Morgunblaðið - 05.01.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1995 C 5
LAUGARDAGUR 7/1
MYNDBÖIVID
Sæbjöm Valdimarsson
SÚ GAMLA
KEMUR í HEIM-
SÓKN
HROLLVEKJA
Sijúpan (“The Stepmother")
kk
Leikstjóri Jorge Montesi. Hand-
rit Julie Moskowitz og Gary
Stephens. Aðalleikendur Diane
Ladd, Wendel Meldrum, Geraim
Wyn Davies, Illya Woloshyn,
Ingrid Veninger. Kanadísk
kapalmynd. Hearst Entertainm.
1993. Myndform 1994.90 mín.
Aldurstakmark 16 ára.
Það leikur allt í lyndi hjá Susan
og Jack Nolan.
Hann er læknir,
hún listfræðing-
ur, alin upp hjá
elskandi stjúp-
foreldrum. En
dag nokkurn
hringir síminn,
hin raunveru-
lega móðir
hennar er komin
til skjalanna eft-
ir öll árin. Heitir hún Edie (Diane
Ladd) og von bráðar er hún sest
að á heimilinu, búin að koma stjúð-
móðirinni fyrir og berst við að
fylla hennar pláss. En doktor Jack
fer að gruna ýmislegt miður gott
hvað snertir hinn nýja, dularfulla
fjölskyldumeðlim.
Þetta væri notalegasta hroll-
vekja ef The Hand That Rocks
The Cradle, og allar þær systur,
hefðu aldrei verið gerðar. Hand-
ritshöfundarnir fingralangir í
meira lagi. Myndin hefur þó eitt-
hvað til síns ágætis, einkum hina
ágætu skapgerðarleikkonu Diane
Ladd, sem fer sérdeilis vel að leika
kexruglaðar, miðaldra konur, allar
hinar undarlegustu. Hún fær tals-
verðan stuðning frá leikonunni í
hlutverki Susan og tónlistin
skemmir ekki stemmninguna, þó
kunnugleg sé. Sem sagt, fátt um
frumlegheitin en engu að síður á
Stjúpan (ath. að nafngiftin og
textinn aftan á kápunni er gjör-
samlega útí hött, verið að reyna
að tutla inná vinsældir annarrar,
kanadískar myndar - semsé The
Stepfather) á sín augnablik, heldur
a.m.k. öllum hrollvekjuvinum
bærilega við efnið, þó svo að okk-
ur sé boðið hér í ferðalag á fornar
slóðir.
DREKARAUIMIR
BARNAEFNI
Drekaheimur (“DragonworId“)
k Vi
Leikstjóri og handrit Ted Nicol-
aou. Aðalleikendur Sam Mack-
enzie, Brittney Powell, John
Calvin, Lila Kaye, John Wood-
vine, Courtland Mead, Andrew
Keir. Bresk. Moonbeam Prod.,
1993. CIC myndbönd 1994.83
mín. Öllum leyfð.
Litlum, bandarískum dreng er
komið fyrir hjá
óðalseigandan-
um, afa sínum í
Skotlandi, er
hann missir for-
eldra sína í slysi.
Þar kynnist
hann litlu dreka-
barni (já, dreka-
barni, þið vitið
að það er margt
dularfullt á
slæðingi hjá skotum, á láði sem
legi!) sem er þarna á vappi um
heiðamar og tekst vinátta með
þeim einstæðingunum. Árin líða.
Sveinninn orðin gjafvaxta, óðal
feðra hans á hvínandi kúpunni,
kvikmyndatökumaður kemur í
heimsókn ásamt undurfríðri dóttir
sinni. Uppgötvar drekann, skuld-
imar og er nú skrýmslið selt fyrir
sköttum og skuldum, en samviskan
nagar vin hans í sveitinni.
Það er engin spurning að dreka-
garmurinn hefði umsvifalaust lent
í ruslatunnunni hjá Spielberg, en
það er ólíku saman að jafna.
Drekaheimur er ósköp lítil og lágk-
úruleg, bresk barnamynd, þar sem
er blandað saman leiknum atrið-
um, brúðum í nokkrum stærðum
og teikningum. Aðalstjarna mynd-
arinnar er þó engu að síður svip-
fagurt og búsældarlegt umhverfíð
í Skotlandi og nokkuð reffilegur
leikur Andrew gamla Keirs í hlut-
verki vonda bísnesskallsins sem
selja vildi aðgang að drekasköm-
minni. Lítilfjörlegt ævintýri, efnið
álappalegt en meiningin góð og
hugnast örugglega yngri börnun-
um á bænum.
