Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Haustönn hefst 19. september Rokk, blús, klassik, metal, jazz o.fl Alhliða grunnnámskeið fyrir byrjendur Kassagítar (raðað í hópa eftir aldri og getu) Dægurlög (fyrir fólk á öllum aldri - spil og söngur) Tónfræðitímar Rafbassi (fyrir byrjendur) Nýtt og vandað kennsluefni Góð aðstaða Eingöngu réttindakennarar Möguleiki á einkatímum Allir nemendurfá 10% afslátt af hljóðfærum hjá Kennarar: Torfi Olafsson og Tryggvi Hubner Gunnar Þórðarson heldur fyrir- lesturfyrir nemendur skólans. Grensásvegi 5, sími 81-12-81 Skiptistöð SVR við hliðina! NÝR TÓNUSTARSKÚLI! Nýi músikskólinn leggur metnað sinn í öflugt undirbúningsnám í hjóðfæraleik og söng. Sérstök áhersla er lögð á -rythmíska tónlist." svo sem rokk, popp, jass og blús. • Einkatímar • Hóptímar (3-4 í hóp) « Samspil (hljómsveitir) • Tónfræði og hljómfræði- tímar fyrir alla nemendur Yfirkennarar: Ásgeir Óskarsson, Björn Thoroddsen, Gunnar Hrafnsson og Stefán S. Stefánsson. • Kennt er á rafgítar, gítar, rafbassa, trommur, saxófón og flautu. • Söngbraut: kennari er Ingveldur Ýr i Nemendur fá sérstakan afslátt í öllum verslunum Skífunnar og Hljóðfærahússins LAUGAVEGI 163 - sfmi 62 16 61 YAMAHA Skólinn hefst 19. sept. en skráning hefst 5. sept. í síma 81-12-81 kl. 19-21 alla virka daga LANDIÐ Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir FRÁ busavígslu við Mennta- skólann á Egilsstöðum. Busavígsla í Mennta- skólanum á Egils- stöðum Egilsstöðum - Nýir nemendur ME, 100 talsins, hafa þessa viku verið að ganga í gegnum ferli sem allir nýnemar menntaskóla kannast við. Það felst í megindráttum í því að læra að bera virðingu fýrir eldri nemendum. Aðferðir eldri nemenda til þess að öðlast þessa virðingu eru þó misjafnar milli ára. Að þessu sinni fengu allir busar snuð, voru látnir þjóna í matsal, sendir í þjálf- unarbúðir í herstöð eldri nemenda og að lokum seldir á uppboði sem þrælar þar til þeir verða formlega teknir inn og viðurkenndir á busa- balli sem haldið verður á Reyðar- fírði. Aðsókn aldrei verið meiri í ME Nemendur skólans eru um 250 talsins í dagskóla, 25 í framhalds- deild á Seyðisfirði og um 100 sem eru utan skóla og í öldungadeild. i heimavist eru 114 nemendur og hafa þeir aldrei verið fleiri. Mikil aðsókn var í skólann og komust ekki allir að sem vildu. Nemendur geta valið um 14 náms- brautir, fjórar tveggja ára brautir, og tíu fjögurra ára brautir, til stúd- entsprófs, auk annarra valáfanga, en á haustönn er boðið upp á áfanga sem unninn er í samvinnu við Rand- alín handverkshús. Þijú útibú frá öldungadeild ME verða í vetur á Eskifirði, Vopnafírði og Fáskrúðs- fírði. Nýr skólameistari Ólafur Arnbjömsson hefur tekið við stöðu skólameistara af Vilhjálmi Einarssyni sem er kominn á eftir- laun. Nokkrar breytingar eru á kennaraliði skólans en starfandi kennarar við skólann eru 19 og tveir stundakennarar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.