Morgunblaðið - 21.07.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.07.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGIJR 21. .IIJLÍ 1994 31 sóknaverkefni og þekkingu á stað- arkostum og háttum, er afgerandi um samkeppnishæfni fyrirtækj- anna. Þetta á við hvort sem fyrir- tækin eru í eigu innlendra aðila eða ekki. Þegar íslendingar velja sér iðnaðarkosti fyrir aðstæður hér sýnir reynslan ótvírætt, að árang- ursríkast er að íslendingar sjálfir hafi mótað sér skoðun á hvaða kostir koma til greina áður en val fer fram og blásið er til samstarfs við aðila frá öðrum löndum. Örygg- ið um ákvarðanir eykst með þekk- ingunni. Uppbygging heils at- vinnuvegar krefst aðgangs að mik- illi rannsóknargetu og sérþekk- ingu. Á háskólastiginu þarf að byggja upp námskosti á víðu sviði orkunýtingar og í tengslum við þá, aðstöðu til rannsókna, þar með talið hæfni og íjármagn til vissra grunnrannsókna. Rannsóknastofn- anirnar þurfa sérstakrar stefnu- mörkunar við þar sem stefnt er að markvissri uppbyggingu á getu þein-a til að stunda rannsóknir, þróunar- og aðhæfingarverkefni fyrir orkuiðnaðinn. Öflugir rann- sóknaaðilar hér heima mundu eiga auðveldara með að vinna sam- starfsverkefni með erlendum vís- inda- og tæknimönnum. Af slíkum samstarfsrannsóknum og athug- unum hljótast eigi sjaldan upp- byggingarverkefni í iðnaði landa í millum. Það liggur beinast við að obbinn af því fé sem íslendingar leggja til rannsókna á næstu áratugum verði til orkunýtingarrannsókna og fiskgeiranna (veiða, vinnslu og eld- is) auk ýmsra veigamikilla þátta sem þeim tengjast, t.d. hvað varð- ar markaði og umhverfismál auk þeirra greina sem starfa í þjónustu orku- og fiskgeiranna. Hér er um að ræða bæði fé frá fyrirtækjum í landinu, sem þurfa að taka sig á í rannsóknum, og hinu opinbera, styrktarsjóðum og fleirum. Allir þessir aðilar þurfa að leggja sitt fram. Opinberir aðilar þurfa að leita farvegs fyrir rannsókna- og þróunarfé hjá fyrirtækjum sem aðstöðu hafa og getu til þess að nýta innlenda orkugjafa. Framtíðarsýn Þegar afkomendur okkar halda upp á 100 ára afmæli lýðveldisins eftir 50 ár verður vonandi margt að gleðjast yfir: óskert sjálfstæði, öflugur orkuiðnaður, fiskiðnaður í broddi fylkingar, íslensk tunga aldrei auðugri, umhverfið fagurt og ómengað, skógur klæðandi landið o.s.frv. En vitjunartími okk- ar nútímamanna er kominn ef við ætlum að fleyta afkomendum okk- ar fram á miðja næstu öld til sömu velmegunar og við höfum notið, við verðum að skilja stöðu okkar nú: framtíðar vera okkar í þessu landi byggir að verulegu leyti á þeirri sérstöðu að þjóðin á tvær megin náttúruauðlindir, orku og fiskimið. Sjálfsbjörg okkar til framtíðar byggist á hugvitsamlegri nýtingu þessarar auðlinda. Afkom- endur okkar geta vonandi glaðst á 100 ára afmælinu: á fyrstu 50 árunum náðum við valdi á fiskimið- unum, á næstu 50 árunum náðum við tökum á orkunni. Höfundur er efnaverkfræðingur. góður matur GÆÐAFIÍSAR Á GÓÐU VERÐÍ frní m Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 - kjarni málsins! SUMARTILBOÐ Kótilettur, franskar, sósa og salat Píta m/ fiski, franskar og sósa Hamborgari, franskar og sósa Kr. 540.- Kr. 480.- Kr. 400.- Gildir út júlí afsláttarkort gilda ekki í sambandi við tilboð. Hvenær dettur Gullpotturinn? Nú er hann illjónir! Þeir sem spila í Gullnámunni þessa dagana þurfa að vera viðbúnir að vinna stórt, því nú er Gullpotturinn kominn upp í tæpar 10 milljónir og getur dottið hvenær sem er. En þaö er fleira eftirsóknarvert, því vinningar í hverri viku eru yfir 40 milljónir króna. Þetta eru bæði smærri vinningar og svo vinningar upp á tugi þúsunda aö SILFURPOTTUNUM sem detta jafnaöi annan hvern dag og eru aldrei lægri 50.000 krónur. Haföu keppnisskapið með þér í iullnámuna og láttu reyna á heppnina, það er aldrei að vita. Miðvikudaginn 20. júlí kl. 13.30 var Gullpotturinn 9,971,406 kr. Happdrættisvélar Gullnámunnar eru staðsettar á 30 stöðum víðs vegar um landið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.