Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Síðari áfangi Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi vígður á sunnudag Suðurland 21150-21371 1 LARUS Þ. VALDIMARSSON, framkvæmdastjori J KRISTJAN KRISTJANSSON, loggiltur fasteigmasali ^ Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Glæsilegt raðhús - frábært útsýni Úrvalseign tvær hæðir um 230 fm með innb. bílsk. á einum vinsæl- asta útsýnisstað á Seltjarnarnesi. Séríbúð við Tómasarhaga Endurnýjuð stór 2ja herb. sólrík íbúð 65,5 fm I kjallara. Séiinng. Fjór- býli. Sérhiti. Samþykkt. Laus strax. Vinsæll staður. Suðuríbúð - Súluhóiar - frábær kjör Mjög góð 3ja herb. íbúð á 2. hæð. Harðviður. Parket. Ágæt sameign. 40 ára húsnæðislán um kr. 3,3 millj., af útb. má greiða kr. 2,1 millj. á 4 árum. Laus 1. des. nk. Gott verð. Glæsiieg íbúð á góðu verði Endaíbúð 4ra herb. 108,6 fm á 1. hæð við Hraunbæ. Nýtt eldhús. Tvennar svalir. Sérhitaveita. Gott kjherb. með snyrtingu. Ágæt sam- eign. Skammt frá Landspítalanum Endurnýjuð 3ja herb. íbúð á jarðhæð. Innr. og tæki að mestu ný. 40 ára húsnæðislán kr. 3,1 millj. Vinsæll staður. Hagkvæm skipti Leitum að góðri 3ja-4ra herb. íbúð í borginni eða nágrenni í skiptum fyrir mjög góða hæð í gamla góða vesturbænum. Á söluskrá óskast Raðhús eða einbýlishús í Árbæjarhverfi, Selási, Breiðholt kemur til greina. Góðar greiðslur. Sérhæð, raðhús eða einbýlishús i Vogum eða nágrenni. Skipti mögul. á góðri 4ra herb. hæð í Vogunum með bílsk. • • • Fjöldi góöra eigna f makaskiptum. Teikningar á skrifstofunni. AIMENNA FASTEIGNASAL AH LAUG/wÉGM8sÍMA^1150^1370 Morgunblaðið/Davíð Pétursson. LJÓSMYNDASÝNING Sigfúsar í Kleppjárnsreykjaskóla. Ljósmyndasýning í Kleppjárnsreykjaskóla Kleppjárnsreykjum - Kleppjárns- reykjaskóli var settur þriðjudaginn 6. september sl. í setningarræðu sinni komst skólastjórinn, Guðlaugur Óskarsson, m.a. svo að orði: „Til að vekja athygli okkar á þessum sprot- um er gróa við götu okkar hefur sú hefð komist á að efna til listkynning- ar við upphaf kennslu hér í skólan- um. Ljósmyndasýning sú er hér er sýnd er hluti af sýningu sem Sigfús Pétursson setti fyrst upp í Gauta- borg 1990 og er þetta í níunda sinn sem sýningin er sett upp, en stærsti hluti hennar hefur farið um öll hin Norðurlöndin. Sigfús nam ljósmyndun í Gauta- borg þar sem hann bjó í 10 ár. Hann býr nú í Reykjavík og starfar sem ljósmyndari." Sú hefð hefur skapast að fá alltaf listamenn úr Borgarfirði eða tengda Borgarfirðinum til að sýna list sína á fyrstu dögum hvers skólaárs á Kleppjárnsreykjum. A Kleppjárnsreykjum munu 128 nemendur stunda nám í vetur. Kenn- arareru 11 auk skólastjóra. 7 starfs- menn vinna við ræstingu og í mötu- neyti og níu skólabílstjórar sjá um að flytja nemendur daglega að og frá skóla. Forkönn- un fyrir prófkjör KJÖRNEFND Sjálfstæðisflokks- ins í Suðurlandskjördæmi hefur ákveðið að láta fara fram forkönn- un meðal félagsmanna flokksins í kjördæminu vegna alþingiskosn- inganna sem fram eiga fara næsta vor. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi leið er valin við undirbúning kosninga Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu. Kjörnefndin óskar eftir tilnefn- ingum um frambjóðendur á fram- boðslista flokksins. Koma verður tilnefningum á framfæri við nefndina fyrir kl. 21 mánudaginn 26. september. Nöfn frambjóðenda verða lögð fyrir fund kjördæmar- áðs Sjálfstæðisflokksins 1. október nk. þar sem tekin verður ákvörðun um uppstillingu eða prófkjör. Niðurstaðan mun m.a. ráðast af því hvað margir lýsa yfir áhuga á framboði. -----♦ ♦ ♦ — Bændur ósáttir við lyfjalög Borg í Eyja- og Miklaholts- hreppi - Aðalfundur Búnaðarsam- taka Vesturlands skoraði á heil- brigðis- og trygginganefnd Al- þingis að beita sér fyrir breyting- um á nýsettum lyfjalögum og taka af öll tvímæli um að dýralæknar geti áfram veitt bændum sömu þjónustu og áður. I áskoruninni segir að lögin leiði af sér svo mikið óhagræði og kostnaðarauka fyrir bændur að með öllu sé óbúandi við slíkt. Um mjög mikla þrengingu sé að ræða þar sem dýralæknar hafí getað selt bændum lyf