Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 39

Morgunblaðið - 21.07.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR21. JÚLÍ 1994 39 FRÉTTIR Hátíðarhöld íslendingafélaga í tilefni 50 ára afmælis lýðveldisins Mikil umfjöllun í Svíþjóð og Finnlandi ISLENDINGAFELOG í Svíþjóð stóðu fyrir margvíslegum hátíða- höldum vegna lýðveldisafmælisins 17. júní síðastliðinn. Einnig var af- mælisins minnst með ýmsum hætti í Eistlandi og Lettlandi en hátíða- höldum í Finnlandi var slegið á frest þar sem margir Islendingar héldu til heimalandsins og samkvæmt upp- lýsingum frá Sigríði Snævarr sendi- herra íslands í Stokkhólmi vakti af- mælið verðskuldaða athygli í Svíþjóð og Finnlandi. Hófst umfjöllun fjölmiðla í Svíþjóð um afmælið þegar í byijun ársins er tveir blaðamenn Aftonblaðsins kynntu íslenskan mat og fengu méð- al annars að fylgjast með sælkera- kvöldi hjá forseta íslands. Einnig ritaði Lars Áke Engblom fyrrverandi forstjóri Norræna hússins greinar um Islandstengt efni í dagblöð og kom fram í viðræðuþætti í sænska sjónvarpinu á afmælisdaginn. Sýndi sjónvarpið ennfremur heimildar- myndir um Island og vakti athygli áhorfenda á hátíðahöldunum á Þing- völlum og hátíð íslendingafélagsins á Skansinum í Stokkhólmi en hvort- tveggja var í aðalkvöldfréttum sjón- varps. íslendingar í Stokkhólmi gerðu sér glaðan dag fyrir tilstilli Land- sambands Islendingafélaganna á Skansinum og stóð Ljótur Magnús- son formaður menningarnefndar fé- lagsins að dagskránni. Meðal annars var skrúðganga frá Nordiska Museet að Skansinum, hestasýning, leikir fyrir börn, guðsþjónusta í Seglora kirkju þar sem séra Jón Dalbú Hró- bjartsson þjónaði fyrir altari, söng- hópur frá Uppsölum kom fram og hljómsveitin Islandica lék. Einnig fluttu ávörp sendiherra íslands og Lars Áke Engblom fyrrverandi for- stjóri Norræna hússins. Sagði Sig- ríður Snævarr meðal annars í ræðu sinni að íslendingar í Svíþjóð hefðu hugsað hrærðum huga heim til Is- lands. „Við geymum ísland í hjarta okkar, hvert sem lífsleiðin liggur,“ sagði hún. Auk þess flutti Nanna Lind Svavarsdóttir ávarp fjallkonu og sönghópurinn Tónabræður kom fram ásamt söngkonunni Katrínu Sigurðardóttur. I Jönköping áttu þeir Jakob S. Jónsson og Matthías Mogensen for- maður íslendingafélagsins veg og vanda af hátíðardagskránni. Erla Sigurðardóttir hélt málverkasýningu í tengslum við kynningu á íslenskri menningu. Hljómsveitin Islandica lék og Hörður Torfason söng og einnig sýndu íslenskir og sænskir glímumenn og kynntu gjímu. Auk þess tók Hannes Hlífar Stefánsson þátt í fjöltefli við Jönköpingbúa svo eitthvað sé nefnt. Einnig var staðið fyrir hátíðahöld- um í Gautaborg og Málmey. Til dæmis söng íslenski kórinn í Gauta- borg undir stjórn Kristins Jóhannes- sonar og Bertil Falk aðalræðismaður íslands í Gautaborg flutti ávarp. Farið var í skrúðgöngu frá Korsvág- en til Liseberg og einnig var sérstök dagskrá fyrir börn. í Málmey var sýnd íslensk glíma að iokinni setn- ingarathöfn, haldin fótboltakeppni, keppt í reipitogi og pokahlaupi. Einnig fór fram uppboð á málverk- um með íslensku myndefni og fjall- konan ávarpaði gesti. Loks söng ís- lendingakórinn. í Lundi var farið í skrúðgöngu, fjallkonan Ingibjörg Bragadóttir fíutti ávarp og þjóðsöngurinn var sunginn. Að auki var farið í leiki og börn og fullorðnir sungu saman. I Eistlandi var þáttur um ísland sýnd- ur í eistneska ríkissjónvarpinu og auk þess fór 75 manna hópur frá kvennakórnum Dzintars í Lettlandi, ásamt Jana Baloda ræðismanni ís- lands í Riga, til íslands til tónleika- halds í tilefni af afmælinu. Jeppaferð Toyota-eigenda á laugardag Búist við 160 bílum EIGENDUM Toyota-jeppa gefst kostur á því næstkomandi laugar- dag að taka þátt í dagsferð um afrétti Hrunamanna og Gnúpveija. Síðasta jeppaferð á vegum Toyota- umboðsins var farin fyrir þremur árum og þá