Morgunblaðið - 14.09.1994, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Endurgerðar myndir af fólki frá víkingatímanum í Jórvík
VÍKINGASAFNIÐ í Jórvík á Eng-
landi er nú að hefja sýningu á
„lifandi" víkingum, endurgerðum
myndum af sjö manns, sem líklega
voru uppi á svipuðum tíma eða
nokkru eftir að ísland var numið.
Eru myndirnar byggðar á haus-
kúpum, sem fundist hafa í Jórvík,
en aðferðir við að endurskapa
útlit og andlitsfall manna eftir
þeim eru orðnar mjög fullkomnar
og mikið notaðar við rannsókn
glæpamála. Er verið að vinna að
fleiri og verða 31 alls.
Þótt aðferðirnar við endur-
sköpun mörg hundruð ára gam-
alla andlita séu fullkomnar þá
þarf dálítið af listrænu hand-
bragði til að gera þau lifandi og
var myndhöggvaranum Lynne
Bandaríska sjón-
varpsstöðin ABC
Boeing
vissi um
hættuna
Pittsburgh. Reuter.
BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin ABC
sagði í umfjöllum um flugslysið í
Pittsburgh, þar sem Boeing 737-300
þota fórst með 132 manns, að bæði
Boeing-verksmiðjunum og banda-
rísku flugmálastjóminni (FAA) hefði
verið kunnugt um að knývendar flug-
vélartegundarinnar gætu reynst
hættulegir.
Rannsókn á orsökum slyssins
beinist fyrst og fremst að knývendum
á öðrum hreyfli þotunnar. Cari Vogt,
sem stjómar rannsókn á Pittsburgh-
slysinu fyrir hönd öryggisstofnunar
bandarískra samgöngumála (NTSB),
sagði að ætlunin væri að líkja eftir
flugi USAir-þotunnar í flughermi.
Yrðu knývendar á hægri hreyfli sett-
ir í gang og niðurstöður sem fengj-
ust úr flugherminum bornar saman
við upplýsingar sem fram koma á
flugrita þotunnar sem fórst og aðrar
upplýsingar sem fyrir hendi liggja
um afdrifaríka vinstri veltu þotunnar
í aðfluginu til Pittsburgh.
Á mánudag gaf sig fram starfs-
maður viðhaldsdeildar USAir sem
sagðist hafa séð rauðbrúnan reyk-
hnoðra koma út úr þotuskrokknum.
O’Dowd fengið það verkefni.
Tæknin ræður heldur ekki við
eyrun eða nákvæmt útlit nefs og
vara og hún segir ekkert um
hvernig fólk var yfirlitum. „Þetta
hefur verið afar erfitt en
skemmtilegt enda er fólkið ólíkt
og hefur sín ákveðnu persónuein-
kenni,“ segir O’Dowd.
Dominic Tweddle, aðstoðarfor-
stjóri Fornleifasjóðsins í Jórvík
eða York, segir, að ekki sé til
betri leið við að nálgast fólk, líka
það, sem er látið fyrir löngu, en
að standa frammi fyrir því aug-
liti til auglitis. „Þetta er furðuleg
upplifun og nú hafa önnur söfn
hér í landi og erlendis beðið okk-
ur að vinna sams konar myndir
fyrir þau.“
Kairó. Reut*r.
NAFIS Sadik, framkvæmdastjóri
mannfjöldaráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, sagði hana hafa heppnast
frábærlega en ráðstefnunni lauk í
Kaíró í gær. Páfagarður veitti skil-
yrtan stuðning sinn við lokaályktun
ráðstefnunnar en lagði á það áherslu
að hann héldi fast við skoðanir sínar
á fóstureyðingum og getnaðarvörn-
um. Hefur andstaða Páfagarðs verið
harðlega gangrýnd og eru uppi efa-
semdir um hvort staða hans innan
SÞ eigi að vera óbreytt.
Tilgangur áætlunar SÞ er að
draga úr fólksfjölgun með því að
auðvelda fólki aðgang að fjölskylduá-
ætlunum og að auka rétt kvenna til
að taka ákvarðanir er varða þeirra
eigið líf. SÞ segja að beri áætlunin
árangur, verði mannkynið um 7,27
milljarðar árið 2015. Bregðist hún
kunni fjöldinn að fara í 7,92 millj-
arða árið 2015 og 12,5 milljarða
árið 2050.
Gagnrýni vísað á bug
Páfagarður stóð gegn samþykkt
lokaályktunar ráðstefnunnar fram
undir það síðasta. Hefur hin harða
afstaða Páfagarðs verið gagnrýnd á
ráðstefnuni, bæði af kaþólikkum sem
Víkingasafnið í Jórvík var opn-
að fyrir 10 árum og er nú einn
af 10 stöðum í Bretlandi, sem
draga til sín flesta ferðamenn,
innlenda sem erlenda. Þegar vík-
ingar settust að í Jórvík, sem
þeir gáfu nafn, voru þar 800 ára
gamlar rústir rómverska virkis-
bæjarins Eboracum og hvergi á
Bretlandi hafa fundist meiri
menjar um vikingatímann. Eftir-
og öðrum. Sagði Frances Kissling,
formaður félags frjálslyndra kaþó-
likka, að Páfagarður hefði gert sér
grein fyrir að hann hefði tapað á
andstöðu sinni og með því að sam-
þykkja ályktunina væri hann að
reyna að bæta samskiptin við þjóðir
heims til að tryggja stöðu sína hjá
SÞ.
