Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum nú? m KOSNINGAR 1991 □ Nóvember 1991 Q Nóvember 1992 m Nóvember 1993 Q Júní 1994 ■I September 1994 Samanburður við fyrri kannanir og alþingiskosningar 1991,' 40,7% 38,6% ^ 36,5% 8 SP i þeirra sem taka afstöðu 18,9% 15,5% S g oo --- 5,8% 1 a 19,7% S o> 5? ; i S S 13,1% 1 CO co rji3,i% 1,4% Jóhanna Sam- Sigurðar- eiginl. dóttir framb. Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar 9.-11. september Alþýðuflokkur missir stuðn- ing en Jóhanna fengi 10% FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN Há- skóla íslands gerði þjóðmálakönnun dagana 9.-11. september. Hugur svarenda til stjómmálaflokka var kannaður og kom í Ijós að 10,1% sagðist mundi kjósa Jóhönnu Sig- urðardóttur ef kosið væri nú til al- þingis. Allir stjórnmálaflokkar tapa fylgi frá því þjóðmálakönnun var gerð í júní síðastliðnum. Stuðningur við ríkisstjómina hefur dvínað tals- vert og þeim fjölgað sem em hlut- lausir í hennar garð. Fyrsta spurning Félagsvísinda- stofnunar í könnuninni var: Ef al- þingiskosningar væru haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista held- urðu að þú myndir kjósa? 37,2% sögðust ekki vita það og voru þá spurðir: En hvaða flokk eða lista heldurðu að líklegast sé að þú myndir kjósa? 20,5% vissu það ekki og vora þá spurðir: En hvort heldurðu að sé líklegra, að þú kjós- ir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk eða lista? Þeim sem Hvop! mundip þú segja að þú værír stuðningsmaðup píkisstjopnapinnap eða andstæðingup? Hlutfall þeirra sem svara Júní 1994 Sept. 1994 And- stæðingar Stuðnings- menn töldu að þeir kysu annað en Sjálf- stæðisflokkinn var deilt niður á hina flokkana í sömu innbyrðis hlutföllum og fengust við fyrri tveimur spumingarliðum. Við þessar þaulspurningar fór hlutfall óráðinna niður i 6,6%, 9% sögðust ætla að skila auðu og 10,6% neit- uðu að svara. Minni vinsældir stjórnarinnar Svarendur vora spurðir: Hvort mundir þú segja að þú værir stuðn- ingsmaður ríkisstjórnarinnar eða andstæðingur? Hlutfall þeirra sem svöruðu hefur breyst talsvert frá því í júní á þann veg að stuðnings- mönnum stjórnarinnar hefur fækk- að talsvert og hlutlausum fjölgað að sama skapi. Könnunin var gerð í síma um allt land meðal fólks á aldrinum 18-75 ára og var stuðst við 1200 manna slembiúrtak úr þjóðskrá. Af þeim svöraðu 870 eða 72,5%. Þegar dregnir höfðu verið frá úr úrtakinu þeir sem vora nýlega látnir, erlend- ir ríkisborgarar og fólk búsett er- lendis reyndist nettósvöran vera 73,8%. Tveggja ára fangelsi fyrir innbrot Hlaut 27 dóma á fimmtán árum HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 31 árs mann, Sigurð Hólm Sigurðsson, til tveggja ára fangelsisvistar fyrir tvær mis- heppnaðar þjófnaðartilraunir og eitt innbrot. Brotin voru framin í júlí sl., innan við sólarhring eftir að hann hafði verið látinn laus úr fangelsi. Þetta er 27. refsidómur mannsins frá árinu 1979 og að meðtöldum nýjasta dóminum hefur hann samtals verið dæmdur til 12'/2 árs fangelsisvistar. Stal úrum og rauðvíni Maðurinn var saksóttur fýrir að hafa stolið sex armbandsúram, fjóram gullhringjum, silfurhring, tveimur byssum og átta rauðvíns- flöskum í innbroti í hús í Árbæjar- hverfi 24. júlí í sumar. Sömu nótt reyndi hann að bijót- ast inn í íbúð við Kárastíg en hætti við þegar hann heyrði hund gelta í íbúðinni og reyndi þá að stela kvenmannsveski úr eldhús- glugga við Bjarnarstíg þar sem hann var handtekinn og úrskurð- aður í 45 daga gæsluvarðhald. Skipast ekki við hegningar í dómi Péturs Guðgeirssonar héraðsdómara segir að ákærði, sem játaði brot sín hreinskilnis- lega, hafl framið þessi brot innan sólarhrings frá því að hann var látinn laus eftir langa fangavist. Auk fyrrgreinda 27 refsidóma, sem maðurinn hefur m.a. hlotið fyrir þjófnaðar- og ofbeldis- og kynferð- isbrot, hefur hann sex sinnum gengist undir dómsáttir fyrir ölv- un, fíknilaga- og umferðarbrot. „Er bersýnilegt að hann lætur ekki skipast við þær hegningar sem honum hafa verið gerðar til þessa. Þykir refsing hans með hliðsjón af þessu ölllu vera hæfilega ákveð- in fangelsi í tvö ár,“ segir í niður- stöðum dómarans. Formaður Alþýðubandalagsins Eðlilegt að Framsýn komist 1 ldördæmisráð ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, segist telja eðlilegt og sjálfsagt að Fram- sýn, nýstofnað félag alþýðubanda- lagsfólks í Reykjavík, fái aðild að kjördæmisráði Alþýðubandalagsfé- laganna og segist ekki telja að það verði neinum vandkvæðum bundið. Lög flokksins kveði alveg skýrt á um að flokksfélög í hveiju kjör- dæmi eigi rétt á því að eiga aðild að kjördæmisráði. Fundir um mánaðamót Óvissa hefur verið um hvort Framsýn geti fengið aðild að kjör- dæmisráðinu á aðalfundi þess í næsta mánuði því áður þarf mið- stjórn flokksins að samþykkja inn- göngu félagsins í flokkinn. Fundur miðstjórnar er ekki boðaður fyrr en viku eftir aðalfund kjördæmis- ráðsins sem halda á fyrir lok októ- ber. Ekki vandamál Aðspurður hvort miðstjórnar- fundi yrði flýtt til að Framsýn gæti fengið aðild að kjördæmjsráð- inu á aðalfundi þess svaraði Ólafur Ragnar: „Það hefur verið stefnt að því að halda miðstjórnarfund fyrstu dagana í nóvembermánuði og ég get ekki séð að það skipti öllu hvort aðalfundur kjördæmisráðsins er vikunni fyrr eða seinna. Ég hef ekki trú á að það verði neitt vanda- mál,“ svaraði hann. Morgunblaðið/Ingvar Náðist á flótta ÖKUMAÐUR bifhjóls reyndi að stinga lögreglu af í fyrrakvöld eftir að bifhjól hans hafði mælst á 139 km hraða á Sæbraut við Laugarásbíó. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu heldur ók hjólinu á brott á miklum hraða. Hann faldi hjólið við Hallarmúla og fór á braut en lögregla hafði upp á honum skömmu síðar, færði hann á lögreglustöð þar sem hann var sviptur öku- réttindum eftir yfirheyrslur. Sjávarútvegsráðherra um grein Svend-Aages Malmbergs Veiðar byggjast á ástandi stofnanna ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir að ákvarðanir um nýtingu þorskstofnsins hér við land séu óháðar því, hvað veiðist af þorski á öðram hafsvæðum. Svend Aage Malmberg haffræðingur velti upp þeirri hugmynd í Morgunblaðsgrein í gær að afli íslendinga í Smugunni yrði dreginn frá kvóta á íslandsmið- um. „Við tökum sjálfstæðar ákvarð- anir um veiðar úr þorskstofninum hér við land og verðum að byggja þær á ástandi stofnsins en ekki ann- arra stofna," sagði Þorsteinn. Aðspurður um þá staðreynd, að alfriðun virðist hafa skilað vexti þorskstofnsins í Barentshafi og hvort svipaðar aðgerðir gætu skilað sama árangri hér við land, sagði sjávarútvegsráðherra: „Það er mjög mikilvægt að menn horfi gagnrýn- um augum á þær ákvarðanir, sem teknar hafa verið undanfarinn ára- tug um nýtingu þorskstofnsins hér við land, af því að við höfum allan þennan tíma farið langt fram úr ráðgjöf. Það þarf að skoða með hvaða hætti menn fá mestan af- rakstur til lengri tíma, en þær ákvarðanir verðum við að taka á grundvelli ástands þorskstofnsins hér, ekki með því að gefa út ávísan- ir á veiðar annars staðar." Fullnýttur stofn Þorsteinn var spurður álits á ummælum Svend Aages um að stefna íslendinga í Barentshafi líkt- ist einna helzt sókn Serba, jafnvel Þriðja ríkisins, eftir „lífsrými“. „Menn verða að nota þær samlíking- ar, sem þeir kjósa helzt,“ sagði Þor- steinn. „Hins vegar er ljóst að þorsk- stofninn í Barentshafi hefur verið fullnýttur um langan tíma og kvóta- settur að fullu. Veiðar á alþjóðlegum hafsvæðum, eins og Smugan er, eiga samkvæmt ákvæðum hafréttarsátt- málans að gerast í samráði þjóða í milli. Þetta samráð hefur ekki getað átt sér stað af því að Norðmenn hafa ekki viljað ganga til slíkra við- ræðna. En þær skyldur hvíla bæði á strandríkjunum og þeim, sem koma utan að, að sýna ábyrgð varð- andi nýtingu stofnanna.“ -----» 4 4------ Helgi Áss í 5.-10. sæti HELGI Áss Grétarsson gerði jafn- tefli við Brasilíumanninn Vescovi í tíundu umferð af þrettán á Heims- meistaramóti skákmanna 20 ára og yngri í Brasilíu. Hann er í 5. til 10. sæti með 6V2 vinning. Efstir era núverandi heimsmeist- ari Miludanovic, sem keppir undir fána Fide vegna ófriðar í fyrrum Júgóslavíu, og Mariano frá Filipps- eyjum. Tvímenningarnir eru með 7V2 vinning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.