Morgunblaðið - 03.09.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.09.1994, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Verkfallsboðun FÍH Félagsdómur úrskurðar um lögmæti Leyfilegt að veiða 120 þúsund tonnaf síld á vertíðinni Sterkur sfldarstofn en sölumál í uppnámi Síldarstofninn við ísland virðist í góðu ástandi nú í upphafi vertíðar, en leyfílegt er að veiða 120 þúsund tonn. Litlar líkur eru á að norsk-íslenska síldin veiðist hér fyrr en næsta vor. Sölumál eru hins vegar í uppnámi, þar sem innganga Svíþjóðar og -------------------------------->- Finnlands í ESB hefur í för með sér að Is- lendingar missa tollfríðindi. VERKFALLSBOÐUN Félags ís- lenskra hljóðfæraleikara hefur verið vísað til Félagsdóms sem úrskurðar um lögmæti hennar. Samninga- nefndir ríkisins og FÍH hittust í gærmorgun og að sögn Björns Arnasonar, formanns FÍH, var nið- urstaða þess fundar sú að ekki þætti ástæða til frekari viðræðna að svo stöddu. Björn segir að vænta megi úrskurðar Félagsdóms á sunnudag eða mánudag. Björn Ámason segir að hljóð- færaleikarar séu ekki í nokkrum vafa um að verkfallsboðunin sé lög- leg en komist Félagsdómur að ann- arri niðurstöðu, verði verkfall boðað að nýju. Bjöm segir að hljóðfæragjald sé það eina sem samninganefnd hafi verið til viðræðu um að endur- skoða, en það er greitt vegna kostn- aðar við hljóðfæri. Bjöm vill að fram komi að hljóðfæraleikarar fái ekki 6.200 krónur fyrir hveija sýningu í Þjóðleikhúsinu. Frá þeim megi draga tæpar þúsund krónur, sem séu einmitt hljóðfæragjaldið. Kórinn ekki á leið út Samninganefnd Þjóðleikhúskórs og stjórn Þjóðleikhússins hittust í ísafiröi. Morgunblaðið. NÚ ER að ljúka frágangi utan- húss á nýrri ísafjarðarkirlqu, en að innan er hún tilbúin undir tréverk og málningu. Útlagður framkvæmdakostnaður nú er um 90 milljónir, en 25 milljónir vant- ar nú til að hægt verði að messa. Sóknarnefnd hefur stefnt að því að messað verði í kirkjunni um næstu jól, en nú virðast líkur til að framkvæmdir séu að stöðvast vegna fjárskorts. gær til að ræða launamál kórsins. Kórfélagar eru allir félagsmenn í FÍH en ólíkt því sem gerist með hljóðfæraieikarana hefur Þjóðleik- húsið rétt til að fara með samninga við kórinn. Kórnum var gert tilboð, sem hann hafnaði á miðvikudag. Fyrir fundinn í gær staðfesti íris Erlings- dóttir, formaður kórsins, að kórfé- lagar væru tilbúnir til að ganga út ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra. Eftir fundinn sagðist hún ekki vilja tjá sig að öðru leyti en því að kórinn myndi mæta á æfing- ar eins og venjulega. Hún vildi þó ekki staðfesta að annað tilboð hefði verið lagt fram, sagði að samninga- viðræður væru á viðkvæmu stigi. Stefán Baldursson þjóðleikhús- stjóri segir að samningur við Þjóð- leikhúskórinn sé í fullu gildi, honum hafi ekki verið sagt upp og hann gildi til 1. september á næsta ári. Launaliður hans sé endurskoðaður á hveiju hausti og samningar um hann séu í gangi núna. Hann segist vongóður um að þeir náist. Stefán segir yfirlýsingar um að kórinn hafi hótað að ganga út, úr lausu lofti gripnar, þær hafi aldrei komið fram á neinum fundum. Þar munar mestu að 20 millj- óna króna framlag frá ísafjarð- arkaupstað, sem samþykkt var í vetur af fyrrverandi bæjarstjórn, hefur ekki fengist afgreitt og óttast sóknarnefnd að þar verði um vanefndir að ræða. Þá hefur dregið mjög úr söfnunarfé, en þurft hefði að ná um 5 milljónum í almennri söfnun ásamt bæjar- sjóðsfénu til að hægt verði að taka kirkjuna í notkun. „Við höfum ekki farið í neina leiðangra til að kanna síidina að þessu sinni og munum ekki gera, en samkvæmt úttekt á síðasta vetri á stofninn að vera í góðu ástandi. Ég á því von á að síldarvertíðin fari í gang á eðlilegum tíma, en þó leyfi- legt sé að veiða síld frá 1. septem- ber þá hefur lítið eða ekkert veiðst af henni fyrr en í október," sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrann- sóknastofnunar. Norsk-íslensk síld næsta vor Jakob sagði aðspurður að héðan af væri ólíklegt að síld úr norsk-ís- lenska stofninum kæmi inn í ís- lenska lögsögu fyrr en næsta vor. „Við ætlum í leiðangur til að kanna hvort norsk-íslenska síldin lætur sjá sig á vetursetustöðvunum út af Austurlandi í nóvember eða desem- ber. Ég veit að Norðmenn ætla einnig að senda rannsóknarskip á þær slóðir, en ég á ekki von á að norsk-íslenska síldin færi sig nær okkur fyrr en í maí, líkt og gerðist síðasta vor.