Morgunblaðið - 11.09.1994, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ
22 B SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER1994
ATVIN N M3A UGL YSINGA R
Fyrirtæki ífram-
leiðslu og heildsala
Leitum að starfsmanni til afgreiðslu-, skrif-
stofu- og sölustarfa. Heilsdagsdagsstarf.
Einnig óskum við eftir fólki til afgreiðslu og
símavörslu hálfan daginn.
Gottviðhorftil vinnu og stundvísi nauðsynlegt.
Áhugasamt fólk sendi umsókn til afgreiðslu
Mbl. fyrir 14. sept. merkt:
„Gott viðhorf - 18002“
€»€»Listahálíð í Reykjavík#
auglýsir eftir
Framkvæmdastjóra
frá 1. október 1994.
Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf þurfa að hafa borist
skrifstofu Listahátíðar, Pósthólf 88, 121
Reykjavík, fyrir 25. september 1994.
Stjórn Listahátíðar.
Fataframleiðsla
Við viljum ráða starfsfólk í saumaskap.
Fjölbreytt og skemmtileg framleiðsla.
Upplýsingar á staðnum.
FASA • ÁRMÚLA 5 V/HALLARMÚLA
108 REYKJAVÍK • SÍMI 687735
Stykkishólmsbær auglýsir eftir
ráðskonu
Verkefni eru heimilishjálp og aðstoð við
heimahjúkrun og barnauppeldi.
Húsnæði fylgir.
Upplýsingar gefur Björn Þórðarson í síma
93-13259 milli kl. 19.00 og 21.00 mánudag
12.09. og þriðjudag 13.09. nk.
Umsóknir sendist skrifstofu Stykkishólms-
bæjar fyrir 23.09.1994.
Bæjarstjóri.
Hafnarfjarðarbær
- Suðurbæjarlaug
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar
stöðu starfsmanns í Suðurbæjarlaug. Bað-
varsla karla(laugarvarsla). Góðrar sundkunn-
áttu krafist. Viðkomandi þarf að standast
hæfnispróf sundstaða.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður
Suðurbæjarlaugar frá kl. 8.00-12.00 alla
virka daga. Umsóknir, þar sem m.a. er upp-
lýst um menntun og fyrri störf berist eigi
síðar en 16. september, til Suðurbæjarlaug-
ar, Hringbraut 77, Hafnarfirði.
Forstöðumaöur.
Atvinna - fjármagn
Viðskiptafræðingur með MBA-próf frá ensk-
um viðskiptaháskóla óskar eftir. atvinnu.
Ýmis störf koma til greina. Einnig kemur til
greina að leggja til fjármagn í traust og arð-
bært fyrirtæki gegn þátttöku í rekstri.
Áhugasamir sendi upplýsingar til afgreiðslu
Mbl. merktar: „Atvinna - 18001“ fyrir 16.
september.
Sölustarf
Óskum eftir góðu sölufólki fyrir
GULU BÓKINA 1995. Gerum kröfu um
ástundun og nákvæmni. Um er að ræða
bæði síma- og farandsölu.
Miklir tekjumöguleikar.
Vinsamlega pantið viðtalstíma í síma
689938. Meðmæla óskað.
Lífog saga hf.,
Suðurlandsbraut 20.
Atvinna
- fjölbreytt starf -
Fyrirtækið er innflutnings- og framleiðslufyr-
irtæki á höfuðborgarsvæðinu og flytur m.a.
inn vörur fyrir byggingariðnaðinn. Starfið
felst í afgreiðslu af lager, útkeyrslu og að-
stoð við framleiðslu.
Þú ert á aldrinum 25-40 ára, jákvæður og
þjónustulipur. Meirapróf er æskilegt en ekki
skilyrði. Vinnustaðurinn er reyklaus.
Vinsamlega sendið skriflega umsókn fyrir 15.
sept. til afgreiðslu Mbl. merkt: „A - 5080“.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ólafs-
firði óskar eftir hjúkrunarfræðingi í 100%
stöðu.
