Morgunblaðið - 28.10.1994, Síða 27

Morgunblaðið - 28.10.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994 C 27 íslciizkur bygg- in^artónaðiir átunamótum ÍSLENZKUR bygging- ariðnaður stendur í dag á ákveðnum tímamót- um. Með samningunum um Evrópska efnahags- svæðið má búast við aukinni samkeppni er- lendis frá, sérstaklega í framleiðslu á ýmsum húshlutum. Jafnframt eru aðstæður þannig á evrópska markaðnum vegna gifurlegrar hús- næðiseklu í nýfrjálsum ríkjum Austur-Evrópu að íslensk byggingafyr- irtæki ættu að eiga nokkur sóknarfæri til útflutnings sé rétt á Orn Kjærnested málum haldið. Ég mun í þessu erindi fyrst og fremst fjalla um íbúðamark- aðinn og lítilega um útboðsmarkað- inn. Staða íslensks byggingariðnaðar í dag er mjög erfið eftir mikinn sam- drátt í framkvæmdum undanfarin ár. Það er því nauðsynlegt að styrkja undirstöðurnar og vil ég nefna nokk- ur atriði sem stefna í þá átt. 1. Styrkja þarf samkeppnisað- stöðu byggingariðnaðarins á íslensk- um markaði. Tryggja þarf að íslensk fyrirtæki í byggingariðnaði sitji alltaf við sama borð og erlend í útboðum. Koma þarf í veg fyrir að íslenskum framleiðendum sé gert að uppfylla strangari kröfur en erlendum sam- keppnisaðilum eins og stundum hefur viljað brenna við. 2. Auka þarf möguleika kaupenda á að eignast sína eigin íbúð og stöðva útþenslu félagslega íbúðarkerfísins. Lengja þarf lánstímann í t.d. 40 ár og hækka lánshlutfall. Það mætti t.d. hugsa sér að lánshlutfall hjá fólki sem er að kaupa sína fyrstu íbúð yrði allt að 80%. 3. Hvetja þarf kaupendur til að fjárfesta sem næst þörfum sínum. Ljóst er að kröfur fólks um stærð og frágang íbúða hafa leitt til þess að fjöldi kaupenda hefur lent í greiðsluerfíðleikum. 4. Finna þarf nýjar leiðir til auk- innar framleiðni og lækkunar á byggingakostnaði. Islenskir hús- hlutaframleiðendur verða að fínna leiðir til að mæta aukinni samkeppni erlendis frá t.d. með sameiningu fyr- irtækja og eða samstarfí við erlenda aðila og bættum gæðum. 5. Síðast en ekki slst þarf að stöðva svarta atvinnustarfsemi í greininni. Sennilega þarf enginn iðn- grein í landinu að þola jafn mikla samkeppni af þessu tagi og bygging- ariðnaðurinn. Það er óþolandi að verulegur hluti vinnu á byggingar- markaði sé unninn af aðilum sem ekki skila lögbundnum gjöldum. íbúðarmarkaðurinn íslenskur íbúðarmarkaður er eðli- Iega mjög háður því opinbera hús- næðislánakerfí sem er við lýði á hveijum tíma. Iðnaðurinn hefurþurft að búa við hveija kollsteypuna á fætur annari í lánamálum og alltaf hafa þeir sem þessum málum stjóma talið sig vera að fínna bestu lausn- ina. Ég tel að húsnæðislánakerfið eigi að færast frá ríkinu yfir til lífeyr- issjóða og banka. Ég tel hreinlega að stjómmálamönnum sé ekki treyst- andi fyrir þessum veigamikla mála- flokki. Ef lífeyrissjóðir tækju þessi mál í sínar hendur tel ég að meiri ró kæmist á á þessum markaði. Við skulum átta okkur á því að í dag eru lífeyrissjóðir kaupendur að 70-80% af öllum húsbréfum sem gefín em út og þeir sem selja era allir aðilar að lífeyrissjóðum. Þama er því um gagnkvæma hagsmuni að ræða. Jafnframt þessari breytingu þarf að lengja lánstímann og hækka íánshlutfall eins og áður hefur verið bent á. Stjómvöld þurfa að hugsa upp á nýtt hvernig þau geti lækkað kostnað sinn af félagslega kerf- inu. í dag er ríkið að niðurgreiða vexti í fé- lagslega kerfínu. Að mínu mati er í mörgum tilfellum verið að niður- greiða vexti til aðila sem ekki þurfa á því að halda. Opinber aðstoð í hús- næðiskerfinu ætti að einskorðast við þá sem ekki eiga neina mögu- leika á að eignast íbúð sem leigja á fijálsa markaðnum. í þessu sambandi mætti hugsa sér að fjárfesting einstaklinga, fyrir- tækja og samtaka í íbúðarhúsnæði til útleigu yrði frádráttarbær frá skatti. Jafnframt yrðu leigutekjur skattfijálsar og hluti leigugjaída kæmi til lækkunar á tekjuskatts- stofni hjá leigjendum. Þetta