Morgunblaðið - 11.09.1994, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.09.1994, Qupperneq 1
Skðgrækt og siðfræði SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994 SUNWUPAGUR BLAÐ EKKI skal gróta Björn bónda heldur safna liði og hefna,“ er haft eftir Ólöfu ríku ó Skarði ó Skarðsströnd er Englendingar höfðu vegið mann hennar, Björn hirðstjóra Þorleifsson. Ég stend og horfi yfir Breiðafjörðinn sem blikar við augum í sterkri hódegissólinni. Ég hugsa um hve óvenjulegt þoð er að þrótt fyrir að liðnar séu röskar fimm aldir síðan Ólöf ríkti hér ó Skarði þó skuli niðjar hennar enn sitja þetta gamla höfuðból. Ólöf var síður en svo fyrst sinna ættmenna til þess að sitja Skarð, það höfðu þeir gert fró landnómstíð eða a.m.k. fró því kringum 1100. Einn þeirra, Oddur Snorrason, lét skrifa Skarðsbók um 1360, fyrir kirkjuna ó Skarði. Eftir dago Ólofor hafa setið morgir höíðingjar og ríkismenn ó Skarði. Einn þeirra var Bjarni sýslumaður Péturs- son, hann var ríkur mjög og þótti hofmóðugur, sagt var að þegar hann ótti skipti við fótæklinga hafi hann gjarnan rennt steinhring sínum eftir nefi þeirra svo jafnvel dreyrði úr og sagt um leið: „Nú set ég ó þig minn stein minn fugl.“ Magnús Ketilsson sýslumað- ur var heldur ekki smór í sniðum. Hann var einn af brautryðjendum þessa londs í ræktunarmólum auk þess að vera stórríkur og umsvifamikill valdsmaður. Til skipta hans ú eignum Eggerts ríka ó Skarði, tengdaföður hans, er talið að rekja megi þó miklu óvild sem var ó milli sonar hans Skúla Magnúsen, sem tók við Skarði, og séra Eggerts Jónssonar ó Ballaró, en þeir voru systkinosynir. Óvild þessi gekk svo í arf til sona þessara heiðursmanna, þeirra Krist- jóns sýslumonns og kammerróðs og séra Friðriks Eggerz og margt er fró sagt í ævisögu hins síðar- nefnda: Ur fylgsnum fyrri alda. Systurnar Boga Krist- ín og Ingibjörg Kristinsdætur eru afkomendur þeirra beggja, móðir þeirra Elinborg vor dótturdóttir Kristjóns kammerróðs. Skaró á Skaréströnd er eitt f rægasta höfuó- ból íslands. Þar hefur sama ættin setió allt f rá landnámstió. Guó- rún Guólaugsdóttir heimsótti Ingibjörgu Kristinsdóttir aó Skarói. Ingibjörg er þekkt ffyrir f jörlegan harmonikkuleik og tæpitungulausa ffrá sögn Ljósmynd/Lárus Jóhannsson SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.