lögðu um 120 bílar upp í ferðina frá Reykjavík að sögn Lofts Ágústssonar, auglýsinga- stjóra Toyota-umboðsins. Lagt verður af stað snemma morguns og býst Loftur við að milli 150 og 160 jeppar verði með í för að þessu sinni, en alls eru 3.600 jeppaeigendur á landinu að hans sögn. „Við gerum ráð fyrir að geta tekið á móti um 200 bílum,“ segir Loftur og bætir við að ekki hafi reynst auðvelt að fá upplýsingar um leiðina sem farin verður því um sé að ræða línuveg sem starfsmenn Landsvirkjunar hafi fært sér í nyt og hún því kunnust hestamönnum. Segir Loftur ennfremur að við síð- ustu vettvangskönnun, sem gerð var fyrir þremur vikum, hafi komið í ljós gríðarlegur skafl skömmu eft- ir þriðja vaðið yfir Stóru-Laxá. Ekki hafi reynst unnt að moka honum burtu með traktor og hafi starfsmenn því húið til 3 metra snjógöng til að auðvelda yfirferð en lokakönnun á leiðinni verði gerð á fimmtudaginn kemur og sé ekk- ert því til fyrirstöðu að ferðin verði hin ævintýralegasta en henni lýkur í Þjórsárdal með grillveislu við harmonikkuundirieik. Drukkin ungmenni verði send heim Doktor í efnafræði ÁTAKIÐ „Stöðvum unglinga- drykkju" hefur sent framkvæmda- stjóra Þjóðhátíðar í Vestmannaeyj- um eindregin tilmæli þess efnis að farið verði að reglum sem gilda um útisamkomur á hátíðinni. Þar er vísað til þess að meðferð og neysla áfengis er stranglega bönn- uð á útihátíðum og að börnum yngri en 16 ára er óheimill aðgang- ur að slíkum samkomum nema í fylgd með fullorðnum. Athygli íþróttafélagsins Þórs í Eyjum er vakin á því að ekki sé ástæða til að veita þeim aðilum leyfi aftur til að standa fyrir útihátíðum sem ekki uppfylla skilyrði sem sett eru fyrir þeim. SÝNINGUNNI „Alþingi á lýð- veldistíma" sem staðið hefur í Al- þingishúsinu frá 18. júní lýkur senn og er 29. júlí síðasti sýningar- dagurinn. Aðsókn að sýningunni hefur verið mikil og hafa um 8.000 manns heimsótt Alþingishúsið af þessu tilefni. Leita vitna LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum að óhappi við Fjarðar- kaup síðdegis sl. mánudag. Átta ára drengur var að var að klifra á dósakúlu skáta utan við verslunina en féll til jarðar og í veg fyrir bíl sem ekið var hjá í sama mund. Taið er að hjól bílsins hafi farið yfir framhandlegg drengsins sem er handleggsbrotinn. Ökumaður bílsins kom drengn- um undir læknishendur en lögregla óskar eftir að ná tali af hugsanleg- um sjónarvottum að óhappinu. í bréfi átaksins segir, að ástæða sé til að ætla að hópar ungmenna leiti á þjóðhátíð í Vestmannaeyj- um með drykkju í huga. Miklu varði að ungmennin fái um það skýr skilaboð að eftir reglunum verði farið og þeim snúið við sem ekki hafa náð 16 ára aldri. Jafn- framt verði auglýst áfengisbann og að leit að áfengi muni fara fram. Öll drukkin börn á skilyrðis- laust að taka úr umferð og koma þeim í hendur forráðamanna sinna. Ef þeir eru ekki í stakk búnir til að taka við börnum sínum ber að líta á slík tilfelli sem barna- verndarmál og ber að meðhöndla sem slík. Markmiðið með sýningunni er að gefa fólki kost á að koma í þinghúsið og kynnast störfum þingsins. I þingflokksherbergjum á fyrstu hæð hafa verið sett upp veggspjöld og á þeim fjallað um aðdraganda lýðveldisstofnunar- innar og starfsemi Alþingis í máli og myndum. Einnig er sýnt brot úr lýðveldishátíðarkvikmynd. Á annarri hæð hafa verið settar upp myndir af öllum þingmönnum á lýðveldistímanum. í sal efri deildar eru til sýnis gjafir og ávörp sem þinginu bárust 1930 og í ár. Á lestrarsal eru verkefni þingsins og störf þingmanna kynnt á veggspjöldum. Ýmiss prentaður fróðleikur liggur og frammi fyrir gesti. Kaffistofa þingsins er opin á meðan sýningin stendur og hægt að setjast niður yfir kaffi og pönnukökum. Sýningin er opin alla daga nema laugardaga frá kl. 13.30 til 16.30 til og með 20. júlí. Baggar bundnir í túninu i Árbæ. Túnin við Arbæ slegin TÚNIÐ við Árbæinn verður slegið með orfi og ljá sunnudaginn 24. júlí. Einnig verður rakað, tek- ið saman og bundið í bagga og eru gestir safnsins hvattir til að taka þátt í heyskapnum. í hinum ýmsu húsum safnsins verður fengist við skógerð, út- skurð, lummubakstur og tóvinnu, en gestir í veitingahúsinu Dillons- húsi geta hlýtt á erindi um lífið í Hansenshúsi (Pósthússtræti 15). Erindið hefst kl. 15.00 og er flutt af Lindu S. Guðmundsdóttur sagn- fræðingi. 