Morgunblaðið - 14.09.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 9
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
FEÐGARNIR Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson aka rallbíl, sem
er á virðisaukanúmerum. Þeir tryggðu sér íslandsmeistaratitil-
inn í alþjóðarallinu um helgina.
RaUmeistararnir
á virðisaukabíl
ÍSLANDSMEISTARARNIR í
rallakstri, Rúnar Jónsson og Jón
Ragnarsson, aka virðisaukabíl í
rallmótum, en slíkir bílar eru
venjulega notaðir sem sendibíl-
ar.
„Rallbíll okkar og útgerðin í
kringum þátttöku okkar í rall-
mótum er rekin sem fyrirtæki.
Þessvegna er rallbíllinn virðis-
aukabíll," sagði Jón Ragnarsson
í samtali við Morgunblaðið, að-
spurður um hverju það sætti að
rallbíll þeirra væri á rauðum
virðisaukanúmerum.
„Bíllinn erskoðaður hjá Bif-
reiðaskoðun Islands og fékkst
skráður þar sem virðisaukabíll.
Stuldur á
tölvu Þrá-
ins enn
óupplýstur
INNBROT í hús Þráins Bert-
elssonar í landi Bolholts á
Rangárvöllum um miðjan síð-
asta mánuð er óupplýst. Þá
var m.a. stolið tölvu sem Þrá-
inn leysti síðan út fyrir 80.000
krónur. Öllum gögnum, sem
voru inni á harða diski tölv-
unnar, hafði verið eytt en Þrá-
inn hefur notið aðstoðar
ýmissa tölvusérfræðinga við
að reyna að endurheimta þau.
Meðal þess sem var inni á
harða diski tölvunnar var kvik-
myndahandrit sem Þráinn
þurfti að skila af sér erlendis
nú í byijun þessa mánaðar.
Að sögn Þráins tókst honum
að endurskrifa handritið eftir
minni á nokkrum sólarhring-
um og skila því af sér á tilsett-
um tíma.
Þráinn segir að eftir að hann
fékk tölvuna frá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins hafi sérfræð-
ingar verið búnir að finna um
600 mismunandi skrár. Þeir
hafi sagt að það ætti að vera
hægt að endurheimta megnið
af þeim. Til þess þurfi þó sér-
fræðiþekkingu sem hann búi
sjálfur ekki yfir.
Margir hafa boðið aðstoð
Hann segir að það fjölmiðl-
afár sem hafi orðið í kringum
tölvustuldinn hafi þó haft þær
ánægjulegu afleiðingar að
býsna margir kunnáttumenn
um tölvur hafi sett sig í sam-
band við sig og boðið fram
hjálp sína við að bjarga því
sem bjargað yrði af harða
diskinum.
Ég sel auglýsingar á bílinn og
innheimti virðisaukaskatt af
auglýsingunum eins og hvert
annað fyrirtæki og skila honum
til ríkissjóðs. Þess vegna vil ég
fá til baka virðisaukaskattinn af
útlögðum kostnaði við rekstur
bílsins. Við ökum tveggja manna
bíl og getum því uppfyllt sömu
skilyrði og aðrir sendibílar
undanþegnir virðisaukaskatti,
t.d. hjá pizzastöðum. Við gætum
þessvegna tekið að okkur pizza-
sendingar á hálendið. Við mynd-
um ábyrgjast að vera fljótastir
á staðinn. Ég gæti hinsvegar
ekki bakað pizzurnar, ég er svo
lélegur í eldhúsinu,“ sagði Jón.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
erlendis vegna kosninga til sveitar-
stjórna í Hólmavíkurhreppi og
Stykkishólmsbæ 1. október er hafin
hjá öllum sendiráðum íslands, auk
aðalræðisskrifstofu íslands í New
York. Stefán Skjaldarson, sendiráðs-
ritari á alþjóðaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, segir að ekki séu hald-
bærar tölur yfir hversu margir það
eru, sem eiga lögheimili á þessum
stöðum, en eru búsettir erlendis.
Hann kvaðst reikna með að það
væru ef til vill 5-10 manns.
Stefán sagði að utankjörfundarat-
kvæðagreiðslan næði nánast ein-
göngu til íslenskra námsmanna er-
lendis, sem hefðu lögheimili í Hólma-
Ólík við-
horf til
hátekju-
skatts
RÍKISSTJÓRNIN er að láta kanna
hvaða þjóðfélagshópar það eru sem
hafa borgað hátekjuskatt. Ólafur
Björnsson, formaður sjálfstæðis-
mannafélagsins Óðins á Selfossi,
segir að ekki sé ástæða til að hætta
að leggja á hátekjuskatt fyrst ríkið
geti ekki hækkað skattleysismörkin.