Á ráðstefnunni virtust fjölmargir
þeirrar skoðunar að endurmeta ætti
stöðu Páfagarðs innan SÞ en hann
á þar áheyrnarfulltrúa. Þá sagði Nic-
olas Biegman, varaformaður nefndar
er vann að ályktun ráðstefnunnar,
að hann teldi að Páfagarður ætti að
hugsa sig tvisvar um áður en hann
tæki þátt í svipaðri ráðstefnu. „Páfa-
garður er stjóm og kirkja... og það
tvennt er erfitt að samræma,” sagði
Biegman. Páfagarður hefur vísað
þessari gagnrýni á bug, segist ekki
einangraður í samfélagi þjóðanna.
Túlka niðurstöðu að vild
Fjöimörg ríki hafa Iýst því yfir að
þau muni túlka ályktun mannfjöldar-
áðstefnunnar eins og þeim sýnist
affarasælast.
Ali Taskhiri, formaður sendinefnd-
ar írana sagðist ekki geta samþykkt
myndirnar sjö eru af fólki, sem
var á aldrinum frá fimm ára til
fimmtugs, og hefur því öllu verið
gefið norrænt eða íslenskt nafn.
Gamall heitir sá fimmtugi og
Brandur fimm ára gamalt barna-
barn hans (Sjá myndirnar). Síðan
kemur kvenfólkið, Gunnvör,
Rannveig, Leoba (Ljúfa?), Inga
og Álfrún.
Heimild: The Independent
orðalag sem léti kynlíf utan hjóna-
bands óátalið eða ýtti undir hug-
myndina um „öruggt kynlíf". Líbýu-
menn mótmæltu orðalaginu „pör eða
einstaklingar", en múslimsk ríki telja
það í raun viðurkenningu á samkyn-
hneigð. Þjóðverjar sögðu að mörg
Evrópulönd hefðu viljað skýrari
ákvæði um kynfræðslu fyrir full-
orðna og ógift pör og réttindi manna
í kynferðismálum.
Bætt staða kvenna
Þröstur Ólafsson, formaður ís-
lensku sendinefndarinnar, ávarpaði
ráðstefnuna í gær á síðasta degi
hennar. í ræðu sinni benti hann m.a.
á mikilvægi þess að bæta stöðu
kvenna, sem væri grundvallarþáttur
í aukinni velferð. Menntun kvenna
yki möguleika þeirra á að draga úr
barneignum. Lagði hann áherslu á
að iðnríkin breyttu landbúnaðar-
stefnu sinni í þá veru að opna mark-
aði fyrir auknum innflutningi frá
þróunarlöndum. Þá vakti Þröstur
athygli á minni fiskveiðum, sagði
nær öll fiskimið að fullu nýtt eða
ofnýtt. Sagði hann að samfélag þjóð-
anna yrði að ýta undir skynsamlega
nýtingu auðlinda sjávar.
Rússar
falla í
Abkhazíu
TVEIR rússneskir friðar-
gæsluliðar voru drepnir og
einn særðist í fyrirsát í hérað-
inu Abkhazíu í gær. Eru menn-
irnir fyrstu gæsluliðamir sem
falla frá því að Rússar hófu
friðagæslu í þessu fyrrum hér-
aði Georgíu. Um 3.000 rúss-
neskir hermenn hafa verið í
Abkhazíu frá því í júlí.
Krímarþing
til starfa
JÚRÍ Meshkov, forseti Krím-
ar, lét í gær undan þrýstingi
þingmanna og lét kalla þingið
saman að nýju. Meshkov leysti
þingið upp um helgina og tók
sér öll völd en þingmenn náðu
fjölmiðlum á sitt vald á mánu-
dag. Fjallaði fyrsti þingfund-
urinn um ástandið í efnahags-
málum, sem er í molum.
Forsetafrú í
framboð
SUSANA Higuchi, forsetafrú
í Perú, tilkynnti í gær að hún
myndi bjóða sig fram í forseta-
kosningum í landinu í apríl á
næsta ári, þrátt fyrir að lög
banni fjölskyldumeðlimum for-
setans að sækjast eftir æðstu
embættum. Higuchi hefur ekki
búið með eiginmanni sínum,
Alberto Fujimori, frá því um
mitt sumar.
Kólera í
Albaníu og
áKrím
KÓLERUFARALDUR er nú í
Albaníu og á Krím. í Albanínu
eru þrír látnir og um 100
manns hafa veikst á einni viku.
Nítján manns hafa veikst á
Krím, á níu svæðum. Á Krím
er aðallega um að ræða flæk-
inga. Segja sérfræðingar í
Úkraínu og Albaníu að ástand-
ið sé ekki bjart.
Minna fylgi
Jafnaðar-
manna
DREGIÐ hefur úr fylgi Jafn-
aðarmanna í Svíþjóð, sam-
kvæmt nýjustu skoðanakönn-
unum. Er hann nú með 42,8%
fylgi samkvæmt könnumn I
Dag en var með 45% fylgi
fyrir viku sína. Þjóðarflokkur-
inn, líklegasti samstarfsflokk-
ur Jafnaðarmanna eykur fylgi
sitt, úr 6% í 9,2%. Hægrimenn
voru með um 22,5%
Skæruverk-
föll áfram
FLUGVIRKJAR SAS-flugfé-
lagsins á Kastrup-flugvelli í
Kaupmannahöfn héldu áfram
skæruverkföllum í gær, þriðja
daginn í röð, og varð flugfélag-
ið að aflýsa 30 flugferðum,
flestum í innanlandsflugi. Á
mánudag varð SAS að aflýsa
50 flugferðum vegna aðgerða
flugvirkja. Samtök danskra
vinuveitenda og dönsku laun-
þegaamtökin (LO) urðu í gær
sammála um að verkfallsað-
gerðir flugvirkjanna væru
ólögmætar og hvöttu þá til
þess að Iáta af þeim.
Mannfjöldaráðstefmmni í Kaíró lokið
Efasemdir um stöðu
Páfagarðs innan SÞ