Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER1994 B 21 ATVIN N UA UGL YSINGAR Sjúkraþjálfari óskast á Endurhæfingarstöð Þroskahjálpar á Suður- nesjum frá og með 1. desember. Fullt starf. Upplýsingar gefur Gylfi Pálsson í síma 92-13330 á daginn en 92-15036 á kvöldin. Efnafræðingur Efnafræðingur B.S. óskast til starfa á rann- sóknarstofu í Reykjavík. Starfið felst í gæða- eftirliti, þjónusturannsóknum, skráningu og allri almennri rannsóknarstofuvinnu. Umsóknum skilað á afgreiðslu Mbl., merkt- um: „E - 3286“. Vélstjórar Vélstjóra með full réttindi vantar á skuttog- ara frá ísafirði. Þarf að geta leyst af sem yfirvélstjóri. Búsetu á ísafirði eða í nágranna- byggðum krafist. Skriflegar umsóknir sendist til Miðfells hf., 410 Hnífsdal. Hjúkrunarfræðingur Óskum að ráða hjúkrunarfræðing sem fyrst að hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kumbara- vogi, Stokkseyri. íbúð fyrir hendi á staðnum á góðum kjörum. Frekari upplýsingar í síma 98-31213 milli kl. 8 og 16, utan þess tíma 98-31310. Söngfólk óskast Háteigskirkja óskar eftir ungu, hressu söng- fólki. Spennandi verkefni framundan (jól ’94). Vinsamlega hafið samband við kórstjórann Pavel Manasek í síma 19896 eða 12407. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Hljóðdeild Starfsmaður óskast í hljóðdeild Þjóðleikhúss- ins. Rafeindavirkjamenntun áskilin. Umsóknir sendist framkvæmdastjóra fyrir 20. september nk. Þjóðleikhúsið, Lindargötu 7. SÓLVANGUR SJÚKRAHÚS HAFNARFIRÐI Sjúkraliðar Sjúkrahúsið Sólvangur í Hafnarfirði óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa. Nánari upplýsingar veitir Erla M. Helgadóttir hjúkrunarframkvæmastjóri í síma 50281. Qf Leikskólar Reykjavíkurborgar Stuðningsstarf Leikskólakennari, þroskaþjálfi eða starfs- maður með aðra uppeldismenntun óskast strax í stuðningsstarf vegna barna með sér- þarfir í leikskólann Brekkuborg v/Hlíðarhús. Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í sfma 679380. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Gþ Skeljungur Bensínafgreiðsla - útköll Skeljungur hf. óskar eftir að hafa á skrá aðila, sem geta sinnt afleysingastörfum á bensínstöðvum félagsins (einstakar vaktir) í forföllum fastra starfsmanna. Vinsamlegast hafið samband við Katrínu í síma 603800 í dag og næstu daga frá kl. 13-16. Skipalyftan hf. Vestmannaeyjum Okkur vantar 10 járniðnaðarmenn til starfa frá 20. september til 20. desember. Aðeins vanir menn koma til greina. Upplýsingar gefur Ólafur í síma 98-11493. Laus störf Eftirtalin störf eru laus til umsóknar hjá ýmsum fyrirtækjum í Reykjavík: ★ Útgáfufyrirtæki (330). Starf í áskriftar- deild. Góð tölvu- og tungumálakunnátta er nauðsynleg. ★ Ferðaþjónusta (332). Aðalbókari. Sjálfstætt og krefjandi starf. Góð viðskiptamenntun skilyrði. Starfsreynsla nauðsynleg. ★ Þjónustufyrirtæki (333). Sölumaður. Sjálfstætt sölustarf sem krefst góðrar starfsreynslu, tölvukunnáttu og getu til að starfa sjálfstætt. ★ Heildsala (329). Gjaldkera- og bókhalds- starf. Hlutastarf. Góð bókhalds- og tölvu- kunnátta nauðsynleg. ★ Lögmannsstofa (316). Fjölbreytt skrif- stofustarf fyrir einstakling sem hefur áhuga á mannlegum samskiptum, góða skrifstofukunnáttu og getu til að starfa sjálfstætt. ★ Þjónustufyrirtæki (294). Sala auglýsinga í gegnum síma og með beinum heimsókn- um til viðskiptavina. Möguleiki á hluta- starfi. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar númeri viðkomandi starfs fyrir 16. september nk. LANDSPITALINN .../' þágu mannúðar og vísinda... Barnaspítali Hringsins Fjórar aðstoðarlæknisstöður eru lausar á Barnaspítala Hringsins, tvær nú strax eða frá 1. október, ein frá 1. desember og sú fjórða frá áramótum. Til greina kemur að ráða í einhverjar af þess- um stöðum lækna sem hafa nýlega lokið eða eru að Ijúka sérnámi í barnalækningum og kæmi til mála í þeim tilvikum ráðning til lengri tíma en venja gerist með aðstoðar- lækna. Hlutastarf er ekki útilokað þegar um slíka umsækjendur er að ræða en gera yrði sérsamninga þar sem tekið væri nánar fram um launakjör og starfsskyldur. Verksvið þeirra er að sinna venjulegum störfum eldri aðstoðarlækna með ábyrgð, kennsluskyldu og rannsóknarvinnu í hlutfalli við áunna starfsreynslu og þjálfun. Á Barnaspítala Hringsins eru sérfræðingar og aðstoðarlæknar á bundnum vöktum. Umsóknum skal skila á eyðublöðum lækna og senda forstöðulækni, Víkingi H. Arnórs- syni, prófessor, sem veitir nánari upplýs- ingar. Sími 601050/1051. Ljósrit af prófskír- teini og upplýsingar um starfsferil ásamt staðfestingu viðkomandi yfirmanna fylgi. Yfirlæknir Staða yfirlæknis á gigtarskor lyflækninga- deildar Landspítalans er laus til umsóknar. Umsækjandi skal vera sérfræðingur í gigt- lækningum. Umsækjandi láti fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um fyrri störf og stjórn- unarreynslu, kennslu- og rannsóknarstörf. Starfinu fylgir kennsluskylda læknanema, unglækna og annarra heilbrigðisstétta. Umsóknarfrestur er til 10. október nk. en staða er veitt frá 1. janúar 1995 eða síðar. Umsóknir sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík. Nánari upp- lýsingar gefur Þórður Harðarson prófessor í síma 601266. Kvennadeild Staða aðstoðarlæknis á kvennadeild Land- spftalans er laus til umsóknar. Staðan er laus frá 1. október næstkomandi og veitist til hálfs árs með möguleika um framleng- ingu. Nánari upplýsingar veitir Jón Þ. Haíl- grímsson yfirlæknir í síma 601183. Endurhæfingar- og hæfingardeild Landspítalans í Kópavogi Þroskaþjálfar - dagvinna Á vinnustofu endurhæfingardeildar Land- spítalans í Kópavogi vantar nú í stöður þroskaþjálfa. Um er að ræða eitt og hálft stöðugildi, annars vegar stöðu deildarstjóra og hins vegar deildarþroskaþjálfa. Starfið er fólgið í forstöðu dagdeildar þar sem 10 ein- staklingar með miklar fatlanir fá þjónustu. Starfsemin er nú að færast í nýuppgert hús- næði þar sem þroskaþjálfun, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, sundlaug og grunnskóli eru starf- rækt fyrir. Nánari upplýsingar gefa Margrét Kristín Guðnadóttir og Hrönn Vigfúsdóttir þroska- þjálfar á vinnustofum og Hulda Harðardóttir yfirþroskaþjálfi endurhæfingardeildar, í síma 602700. Hjúkrunarsvið Göngudeild krabbameinslækninga - dagvinna Staða deildarstjóra á göngudeild krabba- meinslækningadeilda er laus til umsóknar. Staðan veitist nú þegar eða eftir samkomu- lagi. Á deildinni er einstaklingum með krabbamein og illkynja blóðsjúkdóma veitt læknis- og hjúkrunarmeðferð. Nánari upplýsingar veitir Bergdís Kristjáns- dóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 601303/601300. Býtibúr og ræsting Starfsmenn óskast í býtibúr og ræstingu á Landspítala. Upplýsingar veitir Kristín Þorsteinsdóttir ræstingarstjóri í síma 601530.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.