Morgunblaðið - 14.09.1994, Page 8

Morgunblaðið - 14.09.1994, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nei, nei, það er ekki hægt að nota þinn, Sólrún mín. Víkingaskip þurfa að vera með ekta drekahaus, góða ... Formannsstaða Alþýðubandalagsins Steingrímur lýsir yfir framboði Umræður á kjördæmisþingi um að flýta landsfundi STEINGRÍMUR J. Sigfússon, vara- formaður Alþýðubandalagsins, seg- ist hafa ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Alþýðubandalaginu á næsta landsfundi flokksins. Ástæða þess að hann hafi ákveðið að lýsa yfir framboði sínu nú, þótt rúmt ár sé til næsta reglulegs lands- fundar flokksins, sé sú að umræður hafí farið af stað meðal flokksmanna og í fjölmiðlum um hver tæki við af núverandi formanni, Ólafí Ragnari Grímssyni, og ýmis nöfn verið nefnd í því sambandi. Skv. endumýjunar- reglum flokksins verður Ólafur Ragnar að láta af formennsku á næsta landsfundi. Á kjördæmisþingi Alþýðubanda- lagsins á Norðurlandi eystra fyrir rúmri viku urðu miklar umræður um að flýta landsfundinum og halda hann í vetur. Steingrímur sagði að menn hefðu reifað rök með og á móti og sagðist hann telja þá um- ræðu eðlilega. Kvaðst Steingrímur skilja rökin fyrir því að flýta lands- fundinum en um það yrði þó að ríkja sæmileg samstaða í flokknum. Benti hann á að Sjálfstæðisflokkurinn hefði t.d. iðulega flýtt landsfundi sínum á kosningaári og haldið hann fyrir al- þingiskosningar. Barnalegt og tímaeyðsla „Við völdum okkar forystu með góðri samstöðu í flokknum fyrir ári. Mér vitanlega hefur það verið skiln- ingur allra í flokknum hingað til að sú foiysta leiði flokkinn í kosningar og í viðræðum um myndun ríkis- stjómar að þeim loknum og síðan þegar þeir atburðir eru yfírstaðnir muni flokkurinn snúa sér að hinu verkefninu. Ég hef engan heyrt halda því fram í alvöm að það fari vel sam- an í vetur að undirbúa kosningaglímu við þessa ríkisstjóm og hefja um leið innbyrðisátök í Alþýðubandalaginu um nýja forystu," sagði Ólafur Ragn- ar. „Reynsla mín í stjómmálum hefur kennt mér að það sem sá merki stjóm- málamaður Harold Wilson sagði, á námsárum mínum úti í Bretlandi, að vika væri langur tími í pólitík, hafa að mínum dómi reynst vísdómsorð. Þess vegna tel ég það bæði bamalegt og tímaeyðslu að velta því fyrir sér hér og nú hvað verði að rúmu ári,“ sagði Ólafur Ragnar. Svavar styður Steingrím „Það hefur eiginlega legið í augum uppi að Steingrímur myndi stíga þetta skref. Hann hefur verið vara- formaður um skeið og það hefur verið ágæt sátt um hann,“ sagði Svavar Gestsson alþingismaður og kvaðst aðspurður styðja Steingrím til formennsku. Svavar sagði að alþýðubandalags- menn í Reykjavík hefðu ekki blandað sér sérstaklega í umræður um að flýta landsfundi flokksins að öðru leyti en því að Ámi Þór Sigurðsson formaður kjördæmisráðsins í Reykja- vík hefði nefnt það. „Ég skal ekkert um það segja hvað menn gera í þeim efnum en þessi yfirlýsing Steingríms kemur varla mörgum á óvart,“ sagði hann. ----♦ ♦ ♦-- Borgar- stjórnar- útvarp BORGARRÁÐ hefur samþykkt að leyfa beinar útvarpssendingar frá fundum í borgarstjóm Reykjavíkur. Samningurinn gerir ráð fyrir að Aðalstöðin sjái um útsendinguna og að Reykjavíkurborg greiði 35 þús. krónur fyrir hvem fund. Fund- ur í borgarstjórn verður næst fimmtudaginn 16. september og hefst útsending frá honum kl. 17. Fundir í borgarstjóm eru haldnir tvisvar í mánuði eða fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Utsend- ing skal vera órofin meðan á fundi stendur þar til forseti borgarstjóm- ar slítur honum, að undanskildum fundarhléum. Nýkomnir velúrgallar í miklu úrvali stærðir S-XXL Gullbrá, snyrtivöruverslun, Nóatúni 17, sími 624217 Fyrstu prestkosningar í sjö ár Val sóknarpresta á að ræða guðfræðilega Fyrstu prestkosningar í sjö ár voru haldnar á Selfossi á laugardag og kepptu þrír prestar um embættið. Séra Þórir Jökull Þorsteinsson hlaut yfír- burðakosningu með tæplega 48% greiddra atkvæða, en kjörsókn var um 70%. Bisk- up íslands, herra Ólafur Skúlason, hefur opinberlega lýst yfír efasemdum vegna fyrirkomulags prestkosn- inga og jafnvel vals af hálfu sóknamefnda, og telur heilladrýgra að skipunar- valdið sé alfarið í höndum biskups og kirkjumálaráð- herra. - Hvernig horfir gagn- rýni á prestkosningar við þér, sem nýkjörnum sóknar- presti Selfyssinga? „Ég á bágt með að segja þetta fyrirkomulag kolómögulegt, eftir að hafa verið valinn slíkri kosingu. Ég geri mér alveg grein fyrir ýmsum vanköntum á þessu fyrirkomulagi, en minni á að þeg- ar verið er að ræða starfshætti kirkjunnar, snýst málið fyrst og fremst um guðfræði, eins og flest sem kirkjuna varðar. Þótt kirkjan starfi í heiminum á hún í rót sinni ekki að vera af heiminum, sem segir okkur að val á sóknarprest- um þarf að ræða guðfræðilega. 