Morgunblaðið - 11.09.1994, Side 17

Morgunblaðið - 11.09.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER1994 B 17 Þekking á fram- vindu gróðurs er forsenda árangnrs HÖRÐUR rakti í erindi sínu framvindu gróðurs á ís- landi við mismunandi skilyrði svo sem jarðvegsgerð, framboð fræja, loftslag og veðurfar. Hann gerði meðal ann- ars grein fyrir framvindu gróð- urs í hrauni á íslandi og áhrifum áburðar á framvindu. Benti hann á Surtsey sem dæmi en þar hef- ur varp og áburðargjöf frá fugl- um hefur gripið inn í framvind- una á stóru svæði. Þá gerði hann og grein fyrir framvindunni í beittum-löndum á láglendi við friðun og í beittum löndum á hálendi. Ahrif mannsins Rakti hann áhrif mannsins á framvinduna og hvað gæti gerst ef maðurinn gripi til aðgerða og stýrði henni á ýmsa vegu. Sagði hann að því miður skorti veru- lega á þekkingu á náttúrlegri framvindu gróðurs á íslandi, þó væri þekkingin forsenda þess að hægt verði að ná góðum og varanlegum árangri í upp- græðslu landsins, án þess að kosta óhóflega miklu til. „Við sjáum hvarvetna í kringum okk- ur að náttúrleg framvinda með víði og birki er mjög öflug og ódýr uppgræðsluaðferð þar sem skilyrði eru fyrir hendi,“ sagði hann. „Forsendan fyrir því að hún geti gengið er að draga verulega úr sauðfjárbeit á við- komandi svæði og að uppblástur sé ekki í gangi.“ Náttúrleg framvinda árangursrík Að hans mati væri það mjög árangursrík aðferð að nýta nátt- úrlega famvindu og vinna með henni, alls staðar þar sem hægt er að koma henni við. Varasam- ara væri að beita handafli til að knýja fram aðra framvindu sem ekki er sjálfbær og þarfnast sí- felldra aðgerða af hálfu manns- ins til að halda henni við. „Við getum að vísu gert þetta með góðum árangri þegar um er að ræða litla eða stóra bletti, sem við viljum rækta og erum reiðu- búin til að kosta miklu til,“ sagði Hörður. Ódýrasta leiðin til að hafa áhrif á framvindu væri án efa að auka framboð á fræi plantna sem síðan sjá um að sá sér sjálf- ar. Hægt væri að bæta inn er- lendum tegundum með góðum árangri eins og þegar er gert með lerki, ösp og furu. Það þyrfti hins vegar að fara varlega eink- um við val á plöntum til innflutn- ings. Með þeim þyrfti að hafa strangt eftirlit. Hættulegastar eru plöntur sem dreifa sér hratt, vaxa þétt og eyða öðrum gróðri, þar sem þær fara um. Nefndi hann sem dæmi spánarkerfil og skógarkerfil sem hefðu náð að dreifa úr sér og erfitt gæti verið að losna við. „Onnur tegund með svipaða eiginleika og kerfillinn, sem flutt hefur verið til lands- ins, er Alaskalúpínan," sagði hann. „Það er tegund sem við verðum að læra að umgangast með varúð. Svo ágæt sem hún er til að græða sanda og mela og bæta rýran jarðveg, þá er hún jafnframt mjög hættuleg íslenskum gróðurlendum, ef hún fær lausan tauminn. Þar sem hún sáir sér í gróðurlendi eyðir hún flestum þeim tegundum sem fyrir eru. Það er því ófyrirgefan- legt kæruleysi, þegar verið er að hvetja almenning til þess að dreifa lúpínu sem víðast um gróðurlendi íslands." Lúpína í rýranjarðveg Síðar sagði hann að allt öðru máli gegndi þegar lúpína væri notuð til að græða sanda og ör- foka land, eða til að bæta rýran jarðveg í tengslum við ræktun skóga. Lúpína væri mjög öflug landgræðsluplanta í höndum þeirra sem kynnu að notfæra sér eiginleika hennar. En gera yrði þá kröfu, að menn hefðu fulla stjórn á útbreiðslu hennar að notkun lokinni. Víða hefðu tak- mörkuð svæði að geyma óvenju mikla fjölbreytni plöntutegunda sem einungis fyndust á ákveðn- um svæðum. Þetta væru svæði sem bæði innlendir sem erlendir ferðamenn sækjast eftir að skoða. Þessi svæði yrðum við að veija fyrir lúpínunni, enda oftast vel gróin og landgræðsluaðgerðir óþarfar. „Svo eru önnur svæði á ís- landi, einkum á móbergs- og eld- gosasvæðum og þau eru miklu stærri, þar sem gróður er afar fábreyttur, fremur tegunda- snauður, og maður gengur sífellt fram á sömu tegundirnar aftur og aftur, tegundir sem eru al- gengar um allt land,“ sagði Hörður. „A þessum svæðum get- um við miklu fremur notað lúp- ínu til uppgræðslu, og þar er víða mikil þörf á uppgræðslu, eða ræktað barrskóga til viðarfram- leiðslu, án þess að eftirsjón sé í þeim gróðri sem fyrir er.“ Loka- orð hans voru: „Það er því nauð- synlegt að allar upplýsingar um þann gróður sem fyrir er séu teknar með til athugunar þegar skipuleggja á nýtingu landsins. Og til þess meðal annars að tryggja það höfum við fengið lög um umhverfismat.“ , Morgunblaðið/Kristín Gunnarsdóttir SKOGARREITUR í Holtsdal á Síðu vakti að vonum athygli en þar var fyrst gróðursett á árunum 1951 og 1952. Seðlabanki íslands eignaðist hluta jarðarinnar Holts árið 1990 og hefur verið tekið upp sam- starf um skógrækt þar við Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Samstarf er einnig við Skógræktarfélagið Mörk um gróðursetningu með starfsmönnum bankans á hverju vori. Skógræktar- félagið Mörk 50 ára ÞAÐ var Skógræktarfélagið Mörk í Skaftafellssýslu, sem að þessu sinni tók á móti fulltrúum á aðalfundi Skógræktarfélags íslands, sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri, en félagið er 50 ára á þessu ári. Auk venjulegra fundarstarfa var farið í skoðunarferðir um nágrennið og gestum sýndur árangur skógræktarmanna við misgóðar aðstæður. ÞRIR áhugamenn um skógrækt, þau Hildigunnur Dungal, Karl Eiríks- son og Rai'n Johnson, virða fyrir sér árangurinn í Holtsdal. Þau voru heiðruð sérstaklega af félaginu fyrir glæsilegan árangur og ötulan stuðning. Hildigunnur og Rafn hafa stundað skógrækt á jörð sinni Hemrumörk og Karl hefur tryggt Landgræðsluskógum árlegt fjárfram- lag frá viðskiptaaðilum sínum, framleiðendum Becks-bjórs í Þýskalandi. KOMIÐ var við hjá Birni Jónssyni, fyrrverandi skólastjóra Hagaskóla, og Guðrúnu Magnúsdóttur að Sólheimum í Landbroti. Þar eiga þau sumarhús og hafa gróðursett undanfarin ár með undraverðum árangri. Til að verja plönturnar hafa þau brugðið á það ráð að hlífa þeim fyrstu árin með plastdós- um. Skógræktarfélagið heiðraði Björn sérstaklega fyrir árangurinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.