Morgunblaðið - 14.09.1994, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Leitað að erlendum ferðamanni við Gullfoss
Ottast að
hann hafi
fallið
í fossinn
LEIT AÐ 29 ára gömlum ítölskum
ferðamanni, sem óttast var að
hefði fallið í Gullfoss í gær, verður
haldið áfram í dag. Að sögn
Ámunda Kristjánssonar, hjá svæð-
isstjórn björgunarsveitanna í Ár-
nessýslu, sem stjórnaði leitinni í
gær, verður farið með sporhund á
leitarsvæðið í dag.
Maðurinn var ásamt fleirum í
skoðunarferð við Gullfoss um há-
degisleytið í gær. Þegar hann skil-
aði sér ekki í rútuna létu samferða-
menn hans vita að hans væri sakn-
að. Strax vaknaði hræðsla um að
maðurinn hefði fallið í fossinn
þrátt fyrir að enginn hefði orðið
vitni að því.
40 björgunarsveitarmenn
leituðu
Lögregla fór á staðinn og_ síðan
voru björgunarsveitir úr Árnes-
sýslu kallaðar út. Þeir fóru með
bát á Hvítá og gengu með ánni
beggja vegna frá fossinum og nið-
ur að Drumboddsstöðum, u.þ.b.
14 km leið. Um 40 björgunarsveit-
armenn tóku þátt í leitinni. Þyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-GRO,
var kölluð út og einnig var leitað
úr annarri lítilli þyrlu og úr einka-
flugvél sem kom frá Flúðum.
Leitinni var hætt rétt fyrir
klukkan níu í gærkvöldi og átti
að halda henni áfram snemma í
morgun.
«r.
ÓTTAST var að maðurinn hefði fallið í Gullfoss. Leitað var að
honum úr lofti á tveimur þyrlum og einni flugvél og á jörðu niðri.
Morgunblaðið/Kristinn
FÉLAGAR úr Slysavarnafélagi Biskupstungna við leit á Hvitár-
bökkum í gær. Þrjár aðrar björgunarsveitir tóku þátt I leitinni.
Kostnaður við
knývenda 10
til 15 milljónir
KOSTNAÐUR við endurbætur á
knývendabúnaði allra Boeing-flug-
véla Flugleiða er á bilinu 10 til 15
milljónir króna. í vetur verður settur
aukabúnaður í stýrikerfi knývenda á
hreyflum Boeing 737 og 757 véla
félagsins. Við það verður öryggis-
kerfíð sem á að tryggja rétta virkni
kerfisins þrefalt. Þessar breytingar
voru ákveðnar í fyrravetur og verða
unnar í tengslum við stórskoðun vél-
anna í vetur.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, eru þessar
breytingar á stýrikerfum knývenda
Boeing-vélanna liður í eðlilegu við-
haldi og þróun vélanna, en ekki gerð-
ar að kröfu flugmálayfirvalda. Gera
verði skýran greinarmun á slíkum
endurbótum og því þegar öryggi
flugvélategunda er dregið í efa. Þró-
un þessa aukabúnaðar lauk í júní og
er sá hluti sem fer í 737-vélamar
kominn til landsins.
Stöðugar endurbætur
Einar segir að flugslys, sem varð
í Tælandi 1991 er Boeing 767 frá
Lauda Air fórst, hafi verið rakið til
þess að knývendir varð virkur á öðr-
um hreyfii vélarinnar í flugi. Þessi
búnaður á aðeins að virka þegar
vélin er á flugbraut og er notaður
sem bremsa. „Þetta slys beindi at-
hyglinni að öryggisbúnaðinum og
verksmiðjurnar útbjuggu viðbót við
stýrikerfi knývendanna sem gerir
öryggið þrefalt gegn rangri virkni,"
sagði Einar. Þegar þessi búnaður var
boðinn til sölu þótti Flugleiðum sjálf-
sagt að kaupa hann og var tekin
ákvörðun um það í fyrravetur. Bún-
aðurinn er ekki dýr og felst aðal-
kostnaðurinn í vinnulaunum.