1 guðsríkinu snúast hlutimir ekki endilega um lýðræði, því þar trú- um við því að einn fari með allt vald og hann sé réttlátur, alvitur og algóður, en lýðræði er e.t.v. það besta sem við höfum þegar litið er til stjórnsýslulegra ákvarð- ana. í gamla daga íjölluðu sið- bótamenn um hvemig bæri að standa að vali á sóknarprestum og einhvers staðar las ég hjá Marteini Lúther að söfnuðurinn skyldi velja, jafnvel úr sínum röð- um, þann sem trúandi væri fyrir þessu embætti. En ýmis sjónarmið eru í gangi og eitt er faglegt, því það gefur augaleið að prest- embættin eru misjöfn að stærð og umfangi, mannfjölda, tölu kirkna, jafnvel að erfiðleikum í mannlífinu o.s.frv. Þetta segir okkur hugsanlega að menn kunna að vera misjafnlega hæfír til að gegna tilteknu eða ótilteknu emb- ætti, þannig að ekki er furða að það sjónarmið eigi sér mikið fylgi meðal starfsmanna kirkjunnar, að velja þurfi sóknarpresta með ein- hveijum öðrum hætti en almenn- um kosningum." - Telurðu að möguleikar þínir á að hljóta embættið hefðu verið hinir sömu ef ekki hefði komið til kosninga? „Ef ég á að vera alveg hrein- skilinn, svara ég því _________ neitandi. Og þó. Mér skilst að hugmyndir biskups geri ráð fyrir einhvers konar stöðu- valsnefnd sem falið verði það hlutverk að skoða umsækjendur og gera til- lögu um val. Frammi fyrir slíkri nefnd býst ég við að starfsaldur manna verði meðal annars skoð- aður, hvað þeir kunni fyrir sér og hvernig þeim hafi vegnað þar sem þeir eru niðurkomnir. Ýmsir þætt- ir koma til álita í þessu sambandi og það er ómögulegt að segja hvaða náð menn hljóta fyrir aug- um slíkrar nefndar, en ég hlýt að gera ráð fyrir að möguleikar mín- ir væru jafnmiklir og annarra umsækjanda.“ - En er nokkurn tíma hægt að sniðganga vilja sóknarbarna? „Vilji sóknarbarna verður til á þeim tíma sem líður frá því að framboð eru orðin Ijós og til þess tíma sem kosningar fara fram, en á meðan kynna frambjóðendur Þórir J. Þorsteinsson ► SÉRA Þórir Jökull Þor- steinsson er fæddur 1959 í Reykjavík, sonur Ástu Sigurð- ardóttur, skálds og listakonu, og Þorsteins Jónssonar, skálds frá Hamri. Hann ólst upp frá átta ára aldri hjá fósturforeldr- um, Ólafi Þórðarsyni og Ingi- björgu Jóhannsdóttur á Ökrum á Mýrum. Hann lauk búfræðin- ámi 1976, samvinnuskólaprófi frá Bifröst 1985 , innritaðist í guðfræðideild Háskóla íslands haustið 1987 og lauk embættis- prófi 1992. Sama ár vígðist hann til Grenjaðarstaðar í S- Þingeyjarsýslu. Þórir Jökull var kvæntur Matthildi L. Her- mannsdóttur og á með henni 11 ára dóttur, Sigurveigu. Ber ekki skerta pyngju frð baráttunni sig fyrir söfnuðinum. Eigi stöðuv- alsnefnd eða kirkjustjórn að velja, þá blasir við að stór hluti sóknar- barna líti svo á að aðrir axli ábyrgð á valinu og þeim ber upp til hópa að hlíta niðurstöðunni. Af þeim sökum er óvíst að fólk myndi almennt setja sig inn í hveijir koma til álita, og vilji þess yrði ekki til í viðlíka mæli og þeg- ar það tekur sjálft ákvörðunina. Við slíkar aðstæður ætti spuming- in því kannski ekki heima i um- ræðunni." - Biskup hefur rætt um per- sónulegan og fjárhagslegan skaða frambjóðenda í prestkosningum. Var baráttan dýrkeypt? „Ég reikna ekki með að biskupi gangi annað til en velvild í garð þeirra sóknarpresta sem sóttust eftir embættinu. Það sjónarmið er auk þess alkunna meðal starfs- bræðra minna og systra, að mörg- um sé óbærileg tilhugsun að þurfa að kynna sig fyrir sóknarbömun- um með hliðstæðum hætti og stjómmálamenn gera. Ég verð þó að bera til baka það sem einhvetj- ir kunna að álykta af orðum biskups míns, því ég ber ekki skerta pyngju frá baráttunni svo neinu nemi. Auðvitað þarf ég að greiða símareikning sem ég veit ekki enn hversu hár verður, einhver olía fór á jeppann minn og nokkrir kaffípokar vom keypt- ir til að hella upp á, en vinir mín- ir og stuðningsaðilar sáu um ann- að meðlæti og uppihald. Mér þótti dýrmætt að finna þann mikla áhuga og góðvilja sem beindist að framboði mínu þegar á hólminn var komið. Framtak þeirra er afar þakkarvert og ég reikna ekki með að þau æski annars endurgjalds af minni hálfu en að ég reynist þeim jafn hollur sóknarprestur og forveri minn og standi við bakið á þeim eins og ég best get. Og til þess er ég kominn á Selfoss, að vera sóknarprestur allra þeirra sem þar búa.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.