Morgunblaðið - 28.10.1994, Page 2
2 C FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Fast-
eigna-
sölur
í bladinu
Agnar Gústafsson 6
Ás 16
FJÖLBÝLISHÚSIÐ mun rísa við Sólvang í Hafnarfirði. í því verða 28 íbúðir og frá þeim verður m. a. gott útsýni niður með Læknum.
Ásbyrgi 25
Berg 28
Hafnarfjöróur
Borgir 24
Eignahöllin 6 -24
Eignamiðlunin 3-4
Eignasalan 18
Fasteignamark. 19
Fasteignamiðlun 20
Fasteignamiðstöðin 5
Fjárfesting 6
Byggðaverk byggjr 28
íbúóir fyrir aldraóa
Fold 12-13
Framtíðin 18
Gimli O) i co
Hátún 4
Hóll 14-15
Hraunhamar 1 1
Húsakaup 16
Húsið 13
Húsvangur 17
Kjörbýli 26
Kjöreign 7 & 15
Laufás 4
Lyngvík 20
SEF hf. 24
Séreign 15 & 23
Setrið 20
Skeifan 10
Stakfell 21
Þingholt 24
BY GGING AFYRIRTÆKIÐ
Byggðaverk er að hefja smíði á 28
íbúða fjölbýlishúsi fyrir Höfn, félag
eldri borgara í Hafnarfírði. Hönnuð-
ir eru arkitektamir Finnur Björg-
vinsson og Hilmar Þór Bjömsson.
Bygging þessi verður vönduð að allri
gerð og m. a. einangruð og klædd-
að utan. Hún á því að verða mjög
viðhaldslétt í framtíðinni. Kom þetta
fram í viðtali við Kristin Jörundsson,
aðstoðarforstjóra Byggðaverks.
Fyrirhugað fjölbýlishús stendur
við Sólvang og verður með góðu
útsýni yfir opna svæðið niður með
Læknum í Hafnarfírði og auk þess
sést þaðan vei yfir Stekkjahraun og
til Ásfjalls. Húsið er annar áfangi í
íbúðarbyggingum Hafnar, en íbúðir
í því verða aðeins minni en í fyrri
áfanganum.
Þeim áfanga lauk í fyrra, en í
honum voru 40 íbúðir. íbúðarbygg-
ingar þessar eru hluti af enn meiri
uppbyggingu á Sólvangssvæðinu
fyrir aldraða. Þess má geta, að Bú-
seti hefur fest kaup á nokkrum íbúð-
um í fyrirhugaðri nýbyggingu, en
það mun vera nýmæli, að Búseti
hasli sér völl í íbúðum fyrir aldraða.
Nú starfa um 50 manns hjá
Byggðaverki fyrir utan undirverk-
taka og sagði Kristinn Jörundsson,
Húsbréfaviðskipti
Hjá okkur nýtur þú ávallt
hagstæðs verðs
og góðrar ráðgjafar
í húsbréfaviðskiptum.
Vettvangur húsbréfaviðskipta.
L f
Landsbanki LANDSBRÉF HF.
íslands Löggilt veröbrófaíyrirtœki.
BankJallra landsmarma Aöili aö Veröbréfaþingi íslands.
Landsbréf hf. eru viðskiptavaki húsbréfa
skv. sérstökum samníngi við Húsnæðisstofnun ríkisins.
að verkefnastaða fyrirtækisins
mætti vera betri en væri samt
þokkaleg miðað við aðstæður á
markaðnum. — Við höfum verið með
nokkur umfangsmikil verkefni í
borginni, sagði' Kristinn. — Fyrir
skömmu lukum við við Rimaskóla
fyrir Reykjavíkurborg og við Fléttu-
rima'höfum við verið með 32 íbúða
fjölbýlishús í smíðum.
Það er þegar búið að afhenda
hiuta af þessum íbúðum og langt
komið með að ljúka þeim íbúðum,
sem eftir eru. Þá má nefna, að við
erum nýbúnir að afhenda knatt-
spyrnufélaginu Fram stórt og glæsi-
legt íþróttahús.
Að Laugavegi 42 erum við að
byggja myndarlega tengibyggingu
fyrir verzlunina Evu. Ekki má
gleyma mjög umfangsmiklu verkefni
fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur við
að bijóta upp og lagfæra Árbæjar-
stífluna og loks erum við að innrétta
húsnæði í Viðarhöfða. Til viðbótar
erum við með mörg minni verkefni
í gangi í borginni.
Auk fyrirhugaðs fjölbýlishúss fyr-
ir Höfn erum við með fokhelt 15
íbúða fjölbýlishús í smíðum við Há-
holt 16 í Hafnarfirði. Það stendur
við hliðina á Turninum svonefnda í
Hvaleyrarholti, en það er 20 íbúða
fjölbýlishús, sem Byggðaverk byggði
einnig á sínum tíma. Loks má nefna
11 íbúða blokk við Suðurbraut í
Hafnarfirði, sem búið er að grafa
grafa fyrir.
— Það er ljóst, að það vantar
verkefni á markaðinn, sagði Kristinn
Jörundsson að lokum. — Við höfum
þurft að segja upp talsverðum mann-
skap í haust, en vonumst til þess,
að ekki þurfi að segja fleirum upp
úr þessu.
Markaðurinn
Vcxtír hækka
VEXTIR á fasteignaveðbréfum í
húsbréfakerfínu hafa verið hækk-
aðir úr 5,0% í 5,1% í tengslum við
útgáfu á 4. flokki húsbréfa 1994.
