Morgunblaðið - 03.09.1994, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 03.09.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 9 FRETTIR Þátttaka Islands öðrum þjóðum til fyrirmyndar George B. Weber, for- seti Alþjóðasambands Rauða krossins, sem staddur er hérlendis, segir að 125 millj. sjálf- boðaliða starfi á vegum Rauða krossins um all- an heim en miðað við höfðatölu leggi engir meira af mörkum en íslendingar. GEORGE B. Weber, forseti Alþjóða- sambands Rauða krossins, er staddur hér á landi í tilefni af 70 ára af- mæli Rauða kross íslands á þessu ári. Þetta er í annað skipti sem We- ber kemur til Islands, en hann kom hingað árið 1989 þegar hann var formaður Rauða kross Kanada. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að sér væri sérstök ánægja að heim- sækja Islandsdeild Rauða krossins sem væri mjög virk í starfsemi al- þjóðasamtakanna, en Guðjón Magn- ússon formaður RKÍ er nú einn af átta varaformönnum Alþjóðasam- bands Rauða krossins og Rauða hálf- mánans. Mesta framlag miðað við höfðatölu George B. Weber er fæddur 1946 í Montreal í Kanada og hefur hann verið forseti Alþjóðasambands Rauða krossins frá 1. janúar 1993. Hann hefur starfað að málefnum Rauða krossins á öllum sviðum í 30 ár, en áður en hann tók við starfi forseta Alþjóðasambandsins var hann for- maður Rauða kross Kanda í 10 ár. Sem fyrr segir er hann fyrst og fremst kominn hingað til lands að þessu sinni í tilefni af 70 ára af- mæli Rauða kross íslands, en auk þess til viðræðna við forystu RKÍ um málefni Alþjóðasambandsins ogjafn- framt hefur hann hitt Davíð Oddsson forsætisráðherra að máli. George B. Weber Hvað þátttöku í al- þjóðastarfi Rauða krossins varðar sagði Weber að ísland væri til mikillar fyrirmynd- ar, því miðað við höfða- tölu væri framlag landsins til hjálpar- starfs meira en hjá nokkurri annarri þjóð. „Helst vildi ég að við hefðum miklu fleiri lönd eins og Island, en landið er fyrirmynd sem gott er að benda öðrum þjóðum á í sam- bandi við framlag til hjálparstarfs samtak- anna. Þá er það mjög mikils virði og til fyrirmyndar að Rauði kross íslands sýnir alltaf við- brögð þegar ieitað er eftir aðstoð og á þessu ári t.d hafa borist 32 óskir um aðstoð og hefur RKÍ í öllum til- fellum lagt sitt af mörkum," sagði hann. Alþjóðasamband Rauða krossins er sennilega stærstu sjálfboðaliða- samtök í heimi, og nemur árleg heild- arvelta þeirra um 18 milljörðum bandaríkjadala, eða um 1.250 millj- örðum íslenskra króna. Innan sam- takanna eru landssamtök 162 þjóða og starfa samtals um 125 milljónir sjálfboðaliða á þeirra vegum, en að auki eru nú í undirbúningi stofnun 23 nýrra landssamtaka. Launaðir starfsmenn Rauða krossins eru hins vegar 277 þúsund talsins. Á síðasta ári veitti alþjóðasambandið 15,7 milljónum manna neyðaraðstoð af einhveiju tagi um allan heim, en að sögn Webers verða 200-240 milljónir manna nú árlega fyrir skaða af völd- um einhverskonar hamfara. Um tíu milljónir bætast við þessa tölu á ári hverju og um aldamótin megi því gera ráð fyrir að árlegur fjöldi verði um 300 milljónir. Þörf á fyrirbyggjandi aögerðum Weber segir ríkisstjórnir í flestum tilfellum bregðast mjög fljótt við þegar þörf er aðstoðar á hamfara- svæðum, en oft á tíðum væri það gert í pólitískum tilgangi af ein- hveiju tagi. Hann sagði að í mörgum JAPANSKAR SKYl/yJINGAR IAIDO S,................ UST JAPANSKA SVERÐSINS, FEIST í EINSTAKLINGSBUNDNUM ÆFINGUM Á FYRIRFRAMÁKVEÐNUM HREYFIMYNSTRUM (KATA) SEM ERU AFRAKSTUR ÞROTLAUSRAR VIÐLÖTNI SAMURAIANNA TIL FULLKOMNUNAR Á LIÐNUM ÖLDUM. . KENNARÞTRYGGVI SIGURÐSSON 4. DAN KENDO SKYLMINGAR i HLÍFÐARBÚNING ÞAR SEM ÁSTUND ER SETT OFAR KEPPNI. GÖFUG OG KREFJANDI ÍÞRÓTT SEM EFLIR LÍKAMA OG HERÐIR HUG KENNARI: INGÓLFUR BJÖRGVINSSON 2. DAN. MEISHINKAN DOJO UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 668866/65724 MaxMara Haustsendingin er komin! Opið ídag 10-17. Mari Hverfisgötu 52-101 Reykjavík - Simi 91 -62 28 62 tilfellum væri vitað fyrirfram að yfirvofandi væru hamfarir á til- teknum svæðum, en á það skorti að gripið væri til fyrirbyggjandi aðgerða af einhverju tagi og þörfin á fjárst- uðningi í slíkum tilfell- um væri mjög brýn. Allt frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar hefur þörfin fyrir neyð- araðstoð að sögn We- bers aldrei verið eins mikil og í dag, en síðast- liðin 2-3 ár hefði hins vegar orðið ákveðin breyting á eðli hjálpar- starfs Rauða krossins. Þannig hefði helsta þörfin fyrir aðstoð samtak- anna fyrir 5-10 árum verið vegna náttúruhamfara af einhveiju tagi og þá aðallega í Afríku, en í dag væru um 60-70% hjálparstarfsins hins veg- ar fólgið í aðstoð við flóttamenn. Þá hefði síðastliðin ár orðið sú breyting að hjálparstarfsins væri í ríkari mæli þörf í Evrópu, og þá ekki síst vegna átakanna sem átt hafa sér stað í ríkjum fyrrum Júgóslavíu. Þar með væri starfsemi Alþjóðasamtaka Rauða krossins á vissan hátt komin á nýjan leik á upphafspunkt, því samtökin voru einmitt stofnuð fyrir 75 árum síðan í kjölfar fyrri heims- styijaldarinnar, en á árunum eftir styijöldina féllu fleiri almennir borg- arar í valinn vegna hungursneyðar og annarra hörmunga heldur en í styijöldinni sjálfri. Náttúruverndarráð um brú yfir Gilsfjörð Skipulagsstjóri meti unihverfisáhrif NATTURUVERNDARRÁÐ legg- ur áherslu á, í tengslum við úr- skurð skipulagsstjóra vegna brúar yfir Gilsfjörð, að aðeins í undan- tekningartilvikum verði fram- kvæmdaaðila heimilað að meta umhverfisáhrif. Eðlilegast sé að embætti skipulagsstjóra sjái um matið. Vakin er athygli á að Nátt- úruverndarráð, Náttúrufræði- stofnun íslands og skipulagsstjóri bendi á að leið 2, þ.e. frá Ólafsdals- eyri að Múla, sé vænlegur kostur og sameini hagkvæmni og náttúru- verndarsjónarmið. Fram kemur í fréttatilkynningu frá ráðinu að málið sé eitt af þeim fyrstu sem komi til umfjöllunar samkvæmt lögum um mat á um- hverfisáhrifum frá 1994. Meðferð málsins sýni að lögin séu meingöll- uð að því leyti að