Morgunblaðið - 11.09.1994, Side 15

Morgunblaðið - 11.09.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR11.SEPTEMBER1994B 15 LANDIÐ Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir ÓLAFUR Signrðsson verk- sljóri í prjónasal Dyngju. Egilsstaðir Prjónaiðn- aður end- urvakinn Egilsstöðum - Stofnað hefur verið fyrirtækið Dyngja Egilsstöðum hf. til að annast starfsemi pijónastofu. Fyrirtækið var stofnað í lok júlí sl. og hefur þegar tekið til starfa. Pijónaiðnaður var starfræktur á Egilsstöðum nánast samfellt frá 1968 til 1992 og er nýja fyrirtækið byggt á grunni Dyngju hf.. Þessi iðnaður var öflugur á Egils- stöðum þegar best var og unnu um 40 manns hjá Dyngju hf. Nýja fyrir- tækið er í eigu Egilsstaðabæjar að hálfu á móti ýmsum einstaklingum og fyrirtækjum. Stjórnarformaður og aðalhvatamaður að stofnun fyr- irtækisins er Sigurður Guðjónsson frá Vík í Mýrdal. Ullariðnaður endurreistur Áður framleiddu pijónastofur vöru fyrir stóra söluaðila, Álafoss, Hildu, Iðnaðardeild Sambandsins og fleiri, sem sáu um markaðssetningu og sölu. En eftir að þetta fyrirkomu- lag féll er þessi iðnaður að rísa upp á ný með öðru sniði. Minni einingar verða til og pijónastofurnar verða sjálfstæðar, hver fyrir sig. Stór fyrir- tæki eru ekki til í dag, hvorki við framleiðslu eða sölu. Sigurður Guð- jónsson sagði að pijónastofurnar væru að skapa sér sérstöðu með vöruþróun, og samkeppni á milli þeirra er meiri í gæðum en verði. Hver pijónastofa selur sína fram- leiðslu beint til smásala, hvort heldur innanlands eða utanlands. Þekking og reynsla til staðar Með stofnun Dyngju Egilsstöðum hf. er verið nýta vélar sem til voru, reynslu starfsfólks á staðnum og þekkingu við sölu þessara afurða. Sigurður Guðjónsson hefur starf- rækt ferðamannaverslunina Kötlu í Vík um árabil og mun hluti fram- leiðslunnar verða seldur þar. Enn- fremur verður unnið að vöruþróun og markaðsmálum fyrir næsta ár. Fyrirtækið hefur ráðið Grétu Ösp Jóhannesdóttur fatahönnuð til starfa og er stefnan sett á að skapa fyrir- tækinu sérstöðu á þessum markaði með vandaða vöru. Framleiðslan verði seld sem víðast hér um land og útflutningur er ofarlega á blaði. Dyngja mun framleiða ullarvörur úr íslensku ullarbandi frá Istex. Starfs- menn fyrirtækisins verða 3 fyrst í stað. DAEWOO sem borgar sig að líta á € s •2 •« ■s DAEWOO * TÖLVA D2700U • Microsoft Works fylgir • Í486DX/2-66 MHz • 210 MB diskur • 14" lággeisla litaskjár • 1 MB myndminni VESA Local Bus skjástýring • 4 MB vinnsluminni, stækkanlegt í 64 MB 128 skyndiminni • Overdrive sökkull • MS-DOS, Windows og mús Kr. 159.900 staðgreitt DAEWOO TÖLVA D2600R Microsoft Works fylgir • TÍ486DLC-40 MHz • 210 MB diskur • 14" lággeisla litaskjár • 1 MB myndminni • VESA Local Bus skjástýring • 4 MB vinnsluminni • MS-D0S, Windows og mús • Kr. 113.000 staðgreitt Komdu eða hringdu • við kynnum hana fyrir þér... . DAEWOO - NEMA hvað? Leibandi í tölvulausnum EINAR j. SKÚLASON HF Grensásvegi 10, Sími 63 3000 I T S A L A N H E F S T A M II R II II N ]orð /yrir uvo liiuuarki iimliiiini

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.