Morgunblaðið - 21.07.1994, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 21.07.1994, Qupperneq 42
42 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ✓ ske Tölvu- og verkfræðiþjónustan Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar Grensásvegi 16 • ® 68 80 90 Hreinsum loftræstikerfi í skipum, frystihúsum, fjölbýlishúsum, einbýlishúsum og stofnunum. Tæknileg ráðgjöf og reglubundið eftirlit Sími: 91-651285. Boðtæki: 984-54586, 984-54779. rSS> LANDVERND pj-U*U-UUl HREINT LAND FAGURT LAND KELMINGUR AF ANDVIRDI HREINT LANP FAGURT LAND HELMINGUR AF ANDVIRÐI POKANS RENNUR TIL LANDGRÆÐSLU OG MÁTTÚRUVERNDAR Þetta merki tryggir framlag til landgræöslu, skógræktar og annarrar umhverfisverndar. LANDVERND mam m littk tike/ Liverpool Laugavegi 18a Leikbær Faxafeni 11 Smáfólk Ármúla 42 I DAG Farsi bola-bræðor. PO&lUUMseOÐ o UJA/S6uASS/CóOfTUA/ir ttÉQ fri/rss um oÍJ>oÁ ver&ur eJkkert i/Qrctamat MerUst veL ö, y/ckur.. " Hlutavelta ÞESSIR krakkar héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn 1.200 krónur. Þau heita Aðalsteinn, Agnes og Emilía. SKÁK llm.sjón Margcir Pctursson ÞESSI stórfurðulega staða kom upp á móti í Rússlandi í fyrra í viðureign I. Kús- netsov, sem hafði hvítt og átti leik, og Kotkov. Hvor- ugur þessara skákmanna er á stigalista alþjóðaskák- sambandsins. Hvítur hefur drottningu yfir fyrir ridd- ara, en staða hans virðist samt gertöpuð, því drottn- ing hans er leppur og fellur með skák, auk þess sem hrókurinn á hl stendur í uppnámi. Hvítur bjargar sér í jafn- tefli með ótrúlegri patt- fléttu. 51. Hh8+! (Það er ekki sama í hvaða röð hvít- ur fórnar mönnunum. 51. Kc6? - Hxd5 52. Hb8+ - Kxb8 53. Hh8+ gekk ekki vegna 53. — Hd8!) 51. — Rxh8 52. Kc6!! - Hxd5 53. Hb8+! - Kxb8 Patt! VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Stutt fyrirspurn JYTTE Ecbet-g skrifaði Velvakanda: „Að heimsmeistara- keppni í fótbolta lokinni er mér spurn hvers vegna ekki var hægt að sýna fótboltann á Rás 3, Sýn. Hugsa sér, að bjóða manni úpp á allan þennan fótbolta. Öllu má nú of- gera. Og svo er von á handboltanum. Því vona ég að handbolti og fót- bolti verði á Rás 3, Sýn, í framtíðinni. Sagt er að þetta sé fyrir helming þjóðarinnar, en hvað á að gera fyrir hinn heiming- inn? Með kveðju og þakk- læti ef þessu væri hægt að breyta. Tapað/fundið Týnd regnhlíf SVÖRT regnhlíf var tekin í misgripum í danska sendiráðinu þann 3. júní sl. Sá sem kannast við þetta er vinsamlega beð- inn að skila henni þangað, þar sem svört regnhlíf, sem er fljótt á litið mjög svipuð þeirri týndu, bíður þess að eigandinn gefí sig fram. Týnd myndavél OLYMPU S-myndavél í svörtu hulstri tapaðist, líklega í Reykholti eða í Munaðarnesi, sunnudag- inn 10. júií sl. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 615076 eða 96-71444. Veiðistangir töpuðust ÞRÍR myndlistarmenn voru svo óheppnir að tapa sjö veiðistöngum, þremur venjulegum, þremur flugustöngum og einni barnastöng, á leiðinni frá Búðum að Borgarnesaf- leggjaranum sl. mánu- dag. Skilvís finnandi vin- samlega hafi samband við Guðmund í síma 650841. Hann mun fá myndlistar- verk í fundarlaun. Týnd úlpa SIGRÍÐUR Johnsen hringdi tii að lýsa eftir úlpu sem sonur hennar glataði í Mjóddinni fyrir 1-2 árum. Úlpan er dönsk, græn að lit með hettu með skinnkanti. Ef ein- hver kannast við þetta vinsamlega hafið sam- band í síma 77516. Týnd myndavél CANON-myndavél í svörtu hulstri tapaðist við Brúarlund í Landsveit sl. sunnudag. Skilvís finnandi vinsamlega hringið í síma 21056. Gæludýr Kettlingar fást gefins ÞRÍR átta vikna kassa- vanir kettlingar þurfa að eignast góð heimili. Blíðir og gæfir. Uppl. í síma 654436. COSPER Víkveiji skrifar... Umræða um innheimtu aðgangs- eyris að mótum, sem standa nokkra daga, skýtur oft upp kollin- um. Hefur þá vakið gremju fólks að þurfa að greiða aðgangseyri fyrir alla mótsdagana, þegar ætlunin er að vera kannski bara dagsstund eða einn dag á mótinu. Nú síðast sá Víkverji dæmi svona umræðu í Velvakanda. Þar kvörtuðu útlendir gestir á landsmóti hesta- manna yfir því að hafa þurft að borga mótsgjald fyrir einn dag. ís- lenzkir gestir höfðu samband við Velvakanda. Þeir ætluðu líka að stoppa einn dag, en þegar þeir mót- mæitu mótsverðinu, var þeim lofað endurgreiðslu á helmingnum, þegar þeir færu aftur af svæðinu. Að þeirra sögn reyndist hins vegar erfitt að fá það loforð uppfyllt og gátu þeir sér þess til, að útlendingana hefði skort þolinmæði, eða tíma, til þess að fá sinn hluta endurgreiddan. xxx Annar háttur var hafður á Lands- móti ungmennafélaga, sem haldið var á Laugarvatni um helg- ina. Þar var aðgangseyrir auglýstur fyrir einn dag, tvo daga og þijá daga sérstaklega. Víkverji hefur heldur engar óánægjuraddir heyrt vegna að- gangseyris að því móti. xxx * landsmóti hestamanna voru hestar og knapar í aðalhlut- verkum, eins og vera ber. Þeir komu líka við sögu á landsmóti ungmenna- félaganna, en þar kepptu menn í hestadómum, sem voru hins vegar ekki bein keppnisgrein á landsmóti hestamanna. Á svona mótum skiptast á skin og skúrir. Á landsmóti hestamanna urðu þung áföll innan um glæsta sigra og á landsmóti ungmennafé- laganna voru ekki alltaf jólin eins og eftirfarandi dæmi sanna: Eitt hross sem keppendur áttu að útlitsdæma var svo viðkvæmt að hvorki máttu keppendur koma það nærri að þeir gætu þuklað skepnuna hvað þá heldur komið á hana mál- bandi. Er þó hvort tveggja talið nauðsynlegt til þess að hægt sé að útlitsdæma hross svo gagn sé að í svona keppni. Fór hrossið með al- gjöran sigur af hólmi því hvorki viðmiðunardómnefnd né keppendum tókst að dæma útlit þess að öðru leyti en því að flestir voru sammála um að þetta væri hryssa en ekki hestur. XXX * Otvíræðari var þó sigur rauða hestsins sem kom til hæfi- leikadóms. Eftir að knapinn hafði riðið honum nokkrar ferðir fór þeim rauða að Ieiðast þófið. Tók hann til sinna ráða, sýndi nokkra vel valda hrekki og endaði með því að stökkva í átt til keppenda og fleygja knapan- um fyrir fætur þeirra Keppendum, sem áttu hreint ekki von á þessu, misfórst allt hæfileika- mat á þeim rauða og fór svo, að mannskepnan átti ekki annars úr- kosti en vísa þeim rauða, ómaklega að dómi Víkverja, frá keppni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.