Morgunblaðið - 30.09.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 30.09.1994, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 30. SEFfEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Smiðjan Sliilli íyi'irtælija ern mfsfalleg en augaó neinni' þau FYRIRTÆKI sem sækjast eftir að veita öðrum þjónustu sína hljóta að vekja á sér athygli með ein- hveiju móti. Til þess að vekja á sér athygli þurfa fyrirtæki að merkja með skiltum aðsetur sitt _svo að auðvelt sé að fínna þau. Ég held að mörg fyrirtæki og þjónustuaðil- ar við hús og hý- býli manna þurfí að hugleiða þessa hlið rekstrarins. Ég verð að segja það eins og er að það hefur oft eftir Bjorna kostað miK Þó Óiofsson nokkra leit og eft- irgrennslan að hafa upp á síma eða heimilisfangi mismunandi fyrirtækja sem ég hefí þurft að hafa samband við til þess að afla upplýsinga og eiga viðskipti við. Það er engu líkara en að sumir séu feimnir við að setja upp skilti til þess að láta fyrirtækið vera áberandi. Þeir sem ferðast hafa eða dval- ið í öðrum löndum hafa sjálfsagt veitt því athygli hvernig margs- konar skilti setja svip á götumynd- ir og húsaraðir. Skiltin eru misfal- !eg á að líta en augað nemur þau. Þannig eru fjölmargir fyrirtækja- bílar vel merktir með áberandi áletrunum, með upplýsingum um «-vöruflokka o.fl. Gulu blöðin Póstur og sími gefur út bækur sem eru landsmönnum ómetanleg upplýsingarit, það er símaskráin og atvinnuskráin. Vel má vera að ýmsum fínnist óþarfí að vera með þetta í tveimur bókum og svo er næstum það sama í báðum bókun- um! Lesendum smiðjunnar er kunn- ugt um að sumar greinar mínar fjalla um iðnaðarmenn, iðnfyrir- tæki og ýmislegt sem viðkemur húsum og heimilum manna. Það er því gott að geta flett upp í riti sem hefur skrá yfir samstæð efni og iðju. Þrátt fyrir þessi rit getur verið erfítt að finna sumt. Þannig henti það mig að leita án árang- urs að innanhússarkitektum. Eg leitaði undir heitinu innanhúss- arkitektar og húsgagnaarkitektar, eða með viðskeytinu hönnuðir í stað arkitektar. Ég fann ekki neinn lista yfír slíka menn. Ég minntist þess að hafa séð hefti með nafnalista í verslun í sumar og fór þangað og spurðist fyrir. Þar hitti ég innanhússarkitekt sem gaf mér góðfúslega þær upplýs- ingar sem mig vantaði. FHI er skammstöfun félagsins sem heitir „Félag húsgagna- og innanhúss- arkitekta". Reyndar hefði ég getað fundið nafnaskrá á gulu blöðum atvinnuskrárinnar. Þetta er nú aðeins lítið dæmi um hve ráðviltur maður getur ver- ið ef leitað er ákveðinnar þjón- ustu. Mér sýnist sem símaskráin sé hin sama í báðum bókunum, þ.e. óþarft að hafa þær tvær. Þjón- F a steig n asa la n KJÖRBÝLI NÝBÝLAVEGUR 14 #>íu m ■ ,* - - «« - 200 KÓPAVOGUR OlMI 641400 FAX 43307 o 5 Símatími laugard. kl. 11-13. 2ja herb. Ofanleiti 7 - 2ja. Glæsil. 65 fm íb. á 1. hæð í litlu fjölb. Nýtt parket. Fráb. stað- setn. V. 6,7 m. Furugrund - 2ja. Glæsll. 