Það eru þeir vextir sem íbúðar-
kaupendur greiða af fasteignaveð-
bréfum sem þeir gefa út við íbúðar-
kaup og seljendur geta selt hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins og feng-
ið greitt fyrir með húsbréfum úr
hinum nýja flokki.
Seljendur íbúðarhúsnæðis, sem
taka við fasteignaveðbréfum
og selja Húsnæðisstofnun þau, fá
hins vegar áfram húsbréf sem bera
■■■■hí 4,75% vexti.
Vaxtahækkun
þessi lendir því á
íbúðarkaupend-
um. Hún stafar
af hækkun svo-
kallaðs ábyrgðar-
gjalds í húsbréfa-
kerfinu, sem ætl-
að er að mæta
hugsanlegum útlánatöpum í kerf-
inu í framtíðinni. Það hefur nú
verið hækkað úr 0,25% í 0,35%.
eftir GrétarJ.
Guómundsson
Áhrif á fasteignamarkaðinn
Það er ekki við því að búast að
þessi vaxtahækkun muni koma til
með að hafa mikil á áhrif á fast-
eignamarkaðinn ein og sér.
Greiðslubyrði af einnar milljón
króna láni í húsbréfakerfinu hækk-
ar úr um 70.700 krónum á ári í
um 71.400 krónur, eða um 700
krónur, miðað við fast verðlag.
Aukin afföll
Ávöxtunarkrgfa húsbréfa hefur
haldið áfram að hækka og er nú
komin í um 5,7%. Afföll af húsbréf-
um eru um 10%. íbúðarseljandi
sem fær 3 milljónir króna í hús-
bréfum við sölu íbúðar fær því
aðeins um 2,7 milljónir króna við
sölu þeirra á fjármagnsmarkaði.
Þessi staðreynd ætti að leiða til
þess, að þeir íbúðarseljendur, sem
geta beðið með sölu íbúðar, athugi
sinn gang vel og leiti upplýsinga
um hvaða þróun sé væntanleg í
vaxtamálum. Gallinn er hins vegar
sá að spár sérfræðinga um hvers
sé að vænta á næstunni í þeim
efnum eru misvísandi.
Vanskil íbúðareigenda
Þegar minnst er á misvísandi
upplýsingar, er unnt að fullyrða,
að það eigi við um umræður um
vanskil íbúaðareigenda, sem verið
hafa í fjölmiðlum og á fleiri stöðum
að undanförnu. Því miður virðist
sem ýmsir túlki upplýsingar, sem
birtar eru um vanskil íbúðareig-
enda, eftir því hvernig það hentar
þeim hverju sinni. Vissulega hafa
vanskil af lánum íbúðareigenda
aukist.Við öðru er ekki að búast
þegar tekjusamdráttur á sér stað.
En, þegar sagt er t.d., að vanskil
í húsbréfakerfinu séu 15 milljarðar
króna, þegar hið rétta er að þau
eru um 700 milljónir króna, þá eru
umræðumar komnar út um víðan
völl. Það sama á við þegar sagt
er að um 60% skuldara í húsbréfa-
kerfinu séu í vanskilum, þegar hið
rétta er að um 20% skuldara eru
í vanskilum. Umræður um vanskil
íbúðareigenda á þessum nótum eru
ekki líklegar til þess að hafa já-
kvæð áhrif.
Ruglingsiegar umræður
Reyndar á það oft við um um-
ræður um húsnæðismál, að þær
verða ruglingslegri eftir því sem
þær verða meiri, sem síðan hefur
áhrif á fasteignamarkaðinn. Fast-
eignaviðskipti eiga til að aukast
með auknum umræðum um hús-
næðismál. Margir óttast að í kjöl-
far mikilla umræðna verði gripið
til einhverra úrræða sem geti haft
áhrif á lánamöguleika eða annað
sem tengist íbúðarkaupum.
Greiðsluerfiðleikar
og fasteignaviðskipti
Vanskil íbúðareigenda eru graf-
alvarlegur hlutur. Það leikur sér
enginn að því að greiða ekki af
lánum sínum.
Dráttarvextir og annar van-
skilakostnaður er fljótur að hlaðast
upp ef dráttur verður á því að
skuldarar geti staðið í skilum með
afborganir af lánum sínum. Þetta
á að sjálfsögðu sérstaklega við
eftir því sem lánin eru hærri, svo
sem húsbréfalán.
íbúðareigendur, sem eru með
húsbréfalán og lenda í vanskilum,
geta átt verulega erfitt uppdráttar,
ef tveir, þrír eða fleiri gjalddagar
lenda í vanskilum. Þá verður sala
íbúðar því miður oft eina raunhæfa
úrræðið sem fyrir hendi er til að
leysa erfiðleikana.
Þá kemur sér vel hve afgreiðsl-
ur í húsbréfakerfinu ganga þrátt
fyrir allt greiðlega fyrir sig, ef
undan eru skilin stopp sem vilja
verða þegar húsbréfaflokkar klá-
rast. Mikil fasteignaviðskipti á
þessu ári stafa ekki síst af því að
margir íbúðareigendur hafa lent í
töluverðum greiðsluerfiðleikum
vegna tekjusamdráttar og annarra
ófyrirséðra ástæðna.
Höfundur er rekstrarstjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins.