Morgunblaðið - 21.07.1994, Page 52

Morgunblaðið - 21.07.1994, Page 52
HEWLETT PACKARD ---------------UMBOÐIÐ HP Á ÍSLANDI H F Höfdabakka 9, Reykjavik, sími (91) 671000 Frú möguleika til veruleika MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTIIÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNAllSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Má heita Elsabet MANNANAFNANEFND hefur veitt samþykki sitt fyrir því að dóttir hjónanna Harðar Sævars Haukssonar og Elsabetar Sig- urðardóttur beri nafnið Elsa- bet eins og móðir hennar. Elsa- bet yngri er sex mánaða og var skírð 2. júlí síðastliðinn í trássi við tvær fyrri ákvarðanir nefndarinnar, sem voru á þá lund að hjónunum væri ekki heimilt að skíra dóttur sína Elsabetarnafninu á þeirri for- sendu að það væri ekki íslenskt að uppruna. Segist Elsabet eldri hafa verið ákveðin í nafn- giftinni því hún telji það flokk- ast undir mannréttindi að fá að velja barni sínu nafn. Þurftu Elsabet og Hörður að sýna fram á að hefð væri fyrir nafn- inu meðal annars með því að finna nafnið í manntali árið 1910 eða eina manneskju með því nafni í manntali 1845. Tókst það með hjálp Friðriks Skúla- sonar, höfundar Espólín-ætt- fræðiforritsins, auk annarra sem þau hjónin vilja þakka vegna fjölda ábendinga í kjöl- far umfjöllunar um málið. Auk Friðriks vilja þau þakka Gisla Jónssyni, fyrrverandi mennta- skólakennara á Akureyri, Aðal- heiði Daníelsdóttur, sem ekki fær að skíra son sinn Arnold, fyrir stuðning, Jóni Torfasyni á Landsbókasafni og Sigmari Magnússyni bónda i Dölum. Einnig vilja þau þakka konu sem hringdi til þeirra með ótal ábendingar en vildi ekki láta nafns síns getið. Formaður mannanafnanefndar, Halldór Ármann Sigurðsson, ritaði grein í Morgunblaðið á dögun- um þar sem sú skoðun kemur fram að lögin séu of ströng og að þeim þurfi að breyta og sé verið að vinna að því hjá dóms- málaráðuneytinu. Morgunblaðið/Sverrir Uffe Elle- mann og Jack Nick- laus í Laxá UFFE Ellemann-Jensen, fyrr- verandi utanríkisráðherra Dana, og golfleikarinn Jack Nicklaus eru við veiðar í Laxá í Aðaldal. Sagði Orri Vigfússon að einnig væru í hópnum sonur Jacks Nicklaus og formaður skoska stangveiðifélagsins Marnock lávarður. Hafði Uffe Ellemann fengið tvo laxa, einn sex punda og annan sextán punda. Einnig fengu Nicklaus feðgarnir lax í gær að sögn Orra en sá stærsti sem komið hefur í þessu hólli, sem hófst í fyrradag, var 19 punda. Deilur um legu ljósleiðarakapals um fiskimið við Vestmannaeyjar Útgerðarmenn sáttir við flutiiing kapalsins síðar UTVEGSMENN I Vestmannaeyjum féllust í gærkvöldi fyrir sitt leyti á samkomulag, sem náðist á fundi fulltrúa þeirra með samgönguráð- herra og yfirmönnum Pósts og síma í gær, um að stefnt skuli að því að ljósleiðarakapallinn sem lagning er að hefjast á til Vestmannaeyja verði færður af fiskislóðum síðar. Magnús Kristinsson talsmaður útvegsmannanna segir málið vera komið í höfn og ekkert verða af hótunum um að reyna að hindra lagningu kapalsins. Magnús sagði að á fundinum með samgöngu- ráðherra og yfirmönnum Pósts og síma hefði komið fram að ef sjómenn yrðu fyrir því að veiðarfæri lentu í kaplinum áður en hann verð- ur færður þá væri þess óskað að þeir skildu þau eftir á botninum frekar en að valda skaða á kaplinum. Útgerðarmönnum yrði síðan bætt tjónið sem af þessu hlytist. Stöðvun kom ekki til greina Halldór Blöndal samgönguráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að lagning kapalsins væri þegar orðin á eftir áætlun og ekki hefði komið til greina að stöðva lagningu hans á þessu stigi eins og útvegsmenn í Eyjum og sjávarútvegsráðuneytið óskuðu eftir í fyrradag. Kostnaður við það hefði orðið stjarnfræðilega hár. Hann sagði að þegar í stað yrði hafinn undirbúningur að því að kanna möguleikana á því að færa kapalinn frá veiðislóðum sunnan Vestmannaeyja og suður