Morgunblaðið - 21.07.1994, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRETTUM
Konungur dýranna
gerir það gott
NÝJASTA teiknimyndin frá Disney,
The Lion King, sem frumsýnd var
í Bandaríkjunum fyrir rúmlega
þrem vikum, gerir það heldur betur
gott og stefnir allt í að hún verði
ein mest sótta mynd allra tíma.
Síðastliðinn föstudag, þegar hún
hafði verið sýnd í 20 daga, hafði
myndin halað inn 150 milljónir doll-
ara í aðgangseyri í Bandaríkjunum,
en aðeins Jurassic Park hafði gert
betur með því að ná þessari upphæð
inn á 15 dögum í fyrrasumar. Hef-
ur myndin þar með skotið The Flint-
stones aftur fyrir sig, en fyrirfram
var álitið að hún yrði mesti smellur
sumarsins. Þá hefur The Lion King
hlotið gífurlega aðsókn í S-Amer-
íku, en þar flykktist fólk í kvik-
myndahús að sjá hana þrátt fyrir
beinar útsendingar frá leikjum Arg-
entínu, Brasilíu, Kólombíu og Mex-
íkó, og sömuleiðis hefur hún gert
það gott í þeim Asíulöndum þar sem
sýningar á henni eru hafnar.
The Lion King er 32. teiknimynd-
in frá Disney í fullri lengd og skart-
ar hún lögum og söngtextum eftir
Elton John og Tim Rice, sem reynd-
ar hlaut Óskarsverðlaun fyrir texta
sína í Aladdin. Geisladiskur með
lögum úr myndinni hefur verið á
toppi vinsældarlista í Bandaríkjun-
um upp á síðkastið. The Lion King
verður sýnd hjá Sam.bíóunum um
næstu jól og er undirbúningur að
talsetningu hennar á íslensku þegar
hafinn.
Edie Brickell
aftur fram í
sviðsljósið
► EDIE Brickell sló í gegn síðla á
níunda áratugnum með hljómsveit-
inni New Bohemians. Lög hennar
þóttu afar falleg með sérstaklega
vel smíðuðum textum. Síðan hvarf
hún af sjónarsviðinu þegar hún gift-
ist öðrum frábærum laga- ogtexta-
höfundi, Paul Simon. Ekkert hefur
heyrst frá söngkonunni siðan, en
snemma í ágústmánuði mun koma
út ný plata frá henni, „Picture
Perfect Morning". Paul Simon
framleiðir hana með Bric-
kell, þótt það hafi ekki
verið ætlunin í upphafi,
að hennar sögn: „Eg
vildi ekki að frambrautir
okkar rynnu saman. Fólk er
svo tortryggið gagnvart slíku. En
þegar ég heyrði hugmyndir hans,
sagði ég: „Gleymum tortryggni —
verum falleg".
Hvað eiga O.J. Simp-
son, Mick Tyson og Axl
Rose sameiginlegt?
► KÚGUN innan hjónabands hef-
ur verið mikið í umræðunni í kjöl-
far O.J. Simpson-málsins, sem nú
er rekið fyrir bandarískum dóm-
stólum. Hann er þó ekki eina
stjarnan í Bandaríkjunum sem
hefur verið ásakaður um að beita
eiginkonu sína líkamlegu ofbeldi.
Mick Tyson var ákærður af Robin
Givens á sínum tíma eins og frægt
er orðið og núna hefur Axl Rose,
söngvari rokkhljómsveitarinnar
Guns ’N Roses, verið ákærður fyr-
ir barsmíðar á fyrrverandi eigin-
konu sinni, Erin Everly.
Axl Rose og Erin Everlyvoru
gift í mánuð árið 1990 eftir að
hafa verið saman í fjögur ár.
Everly segist hafa orðið fyrir bar-
smíðum af hálfu Rose og oft verið
marin, blóðug og jafnvel meðvit-
undarlaus af völdum þeirra. I síð-
asta skipti sem hann hafi barið
hana hefði hún verið á barmi
taugaáfalls, en tekist að
ganga út ákveðin í því að líta
Rose aldrei aftur augum. Nú
lítur út fyrir að fundum þeirra
beri saman í fyrsta skipti í
fjögur ár, því Everly hefur
stefnt Rose fyrir að beita sig
líkamlegu og andlegu ofbeldi.