58 fm (b. á 3. hæð (efstu) í litlu fjölb. Áhv. 3,5 mlllj. Bsj. V. 6,9 m. Eskihlíð 16a - 2ja. Falleg og rúmg. 66 fm íb. á 1. hæð ásamt aukaherb. í risi (leigumögul.). V. 5,6 m. Hamraborg - 2ja. Séri. faiieg 53 fm íb. á 3. hæð_, Parket. V. 5,4 m. Kelduhvammur 10 - Hf. Glæsil. uppg. 2ja herb. Ib. á 1. haað. Sérinng. Áhv. byggsj. 2,8 m. V. 5,6 m. Digranesvegur - 2ja. Falleg 61 fm íb. á 1. hæð. V. 5,4 m. Hamraborg 32 - 2ja - laus. 52 fm íb. á 2. hæð. V. 5,1 m. 3ja herb. Ástún 2 — 3ja. Falleg 74 fm íb. á 3. hæð í nýmáluðu fjölb. Fallegt útsýni. Áhv. 1 m. V. 6,8 m. Hamraborg - 3ja. Falleg 70 fm ib. á 3. hæð í lyftuh. V. aöeins 5,9 m. Engihjalli 19 - 3ja. Sérl. falleg 79 fm ib. á 1. hæð. V. aðeins 5,9 m. Ástún - 3ja - Kóp. Sérl. falleg 80 fm íb. á 4. hæð. Áhv. 2,6 m. V. 6,9 m. Ásbraut - Kóp. - 3ja. Sérl. falleg 82 fm ib. á 3. hæö. Ákv. sala. V. 6,6 m. Kársnesbraut 77 - 3ja-4 + bilsk. 3ja herb. íb. ásamt aukaherb. í kj. 26 fm bílsk. Áhv. Bsj. 3,4 m. V. 7,6 m. Hverafold 23 - 3ja. Glæsil. 90 fm endaíb. á efstu hæð í litlu fjölb. Mikið útsýni. Áhv. bsj. 3,5 m. Ákv. sala. Fannborg 5 - Kóp. - 3ja. Faiieg 83 fm íb. á götuh. Hentar f. aldraöa. 30 fm suðursvalir. V. 5,9 m. 4ra herb. og stærra Engihjalli - 4ra. Falleg 98 fm íb. á 6. hæð. Frábært útsýni. Parket. Mögul. skipti á 2ja herb. íb. Áhv. 2 m. V. 7,2 m. Kóngsbakki 7 - 4ra. Falieg 90 fm íb. á 3. hæð. Áhv. 2 m. V. 6,8 m. Furugrund 68 - 4ra + bílskýli. Sérl. falleg 85 fm íb. á 4. hæð í lyftuh. ásamt stæði í bilskýli. Hús og sameign nýmáluð. Áhv. 3,1 millj. V. 7,5 m. Brekkuhjalli Kóp. - sérh. Góð 118 fm íb. í eldra húsi. Stór lóð. V. 6,6 m. Engihjalli 7 - lítið fjölb. Faiieg 108 fm íb. á 2. hæð (efstu). V. 7,7 m. Álfatún - 4ra + bílsk. Glæsil. 100 fm íb. á 2. hæð ásamt bílskúr. V. 10,7 m. Laufvangur 3. 5 herb. íb. á 2. hæð. V. 8,5 m. Sérhaeðir Víðihvammur 7 - sérh. Giæsii. 122 fm efri hæð ásamt 32 fm bílsk. 60 fm sólsvalir. Sólstofa. Skipti á minni eign mögul. V. 10,9 m. Digranesvegur Kóp. - sérhæð. Sérl. falleg 140 fm íb. á 1. hæð ásamt 27 fm bílskúr. V. 10,7 m. Digranesvegur Kóp. - sérhæð. Falleg nær fullb. 130 fm íb. á jarðh. í þríb. Sér inng. útsýni. Suöurgarður. Áhv. 5 m. húsbr. m. 5% vöxtum. V. 8,6 m. Nýbýlavegur - sérh. 120 fm neðri sérhæð í tvíb. ásamt bílsk. Skipti mögu- leg. Áhv. 4,0 m. (Bsj.). V. 9,2 m. Raðhús - parhús Arnartangi 41 - Mosbæ. Fallegt 94 fm endaraðh. ésamt 30 fm bílsk. Áhv. 4,8 m. V. aöelns 8.950 þ. Laust. Álfhólsvegur - parhús. Giæsii. 160 fm parh. m. innb. bílsk. Skipti mögu- leg. V. 12,6 m. Einbýli Alfhóisvegur 29 - Kóp. Skemmtil. 85 fm einb. ésamt 42 fm bílsk. V. 8,5 m. Mánabraut - Kóp. - einb. Fallegt 173 fm steinhús m. innb. bílskúr., Frá- bær staðs. nálægt sjó. Mikið endurnýj- að. Ákv. sala. V. 13,9 m. Holtagerði Kóp. - einb. Giæsii. 