mundi minnka þrýstinginn á félagslega framt era aðstæður þannig í Evrópu að gífurleg húsnæðisekla er í þeim löndum Austur-Evrópu sem áður voru undir járnhæl kommúnismans. Ég hef á þessu ári reynt að kynna mér þennan markað og þá sérstak- lega í austurhluta Þýskalands. Sé horft til næstu 15-20 ára lýst mér þannig á að þama sé fýsilegur mark- aður fyrir íslenskan byggingariðnað. Þegar múrinn milli austurs og vesturs féll upphófst mikið kapp- hlaup milli byggingarfyrirtækja sér- staklega þýskra’og danskra um að verða fyrst inn á markaðinn. Verð á húsnæði var mjög hátt vegna ónógs undirbúnings og vanmats á mark- aðnum. Markaðurinn var ekki tilbú- inn fyrir þessi háu verð og gullæðið brást. I dag er krafan ódýr hús sem kaupendur ráða við. Þama tel ég að íslensk byggingarfyrirtæki eigi mikla möguleika á að hasla sér völl. Með stuðningi lífeyrissjóða, verkalýðsfé- laga og opinberra aðila væri hægt að fara af stað í smáum stíl. Ég tel að rétt væri fyrir íslenska FRÁ MANNVIRKJAÞINGI, sem fram fór í síðustu viku. Þingið var vel sótt, en það var haldið á vegum Byggingaþjónustunnar. kerfið og örva flárfestingu í íbúðar- húsnæði. Þróun í náinni framtíð Ég sé fyrir mér að í framtíðinni muni verða veruleg fækkun á fyrir- tækjum í íslenskum byggingariðnaði og þau stækka. Margir þeirra sem í dag era að byggja eitt og eitt hús munu ekki standast samkeppnina og hætta. Þá sé ég fyrir mér að hús- hlutaframleiðendur muni í auknu mæli sameinast til að standa af sér erlenda samkeppni og sækja á nýja markaði. Ég tel að nauðsynlegt sé að vera- leg breyting verði á stefnu sveitarfé- laga í úthlutun lóða. Sveitarfélög ættu að mestu að hætta úthlutun lóða en úthluta þess í stað stærri svæðum sem byggingaraðilar geti skipulagt sjálfír og byggt upp. Bygg- ingaraðilar myndu þá sjálfír sjá um að leggja götur og lagnakerfí og býggja upp þjónustu í liverfunum. Þetta mundi leiða til lækkunar á heildarkostnaði við uppbyggingu nýrra íbúðarhverfa. Þá höfum við allt of mörg dæmi um það að lóðir seljist ekki og sveita- félög sitji uppi með Ióðir sem ekki er markaður fyrir. Ég tel augpst að byggingaraðili sem á allt sitt undir þvi að lóðir seljist og er í nánu dag- legu sambandi við markaðinn hafi mun meiri möguleika á að skipuleggja ný íbúðarhverfí með þarfír markaðarins í huga. Þá er einnig nauðsynlegt að endurskoða lög og reglugerðir um byggingar og skipulagsmál með þarfír markaðarins í huga. Útflutningur á byggingariðnaði Með samningum um Evrópska efnahagssvæðið hefur opnast leið fyrir fslenskan byggingariðnað til að margfalda markaðssvæði sitt. Jafn- Auka þarf möguleika kaupenda á að eignast sína eigin íbúð og stöðva útþenslu félagslega íbúðarkerfisins. Lengja þarf lánstímann í t.d. 40 ár og hækka láns- hlutfall. Það mætti t.d. hugsa sér að lánshlut- fall hjá fólki sem er að kaupa sína fyrstu íbúð yrði allt að 80%. lífeyrissjóði að veita frumkvöðlum í íslenskum byggingariðnaði sem treysta sér til að ríða á vaðið ákveð- inn bakstuðning til þessar verkefna. Þegar farið er inn á nýjan markað í öðra landi er nauðsynlegt að það sé gert þannig að sem mest sátt sé um framkvæmdir á því svæði sem byggt er á. Ég tel því að bestur árangur náist með því að ná sem bestu sambandi við heimamenn og virkja þá til jákvæðs samstarfs. Þjóðveijar þekkja merkilega mikið til Islendinga og við eram þekktir fyrir að hafa byggt upp háþróað nútímaþjóðfélag við erfiðar aðstæð- ur. Það virðist því virka vel á Þjóð- veija að kynna ný hús sem byggja á sem íslensk. Og hvað ættum við svo að bjöða Þjóðveijum. Ég tel að við getum auðveldlega hannað hús sem hægt er að framleiða að mestu leyti á Islandi. Þó að atvinnuleysi í austurhluta ÍSLENZK mannvirkjagerð er á háu stigi. Ef rétt er að málum staðið, ættu íslenzkir byggingaverktakar að eiga sóknarfæri er- lendis. Þessi mynd er af Árbæjarsundlaug, sem Álftárós byggði. sinni og starfsmönnum. Það