fyrir blálöngumiðin á Kötlutanga. Aðspurður um hver myndi bera kostnaðinn af þessari athugun og lagningu kapalsins á öðrum stað vísaði Halldór til þess að málið hefði enn ekki verið tekið upp við Kanadamenn og því vildi hann ekkert tjá sig um það á þessu stigi. ■ Kapallinn væntanlega fluttur/4 Reynir að upplýsa reiðhjólaþjófnaði GUÐJÓN Helgason safnar nú upplýsingum um reiðhjólaþjófnaði í Reykjavík, sem hann segir lög- regluna ekki vilja bregðast við. Hjól dóttur hans hvarf 12. júlí sl. og segist Guðjón hafa haft sam- band við á annað hundrað manns sem tilkynnt hafi um stolin reið- hjól til lögreglu. Guðjón segist halda að um skipulegan þjófnað sé að ræða og er að „kortleggja" tilfellin, sem hann segir vera flest í Vesturbæn- um og þar um kring en hann hefur komið að máli við íbúa í ýmsum hverfum borgarinnar. Segist Guðjón ætla að kvarta við dómsmálaráðuneytið yfir því að lögreglan sinni ekki skyldustörf- um og reyna að upplýsa þjófnað- ina sjálfur. Ollu lauslegu stolið Ibúi í Gijótaþorpi sem haft var samband við og ekki vill láta nafns síns getið hefur misst þrjú hjól á undanförnum árum. Til dæmis hvarf hjól af heimili hans í apríl sem búið var að festa kyrfilega við girðingu með keðju og segir íbúinn að svo virðist að klippum hafi verið beitt við verknaðinn. Einnig hvarf hjól úr garði íbúans fyrir nokkrum dögum sem sett hafði verið út fyrir dyrnar stund- arkorn vegna tiltektar. Segir íbú- inn reyndar að engu skipti hvað hann leggi frá sér í garðinum því þaðan hverfi byggingarefni, stig- ar, stólar, útvörp og hvaðeina ef þannig beri undir. Ómar Smári Ármannsson yfir- lögregluþjónn sagði í samtali við Morgunblaðið að reiðhjólaþjófnaðir væru árstíðabundnjr. Yfírleitt næði fjöldinn hámarki í júní þegar til- kynnt væri um 80-90 hjól en yfir vetrartímann hyrfu um 10—12 á mánuði. Sagði hann aðspurður hvort um skipulagt athæfi væri að ræða að hann hefði heyrt að hjól væru seld í erlend skip og hefði lögreglan og tollyfirvöld kannað málið en ekkert hefði kom- ið fram til að renna stoðum undir þá kenningu. Ekki náðist í Friðrik G. Gunnarsson hjá rannsóknadeild lögreglunnar vegna þessa. Atlanta flýg’ur í Qatar FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur gert samning um áætlunarflug við Qat- ar Airlines í furstadæminu Qatar við Persaflóa. Atlanta notar Boeing 737-200 flugvél til verkefnisins og er hún tekin á leigu hjá þýska flug- félaginu Lufthansa. Tvær íslenskar áhafnir sinna fluginu, sem hófst fyrir réttri viku. Rekur sjálft tvær flugvélar Eldur við Frakkastíg ELDUR kom upp í herbergi á ann- arri hæð hússins númer 8 við Frakkastíg í gærkvöldi. Slökkviliðið kom á staðinn upp úr klukkan hálf- ellefu og gekk slökkvistarf vel. Starfsmenn í húsinu urðu varir við að reyk lagði undan hurð á annarri hæð hússins, þar sem nokk- ur fyrirtæki hafa aðsetur. Á hæðun- um fyrir ofan og fyrir neðan eru veitinga- og skemmtistaðir. Sam- kvæmt upplýsingum frá slökkvilið- inu í Reykjavík brugðust mennirnir rétt við með því að opna ekki inn í herbergið heldur láta slökkviliðið vita. Fjórir reykkafarar fóru inn í herbergið og gekk vel að slökkva eldinn. Efsta hæð hússins var rýmd og önnur hæð hússins reyktæmd. Reyk lagði ekki á milli hæða. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins var fátt fólk í húsinu og var það aldrei í neinni hættu. Nýlega var leitað eftir því við Atlanta að það aðstoðaði við upp- byggingu áætlunarflugs Qatar Airlines. Flugfélag furstadæmisins var stofnað í janúar á síðasta ári og rekur það sjálft tvær flugvélar. Atlanta sér fyrst og fremst um flug á ýmsum flugleiðum innan arab- ísku furstadæmanna, en að auki skipuleggur það ferðir til Bombay í Indlandi og til Sri Lanka. Samn- ingur Atlanta og Qatar Airlines er til fjögurra mánaða til að byrja með. ■ Atlanta semur/Bl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.