Morgunblaðið - 14.09.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
ANTONI Santiburcio i Moreno (framar) ásamt aðstoðarmanni
sínum Josep M. Figueras i Jacomet.
Islandstorg í Barcelona
Ibúarnir himinlif-
andi yfir nafngiftinni
„FLESTIR íbúanna þekkja ekki ann-
að íslenskt en íslenska saltfiskinn.
Engu að síður eru þeir himinlifandi
yfir nafngift torgsins. Áhuginn kom
glögglega fram við lagningu horn-
steinsins 17. júní,“ segir Antoni
Santiburcio i Moreno, bæjarstjóri
Sant Andreu bæjarhluta Barcelona-
borgar, um nýtt íslandstorg í hverf-
inu. Hornsteinn að törginu var lagð-
ur 17. júní sl. Inn í hólk í hornsteinin-
um var komið fyrir íslenskri og
spænskri mynt, eintaki af Morgun-
blaðinu og spænsku dagblaði, og
vígðri mold frá Þingvöllum.
Moreno sagði að hugmyndina að
nafngift torgsins mætti rekja langt
aftur. „Hún gæti hafist með sjálfri
borgarmynduninni. Kjarni borgar-
innar var lítill og umhverfis hann
fjöldi iítilla þorpa. Smám saman
stækkaði svo kjarninn og þorpin
urðu hluti af borginni. Hverfið okk-
ar, San Andreu, eitt þessara þorpa,
varð hluti af borginni seint á 19.
öld. En frá hverfinu hefur alla tíð
legið vatnsæð til miðbæjarins. Á
hana vildum við minna með nýju
skipulagi. Okkur fannst við hæfi að
gera vatnsæðina sýnilega og gos-
brunnarnir minntu okkur á íslensk
vatnsföll og Geysir,“ sagði Moreno.
Tilgangur komu Moreno, Joseps M.
Figueras i Jacomet aðstoðarmanns
hans og Angeles Berengveres Tarré
ritara hans, hingað til lands er tví-
þættur. „Annars vegar sækjum við
hingað alla tækniþekkingu varðandi
gosbrunninn á torginu. Hann er hár
og svipar til gosbrunnsins í Perl-
unni. Hins vegar erum við hér til
að afla tengsla vegna kynningar á
næsta ári. Við stefnum nefnilega að
því að efna til sérstakrar íslandsviku
í Barcelona í tengslum við samnorr-
æna hátíð í Madrid í lok mars. Von-
ir okkar standa til að forseti ykkar
geti komið og helst borgarstjóri líka.
Jafnframt myndum við efna til kynn-
ingar á ferðamöguleikum hér á landi
og markaðsmálum," sagði Moreno.
Hann dvaldist hér, ásamt aðstoð-
armönnum sínum, í eina viku. „Mér
finnst landið hrífandi og eins og ég
sagði við einn af frammámönnum
ykkar í ferðamálum er ég viss um
að Katalóníubúum á eftir að líka vel
að sækja ykkur heim. Þeir eru nefni-
lega miklir útivistarmenn og njóta
þess að klífa fjöll. Af þeim hafi þið
nóg,“ sagði Moreno bæjarstjóri í
Sant Andreu þar sem búa um
150.000 manns. Framkvæmdum við
íslandstorgið í hverfinu á að ljúka í
mars 1995. Kostnaður við þær nema
um 150 milljónum íslenskra króna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SMÁRASKOLI í Kópavogi hefur tekið til starfa og þar verður
6-10 ára börnum kennt í vetur í sex bekkjardeildum.
Nýr grunnskóli í Kópavogi
Smáraskóli verð-
ur einsetmn
SMÁRASKÓLI, nýr grunnskóli í
Kópavogi, hefur verið settur í fyrsta
sinn. Gert er ráð fyrir að skólinn
verði einsetinn og munu allir nem-
endur hefja skóla á sama tíma, yfir-
leitt að morgni. Skráðir nemendur í
vetur eru 110 á aldrinum 6 til 10 ára.
Sex bekkjardeildir verða starf-
andi, tvær í 1. bekk og ein í hveijum
árgangi þar fyrir ofan. í vetur hefur
skólinn til umráða fimm almennar
kennslustofur á neðri hæð í 1.
áfanga hússins auk þess eru fjórar
kennslustofur í Drangey en það er
timburhús á lóð skólans. Að loknum
skóladegi verður boðið upp á dægra-
dvöl fyrir yngstu nemendurna. Að-
staða fyrir hana er í Drangey.
Þjónar tveimur hverfum
Skólinn mun þjóna tveimur íbúða-
hverfum á Nónhæð og í Kópavogsd-
al með um 3.500 til 4.000 íbúum.
Hann tengist hverfunum með
gönguleiðum og undirgöngum undir
Fífuhvammsveg. Fullbyggður verður
skólinn um 4.000 fermetrar að stærð
og við hann er fyrirhuguð sundlaug.
Vestan og norðan skólans er íþrótta-
svæði Breiðabliks og þar er einnig
Kópavogsvöllur, aðalleikvangur
íþróttafélaganna í Kópavogi.
Sveinn Ivarsson arkitekt hjá Arki-
tektaþjónustunni sf., er hönnuður
skólans. Starfsmenn skólans eru 18,
þar af níu kennarar og skólastjóri
er Valgerður Snæland Jónsdóttir.
SELJUM N0KKRA LADA SAFIR
1500 cc 5GÍRA
MEO „FRÍPAKKA“ AÐ VERÐMÆTI
KR. 65.000
INNIHALD„FRÍPAKKA“
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■m
Q vetrardekk á felgum, negld eða ónegld eftir vali *
(auk sumardekkja)
© hremsuljós í afturglugga
Q útvarps- og kassettutæki
0 mottur
■
Q fullur bensíntankur
Verð 558. 223 kr. á götuna
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
ÖRKIN 3114-2-21-21