“ Jakob sagði að undanfarið hefðu borist fréttir af síld við Vestfirði, við Víkurál og jafnvel inn á Dýra- firði, þar sem hún hefði ekki sést lengi. „Þarna er okkar hefðbundna sumargotssíld á ferð, en hún er í mikilli ætisleit um allan sjó fram á haustið, þegar hún safnast saman í veiðanlegar torfur og þá hefur hana verið að finna austur af land- inu. Ég er alltaf að vonast til að hún komi líka vestur upp að landinu, eins og áður var, en þrátt fyrir fréttir núna um óvenju mikla síld út af Vestfjörðum þarf það ékki að benda til að sú von rætist. Slík- ar fréttir hafa borist áður án þess að síldin breytti út af venjunni." Kvótinn 120 þúsund tonn Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði að síldarkvótinn á komandi vertíð næmi 120 þúsund lestum. „Undan- farin ár hafa um fjörutíu skip stund- að veiðarnar, þó að fleiri séu með kvóta á bak við sig, því hann er oft sameinaður á eitt skip. Þá hefur þróunin verið sú að þeir sem eru með aflahlutdeildina hafa lítið stundað veiðar sjálfir, heldur fram- selt kvóta sína á loðnuskipin, sem hafa nýtt þá.“ Tollfríðindi tapast Við væntanlega inngöngu EFTA- ríkja í Evrópusambandið um næstu áramót tapa íslendingar nokkrum tollfríðindum sem EFTA-aðild tryggði en EES-samningurinn bæt- ir ekki upp. íslendingar eiga mestra hagsmuna að gæta varðandi síldar- afurðir til manneldis, sem stór markaður er fyrir í Svíþjóð og Finn- landi, en munu frá áramótum bera 10-15% toll þar, verði ESB-aðild samþykkt í löndunum. Auk þess sem tollgreiðslur geta hlaupið á nokkrum tugum milljóna króna á ári, mun þetta leiða til verri stöðu á hörðum samkeppnismarkaði. Missa íslendingar markaði? Gunnar Jóakimsson, fram- kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, staðfesti að þessi breyting hefði sett mjög mark sitt á viðræður við Svía og Finna um hugs- anleg síldarkaup á kom- andi vertíð. „Þessi breyt- ing gæti ýtt okkur út af markaðinum í þessum löndum. Það er afar erf- itt að reyna sölusamn- inga fyrr en þessar þjóðir eru búnar að greiða atkvæði um ESB-aðild. Á meðan svo er ekki erum við mjög í lausu lofti, en vissu- lega er það mikið áhyggjuefni að íslendingar missi tollfríðindi.“ Gunnar sagði að sölumál hefðu lítt mótast enn, a.m.k. væri erfitt að fullyrða neitt nú. Hann sagðist ekki hafa heyrt Rússa nefna mögu- leika á kaupum á síld beint af ís- lenskum skipum og benti á að sala um borð í erlend verksmiðjuskip inn- an íslenskrar lögsögu væri ólögleg- OPIÐIILS í BORCARLEIKHÚSI laugardaginn 3. september. kl. 14-17. Skoðunarferðir, kynning á verkefnum vetrarins, m.a. æfingar á stóra og litla sviði og margt fleira. Pepsi býður upp á gosdrykki. Krummi býður upp á lakkrís. Kaffi og vöfflur aðeins kr. 100. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Andlát RAGNAR Þ. STEFÁNSSON RAGNAR Þ. Stef- ánsson, fyrrver- andi þjóðgarðs- vörður og bóndi í Skaftafelli, er lát- inn, áttræður að aldri. Ragnar fæddist 22. júní 1914 í Skaftafelli, sonur hjónanna Stefáns Benediktssonar og Jóhönnu Guð- rúnar Jónsdótti Hann var skipa ur þjóðgarðsvöi ur í Skaftafí árið 1967 gegndi því sta til ársins 1987. Eftirlifandi kona Ragnars Laufey Lárusdó ir. Þau eiga ei dóttur, Önnu M< íu. Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson ÍSAFJARÐARKIRKJA undir regnboganum. Kirkjubygging að stöðvast Vonandi síld undan Vestur- landi líkt og áður fyrr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.