Morgunblaðið - 14.09.1994, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU i YSINGAR
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólinn Laufásborg v/Laufásveg óskar
að ráða matráð í fullt starfi. Einnig vantar
leikskólakennara eða starfsfólk með aðra
uppeldismenntun í 50% starf eftir hádegi.
Tónlistar- eða myndlistarmenntun æskileg.
Þá vantar leikskólakennara eða þroskaþjálfa
í stuðningsstarf fyrir hádegi.
Nánari upplýsingar gefa Carole Sch. Thor-
steinsson og Anna Sveinsdóttir í síma
17219.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
yoy
Kennarar
Heimilisfræðikennara vantar strax í 2/3
stöðu við Þinghólsskóla í Kópavogi.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 42250.
Tæknifræðingur
Viljum ráða byggingatæknifræðing/verk-
• fræðing til tímabundinna starfa. Þarf að hafa
gott vald á Auto Cad.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl.,
merkt: „Bygg - 7501“, fyrir lokun 16. sept.
Kammerkór
Grensáskirkju
Ókeypis söngkennsla fyrir pilta og stúlkur,
15-19 ára.
Upplýsingar og skráning í síma 15263, hjá
Margréti Pálmadóttur.
Kórskóli Margrétar
Pálmadóttur
Kennsla fyrir 5-9 ára börn.
Upplýsingar og skráning alla morgna 9-12
í sími 626460 og 15263.
Frönskunámskeið -
Alliance Francaise
Haustnámskeið verða haldin 19. sept-
ember-15. desember.
Innritun fer fram alla virka daga kl. 15-19,
að Vesturgötu 2, sími: 23870.
ALLIANCB FRANCAISB
Þýskunámskeið
Germaniu
Námskeiðin fyrir byrjendur og lengra komna
á öllum stigum hefjast 19. september. Innrit-
að verður á kynningarfundi í Lögbergi, Há-
skóla íslands, stofu 102, fimmtudaginn 15.
september kl. 20.30.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma 10705
kl. 11.00-12.30 eða kl. 17.00-19.00.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaniu.
Háseta vantar
Vanan háseta vantar á 200 tn. netabát frá
Grindavík sem fer síðar á línuveiðar.
Upplýsingar í síma 92-68755.
Rannsóknarráð
íslands auglýsir
Rannsóknarráð íslands er stofnað sam-
kvæmt lögum nr. 61/1994 er tóku gildi
1. júlí 1994. Hlutverk þess er að treysta stoð-
ir íslenskrar menningar og atvinnulífs með
því að stuðla að markvissu vísindastarfi,
tækniþróun og nýsköpun.
Eftirfarandi stöður hjá ráðinu eru auglýstar
til umsóknar:
Staða yfirsérfræðings er fer með málefni
Vísindasjóðs og aðstoðar úthlutunarnefnd
og fagráð sem honum tengjast. Krafist er
vísindalegrar sérmenntunar, mikillar starfs-
reynslu og góðra samskiptahæfileika.
Staða yfirverkfræðings er fer með málefni
Tæknisjóðs og aðstoðar úthlutunarnefnd og
fagráð sem honum tengjast. Krafist er verk-
fræðilegrar sérmentunar, mikillar starfs-
reynslu og góðra samskiptahæfileika.
Staða deildarviðskiptafræðings er fer með
söfnun og úrvinnslu hagtalna um rannsókn-
ir, þróun og nýsköpun. Krafist er viðskipta-
eða hagfræðilegrar sérmenntunar, mikillar
starfsreynslu og góðra samskiptahæfileika.
Staða deildarverkfræðings er aðstoðar fag-
ráð og nefndir á vegum Rannsóknarráðs.
Sérhæfing á sviði hugbúnaðarþekkingar
æskileg.
Staða alþjóðafulltrúa er fer með upplýsinga-
mál varðandi alþjóðasamstarf og. aðstoðar
fulltrúa íslands í Evrópusamstarfi sem Rann-
sóknarráð samræmir. Krafist er góðrar há-
skólamenntunar er nýst geti ífjölþættu starfi,
málakunnáttu og góðra samskiptahæfileika.
Staða skrifstofustjóra Tæknisjóðs er sér
um verkefnabókhald og samninga varðandi
styrki úr sjóðnum. Krafist er góðrar almennr-
ar menntunar og mikillar reynslu í skipulags-
vinnu á skrifstofu og hæfileika til nákvæmnis-
vinnu.