VARASAMUR
TÖLVULEIKUR
SPENNUMYND
Sýndarveruleiki (“Brainscan “)
k Vi
Leikstjóri John Flynn. Handrit
_/Mitchel Roy. Aðalleikendur
Edward Furlong, Frank Lan-
gella, Amy Hargreaves, T. Ryd-
er Smith. Bandarísk. Summit
Ent., 1994. Myndform 1994.90
mín. Bönnuð yngri en 16 ára.
Pilturinn Michael (Edward Furl-
ong) hefur fjár-
fest í nýjasta
leiktækjaundr-
inu, tölvuleik
sem byggist á
sýndarveruleik-
anum. Fljótlega
kemur í ljós að
hann er einskon-
ar galdratæki og
reynist ekki síð-
ur raunverlegur
en veruleikinn sjálfur. Einkum og
sér í lagi þegar að líkin fara að
hrannast upp.
Myndir byggðar á tölvuleikjum
sem taka uppá þeim skratta að
blanda sér í raunveruleikann, ger-
ast æ algengari og þessi er nánast
ein, samfelld klisja. Reynt að
dubba uppá framleiðsluna með
nýrri útgáfu af karlófétinu sem
kennt er við Álmstræti - Harry
Krueger. Hálf dapurt að sjá að
stráknum úr hinni feykivinsælu
Terminator 2, Edward Furlong,
hefur ekki tekist að fylgja því
ágæta hlutverki eftir. Þá eru enn
meiri vonbrigði að sjá til Frank
Langella í svona dóteríi, þegar
maður hélt hann væri loks farinn
að ná fótfestu á ný á hvíta tjaldinu.
BÍÓMYIMDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
Hetjan hann pabbi („My Father
the Hero“) kk 'A
87 mín. Öllum leyfð
Gerard Depardieu stelur þessari
laufléttu gam-
anmynd með
húð og hári í
hlutverki föður
fjórtán ára
stelpuhnátu sem
hyggst slá um
sig á réttum
stöðum með því
að segjast vera
viðhald karlsins.
Það er nú einu
sinni svo að Depardieu er víðs fjarri
því að vera á heimavelli í Banda-
rískum myndum og kemur það til
með að hindra það að hann verði
ámóta stórstjarna í Vesturheimi
sem í Evrópu. Sem fyrr segir, er
hann þó augnagaman að vanda þó
annað sé heldur slakt.
ÆSKUMYNDIN
BER einhver kennsl á eftirfarandi einstaklinga sem
þekktir eru fyrir söng eða kvikmyndaleik?
U3ddl3dd 3H3H3IIN U3NUm VNIl 3NO±S NOUVHS
QUOd NOSIUUVH QOOJVU.SV3 INIIO NOS10H3IN MOVf
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.50 Bæn: Séra Karl Sigurbjörns-
son flytur. Snemma á laugar-
dagsmorgni. Þulur velur og
kynnir tðnlist. 7.30 Veðurfregn-
ir.
8.07 Snemma á laugardags-
morgni heldur áfram.
9.03 Með morgunkaffinu - Létt
lög á laugardagsmorgni.
10.03 Frá liðnum dögum. Kathleen
Ferrier syngur,
— Frauenliebe und. leben, Bruno
Waiter leikur með á píanó.
Hljóðritað á Edinborgarhátið
1949.
— Þjóðlög frá Bretlandseyjum,
Phyllis Spur ieikur með á pianó.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 I vikulokin. Umsjón: Logi
Bergmann Eiðsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dag-
skrá laugardagsins.
12.45 Veðurfregnir og auglýsing-
ar.
13.00 Fréttaauki á laugardegi.
14.00 Hringiðan. Menningarmál á
líðandi stund. Umsjón: Halldóra
Friðjónsdóttir.
16.05 Islenskt mál. Umsjón: Jón
Aðalsteinn Jónsson. (Endurflutt
nk. miðvikudagskvöld kl.
21.50.)
16.30 Veðurfregnir.
16.35 Portrett af Hauki Tómas-
syni.
— Eco del passato, fyrir flautu og
sembal. Áshildur Haraldsdóttir
og Anna Magnúsdóttir leika.
— Kvartett II Caput sveitin leikur.
— Strati, verðlaunaverk Tónvak-
ans 1993, Sinfóníuhljómsveit
íslands leikur; Páll P. Pálsson
stjórnar.
17.10 Krónika Þáttur úr sögu
mannkyns. Umsjón: Þorgeir
Kjartansson og Þórunn Hjartar-
dóttir. (Endurfluttur á miðviku-
dagskvöldum kl. 21.00.)
18.00 Djassþáttur Jóns Múla
Árnasonar. (Einnig útvarpað á
þriðjudagskvöld kl. 23.15.)
18.48 Dánarfregnir og auglýsing-
ar.
19.30 Auglýsingar og veðurfregn-
ir.
