Morgunblaðið - 08.12.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 C 7
SUNNUDAGUR 11/12
VILLTAR
MEYJAR
Maggie Cheung á eftir ár í þrítugt
en hefursamt leikið í 65 kvikmyndum
síðastliðin tíu ár
ÞÓTT Sandra Bullock hafi fallið
áhorfendum vel í geð í Speed,
Meryl Streep sýni sér nýja og
harðari hlið í The River Wild og
gustað hafi af Geenu Davis í Cut-
throat Island eru helstu hörku-
kvendi kvikmyndanna ættuð frá
Hong Kong, eða hvað?
Maggie Cheung á eftir ár í þrí-
tugt en hefur samt leikið í 65
kvikmyndum síðastliðin tíu ár.
Cheung fæddist í Hong Kong,
fiuttist til Croydon á Englandi átta
ára en sneri heim aftur á unglings-
aldri.
í fyrstu reyndi hún fyrir sér sem
ljósmyndafyrirsæta en fékk fljót-
lega hlutverk í fyrstu karate mynd
sinni.
Cheung fór með annað aðalhlut-
verkið í Police Story Jackies Chan
árið 1985 og eftir það rigndi B-
mynda hlutverkum yfir hana. „Það
er afslappað andrúmsloft við tökur
og mjög gaman að leika í svona
myndum," segir hún á ensku sem
bæði ber keim af Hong Kong og
Lundúnum „nema þegar ég er
slegin utan undir í hlutverkinu“.
Arið 1988 lék hún í kvikmynd
eftir Wong Kar-Wai, As Tears Go
By, og kúventi þar með úr aksjón-
myndum til hinna listrænni. Þegar
tækifæri gafst síðan til þess að
starfa með Kar-Wai öðru sinni í
kvikmyndinni Days of Being Wild
slíðraði hún samúræja-sverðið
endanlega. í myndinni leikur Che-
ung brothætta en ráðvillta fegurð-
ardís í Hong Kong sjöunda áratug-
arins, einmana veitingamær sem
í örvæntingu leitar að ást og um-
hyggju.
Sem stendur er hún að bíða
eftir nægilega bitastæðu hlutverki
sem freistar hennar til að binda
endi á langvarandi leyfi sem hún
hefur tekið sér frá störfum.
„Kannski leik ég í hasarmynd eða
mynd af listrænni toga, í Hong
Kong eða Hollywood, það má einu
gilda, sem stendur er ég of úpptek-
in við að vinna upp fjörið sem ég
hef farið á mis við vegna vinnu.“
—ttt i t/
Manchester United
á stafrænu formi
Markaðshyggjan verður seint skafin af
Manchester United og nú hefur skrefið
verið stigið til fulls og alla leið inn í tölvu-
land. Fyrst kom bókin, síðan myndband-
ið. Einhver kynnilíka að hafa asnast til
að kaupa bolina. í dag er hins vegar
hægt að nálgast allt þetta og meira til á
geisladiski fyrir tölvur. Það er ekki um
að villast, fótboltafélagið sem færði
áhangendum sínum Ryan Giggs sængur-
verin og Fredda rauða pennaveskin hef-
ur gengið stafrænu byltingunni end-
anlega á hönd. Með aðstoð tölvu er nú
hægt að sökkva sér ofan í sigurför liðs-
ins á síðasta leiktímabili fyrir fullt og
allt, skoða mörkin, lesa umfjöllun um
hvem leik og komast að ýmsu smálegu
um leikmennina. Hefur það til dæmis
verið gert lýðum ljóst til þessa að uppá-
haldsmatur Pauls Parkers er svínakótel-
ettur? Auk þess er hægt að nálgast pönt-
unarlista félagsins og ef notandanum er
mjög í mun að fá sér Ryan Giggs sængur-
föt er ekki annað að gera en smella með
músinni svo ljóstra megi upp verði og
pöntunamúmeri. Flóknara er það ekki
eða leiðinlegra enda er mun skárra að
leikasér með United heldur en að flækj-
ast í Smithsonian-safninu eða skoða dýr
heimsmerkurinnar með sömu tækni.
Aðeins það besta
fyrir
fiðlusnillinga
rithöfunda
leikara
hljóðfæraleikara
SÆVAR KARL
Bankastræti 9, s. 13470.
UTVARP
Róf 1 kl. 19.35. Frost og funi. Helgorþóttur burno. Þótturinn er helgnður nýútkomnum bornabókum. Umsjón:
Annu Pólino Árnodóttir. (Endurflutt ú Rús 2 nk. sunnudng kl. 8.10.)
RÁS 1
FIH 92,4/93,5
8.07 Morgunandakt: Séra Guð-
mundur Þorsteinsson dómpró-
fastur flytur.
8.15 Tónlist á sunnudagsmorgni.
Konsert í C-dúr eftir Antonio Viv-
aldi Peter Hurford leikur á orgel
Dómkirkjunnar í Ratzeburg í
Þýskalandi
Flugeldasvitan eftir Georg Fried-
rich Handel. Enska kammer-
sveitin leikur; Raymond Leppard
stjórnar.
9.03 Stundarkorn í dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar
(Einnig útvarpað að loknum
fréttum á miðnætti.)
10.03 Lengri leiðin heim. Jón Orm-
ur Halldórsson rabbar um menn-
ingu og trúarbrögð í Asíu. Loka-
þáttur. (Endurfluttur þriðju-
dagskvöld kl. 23.20.)
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Messa í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði Séra Einar Eyjólfsson
prédikar.
