefni leitaði Morgunblaðið álits
fulltrúa kennara, foreldra og
dönskukennara.
Margt jákvætt
Þegar Eiríkur Jónsson formaður
Kennarasambands íslands var innt-
ur eftir áliti sínu á tillögum mennta-
stefnunefndar hafði hann haft lítinn
tíma til að kynna sér lokaskýrsluna.
„Fljótt á iitið er margt jákvætt að
finna í skýrslu nefndarinnar,11 sagði
Eiríkur og nefnir sem dæmi gamalt
baráttumál um einsetinn skóia með
samfelldum skóladegi, ýmsar
áherslubreytingar í aðalnámskrá og
markmið um bætt tengsl skóla og
samfélags. „Það verður þó að hafa
það í huga að í skýrslunni eru mál
sem hafa verið á forgangslista í
skólamálum hjá öllum stjórnmála-
flokkum í mörg ár,“ sagði hann.
„Úlfur, úlfur“
Eiríkur rifjar upp að í ráðherratíð
Svavars Gestssonar var gefin út
stefnuskrá í menntamálum undir
Unnur
Halldórsdóttir
Eiríkur
Jónsson
var
Foreldrar vilja
ekki lengja
skólaárið
heitinu „Til nýrrar aldar“ en
stungið ofan í skúffu þegar nýr
ráðherra tók við. „I fyrra bar ég
saman stefnuskrá Svavars og
áfangaskýrslu menntastefnunefnd-
ar og í mörgum atriðum er þar að
finna sömu áherslur s.s. um sam-
felldan skóladag," sagði hann.
Formaðurinn segist hafa sínar
efasemdir um efndir á loforðum og
draumsýnum í skýrslunni. „Þessi
skýrsla kemur fram á miðju ári
og kosningar fara
síðasta lagi næsta
útskýrir Eiríkur.
menntastefnan
1994
fram
vor,“
„Nýja
________ mun því ekki koma til
framkvæmda fyrir kosn-
ingar. Því má spyija sig hvort arf-
taki Ólafs muni sópa nýjustu
menntastefnunni undir teppið og
taka til við að semja nýja. Fyrir
mér er þetta öfug útgáfa af „úlfur,
úlfur“. Ráðherrar keppast við að
lofa samfelidum skóladegi en þegar
kemur að því að framkvæma verður
ekkert úr verki,“ sagði hann.
Skammur tími til stefnu
Það kemur Eiríki ekkert á óvart
að fyrirhugað sé að flytja rekstur
grunnskólans til sveitarfélaganna.
Hann telur þó að ekki megi flana
að undirbúningi flutningsins og
gagnrýnir harðlega að fast sé hald-
ið í þá dagsetningu að framkvæma
hann 1. ágúst 1995. „Það á eftir
að undirbúa flutninginn að miklu
leyti og því fylgir mikil vinna. Til
að mynda er ijóst að stokka verður
upp alla kjarasamninga við kennara
og um það hefur ekkert verið rætt
ennþá,“ sagði Eiríkur.
Að sögn Eiríks buðust kennarar
til þess eftir að hugmyndir um leng-
ingu skólaársins komu fyrst fram í
SKÓLAMÁL
áfangaskýrslu nefndar um mótun
menntastefnu að koma fjölgun
kennsludaga fyrir í níu mánaða
skólaárinu. Fulltrúar ríkisins hafi
aftur á móti hafnað því. „Ég er á
þeirri skoðun að við 'verðum fyrst
að skoða núverandi skólaár og velta
fyrir okkur hvernig nýta megi tím-
ann betur,“ sagði Eiríkur. Hann
bendir á að könnun á viðhorfi for-
eldra til lengingar skólaársins sem
' fram fór í júní sl. hafi leitt í ljós að
að mikill meirihluti þeirra, eða um
75%, vildi ekki lengja það.
Eiríkur staðfestir að fjölgun
skóladaga breyti forsendum vegna
launakjara kennara. „Ef notast er
við einfaldan útreikning eykst
vinnuskylda kennara um 12% við
fjölgun skóladaga. Af þessum sök-
um verður annað hvort að gera
breytingar á vinnutilhögun kennara
eða greiða þeim fasta yfirvinnu.
Við verðum að minnast þess að
árlegur vinnutími okkar er hinn
sami og annarra opinberra starfs-
manna. Við teijum því óhjákvæmi-
legt að taka upp kjarasamninga og
höfum aldrei staðið gegn hugmynd-
um um slíkt,“ sagði Eiríkur. Hann
segir að KÍ og Hið ísienska kennara-
félag muni skoða tiilögur ----------
menntastefnunefndar og Dansk
skila sameiginlega at- áfram
hugasemdum við skýrsl-
una og frumvörpin tvö. *
Foreldrar fá tækifæri
til að hafa meiri áhrif á skólastarf
í grunnskólum verði frumvarp um
grunnskóla að lögum en þar er gert
ráð fyrir að í hveijum skóla starfi
þriggja manna foreldraráð. „Við
fögnum því að ráðuneytið kalli á
okkur til samstarfs,“ sagði Unnur
Halldórsdóttir formaður Heimilis og
skóla, landssamtaka foreldra nem-
enda í grunnskólum. „Við sem störf-
um í foreldrafélögum í skólum um
land allt áttum okkur á þeirri
ábyrgð sem á okkur hvílir og viljum
við styðja foreldra til þess að vinna
vel. Okkur þykir einnig áhugavert
hvernig reynt er í tillögunum að
tengja nám í grunn- og framhalds-
skólum þannig að það vinni sam-
an,“ sagði hún.
Vilja losna við „gatasigtið“
Unnur segir að málsvarar for-
eldra hafi hrokkið í kút þegar fyrstu
hugmyndir um lengra skólaár voru
lagðar fram. „Við viljum ekki lengja
núverandi skólaár sem er eins og
„gatasigti". Eins og staðan er í dag
eru yngstu börnin ekki í skólanum