Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 35
MINNING
JON JONSSON
+ Jón Jónsson
fæddist á Pat-
reksfirði 5. apríl
1929. Hann lést a
heimili sínu 11. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Jón Ingi-
björn Jónsson, tré-
smíðameistari á
Vatneyri, f. 16.9.
1880, d. 5.7. 1948,
og Ingibjörg Rann-
veig Guðmunds-
dóttir, húsmóðir, f.
6.11. 1893, d. 27.3.
1977. Systkini Jóns
eru Ingibjörg Jóna, húsmóðir í
Reykjavík, f. 15.7. 1919, Guð-
mundur, trésmíðameistari í
Reykjavík, f. 28.12. 1921, Krist-
ín Þórunn, húsmóðir í Reykja-
vík, f. 30.7. 1923, Guðrún, hús-
móðir í Reykjavík, f. 26.10.
1925, d. 18.12. 1970, Guðmund-
ur Valgeir, rafvirkjameistari á
Patreksfirði, f. 5.4. 1929, d.
23.2. 1988, og Kristján Jóhann,
leikstjóri í Reykjavík, f. 8.3.
1933. Eftirlifandi sambýliskona
Jóns er Þorgerður Jónsdóttir
frá Súðavík í Álftafirði. Jón
nam húsasmíði á Patreksfirði,
en flutti ungur maður til
Reykjavíkur, þar sem hann
vann við smíðar, lengst af hjá
Guðmundi Guðmundssyni i Tré-
smiðjunni Víði. Þar öðlaðist
hann einnig réttindi í hús-
gagnasmíði. Utför Jóns fer
fram frá Fossvogskirkju í dag.
Jón og Kristján. Öll
mannvænleg og yndis-
leg börn. Tvö af þeim
létust á undan Jóni,
Guðrún og Valgeir. En
Jón og Valgeir voru
tvíburabræður. Við
stöllurnar urðum strax
miklar vinkonur. Við
Nonni, eins og við vor-
um vön að kalla hann,
urðum fljótlega miklir
vinir, og sú vinátta
hélst þar til hann
kvaddi þetta tilveru-
stig.
Það var yndislegt að
koma til þeirra í litla húsið þeirra
sem pabbi þeirra smíðaði, en hann
var húsasmiður og hönd hans hög
á hvað sem fyrir varð. Innan þeirra
dyra ríkti ávallt friður og stundum
var mikið hlegið og þá ekki síst
þegar við stöllurnar ásamt bræðr-
unum slógum á létta strengi. Nonni
minn átti nóg af efni til að láta
mig hlæja. Hann var frekar hlé-
drægur og einrænn, en ákaflega
skemmtilegur og vel gefinn maður.
Það slitnaði aldrei upp úr vináttu
okkar. Hann var svo hugljúfur og
góður við börnin okkar og reyndist
þeim sem stóri bróðir. Mér þótti
afar vænt um það því maður minn
var þá skipstjóri á togurum þar
vestra og því mikið að heiman. Þá
var gott að eiga Jón alltaf reiðubú-
inn til að hjálpa. Nonni borðaði hjá
okkur um tíma, en einmitt þá kom
stóra höggið. Hann slasaðist mjög
alvarlega og náði sér aldrei til fulls
eftir það. Þá hrundu draumaborgir.
Þau misstu föður sinn af slysförum.
Síðar fluttust þau til Reykjavík-
ur. Þar kynntist Nonni sambýlis-
konu sinni sem reyndist honum
tryggur og góður förunautur.
Nú vil ég og fjölskylda mín þakka
ógleymanlegar stundir og óska hon-
um velfarnaðar á þeirri braut sem
okkar allra bíður.
Ég kveð þig, kæri vin, fegurð
kærleiks munt þú sjá. Eilífðar ljósið
skín og vísi þér veginn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Hrefna Sigurðardóttir,
Kjartan Th. Ingimundarson.
JÓN Jónsson húsgagna- og húsa-
smíðameistari frá Patreksfirði var
samferðamaður minn og fjölskyldu
minnar síðastliðna tvo áratugi, eða
frá þeim tíma er hann hóf sambúð
með móðursystur minni, Þorgerði
Jónsdóttur.
Reyndar veit ég furðu fátt um
staðreyndir í lífí hans, því hann var
með eindæmum fáorður um sjálfan
sig og sína hagi. Ég veit þó, að um
langt árabil hafði hann ekki gengið
heill ti! skógar vegna slyss, sem
hann varð fyrir á yngri árum og
heilsubrests í kjölfar þess.
En engan brest var að finna í
stolti hans og sjálfsbjargarvilja.
Hann ’var fastur fyrir og hafði
ákveðnar skoðanir á mörgum mál-
efnum. Hann var karlmenni í lund
en jafnframt næmur á viðkvæmar
hliðar lífsins. Það sannaði viðmót
hans við börnin, sem urðu á vegi
hans.
Ógleymanlegt verður mér, hve
Jóni og Þorgerði var annt um að
líkna og aðstoða í erfiðum veikind-
um móður minnar fyrir nokkrum
árum.
En sterkur vilji Jóns, tryggð og
samviskusemi kom best í ljós í veik-
indum Þorgerðar, sambýliskonu
hans. í heilt ár hefur hún legið lang-
dvölum á sjúkrahúsum. Á tímabilum
fékk hún að fara heim og þá annað-
ist hann hana eftir mætti. Sjálfur
gekkst hann undir holskurð fyrir
nokkrum vikum og var ekki fyrr
staðinn upp en honum var efst í
huga,'hvernig hann gæti hlúð að
henni og stytt henni stundir.
