Morgunblaðið - 11.09.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR11.SEPTEMBER1994B 19
FRETTIR
Bættar vega-
samgöngnr á
Snæfellsnesi
Borg í Eyja- og Miklaholts-
hreppi - GÓÐIR vegir eru for-
senda þess að byggð haldist og
blómlegt atvinnulíf. Nú á þessu
ári hafa verið töluverðar vegabæt-
ur hér á Snæfellsnesi, enda um-
ferð hér um vegi mikil í sumar.
Hér er líka margt sem gleður augu
vegfarenda í náttúrufegurð þess
sem um Snæfellsnes aka. Nýlega
hafði fréttaritari samband við
Björn Jónsson, héraðsstjóra Vega-
gerðar ríkisins í Ólafsvík, og fékk
eftirfarandi upplýsingar:
Staðarsveit: Nýr vegur með
bundnu slitlagi frá Lágafelli að
Staðará. Breikkuð klæðning á vegi
frá Staðará að Urriðaá.
Kolbeinstaðarhreppur: Ný brú
sett á Kolbeinsstaðarlæk og mikil
hækkun þar á vegi.
Kerlingarskarð: Þar hefur vegur
verið mikið endurbættur. Malað
efni borið ofan í veginn, efnið sér-
lega gott og vegurinn þar í mjög
góðu standi. Þá var vegurinn
hækkaður frá Sæluhúsi að skíða-
lyftu, sá kafli var oft mjög snjó-
þungur. Vegurinn milli Efri- og
Neðri-Sneiðar að Grjóthól var mik-
ið hækkaður, sú framkvæmd er
sérlega snyrtilega unnin og góður
frágangur á því verki.
Ny brú á Hraunsfjörð
Hraunsfjörður: Mjósundabrú
tekin í umferð. Það var þörf endur-
bót, því vegurinn um gömlu brúna
yfir Hraunsfjörð, sem þótti góð
framkvæmd á sinni tíð, gat oft
verið hættulegur, en brúin var sú
fyrsta yfir fjörð á íslandi.
Helgafellssveit: Stendur til að
endurbæta veginn hjá Hólum.
Fróðárhreppur: Stendur til að
endurbæta veginn frá Fróðá að
Brimilsvöllum.
Nú er verið að setja biðskyldu-
merki á alla afleggjara til varnað-
ar og áminningar fyrir vegfarend-
ur. I Breiðubík er mikil áhersla
lögð á að breyta vegi vegna snjó-
þyngsla hjá Stapafelli og að vegur-
inn verði færður um Klifhraun.
- kjarni málsins!
SAS til Osaka
SAS kynnir nýja flugleiö til Osaka í Japan.
Þangað er nú beint flug frá Kaupmannahöfn
þrisvar í viku en auk þess flýgur SAS daglega
til höfuðborgar Japans, Tokyo.
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða
ferðaskrifstofuna þína.
AUÐVELD OG ÞÆGILEG FLUGLEIÐ
Laugavegi 172 Sími 622211
04 U>VSV<-
iTvSl *VVVA
V\W'*AV
yyí,
- - ‘ V< VA
fSiijasssst
mmmm
i
95% fullorðinna þjáist af tannholdssjúkdómum, sem er algengasta orsök tannmissis hjá fullorðnum
SAMÞYKKT