Bilun í Múlastöð
VEGNA bilunar sem varð í Múlastöð
Pósts og síma urðu liðlega 20 þúsund
símanúmer í Reykjavík sambands-
laus í eina og hálfa klukkustund í
gær. Bilunin varð um kl. 17.30, en
kl. 19 hafði tæknimönnum tekist að
koma símakerfinu í eðlilegt horf án
þess þó að vita af hverju bilunin staf-
aði.
Að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur,
upplýsingafulltrúa Pósts og síma,
benti allt til þess í gærkvöldi að sam-
bandsleysið hafi orðið vegna bilunar
í hugbúnaði símstöðvarinnar, en
rannsókn á orsökunum stóð þá jrfir.
Hún sagði að ekki væri talið að bilun-
in í gær væri neitt skyld þeim bilun-
um sem urðu á símkerfinu í Reykja-
vík síðastliðinn vetur, en þá urðu
ákveðin símanúmer sambandslaus
af og til en í skemmri tíma en raun
varð á i gær. Þau númer sem sam-
bandslaus urðu í gær byijuðu á 67,
68, 81, 87 og 88, en þau eru flest í
Múlahverfi, Breiðholti, Grafarvogi
og Árbæjarhverfi.
Félag’svísindastofnun Háskólans kannar hug kjósenda
Fylgi við Jóhönnu
10,1% þeirra sem tóku afstöðu í þjóðmálakönnun Félagsvisindastofnunar
HÍ, dagana 9.-11. september, sagðist myndu kjósa Jóhönnu Sigurðardótt-
ur ef gengið yrði til alþingiskosninga nú. Fylgi Alþýðuflokksins hefur
dvínað um nærri helming frá sambærilegri könnun í júní síðastliðnum.
Nú naut flokkurinn stuðnings 5,8% svarenda en fékk 10,4% í júní. Fylgi
annarra flokka breyttist minna. Niðurstöður könnunarinnar benda einnig
til þess að stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar hafi fækkað talsvert en
þeim sem eru hlutlausir í afstöðu til stjómarinnar hefur fjölgað.
Morgunblaðið/Eyjólfur
MEÐ nýjan hjálm á höfðinu og þann gamla í hendi.
Hjálmurinn bjargaði
Vogum. Morgunblaðið.
mælist rúmlega
V estfjarðaaðstoð
Samein-
ingarvilji
meiri en
vænst var
SAUTJÁN umsóknir um svonefnda
Vestfjarðaaðstoð, þar sem tilnefnd
voru 25 fyrirtæki, bárust starfshópi
um styrkingu atvinnu- og þjónustu-
svæða á Vestfjörðum áður en um-
sóknarfrestur rann út sl. föstudag.
Aðstoð ríkisins hljóðar upp á 300
milljónir króna og er skilyrði fyrir
lánveitingu að fyrirtæki sameinist
og að þau séu í sameinuðum sveitar-
félögum eða sveitarfélögum sem
ætla að sameinast.
Eyjólfur Sveinsson, formaður
starfshópsins, segir að farið verði
yfír umsóknirnar og athugað hvort
fyrirtækin uppfylli þau skilyrði sem
sett eru í lögum um aðstoðina.
Eyjólfur segir að í sumum tilvik-
um séu ekki tilgreindar þær fjár-
hæðir sem fyrirtækin telji sig hafa
þörf fyrir, sem sé í samræmi við
auglýsingu nefndarinnar. „Við vilj-
um einfaldlega að menn gefi sig
fram og við munum vinna með þeim
í leit að hagræðingarmöguleikum.
Aðstoðin mun síðan taka mið af
því hversu vænlegir kostirnir eru
og hversu mikla hagræðingu þeir
hafa í för með sér,“ segir Eyjólfur.