12.10 Dagskrá sunnudagsins.
12.45 Veðurfregnir, auglýsingar
og tónlist.
13.00 Heimsókn. Umsjón: Ævar
Kjartansson.
14.00 „Úr himnum ofan" Hug-
myndir manna um himnaríki og
annað líf. Umsjón: Halldór
Reynisson. Lesari með umsjón-
armanni: Anna Kristín Arn-
grímsdóttir.
15.00 Brestir og brak. Lokaþáttur
um islenska leikhússtóniist:
Leikhústónlist frá árinu 1980
fram á þennan dag. Umsjón:
Anna Pálína Árnadóttir. (Einnig
útvarpað miðvikudagskvöld.)
16.05 Voltaire og Birtíngur. Þor-
steinn Gylfason prófessor flytur
síðara erindi. (E'ndurflutt nk.
þriðjudag kl. 14.30.)
16.30 Veðurfregnir.
16.35 Sunnudagsleikritið, Hús-
vörðurinn eftir Harold Pinter.
Þýðing: Elisabet Snorradóttir.
Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson.
Leikendur: Hjalti Rögnvaldsson,
Róbert Arnfinnsson og Arnar
Jónsson. Kynnir: Jóhann Sigurð-
arson.
18.50 Dánarfregnir og augiýsing-
ar.
19.30 Veðurfregnir.
19.35 Frost og funi. Helgarþáttur
barna. Þátturinn er heigaður
nýútkomnum barnabókum. Um-
sjón: Anna Páltna Árnadóttir.
(Endurflutt á Rás 2 nk. sunnu-
dag kl. 8.10.)
20.20 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.00 Hjálmaklettur. Umsjón: Jór-
unn Sigurðardóttir. (Áður á dag-
skrá sl. miðvikudag.)
22.07 Lilja Eysteins Ásgrímsson-
ar. Stefán Karlsson flytur þriðja
lestur af fjórum.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Litla djasshornið. Golden
Gate kvartettinn syngur.
23.00 Frjálsar hendur. Umsjón:
Illugi Jökulsson.
0.10 Stundarkorn í dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar.
(Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
Fréttir ú RÁS 1 og RÁS 2 kl. 8, 9.
10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2 FM 90,1/99,9
8.10 Funi. Helgarþáttur barna.
Umsjón: Elisabet Brekkan. 9.03
Sunnudagsmorgunnvmeð Svavari
Gests. Sígild dægurlög, fróðleiks-
molar, spurningaleikur og leitað
fanga í segulbandasafni Utvarps-
ins. 11.00 Úrval dægurmálaút-
varps liðinnar viku. 13.00 Þriðji
maðurinn. Umsjón: Árni Þórarins-
son og Ingólfur Margeirsson. 14.00
Helgarútgáfan 14.05 Tilfinninga-
skyldan, þekkt fólk fengið til að
rifja upp skemmtilegan atburð eða
áhrifarikan úr ltfi sinu. 14.30 Leik-
húsumfjöllun, Þorgeir Þorgeirson
og leikstjóri þeirrar sýningar sem
fjallað er um hverju sinni spjalla
og spá. 15.00 Hvernig var matur-
inn? Matargestir laugardagsins
teknir tali.
16.05 Dagbókarbrot Þorsteins Joð.
17.00 Tengja. Umsjón: Kristján
Sigurjónsson. 19.32 Milli steins og
sleggju. 20.30 Blágresið blíða.
Umsjón: Guðjón Bergmann. 22.10
Frá Hróarskelduhátiðinni. Umsjón:
Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson. 23.00 Heimsendir.
Umsjón: Margrét Kristín Blöndal
og Siguijón Kjartansson. 0.10
Margfætlan - þáttur fyrir unglinga.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
NÆTURÚTVARPID
1.30Veðurfregnir. Næturtónar
hljóma áfram. 2.00 Fréttir. 2.05
Tengja. Kristján Sigurjónsson.
4.00 Bókaþel. 4.30 Veðurfregnir.
4.40 Næturlög. 5.00 Fréttir. 5.05
Stefnumót með Ólafi Þórðarsyni.
6.00 Fréttir, veður, færð og flug-
samgöngur. 6.05 Morguntónar.
Ljúf lög í morgunsárið. 6.45 Veður-
fréttir.
ADALSTÖDIN
FM 90,9 / 103,2
10.00 Ljúfur sunnudagsmorgunn.
13.00 Bjarni Arason. 16.00 Sig-
valdi Búi Þórarinsson. 19.00 Magn-
ús Þórsson. 22.00 Lifslindin. 24.00
Ókynnt tónlist.
BYLGJAN FM 98,9
7.00 Morguntónar. 8.00 Ólafur
Már Björnsson. 13.00 Pálmi Guð-
mundsson. 17.15 Við heygarðs-
hornið. Bjarni Dagur Jónsson.
20.00 Sunnudagskvöld. Ljúf tón-
list. 24.00 Næturvaktin.
Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BROSID FM 96,7
10.00 Gylfi Guðmundsson 13 00
Jón Gröndal og Tónlistarkrossgát-
an. 16.00 Ókynnt tónlist. 3.00
Næturtónlist.
FM 957 FM 95,7
10.00 Steinar Viktorsson. 13.00
Ragnar Bjarnason. lí.OOSunnu-
dagssíðdegi. 19.00 Ásgeir Kol-
beinsson. 22.00 Rólegt og róman-
tiskt.
X-IÐ FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
13.00 Ragnar Blöndal. 17.00 Hvíta
tjaldið 19.00 Rokk X. 21.00 Sýrður
rjómi. 24.00 Næturdagskrá.