Staða skrifstofustjóra Vísindasjóðs er sér
um verkefnabókhald og samninga varðandi
styrki úr sjóðnum. Krafist er góðrar almennr-
ar menntunar og mikillar reynslu í skipulags-
vinnu á skrifstofu og hæfileika til nákvæmpis-
vinnu.
Staða skrifstofustjóra á almennri skrifstofu
Rannsóknarráðs er sér um almenna skrif-
stofuþjónustu og samskiptamál. Krafist er
góðrar almennrar menntunar, og mikillar
starfsreynslu, málakunnáttu, þekkingar á
notkun helstu hugbúnaðargerða við skrif-
stofuvinnu og útgáfustarfsemi.
Staða skrifstofustjóra á alþjóðasviði sem
sér um almenna þjónustu á alþjóðasviði og
aðstoðar við útgáfumál. Krafist er háskóla-
menntunar eða góðrar almennrar menntun-
ar, ásamt mikilli starfsreynslu, kunnáttu í
meðferð útgáfuforrita, góðrar málakunnáttu
og samskiptahæfileika.
Launakjör samkvæmt samningum opinberra
starfsmanna.
Umsóknir um stöður þessar ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf sendast
framkvæmdastjóra Rannsóknarráðs fyrir
28. september nk.
AUGLYSINGAR
Ungbarnasund
Námskeið í ungbarnasundi hefjast miðviku-
daginn 28. sept. Kennt verður í sundlauginni
á Kópavogshæli.
Nánari uppl. og skráning í síma 643023.
Sæunn Gísladóttir, íþróttakennari.
: Skemmurtil
ss niðurrifs
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í húseignir á
Einarsreit við Reykjavíkurveg til niðurrifs og
brottflutnings. Um er að ræða nokkrar stórar
bogaskemmur og önnur hús, sem notuð
voru til fiskvinnslu.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6, s. 53444 og
áhaldahúsið við Flatahraun, s. 652244.
Húsin verða sýnd þeim sem þess óska eftir
samkomulagi.
Tilboðum skal skila á skrifstofu bæjarverk-
fræðings á eyðublöðum sem þar fást eigi
síðar en kl. 11.00 þriðjudaginn 20. septem-
ber 1994.
Bæjarverkfræðingur.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Borgfirðingar
athugið!
Opinn umræðufundur með Ólafi G. Einars-
syni, menntamálaráðherra um nýja mennta-
stefnu verður haldinn á Hótel Borgarnesi í
kvöld kl. 20.30.
Menntamálaráðherra.
KIPULAG RÍKISINS
Auglýsing
um deiliskipulag Alviðru 1992-2012
Samkvæmt ákvæðum 4.4. í skipulagsreglu-
gerð nr. 318/1985, með breytingu 1. júlí
1992 er hér með lýst eftir athugasemdum
við tillögu að deiliskipulagi miðstöðvarsvæð-
is Alviðru og aðkomu að Öndverðarnesi.
Deiliskipulagstillagan nær til miðstöðvar-
svaeðis Alviðru og aðkomu frá þjóðvegi 42,
að Öndverðarnesi.
Jafnframt er til sýnis tillaga að skipulagi jarða
Alviðrustofnunar, Alviðru í Ölfushreppi og
Öndverðarnesi í Grímsneshreppi.
Tillagan ásamt greinargerð liggur frammi á
skrifstofu Ölfushrepps, skrifstofu Grímsnes-
hrepps og hjá Skipulagi ríkisins, Laugavegi
166, frá 15. september til 13. október, á
skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 1. nóvember
á skrifstofu Ölfushrepps, Selvogsbraut 2,
Þorlákshöfn, skrifstofu Grímsneshrepps, að
Borg í Grímsnesi og skulu þær vera skrifleg-
ar.
Oddviti Ölfushrepps,
Oddviti Grímsneshrepps,
Skipulagsstjóri ríkisins.
ÝMISLEGT
Dansherra óskast
Dansherra óskast fyrir 12 ára stelpu sem
er 161 sm á hæð. Hefur verið í samkvæmis-
dönsum í 4 ár.
Upplýsingar í síma 92-27183 eða 92-27150,
Valdís.