Hann var með sanni vinur í raun.
Ég votta hér með Jóni Jónssyni
virðingu mína og þakka honum góða
samfylgd. Elskulegri móðursystur
minni, Þorgerði, svo og systkinum
Jóns, votta ég samúð mína.
Hvíli hann í Guðs friði.
Kristín Olafsdóttir.
Vinkona mín hringdi í mig og
tilkynnti mér lát bróður síns. Kom
mér það ekki á óvart, ég vissi að
hann var búinn að vera mikið veik-
ur. Get ég því ekki látið hjá líða,
að minnast hans, þessa góða vinar
míns, með nokkrum orðum. Ég átti
því láni að fagna er ég kom til
Patreksfjarðar ung að árum, að
kynnast þessari yndislegu fjöl-
skyldu sem síðar tók mér sem ég
væri ein úr hópnum. Þau áttu sjö
börn og hétu þau Ingibjörg, Guð-
mundur, Guðrún, Kristín, Valgeir,
t
Elskuleg mágkona mín,
EVA ÓLAFSDÓTTIR,
Óslandi,
Höfnum,
sem andaðist á Reykjalundi 16. júlí sl., verður jarðsungin frá
Kirkjuvogskirkju í Höfnum föstudaginn 22. júlí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Reykjalund.
Fyrir hönd aöstandenda,
Ragnheiður Jóhannesdóttir.
t
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
HENDRIKS STEINSSONAR,
Akurgerði 2,
Akranesi,
verður gerð frá Akraneskirkju föstudaginn 22. júlí kl. 14.
Jóna Vilhjálmsdóttir,
Hreggviður Hendriksson, Sigrún Sigurjónsdóttir,
Vilhjálmur Hendriksson, Aðalheiður Óddsdóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
KONRÁÐ SIGURÐSSON,
Sólvöllum,
Árskógsströnd,
sem andaðist 15. júlí sl., verður jarð-
sunginn frá Stærri-Árskógskirkju föstu-
daginn 22. júlí kl. 13.30.
Soffía Sigurðardóttir,
Alfreð Konráðsson, Valdís Þorsteinsdóttir,
Sigurður Konráðsson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Gunnlaugur Konráðsson, Valborg Stefánsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir og afi,
MAGNÚS GUNNAR GÍSLASON,
Stað,
Hrútafirði,
sem andaðist í Landakotsspítala laug-
ardaginn 16. júlí sl., verður jarðsunginn
frá Staðarkirkju laugardaginn 23. júlí
kl. 14.00. Sætaferðir verða frá BSÍ
kl. 11.00 sama dag.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hans, er bent á að láta Krabbameinsfélag (slands njóta
þess.
Bára Guðmundsdóttir,
Edda Björk Karisdóttir,
Vilborg Magnúsdóttir,
Elfn Elísabet Magnúsdóttir,
Magnea Torfhildur Magnúsdóttir,
Guðmundur Magnússon,
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Gfsli Jón Magnússon,
Eiríkur Gíslason
og barnabörn.
Sigurður Reynisson,
Kristinn Reynir Guðmundsson,
Sigurður Rögnvaldsson,
Mikael Bjarki Eggertsson,
Jónína Hafdfs Kristjánsdóttir,
Ottó Berg Magnússon,
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför litlu dóttur okkar, systur
og barnabarns,
ÁSU SJAFNAR ÁRNADÓTTUR.
Sólveig Pálsdóttir, Árni Jónsson,
Díana og Ólafur Páll,
Sjöfn Óskarsdóttir, Páll Ól. Pálsson,
Dfana Árnadóttir, Jón Hermannsson.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
RÓSU KR.
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Rauðalæk 35,
Reykjavík.
Hlíf Valdimarsdóttir, Guðmundur Valdimarsson,
Valdimar Valdimarsson, Guðbjörg Einarsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför bróður okkar og mágs,
ÓMARS HREINS
MAGNÚSSONAR,
Fálkagötu 20B.
Hafsteinn Magnússon, Gróa Guðjónsdóttir,
Þórunn Magnúsdóttir, Halldórs Vigfússon,
Sigrfður Alexander, Frank Alexander,
Jón Magnússon, Kristrún Hálfdánardóttir,
Helga Magnúsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, fósturmóður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÁSDÍSAR SIGRÚNAR FINNBOGADÓTTUR,
Hörgshlfð,
Reykjafjarðarhreppi.
Gerður Elíasdóttir,
Heiðrún Kristjánsdóttir, Kristján Pétursson,
Dagbjört Jónsdóttir,
Jakob Jónsson,
Margrét Jónsdóttir,
Finnbogi Jónsson,
Magnea Karlsdóttir,
Páll Ágústsson,
Ingibjörg Karlsdóttir,
Kristinn Njálsson,
Halldór Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við
andlát og útför föður okkar, sonar,
stjúpsonar og bóður,
ÞORSTEINS EYVARS
EYJÓLFSSONAR,
Spóarima 1,
Selfossi.
Atli Rúnar Þorsteinsson, Andrea Hanna Þorsteinsdóttir,
Eyjólfur Arthúrsson, Hrefna Svava Þorsteinsdóttir
og systkini hins látna.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
ÓSKARS AÐALSTEINS
GUÐJÓNSSONAR
rithöfundar.
Fyrir mína hönd og annarra
aðstandenda,
Valgerður Hanna Jóhannsdóttir.