230 fm tvíl. einb. með innb. 28 fm bilsk. Arinn í stofu. Mögul. á sérib. á jarðh. Áhv. 2,5 millj. V. 14,9 m. Fagrabrekka 31 - einb. Séri. fal- legt 185 fm einb. á tveimur hæðum með innb. bílsk. Fráb. útsýni. V. 13,3 m. Melgerði Kóp. - einb. Skemmtil. tvil. 160 fm hús ásamt 41 fm bílsk. Suðurgarður m. gróð* urhúsi. Hús nýklætt og málaö ut- an. V. 13,5 m. Víðigrund - einb. Faiiegt 130 fm einb. á einni hæð. V. 11,8. Hvannhólmi - einb. Fallegt tvíl. 227 fm hús ásamt 35 fm bílsk. Skipti mögul. V. 15,8 m. I smíðum Vesturás 10 og 16. Glæsil. 137 fm endaraðh. ásamt 28 fm bilsk. húsin selj. fullb. að utan og máluð, fokh. að innan. V. 9,2 m. Sjávargrund - Alviðra. 153 fm íb. ásamt 21 fm bílsk. V. 10,5 m. Lindasmári 41-47. Glæsil. 107 fm íb. á neðri hæð og 160 fm íb. á tveimur hæðum í tvíbýlisenda með sérinng. V. 8,1 m. og 8,9 m. Ekrusmári 3. Raðhús. V. 8,1 m. Eyrarholt 14 - Hfj. 160 fm íb. á tveimur hæðum í litlu fjöib. Afh. tílb. u. trév. og fullfrág. að utan. Frábært útsýni. Góð greiðslukj. Selj- andi ESSO Oliufélagið hf. V. 9,3 m. Fagrihjalli 42/54 - 2 parh. Góð greiðslukj. V. frá 7.650 þús. Lindasmári - fjölb. 2ja, 3ja og 4ra herb. íb. tilb. til innr. V. 5,2-7,9 m. Eyktarsmári 4-6 - raðh. 140 fm raðh. m. innb. bílsk. V. 7,5 m. Bakkasmári 2 - parhús. Vel hann- að 174 fm parh. 4 svefnh. Endahús m. útsýni. V. fokh. 8,5 m. Gullsmári - íb. fyrir aldraða. 2ja og 3ja herb. íb. i lyftuhúsi. V. frá 5.990 þ. Atvinnuhúsnæði Laufbrekka - fb.- og atv.húsn. Sambyggt íbúðar- og atv.húsn, 225 fm á neðri hæð og 192 fm raðhús á efri hæð. Höfum til sölu fyrir Kópavogs- kaupstaö neðangreindar eignir: 458 fm skrifsthúsn. á 1. hæð að Hlíðarsmára 8, Kópavogi. 765 fm skrifstofuhúsn. á 3. hæð að Hlíðarsmára 10, Kóp. 983 fm skrifstofuhúsn. á 2. og 3. hæð að Hafnarbraut 11, Kóp. Hægt er að skipta eignunum upp í minni einingar. Verð: Tilboð. Krístjana Jónsdóttir, rítari/sölumaður. Rafn H. Skúlason, lögfr., lögg. fast.sali. HÚSASMIÐJAN, greinilegt og smekklegt skilti. GÖMLU skiltin, London og Apótek, sjást vel. ustuskráin á gulu blöð- unum væri góð og[ nauðsynleg, ef hún væri meiri og veitti fyllri upplýsingar. Iðnmeistarar Hugsum okkur að mig vanti að finna húsasmíðameistara til þess að sjá um viðgerð á íbúð. Undir liðnum húsaviðgerðir eru skráðir nokkrir menn og fyrirtæki. Ég veit að fleiri eru verktakar sem eru húsasmíða- meistarar en ég fínn þá ekki undir því starfsheiti. Þeir eru etv. undir yfírskrift- inni byggingameistar- ar. Múrarameistarár eru fáir. Fagfélög þessara stétta þurfa að birta í slíkri skrá nöfn þeirra félags- manna sem virkir eru og vilja láta sín getið. Bæði þessi meistarafé- lög ættu t.d. að geta sameinast um að skrá fé!aga sína einnig undir heitinu byggingameistarar. Ef blaðað er í gulu blöðum síma- skrárinnar má sjá einstaka félög sem skrá nöfn sinna manna, ég nefni t.d. lækna og lögmenn. Ef við þurfum hinsvegar að fá gert við þakrennur eða annað sem heyrir undir blikksmiði, þá