Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 4
4 B SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 19,94 MORGUNBLAÐIÐ eftir Ólaf Helga Kjartansson LÖG unga fólksins voru eini tónlistarþátturinn í útvarpinu. Utvarpið var aðeins eitt nema fyrir þá sem gátu náð „kanan- um“ og bjuggu á suðvestur- horninu. Ef Haukur Morthens, Erla Þorsteins og KK voru í uppáhaldi eða klassísk tónlist dugði útvarpið. Úti í sveit voru lög unga fólksins vikuleg hátíð. Þar mátti heyra Shadows, Cliff Richards, Elvis Presley og Bítl- ana þegar þeir slógu í gegn og tónlistin fór að öðlast nýjan hljóm og nýtt líf. Þegar bítla- æðið rann á alla meira og minna breyttist útvarpið, heim- urinn breyttist. Ekkert var stórfenglegra en þessir ungu drengir með ennistoppinn í kragalausu jakkafötunum (þau voru reyndar svolítið hallæris- leg). Skórnir voru hins vegar æði, támjóir með háum hælum. En svo gerðist það 1964 að Rolling Stones gerðu vart við sig í útvarpinu. Bítlarnir fölnuðu, enda Stones, eða Rollingarnir í daglegu tali, hrein uppspretta krafts orku eitthvað ferskt, þótt þeir semdu ekki lögin sín sjálfír eins og Bítlarnir. Svo undar- lega sem það kann að hljóma rekur mig ekki minni til að hafa ekki heyrt fyrsta smá- skífulagið þeirra (7. júní 1963) fyrr en 1969. En lag þeirra Johns Lennons og Pauls McCartneys „I wanna be your man“ var alltaf miklu betra með Rolling Stones en Bítlunum. Reyndar eru ýmsir ágætir vinir mínir ekki sam- mála þessari túlkun. En er ekki hveijum manni nóg að hafa fundið sannleikann sjálfur? Sagan segir að félagarnir Jagger og Richards hafi ver- ið í vandræðum með að fínna gott lag á aðra smáskífu hljómsveitarinnar. Fram- kvæmdastjóri þeirra til nokk- urra ára, Andrew Loog Old- ham, hafði um nokkurt skeið unnið fyrir Brian Epstein, sem hafði samsvarandi hlut- verki að gegna hjá Bítlunum. Oldham hafði haft það hlut- verk að vera fjölmiðlatengill Bítianna í upphafi og getið sér gott orð fyrir að ná at- Í þá gömlu góóu daga i upphafi frœgóarferils- ins. hygli blaða- og útvarps- manna. Hann þekkti Bítlana og þegar hann hitti þá á götu nefndi hann lagaskortinn. Paul og John töldu lítið mál að bjarga þessu og fylgdu honum í upptökuverið. Þar fylgdust Rollingarnir með því hvemig hugmynd þessara tveggja lagahöfunda, sem enn eru af mörgum taldir með þeim merkustu, urðu að lagi eftir því sem leið á vinnsluna. Þar mun þeirra eigin áhugi hafa kviknað. Árangurinn var afbragð og 30 árum seinna kitlar hann enn taugarnar sem stjórna hreyfingum fótanna og gleður sálina. ♦ Aþessum árum vora plötu- spilarar ekki til á hveiju heimili, hvað þá tveir eða þrír eins og raunin er nú með geisiaspilarana. Til var plötu- spilari á heimilinu og nokkrar, reyndar ótrúlega margar plöt- ur að sjálfsögðu 78 snúninga, hnullungar, sem brotnuðu ef maður missti þá í gólfið. Elzti bróðirinn á heimilinu, orðinn 16 ára og farinn að vinna á sumrin, keypti plötur. Þær voru svo sannarlega fyrir- brigði nýja tímans, léttar og meðfæriiegar, litlar og örlítið sveigjanlegar. En hann keypti bara stórar plötur með Bítlun- um, „Hard days night“, „Help“ og því um líkt. Stórar plötur hétu þá tólf laga plötur í útvarpinu, sem var glugginn eða öllu heldur eyrað að um- heiminum. Að vísu slæddist annað með, en þá litlar. plötur ýmist tveggja eða fjögurra laga, Dave Clark Five, Hollies, Se- archers, Kinks, sem reyndar voru heldur í áttina að Rolling Stones, og loks þegar „Sat- isfaction" kom út 1965 barst hún á heimilið. Foreldrarnir gerðu sér skyndilega ágæta grein fyrir því að tónlist Bítl- anna var hreint ekki svo slæm, Michelle og Yesterday voru ekki lengur talin bítlagaul heldur tónlist. Allt vegna þess Ljósmynd Mbl./Ólafur Helgi Kjartansson Þcssa mynd fók höfundur á fónleikum Rolling Stones i Newcastle á Eng- landi, 18. iúli 1990. að þessir ógeðfelldu, síð- hærðu, illa greiddu óróaseggir höfðu náð inn á heimilið með sína snjöllu gagnrýni á gervi- mennsku auglýsinga og fjölm- iðlunar. Reyndar var sú góða staðreynd falin unz mála- kunnáttan varð betri. En tólf laga plöturnar voru áfram annað, Rubber Soul, með hin- um og Sounds like Searchers, en ekkert með uppáhalds- hljómsveitinni. Plötueigandanum líkaði ekki að yngri bróðirinn tók sér ævinlega bessaleyfi til að spila „Satisfaction" og bak- hliðarlagið „Spider and the Fly“ svo að með tímanum dofnuðu hljómamir verulega og rispum fór fjölgandi. En áhuginn á blús og rytma tón- list var vaknaður og hefur ekki sofnað síðan. En Útvarpið hélt okkur nokkuð við efnið. „Not fade away“, eftir Buddy Holly, heyrðist nokkrum sinnum og „It’s all over now“ sló svo í gegn að það var stundum spil- að á dansskemmtunum í barnaskólanum á Ljósafossi. Innst inni fann maður þessa óskilgreindu tilfinningu að í -I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.