Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994,
MORGUNBLAÐIÐ
Söngleikurinn Grease — það er málið er
frumsýndur á Hótel íslandi um þessa helgi.
Élfa Gísladóttir leikkona leikstýrir verkinu
og sér um leikgerð, en hún er komin hingað
til lands eftir að hafa verið búsett erlendis
um hríð. Pétur H. Blöndal ræddi við hana
um frumsýninguna og líf hennar úti í heimi.
SÖNGLEIKINN Grease -
það er málið þekkja allir.
John Travolta og Oiivia
Newton-John slógu í gegn
í hlutverkum Danny og Sandy,
kvikmyndin halaði inn tvö hundruð
milljónir dala og lögin „Summer
Nights" og „You’re The One I
Want“ náðu í efsta sæti vinsælda-
listanna. Færri þekkja hins vegar
hvemig ævintýrið hófst. Jim
Jacobs og Warren Casey voru at-
vinnulausir leikarar árið 1970 og
gældu við þá hugmynd að setja
upp söngleik fyrir tilraunaleikhús
þar í borg. Þeir höfðu grafið upp
nokkrar 45 snúninga hljómplötur
frá sjötta áratugnum, meðal ann-
ars Little Richard, Dion and the
Belmonds og The Flamingos. Þeim
fannst þessi tónlist dásamlega
hallærisleg miðað við tónlist Jimi
Hendrix, Led Zeppelin, Rolling
Stones og Bítlanna. En það var
eitthvað við tónlistina sem heillaði
þá og þeir ákváðu að gera söng-
leik sem tengdist þessum tíma og
átti að gerast árið 1959. Söngleik-
urinn hlaut nafnið Grease vegna
Broadway var söguþræðinum
breytt lítillega. Áður hafði hann
ijallað um átök tveggja táninga-
hópa, en að kröfu framleiðenda
var lögð meiri áhersla á rokkið.
Þungamiðjunni var breytt og hún
snerist nú mest um Sandy og
Danny. Einnig voru tíu ný lög
samin fyrir sýninguna. Skemmst
er frá því að segja að söngleikur-
inn sló ærlega í gegn á fjölum
Broadway, vann til fjölda verð-
launa og er sýndur enn þann dag
í dag við feiknalegar vinsældir.
Söngleikurinn hefur verið stökk-
pallur fyrir ýmsa unga leikara sem
siðar náðu heimsfrægð eins og
Richard Gere og John Travolta.
Einnig hafa leikarar eins og Elaine
Page og Tracey Ullmann slegið í
gegn í söngleiknum og árið 1979
setti Grease aðsóknarmet á Broad-
way.
Núna hefur söngleikurinn loks-
ins verið færður upp á íslandi.
Elfa Gísladóttir leikstýrir söng-
leiknum og sér um leikgerð sýn-
ingarinnar. Elfa er íslendingum
að góðu kunn. Hún hefur leikið í
komin aftur. íslendingar eru öðru-
vísi en útlendingar og það er gam-
an að hitta aftur vini sína og
vandamenn. Síðan má ekki gleyma
því hve maturinn er góður og loft-
ið stórkostlegt." Það er auðfundið
á samræðunum við Elfu að þar
er jákvæð og lífsglöð manneskja
á ferð.
- Mun Hárið draga úr áhuga á
Grease?
„Hárið er mjög skemmtileg sýn-
ing. Það fjallar þó um allt annan
tíma svo ef eitthvað er kemur það
til með að ýta undir vinsældir
Grease vegna þess að fólk finnur
hvað það skemmtir sér vel á söng-
leikjum. Fyrir utan að vera söng-
leikir eiga þeir ekkert sameigin-
legt. Grease fjallar um rokk og ról
tímabilið árið 1959 og olli æði um
allan heim eftir að það var frum-
sýnt. í London, New York og
Kaupmannahöfn var hreint og
klárt Grease-æði. Hárið er um
hippatímabilið og var annarsskon-
ar æði.“
- Verður sýningin kraftmikil?
„Á sýningunni verður stuð allt
frá upphafi til enda. Mjög er vand-
að til allra þátta sýningarinnar.
Við erum úrvalslið með okkur.
Maggi Kjartans er með tónlistina
og stjórnar toppmönnum í hljóm-
sveitinni, Esther Helga sér um
sönginn og svo erum við með
Eddu Björgvinsdóttur og Hemma
Gunn sem gesti sýningarinnar.
ELFA Gísladóttir.
Morgunblaðið/Golli
þess að þá var allt löðrandi í hárol-
íu, smurolíu og fitugum skyndi-
réttum í Ameríku.