Hann segir að umsóknirnar hafi
verið ívið fleiri en menn hafi átt
von á og þær beri með sér að áhugi
og vilji fyrirtækja á að skoða sam-
einingarvalkosti og aðra möguleika
á styrkingu sé meiri en menn hafi
gert sér vonir um.
FJÖGURRA ára drengur, Krist-
inn Sigvaldason, getur þakkað
öryggishjálminum sínum að ekki
fór verr en skyldi þegar hann
lenti fyrir bfl, þar sem hann var
að hjóla á sunnudag.
Kristinn var fluttur á sjúkrahús
í Keflavík en fékk að fara heim
eftir skoðun með tvo plástra og
skrámur víða á líkamanum.
Hjálmurinn hans var hins vegar
ónýtur eftir áreksturinn.
Eftir þetta hefur hjálmurinn
verið til sýnis fyrir börnin á leik-
skólanum og síðar verður hann
sýndur nemendum barnaskólans.
Helsta breytingin frá þjóðmála-
könnun Félagsvísindastofnunar
sem gerð var í júní síðastliðnum er
að nú segist tíundi hluti svarenda
myndu kjósa Jóhönnu Sigurðardótt-
ur. Þegar fylgi hennar er greint
eftir landshlutum kemur í ljós að
Jóhanna nýtur 14,8% stuðnings í
Reykjavík, 10,1% stuðnings á
Reykjanesi og 5,6% stuðnings á
landsbyggðinni.
Flestir tapa fylgi
Fylgi flestra stjómmálaflokka
hefur dalað frá því í júní, fylgi Ai-
þýðuflokksins þó sýnu mest. Vin-
sældir Sjálfstæðisflakksins hafa
dvínað frá því hann fékk 40,7%
stuðning í júní og mælast nú 36,5%.
Stuðningur við Framsóknarflokk og
Alþýðubandalag hefur lítið breyst
og stuðningur við Kvennalista hefur
minnkað úr 14,5% í júní í 13,1%
nú. 1,4% svarenda sögðust styðja
sameiginlegt framboð á borð við
Rey kj avíkurli stann.
Fylgi ríkisstjórnarinnar
Svarendur vora spurðir hvort
þeir myndu segja að þeir væru
stuðningsmenn ríkisstjómarinnar
eða andstæðingar. Stuðningsmönn-
um hefur fækkað úr 43,3% svar-
enda í júní síðastliðnum í 32,5% nú.
Hlutlausum hefur á sama tíma
fjölgað úr 15,8% í 24,9% og beinum
andstæðingum stjórnarinnar fjölg-
að úr 40,9% í 42,6%.
■ Alþýðuflokkur missir/6
Atvinnuleysi í ágúst
1985-94, hlutfall af vinnuafli
'85 '86 '87 '88 '89 '90 ’91 '92 '93 ’94
Atvinnu-
leysi eykst
SAMTALS vom 4.862 að meðal-
tali á atvinnuleysisskrá í ágúst-
mánuði, sem jafngildir 3,5% af
áætluðum mannafla á vinnumark-
aði. Þetta em 442 fleiri atvinnu-
lausir en í júlímánuði og 532 fleiri
en vora atvinnulausir í ágúst í
fyrra.
Atvinnuleysið var mun meira
hjá konum en köríum, en atvinnu-
lausir karlmenn voru 1.862 sem
jafngildir 2,3%. Atvinnulausar
konur vom hins vegar tæplega
3.000 sem jafngildir 5,2% atvinnu-
leysi.
Samkvæmt upplýsingum vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytis vom alíka margir atvinnu-
lausir síðasta dag júlímánaðar og
síðasta dag ágústmánaðar eða
4.715, þannig að atvinnuleysi fór
minnkandi undir lok mánaðarins.
Er það rakið m.a. til loka kvótaárs-
ins og lítillar loðnuveiði.