„Meðan ríkissjóður er rekinn með
milljarða halla og menn neyðast til
að taka skatt af láglaunafólki er
ekki ástæða til að hætta þessari
skattlagningu. Það er ekki ástæða
til þess að láta þá sem mest hafa
njóta einhverra kjarabóta þegar aðr-
ir fá ekkert. Meginatriðið er að halda
stöðugleika í þjóðfélaginu," sagði
Ólafur.
Óðinn samþykkti fyrir helgi álykt-
un þar sem skorað er á ríkisstjórnina
að leggja áfram á hátekjuskatt.
Ólafur sagði að ályktunin hefði ver-
ið samþykkt án mótatkvæða en all-
margir hefðu setið hjá. Hann sagði
að sumir fundarmenn hefðu haft
efasemdir um skattinn. Það sjónar-
mið hefði komið fram að rétt væri
að hækka mörkin.
Samband ungra sjálfstæðismanna
hefur hins vegar harðlega mótmælt
hugmyndum um að framlengja
álagningu hátekjuskatts. Sambandið
telur að meirihluti þeirra sem borga
þennan skatt séu ungt barnafólk
með húsnæðisskuldbindingar og sjó-
menn.
vík eða Stykkishólmi. „Þetta eru ef
til vill 5-10 manns, en utanríkis-
ráðuneytinu ber lagaskylda til að
gera fólki kleift að taka þátt í kosn-
ingum.“
Lítil fyrirhöfn
Stefán sagði að fyrirhöfn utanrík-
isráðuneytisins væri lítil vegna
þessa. „Kjörgögn frá því í vor eru
nýtanleg og í raun er þess aðeins
krafist að sendiherra eða sendifull-
trúi séu viðstaddir og staðfesti at-
kvæðagreiðsluna með undirritun þar
að lútandi. Fyrirhöfn er helst sú, að
ef menn vilja til dæmis kjósa í Kali-
forníu þarf að senda kjörgögnin til
ræðismannsins þar.“
ERKOMIN AFTURTIL LANDSINS!
Byrja skyggnilýsingar 22. september.
Er með aðstöðu á
Leynimel 13
Frú Magnhildur Skúladóttir miðill
Músikleikfimin
hefst mánudaginn 19. september.
Góö alhliöa hreyfing fyrir konur á öllum aldri
sem miðar aö bættu þoli, styrk og liðleika.
Byrjenda- og framhaldstímar.
Kennsla fer framí íþróttahúsi Melaskóla.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma 13022 eftir
kl. 16.00 alla daga.
Kosið á ný í Stykkishólmi o g Hólmavík
Kjörgögn í öilum
sendiráðum Islands
KVENNATIMAR
í badminton
Mánud. Þriðjud. Fimmtud. Föstud.
13.50 09.40 13.50 09.40
6 vikna námskeið kr. 2.700
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
Gnoðarvogi 1, s. 812266.
Þú getur líka tekib
þátt í vikulegum
útboðum á
ríkisverðbréfum
Einstaklingar eins og aðrir geta
ávaxtað peningana sína í vikulegum
útboðum á ríkisvíxlum, ríkisbréfum og
spariskírteinum ríkissjóðs.
Útboðin fara þannig fram að löggiltum
verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóðum
gefst kostur á að gera tilboð í bréfin
samkvæmt tilteknu tilboðsverði, en
aðrir sem óska eftir að gera tilboð í
bréfin geta haft samband við
ofangreinda aðila sem munu annast
tilboðsgerð fyrir þá.
Fjárfesting í ríkisvíxlum og ríkisbréfum
er tilvalin fyrir einstaklinga sem eru t.d.
á milli fjárfestinga og vilja ávaxta
peningana sína til skemmri eða lengri
tíma á meðan.
- Lánstími ríkisvíxla er 3, 6 og 12 mánubir.
- Lánstími ríkisbréfa er 2 ár.
- Lánstími spariskírteina er 5 og 10 ár.
Hafðu samband við starfsfólk
Þjónustumiðstöðvarinnar og það veitir
þér nánari upplýsingar um vikuleg
útboð á ríkisverðbréfum.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040