vegna framhalds- meðferðar að lokinni aðgerð og vegna fyrirbyggjandi aðgerða. Vel búið að æskufólkinu Selfossi - Síðari áfangi Fjöl- brautaskóla Suðurlands var vígður sl. sunnudag og form- lega tekinn í notkun við hátíð- lega athöfn í skólanum þar sem byggingin var afhent skóla- meistara. Við athöfnina var full- yrt að skólinn væri eitt glæsileg- asta skólahús landsins og að Sunnlendingar byggju vel að æskufólki sínu. Skólinn er fullbúinn að utan og á næsta ári verður lokið við að koma fyrir búnaði í bóka- safni skólans, frágangi á lóð lokið ásamt ýmsu smálegu. Gert er ráð fyrir að þegar fram- kvæmdum verður að fullu lokið nemi kostnaður við skólann 800 milljónum króna. Af þeim kostnaði greiða heimamenn 40% á móti 60% frá ríki. Skólinn er samtals 6.301 fer- metri að grunnflatarmáli og samtals 25.870 rúmmetrar. Að sögn Guðmundar Sigurðssonar, formanns bygginganefndar, er kostnaður við fullbúinn skólann á hvern fermetra 88 þúsund krónur. Arkitekt skólans er dr. Maggi Jónsson og aðalverktaki við báða áfangana Sigfús Krist- insson, byggingameistari á Sel- fossi. 800 nemendur um allt Suðurland f Fjölbrautaskóla Suðurlands eru nú 660 nemendur í dag- skóla, sem er sá nemendafjöldi sem gert er ráð fyrir að húsið rúmi. Um 100 nemendur eru í öldungadeild. Á vegum skólans er einnig kennsla á fiskeldis- braut á Kirkjubæjarklaustri, framhaldsdeild á Skógum og kennsla á Litla-Hrauni. Alls stunda nám við skólann um 800 nemendur. Þá stendur skólinn einnig að rekstri Farskóla Suð- urlands, þar sem kennt er í námskeiðsformi á hinum ýmsu sviðum. Hærri lágmarks- einkunn? Fjöldi manns var við athöfn- ina, þar sem skólinn, starfsfólk og nemendur fengu árnaðar- óskir. Sig^urður Sigursveinsson skólameistari kvaðst hafa getið þess í gamni við nemendur að með þeirri nýju og glæsilegu aðstöðu sem skólinn byggi við mætti alveg hækka lágmarks- einkunn um einn heilan, úr 5 í 6. Fulltrúi nemenda flutti ávarp og lýsti ánægju þeirra með að- stöðuna og fullvissaði viðstadda um að vel yrði um húsið gengið af nemenda hálfu. GUÐMUNDUR Sigurðsson formaður byginganefndar afhendir Sigurði Sigursveinssyni skólameistara húsið. Morgunblaðið/Sig. Jóns. SÉÐ yfir almenninginn í húsinu, torgið, undir stærsta glugga landsins, en hann einkennir húsið. 51500 Hafnarfjörður íbúðir til sölu: Hjallabraut Þjónustuíb. fyrir 60 ára og eldri. 2ja herb. ca 63 fm á 4. hæð. Mikil sameign. Áhv. 3,2 millj. Byggjs. rík. til 36 ára. Tengd öryggisþjón. Hjallabraut Þjónustuíb. fyrir 60 ára og eldri. 2ja herb. ca 70 fm á 3. hæð. Mikil sameign. Tengd öryggis- þjón. Ekkert áhv. Arnarhraun 5-6 herb. ca 136 fm íb. á 3. hæð í þríb. Bílskplata. 4 svefnherb. Svalir. Útsýni. Nýtt gler. Nýtt parket. Danfoss. Laus. Áhv. ca. 1,2 millj. Álfaskeið 4ra-5 herb. ca 100 fm íb. á 1. hæð í þríb. Sérinng. 3 svefn- herb. Bílskréttur. Lítið áhv. Álfaskeið 4ra herb. ca 100 fm íb. á 2. hæð í fjölb. 3 svefnherb., arinn. Tvennar svalir. Ekkert áhv. Laus. Klettagata Tvær 4ra-5 herb. ca 100 fm íb. í tvíbhúsi. Bílsk. fylgir báðum ib. Endurn. rafl. íb. seljast saman eða sér. Ekkert áhv. Grænakinn Efri sérh. og ris í þríb. Sérinng. 3 svefnh., 2 stofuro.fi. Baðherb. nýupppgert. Áhv. ca 2,7 m. Vesturvangur Einb. á einni hæð 142 fm. Bíl- skúr 38 fm, garðskáli 20 fm. Ræktuð lóð. Vörðustígur Einb., kj. hæð og ris. Góð stað- setn. Utsýni. Garður. Eignin þarfnast nokkurra endurþ. Ekk- ert áhv. Flókagata Einb. á fjórum pöllum ca 190 fm ásamt nýjum bílskúr og öðr- um eldri. Eftirs. staðs. Mikið endurn. m.a. þak, rafmagn, frá- rennsli og innr. Ný sólstofa. Garður. Svalir. Útsýni. Áhv. ca 2,5 millj. gamalt byggsjlán. Ath. skipti á minni eign. Atvinnuhúsnæði: Drangahraun Iðnaðarhúsn. 120 fm pússað og málað. Innr. skrifstofa og WC. Stór hurð. Höfum kaupanda að: Litlu sérbýli með bílskúr eða annarri vinnuaðst. á ról. stað í Hafnarfirði. FASTEIGNASALA, Linnetsstíg 3, 2. hœö, Hfj., ■■ Árni Grétar Finnsson hrl., Bjarni Lárusson hdl., símar 51500 og 51501. Heimas. sölumanns 654171. V ........................J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.