framkvæmdaað- ila sé falið að meta umhverfisáhrif eigin verka. Opinber aðili sjái um mat „Náttúruverndarráð leggur á það þunga áherslu að lögum um mat á umhverfísáhrifum verði breytt á þann veg að einungis í undantekningartilvikum verði framkvæmdaaðila heimilað að meta umhverfisáhrif. Eðlilegast er að aðalreglan sé sú að embætti skipulagsstjóra framkvæmi matið. Fyrir þessu liggja augljós rök: Gera má ráð fyrir að framkvæmda- aðilar búi ekki yfir þeirri víðtæku þekkingu sem mat á umhverfis- áhrifum krefst. Ef matið er fram- kvæmt af opinberum aðila þar sem safnast saman reynsla og sérþekk- ing má gera ráð fyrir að matið verði óvilhallt." ♦ ♦ ♦ Stórtjón í inn- broti í tónlist- arskóla MIKIÐ tjón var unnið í innbroti í Tónlistarskóla Mosfellsbæjar á Brú- arlandi nýlega. Stolið var fjórum trommum, snerli, 2 tomtom trommum og páku og 12 pörum af sleglum. Auk þess hurfu í innbrotinu geislaspilari, plötuspilari, magnari, tveir hátalarar, segulbandstæki, og útvarpsmagnari, allt Sony, símsvari með símsvara, reiknivél og lykla- borð og mús fyrir Machintosh-tölvu. ♦ ♦ ♦ Kosið í húsfrið- unarnefnd BORGARRÁÐ hefur samþykkt að kosið verði í sérstaka húsfriðunar- nefnd Reykjavíkurborgar í fyrsta sinn. Gert er ráð fýrir að nefndin verði skipuð tveimur fulltrúum tilnefndum af skipulagsnefnd, einum tilnefndum af byggingarnefnd, einum tilnefnd- um af umhverfismálaráði og einum tilnefndum af menningarmálanefnd. HAUSTFERÐ UM SUÐURLAND LANDMANNAIAUGAR, LAKAGÍGAR, SKAFIAFELL, JÖKULSÁRLÓN & KIRKJUBÆJARKLAUSTUR FJÖGURRA DAGA HÓTELFERÐ 15. - 18. SEPTEMBER Ferðaskrifstofa íslands efnir til haustferðar um Suður- og Suðausturland dagana 15. -18. september 1994. Gist verður á Hótel Eddu Kirkjubæjarklaustri þar sem allur aðbúnaður er fyrsta flokks. Ný og glæsileg herbergi hótelsins eru öll með sér snyrtingu, síma og útvarpi. Fimmtudagur 15. septemben Brottförfrá Ferðaskrifstofu tsiands kl. 9:00. Ekin verður Fjallabaksteið og komið við í Landmannalaugum og Eldgjá á leið austur á Kirkjubæjarklaustur. Föstudagur 16. septemben Farið verður inn að Laka og Lakagígar skoðaðir. Á leiðinni til baka verða m.a. skoðuð hin sérkennilegu Fjaðrárgljúfur á Stðu. Laugardagur 17. september: Ekið { þjóðgarðinn í Skaftafelli og þaðan að Jökulsárlótii á Breiðatnerkursandi þar sem farið verður í bátsferð. Sunnudagur 18. septemben Frá Kirkjubæjarklaustri er ekið suður utn Landbrot og Meðalland og síðan áfram sem leið liggur til Reykjavíkur mcð viðkomu í byggðasafninu á Skógum. Verð 24.900 krónur á mann. * Innifalið: Gisting í tveggja manna herbergi með baði í 3 nætur • 3 morgunverðir • 3 nestispakkar • 3 kvöldverðir • sigling á Jökulsárlóni • aögangur að byggðasafninu á Skógum • allur akstur og leiðsögn. Við tökum á móti pöntunum og veitum nánari upplýsingar. FERÐASKRIFSTOBV ÍSLANDS * Aukagjald fyrir gistingu í eins mantts hcrbergi 2. 400 krónur. Skógarlilíð 18 • 101 Reykjavík • Sími 91-62 33 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.