er framskilyrði fyrir því að hægt sé að hyggja að framtíðar upp- byggingu íslensks byggingariðnaðar að þetta ástand sé Iagað strax. Þarna er ábyrgð opinberra innkaupaaðila mikil enda eru ríkið og sveitafélögin langstærstu verkkauparnir. Ég legg því ríka áherslu á að þessir aðilar ^ . gangi fram fyrir skjöldu í því að bæta ástandið, enda hafa þessir aðil- ar hagsmuna að gæta hvað varðar skatta og laun starfsmanna þeirra fyrirtækja sem verða gjaldþrota. Nú er svo komð að íslensk byggingafyr- irtæki sem hafa bolmagn til að taka þátt í stærri útboðum era teljandi á fíngrum annarar handar. Skírar leikreglur nauðsynlegar Til að draga úr þeim undirboðum sem nú viðgangast á markaðnum þarf að móta framtíðar útboðs- stefnu, setja skírar leikreglur og framfylgja þeim. Ég tel ekki sjálf- sagðan hlut að opinberir verkkaupar taki alltaf lægsta tilboði sérstaklega 'c- ekki þegar einsýnt er að um undir- boð er að ræða. Opinberir aðilar ættu að gera þá kröfu til þeirra aðila sem þeir versla við að þeir sýni fram á að þeir standi í skilum með lögbundin gjöld af starfsemi sinni og starfsmanna. Til langs tíma litið þjónar það engan veginn hags- munum opinberra verkkaupa að byggingarfyrirtæki á útboðsmark- aðinum þurfi að bjóða langt undir kostnaðarverði til að eiga möguleika í útboðum. Þegar horft er til framtíðar í ís- lenskum byggingariðnaði þá er það ljóst að okkur eru ákveðin takmörk sett vegna stærðar innanlandsmark- aðarins. Þess vegna tel ég nauðsyn- ' legt að við föram að hugsa af alvöru um útflutning á ísienskum bygging- ariðnaði sem fyrst. Við eigum að gera það á framsækinn hátt og fara , fram með fullri ró en festu og ákveðni. Að lokum þetta, á siðastliðnum 30 árum hefur íslenski hesturinn verið fluttur út í þúsunda tali og nú er svo komið að það era um það bil 80.000 hestar á erlendri grund. Það er sama tala og er á íslandi. Við skulum setja okkur það takmark að gera íslensk hús jafn góð og vinsæl og íslenski hesturinn er, þá er fram- tíðin okkar. Þýskalands sé víða um og yfir 20% er skortur á faglærðu vinnuafli auk þess sem vinnusiðferði er ekki á háu stigi eftir 50 ár undir sósíalista stjórn. Ég tel því að leggja ætti áherslu á að fara inn á markaðinn með byggingaraðferðir sem kalla á sem minnsta vinnu á byggingastað. Ég tel að til að byija með sé nauðsyn- legt að flytja megnið af vinnuaflinu út þannig að ljóst er að auk þess að vera samkeppnishæfír þurfum við að nota sem mest af forframleiddum húshlutum. Það er mín skoðun að aukinn út- flutningur eða samvinna við erlenda framleiðendur sé eina leiðin sem fær er fyrir íslenska húshlutaframleiðend- ur til að standast þá auknu sam- keppni sem þeir standa nú frammi fyrir. Það þarf að snúa við því hlut- falli að af hveijum 100 íslendingum sem sælga vörusýningar erlendis séu 99 að kaupa inn vörur en aðeins einn að selja. Oft stendur skortur á áhættu- flármagni fyrirtækjum fyrir þrifum, sem sækja vilja á erlenda markaði. Ég tel að nauðsynlegt sé að koma á áhættusjóði til eflingar útflutningi í greininni t.d. með þátttöku Iðnlána- ' sjóðs og opinberra lánasjóða. Útboðsmarkaðurinn: Ekki er hægt að ræða stöðu og framtíð íslensks byggingaiðnaðar án r;ss að minnast á útboðsmarkaðinn. dag er staðan á útboðsmarkaðnum þannig að segja má að algjör glund- roði ríki á markaðinum. Fyrirtæki hefja starfsemi að vori og hætta að hausti. Oftar en ekki sér maður sömu aðila aftur með hækkandi sól búna að koma sér upp nýju nafni og kenni- tölu. Þessar einæru plöntur í fyrir- tækjaflórunni eru íslenskum bygg- ingariðnaði til mikils vansa. Þessir aðilar skila hvorki sköttum né öðrum lögbundnum gjöldum af starfsemi Grein þessi er kjami erindis, sem flutt var á Mannvirkjnþingi fyrir skömmu. Höfundur er framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Álftáróss ogá sæti ístjórn Samtaka iðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.