Morgunblaðið - 03.09.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.09.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ IMEYTENDUR LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 17 Ymislegt getur komið í stað salts í matargerð SALT er eitt af nauðsynlegum bætiefnum líkamans rétt eins og járn og vítamín og þarf þess vegna að vera neytt í hæfilegu magni. Dagleg saltneysla fólks er tíföld eða tólfföld miðað við saltþörf lík- amans. Þegar hún er svo mikil er hún óholl og talið er að salt geti valdið of háum blóðþrýstingi. í bókinni Grænt oggómsætt eru ráðleggingar um hvernig má minnka saltneyslu, hvað beri að forðast og hvað skuli notað í stað- inn fyrir salt í matargerð. Þar er sagt að sattþörf líkamans sé full- nægt með ómeðhöndluðum, nýjum mat og helst ætti að sleppa því að nota salt í matargerð eða minnka það um helming, t.d. hafa helmingi minna salt en gefið er upp í uppskriftum. Mælt er gegn því að salta mat við matarborðið. Mælt með að neyta meira kalíums Ráðlagt er að venja sig á kal- íum-auðuga fæðu, því að kalíum. virðist hafa hemil á áhrifum natr- íums. Góðir kalíumgjafar eru nýir ávextir, grænmeti, ávaxtasafi og þurrkaðir ávextir. Sveskjur eru mjög kalíumríkar. Rifinn appelsínubörkur í stað salts Mælt er með að nota ýmis bragðefni í stað salts s.s. sítrónu- safa, jurtasalt, sesamsalt, hvítlauk eða pipar. Einnig má nota mísó, sojasósu eða tamari-sósu til að bragðbæta súpur og sósur. Þó að natríum sé í þessum bragðefnum eru þau svo sterk að lítið þarf af NOKKRAR fæðuteg- undir sem nota má sem bragðefni í stað- inn fyrir salt. þeim og í þeim eru önnur næring- arefni. Reyna má natríumsnautt salt á meðan vanist er minni salt- neyslu og þá er natríum og kalíum notað til helminga í matargerð. Rifínn appelsínubörk má setja í brauð í staðinn fyrir salt. Æskilegt er að borða minna af öllum fæðutegundum sem í eru natríum eða matarsalt. Þó að matur sé ekki saltur á bragðið getur leynst í honum mikið sait eins og í kexi, osti, morgunkomi og í smákökum. Ef fólk vill minnka saltneyslu ætti það að forðast smjörlíki, smjör, flest mauk og viðbit, ger- þykkni, saltkex, sósur, niðursoðið grænmeti, súpur og súrsað græn- meti. í unnum matvörum eru ýmis aukaefni sem innihalda natríum. Gleymdi að fá afgang en fékk hann sendan KONA sem nýlega verslaði í Nesti á Ártúnshöfða kom að máli við blað- ið og lýsti yfir ánægju með fram- komu starfsfólks. „Ég var afgreidd gegnum bílalúgu og greiddi með ávísun, en ók í burtu án þess að taka við afgangi. Tveimur dögum síðar fékk ég tilkynningu frá bank- anum um að rúmlega 1.000 krónur hefðu verið lagðar inn á reikninginn. Á innborgunarseðli kom fram að um væri að ræða afgang og áheft var ljósrit af ávísuninni til frekari út- skýringar. Ég hafði ekki áttað mig á þessu og varð undrandi. Þó var ég fyrst og fremst ánægð yfir heið- arleika starfsfólksins," segir konan. Guðfinnur Kjartansson er fram- kvæmdastjóri Nestis og hefur verið það í yfir 20 ár. í samtali við blaðið sagði hann að á starfsævi sinni hefði oft komið fyrir að viðskiptavinir gleymdu að taka afgang, en alltaf væri reynt að koma peningunum til skila. „Það er ekkert sjálfsagðara en að skila því sem maður tekur við og á ekki. Ef fólk skrifar ávísun er auðvelt að skila afganginum, en málið getur orðið snúið ef greitt er með reiðufé. Þá skráir afgreiðslufólk niður númer bílsins, ef það getur og ég leita upplýsinga um eigandann hjá bifreiðaeftirlitinu. í kjölfarið hringi ég í viðkomandi og læt vita af peningunum, eða sendi afganginn í pósti. Ef ekki næst að skrá númer á bílnum, eru peningarnir settir í merkt umslag, sem fólk getur vitj- að.“ ------»-■♦--»-- Súkkulaði brætt í poka ÞAÐ getur verið óskaplega subbu- legt að bræða súkkulaði. Ágætt ráð er að bræða súkkulaði í plastpoka sem liggur í heitu vatni. Þegar súkkulaðið er bráðnað, er klippt á eitt hornið og hægt að nota pokann til að sprauta skreytingum á kökur og konfekt. Skómarkaður í Bónus Á FIMMTUDAG var opnaður skó- markaður í Bónus í Holtagörðum. Um er að ræða sjö þúsund pör af skóm og eru tegundirnar sjö. Skórn- ir kosta á bilinu 199 til 497 krónur. henni! Sterk, óvægin, frumleg og grátbrosleg kvikmynd sem engan lætur ósnortinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.