4. JÚLÍ sl. voru rétt 20 ár liðin frá láti séra Skarphéðins Péturs- sonar en hann þjónaði Bjarnanesi um 18 ára skeið. Laugardaginn 23. júlí kl. 14.00 verður í Hafnarkirkju messa til- einkuð minningu hans og eftir messu bjóða sóknarnefndir þeirra þriggja sókna sem séra Skarphéð- inn þjónaði kirkjugestum.til kaffi- drykkju á Hótel Höfn. ÖRN Almarsson hefur varið doktorsritgerð í lífrænni og líf- efnafræðilegri efnafræði við Kaliforníuháskólann í Santa Bar- bara . Ritgerðin er í fjórum hlutum. Fyrstu kaflarnir fjalla um hraða- fræði hvarfa og tölvulíkanasmíði faktora í ensímhvörfum og í lo- kakaflanum er svo fjallað um en- símið katalasa. Niðurstöður úr rannsóknum Arn- ar hafa birst víða í bandarískum og breskum efnafræðitímaritum. Hann hefureinnig hlotið ýmsar við- urkenningar vegna rannsóknanna, sem styrktar voru að hluta af vís- indasjóði NATO, Styrktarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar, Styrktarsjóði Jóns Þórarinssonar skólameistara og American-Scandinavian Foundati- on. Örn er fæddur 5. febrúar 1967 í Hafnarfirði, sonur hjónanna Önnu FIMMTUDAGINN 21. júlí kl. 20 hefst í Odda fyrirlestur bandaríska arkitektsins Thom Mayne, á vegum ISARK, íslenska arkitektaskólans. Thom Mayne er mikilsmetinn arkitekt frá Los Angeles, Kaliforn- íu, hvar hann rekur teiknistofu sína undir nafninu Morphosis. Hann nam við Háskóla Suður-Kaliforníu til ársins 1968 og lauk síðan fræðum sínum við Harvard-háskóla 1978. Hann stofnaði Sci-Arc-háskólann í Kaliforníu árið 1972 ásamt félaga sínum Michael Rotondi, en sá skóli Þar munu börn séra Skarphéð- ins sem verða viðstödd athöfnina ásamt mökum sínum og börnum færa Bjarnanesprestakalli minn- ingargjöf um séra Skarphéðin. Skarphéðinn Pétursson var fæddur 11. október 1918 í Reykjavík, sonur Péturs Zop- hóníassonar ættfræðings og Guðrúnar Jónsdóttur frá Ás- mundarstöðum á Sléttu. Hann Bjarkar Guð- björnsdóttur og Almars Gríms- sonar. Örn varð stúdent af eðlis- fræðibraut Flensborgar- skólans í Hafn- arfirði 1985, lauk BS-prófi í efnafræði frá Háskóla íslands 1988 og vann að rannsóknum á efnafræðistofu Raunvísindastofn- unar HÍ þar til hann fór utan til frekara náms haustið 1989. Eiginkona Arnar er Brynja Ein- arsdóttir sjúkraliði. Börn þeirra eru • Karítas, fædd 1991, og Halldór Alex, fæddur 1994. Fjölskyldan flyst nú til Boston, en Örn mun starfa við rannsóknir í lífefnafræði við efnafræðideild Massachusetts Institute of Technology (MIT) í Cambridge, MA. hefur öðrum fremur rutt nýjar brautir í kennsluaðferðum og ný- sköpun. Fyrirlestur Thom Maynes nefnist „Bits and Ifs“ og vísar til sundur- gerðar formskynjunar hans sem sækir kraft sinn í ys og þys stór- borgarinnar Los Angeles og er hon- um sífelld uppspretta nýjunga. Verk Thoms þykja liggja milli niðurrifs- stefnu og uppbyggingar nýmódern- isma og mun hann sýna nýjustu verk sín eins og Vienná Expo ’95, sem ber höfundi sínum glöggt vitni. varð sóknarprestur á Bjarnanes- prestakalli 1. nóvember 1959 og* prófastur frá 1963. Eftirlif- andi kona hans er Sigurlaug Guðrún Guðjónsdóttir, nú búsett í Reykjavík. Þau hjón eignuðust sjö börn og má búast við því að sex þeirra nái því að vera viðstödd laugardaginn 23. júlí. Síðustu sýningardagar í Alþingishúsinu Minningarmessa um séra Skarphéðin Fyrirlestur um arkitektúr Dr. Örn Almarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.