19.35 Óperukvöld Útvarpsins. Frá
uppfærslu Metropolitanóper-
unnar í New York 17. desember
si. Rigoletto eftir Giuseppe
Verdi. Flytjendur: Gilda: Sumi
Jo. Maddalena: Wendy White.
Hertoginn af Mantúu: Ramon
Vargas. Rigoletto: Juan Pons.
Sparafucile: Sergei Koptchak.
Kór og hljómsveit Metrópólit-
anóperunnar; Christ.ian Badea
stjórnar. Umsjón: Ingveldur G.
Ólafsdóttir.
22.07 Tónlist á síðkvöldi.
— Harmónikkulög úr ýmsum átt-
um. Bragi Hlíðberg leikur.
22.27 Orð kvöldsins: Kristtn
Sverrisdóttir fiytur.
22.35 Norrænar smásögur: Sóttin
í Bergamo eftir l.P.Jacobsen.
Eyvindur P. Eirfksson les þýð-
ingu sína. (Áður á dagskrá 9.
desember sl.)
23.40 Dustað af dansskónum.
0.10 Fimm fjórðu. Djassþáttur í
umsjá Lönu Kolbrúnar Eddu-
dóttur. (Áður á dagskrá í gær)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns. Fróttir ó RÁS I
og RÁS 2 kl. 7, 8, 9, 10, 12.20, 16,
19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.05 Barnatónar. 9.03 Laugar-
dagslif. Umsjón: Hrafnhildur Hall-
dórsdóttir. 12.45 Helgarútgáfan.
Umsjón: Lisa Páls. 16.05 Heims-
endir. Margrét Kristín Blöndal og
Sigurjón Kjartansson. 17.00 Með
grátt f vöngum. Gestur Einar Jón-
asson. 19.30 Veðurfréttir. 19.32
Vinsældalisti götunnar. Umsjón:
Ólafur Páll Gunnarsson. 20.30 Úr
hljóðstofu BBC. Umsjón: Andrea
Jónsdóttir. 22.10 Næturvakt Rásar
2. Umsjón: Guðni Már Hennings-
son.
NÆTURÚTVARPID
1.30 Veðurfregnir. Næturvakt rás-
ar 2. 2.00Fréttir. 2.05 Rokkþáttur
Andreu Jónsdóttur.4.30 Veður-
fréttir. 4.40 Næturlög halda'áfram.
5.00 Fréttir. 5.05 Stund með Ro-
bertu Flack. 6.00 Fréttir, veður
færð og flugsamgöngur. 6.03 Ég
man þá tíð. Hermann Ragnar Stef-
ánsson. (Veðurfregnir kl. 6.45 og
7.30). Morguntónar.
AÐALSTÖDIN
90,9/ 103,2
9.00 Sigvaldi Búi. 13.00 Á mjúku
nótunum með Völu Matt. 16.00
Jenný Jóhannsdótir. 19.00 Magnús
Þórsson. 21.00 Næturvakt Aðal-
stöðvarinnar.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morguntónar. 9.00 Morgunút-
varp með Eiríki Jónssyni. 12.10 I
jólaskapi, Valdís Gunnarsdóttir og
Jón Axel Ólafsson. 16.00 íslenski
listinn. Umsjón: Jón Axel Ólafsson.
19.00 Gullmolar. 20.00 Laugar-
dagskvöld á Bylgjunni. Umsjón:
Halldór Backman. 23.00 Hafþór
Freyr Sigmundsson. 3.00 Nætur-
vaktin.
Frétlir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRDI
FM 97,9
9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9.
20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson
og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar
Atli með næturvakt. Síminn í hljóð-
stofu 93-5211. 2.00 Samtengt
Bylgjunni FM 98.9.
BROSID
FM 96,7
10.00 Lára Yngvadóttir. 12.00
Ókynnt tónlist. 13.00 BöðvarJóns-
son og Ellert Grétarsson. 17.00
Ókynnt tónlist. 22.00 Næturvakt-
in. 3.00 Næturtónar.
FM 957
FM 95,7
9.00 Steinar Viktorsson. 11.00
Sportpakkinn. Hafþór Sveinjóns-
son og Jóhann Jóhannsson. 13.00
Sigvaldi Kaldalóns og Haraldur
Daði. 17.00 American top 40.
21.00 Ásgeir Kolbeinsson. 23.00 Á
lífinu.
TOP-BYLGJAN ,
FM 100,9
7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP-
Bylgjan. 11.00 Samtengt Bylgj-
unni FM 98,9.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
12.00 Ragnar Blöndal. 14.00 X-
Dómínóslistinn. l7.00Þossi. 19.00
Party Zone. 22.00 Nætur-
vakt .03.00 Næturdagskrá.