Fyrirsætan Stephanie Seymo-
ur, fyrrverandi kærasta Rose,
hefur líka höfðað mál gegn hon-
um þar sem hún fullyrðir að hafa
sætt barsmíðum af hans háifu eft-
ir jólaboð sem þau héldu árið 1992.
Hann hafði upphaflega farið í mál
við hana fyrir að neita að skila
skartgripum að verðmæti sjö
milljónum ísl. króna sem hann
hafði gefið henni og fyrir að
„sparka í sig“. Hún heldur því
hinsvegar fram að það hafi verið
í sjálfsvörn, eftir að hann hefði
barið hana. Merkilegt nokk, eitt
höfuðvitna Seymour í réttarhöld-
unum er einmitt fyrrverandi eig-
inkona Rose, Erin Everly.
AXL ROSE ásamt Everly þeg-
ar allt Iék í lyndi.
FYRIRSÆTAN
Stephanie Sey-
mour ber Rose
ekki fallega sög-
una.
MICHAEL Keaton í hlutverki
Batmans.
Nýr leð-
urblöku-
maður
MICHAEL
Keaton mun
ekki ieika í
þriðju fram-
haldsmyndinni
um Leður-
blökumanninn
(Batman).
Orðrómur var
í gangi um að
hann væri
þreyttur á að
leika á móti
leikurum sem
stælu senunni
í hverri mynd-
inni á fætur
annarri, fyrst
Jack Nichol-
son, síðan Danny DeVito og núna
Tommy Lee Jones.
Nú hefur hinsvegar komið upp á
yfirborðið að um missætti var að
ræða milli hans og framleiðenda
myndanna um launagreiðslur til Ke-
atons. Hann fékk um 350 milljónir
ísl. króna fyrir Leðurblökumanninn
og 700 milljónir fyrir framhalds-
myndina. Hann krafðist síðan rúm-
lega milljarðs fyrir þriðju myndina ,
en þá fannst framleiðendunum nóg
komið og þeir réðu Val Kilmer í hlut-
verkið.
Umboðsmaður Keatons, Harry Col-
umby, segir hann í raun hafa slitið
samningaviðræðunum og að peningar
hefðu ekki „átt neinn þátt í því“.
Hann sagði að ósætti hefði orðið milli
Keatons og leikstjóra myndanna, Jo-
els Schumachers: „Michael hefði viljað
ráða meira um leikstjóm myndarinn-
ar, hvað varðar persónutúlkun Bat-
mans. Það var Ijóst að ekki myndi
nást samkomulag um það atriði.“
VAL Kilmer mun
taka við af Keaton
sem Batman.
Allra síðastl sýningardagur á Nakin
eftir Mike Leigh og Lista Schindlers
eftir Steven Spielberg.
FOLK
Stjörnurnar
ráða
ferðinni
►GERÐ framhaldsmynda
ræðst gjarnan af því nú til dags
hve miklar launakröfur aðal-
leikararnir í fyrstu myndinni
gera fyrir að koma fram í þeirri
næstu. Þannig eru þeir hjá 20th
Century Fox núna í hinum
mestu vandræðum vegna þess
að Speed með Keanu Reeves í
aðalhlutverki, sem sýnd verður
í Sambíóunum á næstunni, situr
nú í einu af efstu sætunum
vestra. Það er auðvitað hið
besta mál út af fyrir sig, en það
hafði bara láðst að semja við
leikarann um hugsanlega fram-
haldsmynd. Reeves fékk rúm-
lega tvær milljónir dollara fyrir
að leika í Speed, en vegna vel-
gengni myndarinnar eru allar
líkur á að hann fari fram á
KEANU Reeves undir stýri i Speed.
10-12 milljónir dollara fyrir að
leika í framhaldinu. Framleið-
endurnir eru því í nokkurri
klípu, en þeir gera sér hins
vegar fyllilega grein fyrir að
Keanu Reeves er andlit mynd-
arinnar og því nauðsynlegt að
hann verði áfram í hlutverkinu.
Fleira um kvikmyndina Speed.
Söguþráður myndarinnar er
mikið breyttur frá upphaflega-
handritinu. Joss Whedon gerði
miklar breytingar á handritinu
til góðs, þótt það komi hvergi
fram í myndinni. Hann breytti
meðal annars illmenninu Whed
on (Jeff Daniels) í vin hetjunnar
Keanu Reeves.