Viti menn — söngleikurinn gekk
fyrir fullu húsi hveija sýninguna
á fætur annarri og brátt kviknaði
áhugi fyrir honum á Broadway.
Þegar Grease var sett upp á
fjölmörgum leikritum, kvikmynd-
um og sjónvarpsþáttum á íslandi
og skrifaði barnabækur um Sollu
Bollu og Támínu. Hún fluttist út
fyrir landsteinana fyrir þremur
árum vegna þess að hún vildi
breyta til. Elfa ólst upp í Banda-
ríkjunum og ætlaði sér reyndar
aldrei að setjast að á íslandi, en
eftir að hafa klárað nám í leiklist
hér á landi varð aldrei af því að
hún sneri utan aftur. Elfa segist
vera himinlifandi með að vera
komin til íslands. „Ég hef hreint
ekki haft tíma til að sakna ís-
lands, en það er frábært að vera
lAorgu"1
iblaðið/lón
fra
íyrstu *fi«gunin
i búningurn.
Gunnar Sverrison og Anna Björk
verða í dansatriðum, en þau eru
Islandsmeistarar í dansi, og Jó-
hannes Bachmann er dansþjálfari.
í aðalhlutverkum verða Guðjón
Bergmann sem Danny og Jóna
Sigríður Grétarsdóttir sem Sandy.
Annars koma krakkar úr Söng-
smiðjunni til með að bera sýning-
una uppi.
- Við hvað er stuðst í uppfærsl-
unni?
„Stuðst er við handrit upphaf-
lega leikhúsverksins. Ég sá sýn-
inguna í New York, sem var frá-
bær, og stel dálitlu af hugmyndum
þaðan. Ég tek hins vegar voðalega
lítið af hugmyndum úr kvikmynd-
inni, þótt krakkarnir geri það dálít-
ið í stælingum. Verkið er kraft-
meira eins og það er gert fyrir
leikhús og þótt bíómyndin sé al-
gjört æði held ég að fólk verði
ánægt með mismuninn."
- Hvemig kom hugmyndin til?
„Ester Helgadóttir á hugmynd-
ina að uppsetningunni. Hún fór til
London að sjá sýninguna þar og
var rosalega hrifin. Þá dreif hún
sig í að fá leyfi og setti allt af
stað hér á landi. Hún talaði fljót-
lega við mig og ég sló til. Söng-
og dansæfingar hafa staðið yfir í
allt sumar og ég hef æft stíft með
hópnum síðan um miðjan júlí.“
- Svo við vendum kvæði okkar
í kross, hvað hefurðu hafst að
erlendis?
„Það er ýmislegt sem ég hef
tekið mér fyrir hendur. Ég lék
nýlega í leikinni heimildarmynd
fyrir sjónvarpsstöð í Kanada. Hún
fjallar um hvað gerist þegar stóri
jarðskjálftinn kemur til Vancouver.
í raun og veru er aðeins spurning
um hvenær en ekki hvort hann
kemur. Það hafa verið hræringar
nú þegar og það má því segja að
íbúar Vancouver sitji á tíma-
sprengju og heyri tifið í klukk-
unni. Myndin fjallar um tvær fjöl-
skyldur, ein er viðbúin skjálftanum
en önnur ekki. Ég lék móður í
þeirri fjölskyldu sem var viðbúin
skjálftanum og lifði af hörmung-
arnar. Með myndinni er verið að
vara fólk við og hvetja það til að
vera viðbúið hættunni.“
- Er erfitt að koma sér að úti?
„Þótt samkeppnin sé hörð hefur
mér gengið ágætlega síðan ég fékk
atvinnuleyfi. Ég hef umboðsmann
á mínum snærum og það hefur
hjálpað mér mikið. Annars lék ég
síðasta vetur í tveggja manna leik-
riti í West Vancouver Theater. Það
gekk mjög vel og verður tekið upp
aftur í haust. Það nefnist Sea-
Marks og er eftir Gardener
MacKay. SeaMarks er ástarsaga
um mann og konu sem koma úr
ólíku umhverfi, sjávarþorpi og
borg, og verða ástfangin í gegnum
bréfaskriftir. Hann kemur síðan í
líf hennar og heim. Ég leik á móti
mjög færum leikara að nafni Ma-
rek Lzuma. í hvert skipti sem kem-
ur að mjög hjartnæmu atriði í sýn-
ingunni fær hann áhorfendur til
að gráta. Það er kannski athyglis-
vert við uppstillingu leikritsins að
þar er það ég sem kem úr stórborg
en hann kemur úr sjávarþorpi."