Einnig vantar sjúkraliða í 75-100% stöður.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
Hornbrekku og hjúkrunarforstjóri í síma
96-62480.
Skriflegar umsóknir þurfa að berast fyrir 28.
september ’94.
Leikskólakennara
vantar
Leikskólinn Sólbrekka á Seltjarnarnesi óskar
eftir leikskólakennara eða starfsmanni í fullt
starf.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma
611961.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Sjúkraþjálfarar!
Við sjúkraþjálfun FSA eru lausar tvær stöður
deildarsjúkraþjálfara, önnur við endurhæf-
ingardeildina í Kristnesi og hin við bráða-
deildir spítalans. Æskilegt starfshlutfall
50-100%.
Upplýsingar veitir Lucienne ten Hoeve, yfir-
sjúkraþjálfari í síma: 96-30844 eða 96-31387
(heima).
Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri.
Sjúkrahúsið í Húsavík sf.
Hjúkrunarfræðingar
Óskum að ráða í eftirtalin störf:
Stöður hjúkrunarfræðinga
á legudeildum
Stöðu hjúkrunarfræðings
á skurð- og skiptistofu, 80%
Viðbótarstarf á deildum ef óskað er.
í sjúkrahúsinu er rúm fyrir 62 sjúklinga.
Á Húsavík eru rúmlega 2500 íbúar. Þar er
grunnskóli, framhaldsskóli og tónlistarskóli.
Góð aðstaða ertil útivistar, íþrótta og heilsu-
ræktar. Góðar samgöngur við suðvestur-
hornið. Frá Húsavík er stutt til margra af
fegurstu náttúruperlum landsins.
Húsnæði og önnur fyrirgreiðsla fyrir hendi.
Nánari upplýsingar veitir Aldís Friðriksdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 96-40500
og 96-40542.
Handknattleiksfélag Kópavogs
íþróttahúsinu Digranesi
200 Kópavogi
Framkvæmda-
stjóriHK
Handknattleiksfélag Kópavogs, aðalstjórn,
auglýsir eftir framkvæmdastjóra aðalstjórnar
félagsins. Starfið felst m.a. í bókhaldsgerð,
rekstri á félagsheimili HK, Hákoni, Digra,
samskiptum við deildir félagsins, ÍSÍ, UMSK
og sérsamböndin. Staðgóð bókhaldsþekking
og bókhaldsreynsla æskileg, auk þess sem
viðkomandi þarf að vera stuðningsmaður HK.
Umsóknarfrestur er til 20. september. Um-
sóknum skal skilað til húsvarðar, íþróttahús-
inu Digranesi.
Aðalstjórn HK.
Verksmiðjustjóri -
rækjuvinnsla
Vegna uppsetningar rækjuverksmiðju um
borð í skipi á Persaflóa óskast nú þegar
starfsmaður með góða þekkingu og reynslu
af raekjuvinnslu. Stuttur ráðningartími.
Áhugasamir hafi samband við:
Advokatfirmaet Klaus Berning,
Kobenhavn, Danmark.
Sími 9045-45410220.
Fax 9045-45410224.
Sumarhótel
Rekstur sumarhótelsins í Lundi í Öxarfirði
er laus til umsóknar frá og með næsta sumri
(’95).
Tilboð óskast send fyrir 15. október til Öxar-
fjarðarhrepps, Bakkagötu 10, 670 Kópa-
skeri, eða til Kelduneshrepps, Lóni, Keldu-
neshreppi.
Upplýsingar veita eignaraðilar f.h. Öxarfjarðar-
hrepps í síma 96-52188 að deginum og f.h.
Kelduneshrepps í síma 96-52297 á kvöldin.
Skólanefndarformaður.
Ræstingar
fyrir hádegi
Okkur vantar samviskusamt fólk 25 ára eða
eldra til ræstingarstarfa í hlutastörf fyrir hádegi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í af-
greiðslu.
Securitas hf.,
Síðumúla 23, 1. hæð.
rm
SECURITAS