sýnist mér að ekki séu allir blikksmiðir skráðir í þessa skrá. Þannig má halda áfram að blaða og fletta, skráin er takmörkuð. Stundum er fólk varað við að semja um viðgerðir við ófaglært fólk. Það á nánast við um allar stéttir. Væri aftur á móti hægt að fletta upp á skrám sem viðkom- andi félög hafa sent til birtingar, ætti fólk hægar um vik að full- vissa sig um þekkingu viðkomandi verktaka. Skilti Skilti eru þörf. Það er erfítt að fínna fyrirtæki sem ekki er sæmi- lega vel merkt. Ekki er sama hvernig þau eru úr garði gerð, en þeirra er þörf. Menn sem reka atvinnufyrirtæki og nota bíl sér- staklega í þágu fyrirtækisins ættu einnig að merkja bílinn og auglýsa á þann hátt vinnu sína eða vöru. Einhverjum kann að finnast ég skrifa eins og hér sjáist engin skilti eða fyrirtækjamerkingar, ég á fyrst og fremst við að mér sýn- ist sem margir iðnaðarmenn séu of hlédrægir og hógværir. Það er viðkunnanlegt og skemmtilegt að sjá hvað menn hafa fyrir stafni, svo sem: Skósmiður, Hárgreiðslu- stofa, Rakari, Saumakona, Klæð- skeri, Húsgagnasmiður, Bólstrari, Blikksmiður, Röralagnir, Gluggar og gler o.s.frv. Rétt er það, við sjáum þesskonar auglýsingar stundum, þær mega bara vera al- gengari og bíll sem gefur svona upplýsingar er auglýsing á hjólum. Augað sér Nýlega var ég að leita til fyrir- tækis sem ég hafði næstum ekið framhjá. Samt var ég að leita og horfa út um bílgluggann og samt blöstu við mér stórir stafír. Staf- irnir voru rauðir og stórir en það nægði mér tæplega. Ætli sjónin sé farin að dofna? Það kann að vera. Ég hygg þó að litirnir hafí ekki spilað nógu vel í skiltinu. Stórir rauðir stafír á dökkgráum steinlit. Ef stafirnir væru með ljós- ari lit sæjust þeir betur, eða ef steinninn undir þeim væri málaður með björtum lit. Málarar og aðrir sem vinna við að mála skilti eða yfirleitt að velja saman liti mundu hafa valið betur. Skilti málarameistarans hlýtur að vera meistara sínum góð aug- lýsing. Með þessari grein fylgja myndir af myndarlegum og vel heppnuðum merkingum og eru skiltin á annarri myndinni mun eldri en á hinni, sjást þó vel úr fjarska. Margar smiðjugreinar hafa verið skrifaðar um iðnaðar- menn og verk þeirra. Þessi grein er einnig skrifuð sem hvatning til þeirra um leið og efnið snertir okkur öll. Iðnaðarmenn fá oft neikvæða umræðu að ósekju. Það er eins og margir telji það sér til gildis að segja sem svo: „Iðnaðarmenn, það eru menn sem ekki er hægt að treysta, þeir standa ekki við það sem þeir lofa.“ Það er ólíkt að starfa sem daglaunamaður eða að vera í föstu starfí þar sem maður hefur ákveðinn vinnutíma og ákveðin laun fyrir mánuðinn. Iðn- aðarmaðurinn keppist við að ljúka sínu á tilsettum tíma. Oft koma upp ófyrirséð atriði í verkinu sem verður að ljúka, áður en farið er í næsta verk. Ekki væri betur séð að yfirgefa hálfunnið verk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.